Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1993, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1993, Side 12
FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993 T>V Sóðaskapurí Grjótaþorpi Oddur hringdi: Það er um helgar sem þessi hluti af annars friðsælum íbúa- reií Revkjavikur fær á síg allt annað en virðuleganblæ. Er þeir vakna að morgni laugardags og sunnudags þurfa íbúarnir að þoia hinn mesta sóðaskap. - Þannig var það sl. laugardag. Glerbrot qg rusl uti um allt eftir nóttina. Ég hringdi í neyðarsíma lögreglu, hreinsunardeild borgarinnar og bakvakt hjá borginni í von um aðstoð en það var fyrst í morgun (mánud. 16.) sem bíll sópaði upp glerinu og öðrum óþverra hér. - Þetta þarfnast lagfeeringar. ErFrankSinatra úrleik? Íiis hringdi: _ Það var fimmtud. 12. ágúst sl. Ég hafðí af tilviljun stillt á rás 2 þar sem leikið var lag með Frank Sinatra. Maður lokar nú ógjarn- an fyrir slíka tónlist. - En mér brá þegar umsjónarmaður þátt- arins afkynnti lagið með þeim ummælum að þetta heíði nu verið Frank Sinatra sem hefði karmski verið góður í eina tíð en sjarm- eraöi nu varla aöra en gamlar konur lengur. Þetta flnnast mér harla ósmekkleg ummæli um jafn frægan og dáðan söngvara og er enn í miklu uppáhaldi hjá milljónum manna. - Sannleikur- inn er nefnilega sá að þeír rar tón- listar, sem Frank Sinatra og aðrir líkir listamenn standa fyrir - t.d. hinnar rólegu og fáguðu tónlistar flórða, fimmta og sjötta áratugar- ins, er sárt saknað í útvarps- stöðvum hér. MeðaHtáhreinu Ágúst skrifar: Vegna stríðshörmunganna í fyrrum Júgóslaviu eru nálægar þjóðir byrjaöar að taka á móti særðum og sjúkum bömum til aðhlynningar. Getum við íslend- ingar aldrei gert neitt af þessu tagi? Ekkert gert nema tekið við heilbrigðu og hraustu fólki til aö sefjast að hér. Aldrei gert neitt sem kemur við kaunin? ísland og íslendingar þykjast jú vilja hafa „allt á hreinu“. En er það okkar eina mottó? Og hvað er svo á hreinu í þessu blessaða landi? Við höfum bærileg efni á því að taka við svo sem 20-30 slösuöum og hlynna að þeim. Okkur er ekkert vandara um en öðrum. VSKaferlendu tímaritunum Ingólfur hringdi: Dæmalaust klúður er þetta með erlendu tímaritin og virðisauka- skattinn. Linni ekki taki ríkisins á þessum greiðslum frábiðja menn sér hreinlega áskrift að öll- um eríendum tímaritum. Auðvit- að má aínema virðisaukaskattinn af hinum crlendu ritum þótt hann haldist á hinum islensku. Þetta er tvennt ólíkt. Fólki veröur ekki stefnt á pósthús sérstaklega til að greiða „VSK“. Auk þess er verðið á erlendu ritunumoft tilboðsverö og undir skráningarverði. Sparnaðmá víðaauka Eiríka A. Friðriksd. hringdi: Það hefur veriö ákveðið að stytta kennslu ungbama og á það að spara þjóðfélaginu einltverja fjárupphæð. En viða er eytt og víða má spara, Ég sé td. hér í: hverfinu hjó mér að götuljós eru látin loga allan daginn. Mættí nú ekki spara þessi ljós um hábjart- an daginn og nota þá kannski þann sparnaö til að halda í fyrrí kennslustundafjölda bama sem skorinn var niður? Spumingin Ætlarðu að taka þátt í Reykjavíkur-Maraþoninu? Óskar Haraldsson: Nei, það er útilok- að mál. Ég er ekki nokkurri æfingu. Lesendur Kindakjöt í þróunarverkefni“ Niðurhlutun kindakjöts er ekki hægt að flokka undir þróunarverkefni, að mati bréfritara. Pétur Guðmundsson skrifar: Ég las í Tímanum að til stæði að senda íslenskt kindakjöt í „neytenda- pakkningum" til Evópubandalags- landanna. Hingað til hefur dilkakjöt verið flutt út í heilum skrokkum og var það niðurgreitt af ríkinu. Nú hafa þær greiðslur lagst af og því á aö reyna að fá hærra verð fyrir kjöt- ið niðurhlutað í neytendapakkning- um. - Þetta kemur fram í ummælum kaupfélagsstjóra Austur-Skaftfell- inga. Hann bætir við og segir að von sé á fulltrúa frá EB sem ætli að yfir- fara aðstöðu sláturhúss kaupfélags- ins og kjötvinnslu vegna þessarar fyrirhuguðu sölu. Þetta er auövitað af hinu góða. Löngu fyrr hefðu bændur átt að þrýsta á sölu kindakjöts öðmvísi en í heilum skrokkum. Það er þó ekki fyrr en búið er að vinna íslenskt kinda- eða lambakjöt, að einhverju marki a.m.k., að það verður einhvers virði sem skiptir máli. Ég er bara hræddur um aö þetta kunni að vera orðið of seint. Ef fyrirhuguö verk- smiðja á fríiðnaðarsvæðinu við Keflavík kemst á fót með þá fram- leiðslu sem þar er