Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Side 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur. _______________________________________________________________________________
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993.
r
Átta frysti-
togarar ætla
■ að þraukaí
Smugunni
Átta íslenskir togarar, allt frysti-
togarar, voru ennþá viö veiðar í
Smugunni í Barentshafi í morgun.
Samkvæmt upplýsingum frá einum
skipstjóranna í morgun haföi norska
strandgæslan ekkert komiö um borð
í íslensku togarana í tvo sólarhringa.
Hins vegar bárust þær fréttir aö
smáfiskur væri ennþá í þeim afla
sem togararnir hafa veriö aö fá á síö-
asta sólarhring.
Eftir því sem DV kemst næst hyggj-
ast skipstjórarnir á togurunum
_ „þrauka“ áfram í Smugunni - það
sé úr því sem komið er jafngott og
aö veiða á íslandsmiðum. Um tveir
tugir togara eru nú á heimleið. Þó
aö ísfisktogaramir hafi margir
hverjir ekki aflað vel miöaö við þá
vegaíengd sem sigld var á miðin
þurfa þeir nú að koma aflanum sem
fékkst í vinnslu í landi.
-Ótt
Sighvatur Bjamason:
- Kannski
sjóræningjar
enekki
villintenn
- ekki til Bjamareyjar
„Það er aldrei að vita hvað við ger-
um. Ég ætla að fá togarann heim og
fara yfir málin með skipstjóranum
og meta hvort það sé forsvaranlegt
að fara aftur," sagði Sighvatur
Bjarnason, útgerðarmaður í Vest-
-r mannaeyjum, sem gerir út ísfisktog-
arann Breka sem er á heimleið úr
Smugunni.
Sighvatur segist harma að upp úr
slitnaöi í viðræðum Norðmanna og
íslendinga í gær. „Sjálfur bjóst ég
reyndar ekki við öðru, miðað við
hvernig Norðmenn hafa komið fram
á sviði sjávarútvegsmála. Mér finnst
bara hræðilegt að þjóðirnar skuh
ekki geta sest niður og tekið tillit
hvor til annarrar. Eins og ég hef sagt
að það er sjálfsagt að við bökkum
út úr Smugunni gegn því aö við fáum
frið hér heima með hvaða stofn sem
er. Á meðan þeir geta ekki virt það
sé ég ekki ástæðu til að koma til
móts við þá.“ - Hyggist þið senda
, togara á svæðið við Bjarnarey? „Þó
það megi kalla okkur sjóræningja
erum við ekki villimenn."
-Ótt
LOKI
Hver er munurinn á sjóræn-
ingjum og villimönnum?
Ný þjónusta viö lesendur:
Verulegur af-
slátturmeð
kjaraseðlum DV
-flóra daga vikunnar - veitir allt að 15.400 kr. afslátt
Frá og með deginum í dag bjóð-
ast lesendum D V svokallaðir kjara-
seðlar í blaðinu sem veita afslátt
af vöruverði fjölbreyttra verslana.
í tilefni dagsins eru 16 kjaraseðlar
i miðopnu blaðsins í dag sem veita
frá 1.000 til 15.400 kr. afslátt af
margs konar vörum. Má sem dæmi
nefna hljómflutriingstæki, hæg-
indastóla, skólatöskur, úlpur og
gólfilísar.
Framvegis verða svo tveir kjara-
seðlar í blaðinu alla þriðjudaga,
miðvikudaga, fimmtudaga og
föstudaga. Það eina sem lesendur
þurfa að gera er að klippa þá út og
framvísa i viökomandi verslun.
Með kjaraseðlunum vill DV koma
til móts við neytendur og aðstoða
þá við að draga úr útgjöldum heim-
ilisins. Þetta ætti því að vera kær-
komin búbót og kröftug spamaðar-
leið.
Ný áskriftargetraun
Einnig hefst í byrjun september
ný áskriftargetraun í DV sem
stendur til áramóta. Dregin verða
út nöfn fiögurra skuldlausra
áskrifenda í september og október
en í nóvember og desember verður
vinningshöfunum fiölgað í sex.
Vinningamir verða á verðbilinu
arandi: frystiskápur frá Fönix,
sjónvarpstæki frá Faco, Ronning,
Sjónvarpsmiöstöðinní og Radió-
búðinni, þvottavél frá Pfaff, lújóm-
tækjasamstæður frá Takti,
Hljómbæ og Radíóbæ, sófasett frá
T.M. og T.S. húsgögnum, litatölva
frá Apple umboðinu, hrærivél og
örbylgjuofn frá Einari Farestveit,
hrærivél og uppþvottavél frá Húsa-
smiðjunni, myndbandstæki frá
Japis, þvottavél frá Bræðrunum
Ormsson og heimilistæki frá
Heimskringlunni, Heimilistækjum
og Borgarljósum.
í miðopnu blaðsins í dag eru 16 kjaraseðlar sem lesendur DV geta klippt út og framvisað I verslunum. Þeir veita
frá 1.000-15.400 kr. afslátt af jafnt stórum hlutum sem smáum. Framvegis verða svo tveir kjaraseðlar í blaðinu
fjóra daga vikunnar en þannig vill DV aðstoða lesendur við að draga úr útgjöldum heimilisins. Sjá bls. 20 og 21.
DV-mynd JAK
Veðriðámorgun:
Rigning með
suðvestur-
og vestur-
Suðaustan 4-6 vindstig og rign-
ing með suðvestur- og vestur-
ströndinni en annars hægari
vindur og þurrt. Hiti 8-16 stig.
Veðrið í dag er á bls. 36
Tveir teknir
meðloft-
byssu
Lögreglan í Reykjavík handtók tvo
unga menn á Skeggjagötu í nótt og
lagði hald á loftbyssu, sem svipaði
mjög til 9 mm skammbyssu, og skot-
færi í hana eftir leit í bíl sem þeir óku.
Mennirnir höfðu verið að sveifla
byssunni fyrir utan veitingahúsið
Glaumbar í nótt og tilkynnti vegfar-
andi lögreglu um athæfið. Var bíln-
um sem mennirnir óku veitt eftirför
og hann stöðvaður við Skeggjagötu
eins og fyrr segir. Þeir neituðu í
fyrstu að kannast við að hafa sveiflað
byssu en heimiluðu svo leit í hílnum
þar sem vopnið fannst.
-PP
Sjómaður á
höfuð- ,
kúpubrotnaði ’
Emil Thorarensen, DV, Eskifirði:
Háseti á loðnuskipinu Hólmaborg
slasaðist um borð í skipinu þar sem
það lá í Eskifiarðarhöfn síðdegis í
gær.
Flugvél frá Flugfélagi Austurlands
flutti hinn slasaða ásamt lækni frá
Eskifirði til Reykjavíkur í gærkvöldi.
Hásetinn hggur nú á Borgarspítalan-
um og reyndist vera höfuðkúpubrot-
mn.
Stýrimaður á Ými:
Menn hljóta
að f ara að
gefast upp
„Þetta er voðalega rólegt, nánast
ekki neitt. Lestarnar eru jafn tómar
og þegar farið var að heiman. Reynd-
ar vorum við með síðustu skipum
og það litla sem var var búið þegar
við komum,“ sagði stýrimaður á
frystitogaranum Ymi, sem er í Bar-
entshafi, í samtali við DV í morgun.
„Ég held að menn hljóti nú að fara
að gefast upp. En svo getur auðvitað
gossað upp fiskirí hérna. En það er
bara svo kalt hér. Þetta er pínulítill
blettur í sjónum þar sem einhver
hitaskil eru. Við höldum bara hóp-
inn. Veðrið hefur verið einstakt.
Þetta hefur verið eins og á Jóns-
messunótt. Við biðjum fyrir bestu
kveðjur heim,“ sagði stýrimaðurinn.
-Ótt