fyrirhuguð verður erfitt að útvega henni það hráefni sem hún þarfnast, miðað við það magn sem talað er um í fréttum, kannski um 5000 tonn sem er helm- ingur allrar kjötframleiðslunnar. Nema hún áætli líka framleiðslu úr nautakjöti. Ekkert liggur fyrir um það á þessu stigi. Það er svo þetta með „neytenda- pakkningarnar“. Þær eru svo marg- víslegar. Ef sláturhús Kaupfélags Austur-Skaftfellinga er að gæla við þá hugmynd að niðurhiutað kinda- kjöt í staö heilu skrokkanna - þótt minna magn sé í hverri pökkunar- einingu - flokkist undir „neytenda- pakkningu" þá er það misskilningur sem leiðrétta þarf snarlega svo að Framleiðnisjóður landbúnaðarins eða landbúnaðarnefnd Alþingis fari ekki að eyða fé í þetta sem eitthvert nýtt þróunarverkefni (eins og fram kemur í Tímafréttinni að standi til að gera). Að hluta niður kindakjöt til að setja í umbúðir er ekki hægt að kalla þró- unarverkefni. - Eigi að framleiða rétti: annars vegar tilbúna til mat- reiðslu, t.d. meö kryddi og öðru til- heyrandi, eða hins vegar tilbúna til upphitunar er um einhvers konar þróun að ræða fyrir íslendinga þótt þessi vinnsla á kjöti sé ekki lengur á þróunarstigi og sé þekkt um allan heim. Sjónvarpsumræður um sauðkindina: Rollurnar eru ekki alls staðar Gunnar Gíslason skrifar: Ég horfði á umræðuþátt í Sjón- varpinu um sauðkindina og gróður- eyðinguna. Ég hafði nú svolítið gam- an af þessum þætti. Það er nú ein- hvern veginn svo að sauðkindin og landbúnaðurinn yfirleitt kemur okk- ur öllum dálítið við . - Mér fannst t.d. Guðbergur Bergsson rithöfundur fara alveg á kostum. Ég bý úti á landi þótt ég.sé ekki bóndi og ég hef fylgst nokkuð með þessum málum. Þess vegna fannst mér sumt í umræðunni vera svolítil tímaskekkja. Sauðkindin er ekki lengur alls staðar. Það er liðin tíð að rollur séu valsandi út um allt og bíti þar sem þeim sýnist. Beitinni er nú stjómað og fóðrun og allt aðhald á nútíma búum er allt öðruvísi en þegar við, miðaldra fólk- ið, vorum krakkar í sveit. Þá vorum við t.d. kiippt á vorin og svo ekki aftur fyrr en að sveitadvölinni lauk, undir haustnætur. Flest annað hefur tekið breytingimi. En aftur að sjónvarpsþættinum. - Stjómandinn var greinilega óvanur en ekki ber að dæma menn vegna reynsluleysis. Fólk þyrfti sennilega að fá einhverja æfingu í fundarstjórn áður en þaö er sett beint í stjóm umræðuþátta í sjónvarpssal. Jón Stefán Malberg: Nei, það hef ég aldrei gert. Dagmar Lóa Hilmarsdóttir: Nei, ör- ugglega ekki. Arngunnur Jónsdóttir: Hef ekki heilsu til. Ágúst Erlingsson: Nei, ég er ekki svo mikill hlaupagarpur. Hrafnkell Sveinbjörnsson: Nei, ails ekki. -<L Lausn Litla-Hrauns-vandans Lausnin er að flóðlýsa hverja hlið hælisins og koma fyrir myndavélum og sjónvarpsskjám fyrir fangaverði. S. Sigurbrandsson skrifar: Þótt ég sé ekki kunnugur staðhátt- um á Litla-Hrauni að neinu leyti ætla ég samt sem áður að benda á varan- lega lausn á vanda þess hvað viðkem- ur stroki frá hælinu. Eflaust munu einhverjir fyrtast við slíkri fram- hleypni ókunnugs manns. En ef lesiö er áfram kemur í ljós að engin þörf er á að kunna á hælinu skil. - Nóg er að hafa örlitla innsýn í hegðun nútímamannsins og tækni hans. Lausnin felst sem sé í því að flóð- lýsa hverja hlið hælisins vel og vand- lega. Til þess þyrfti ekki nema nokkra ljóskastara. Gott ef ekki em nokkrir kastarar á svæöinu nú þeg- ar, svo þá mætti auðveldlega nýta. Minnsta verk ætti svo að vera að setia unn myndavélar sem næðu inn Hringiðísíma 63 27 OO milli kl.l4ogl6-eðaskrifið Nafn og símanr. vortur aö fylgja btöfum mynd hverrar hliðar hælisins og flöt- um umhverfis. Þessar myndavélar vörpuðu svo myndum sínum í sjón- vörp, staðsett í vistarverum fanga- varða. Hið byltingarkenndaa í þessari annars vel þekktu lausn er aö raða sjónvörpum þeim er varpa myndum frá garði og útveggjum hælisins um- hverfis eigið sjónvarp sem tengt er dagskrá íslensku sjónvarpsstöðv- anna. Það myndi tryggja örugga gæslu öll kvöld svo lengi sem dag- skrár sjónvarpsstöðvanna vara. Ekki liði á löngu þar til sólarhringsgæsla yrði á svæðinu, eða um það leyti sem endurvarp frá erlendum sjónvarps- stöðvum hæfist. Þessi lausn er bæði hagkvæm og ódýr. Hvorki þyrfti að ráða fleiri fangaverði né aö leggja út í óhemju kostnað við að byggja nýtt fangelsi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.