Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1993, Page 14
14
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993
Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVHINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk.
Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk.
Hin írska skálmöld
Hér rétt handan viö hafið býr þjóð sem um margt lík-
ist íslendingum. írar eru eyjarskeggjar eins og við og líkj-
ast okkur í sjálfsbjargarviðleitni og athafnasemi, þjóðleg-
um metnaði og jafnvel í úthti, enda mun fólk af keltnesk-
um uppruna hafa átt meiri þátt í landnámi íslands en
sögur almennt greina frá.
Þess heldur sem við finnum til margvíslegs skyldleika
með Irum er okkur óskiljanleg sú skálmöld sem þar rík-
ir. Síðasta sprengjutilræði írska lýðveldishersins er með
óhugnanlegustu atburðum síðustu ára og hefur þó margt
hræðilegt gerst í þeim átökum. Tíu manns létu lífið í
sprengingu sem varð í fiskbúð í Belfast, þar á meðal sak-
laus böm. Breytir engu þótt talsmenn IRA hafi játað að
mistök hafi átt sér stað. Þeir halda áfram iðju sinni og
nú síðast komu þeir fyrir sprengjum við jámbrautar-
stöðvar í vesturhluta Englands þar sem mikill fjöldi fólks
á leið um.
Sprengjuárásin við fiskbúðina var hefndarráðstöfun
kaþólskra efdr miskunnarlaus manndráp öfgafullra
mótmælenda og aftur hafa mótmælendur þurft að hefna
sín með morðum á saklausum borgurum. Óttast menn
að alda víga og voðaverka fylgi í kjölfarið og ógnaröld
sé framundan á írlandi.
Nú er þess að geta að þorri allra íra, hvort heldur er
á Norður- eða Suður-írlandi, er friðsamt og sómakært
fólk sem hefur mestu andstyggð á því blóðbaði sem öfga-
hópamir standa fyrir. Engu að síður virðast ætíð finnast
einstaklingar og hópar manna þar í landi sem eru reiðu-
búnir að vinna slík hermdarverk í þeirri trú að það sé
málstað þeirra til framdráttar. Það er alið á hatri og þjóð-
rembingi og trúarlegu ofstæki og í því hggur meinið að
hatrið er ræktað og í kraffi hatursins og hefndarinnar
eru ódæðin framin.
Þau virðast engan enda ætla að taka. Hversu mörg
mannslíf sem í tafh em. Hversu lengi sem menn reyna
að þoka málum til samkomulagsáttar.
Hér verður ekki gerð neiri tilraun til að benda á auð-
veldar lausnir enda ekki fyrir hendi. Hitt er víst að hinir
stríðandi aðhar bæta ekki samningsstöðu sína eða knýja
á um niðurstöður sér í hag meðan sprengjum rignir og
saklausum er fómað. Það semur enginn undir hótunum.
Englendingar standa ráðþrota gagnvart þessum vanda
og vhdu fegnir vera lausir við hann. Það er hins vegar
vhji Norður-íra og mótmælenda að thheyra breska sam-
veldinu og ekki á valdi annarra að knýja þann mikla
meirihluta th þess að gangast undir aðra trú og aðra
stjóm. Allra síst em sættir líklegar meðan morðóðir of-
stækismenn læðast í felum aftan að fólki th að ógna því
og deyða.
Öh sú grimmd sem fram kemur í ógeðslegum og
hörmulegum aðgerðum IRA og öfgafullra mótmælenda
er okkur framandi, nágrönnum þessa vinalega fólks. Hér
er um siðmenntaða þjóð að ræða, með ríka kímnigáfu,
almenna og eðhlega dómgreind, og hún á nóg með sína
daglegu lífsbaráttu. Hvað er það sem rekur ofstækið
áfram og elur á því? Þjóðrembingurinn, svoköhuð sjálf-
stæðisbarátta, trúarleg bhndni, allar þær hvatir sem
hafa í rauninni verið undirrót stríðsátaka og blóðsútheh-
inga í Evrópu um aldir.
Þessir atburðir kenna okkur hversu trúarofstæki og
misskihð þjóðemisstolt getur dregið fólk á tálar og sýkt
hehu þjóðfélögin. Við upplifum verstu hhðar þeirra öfga
sem brjótast fram í nafni ættjarðarástar og trúarbragða.
Hvhík synd, hvhík skömm. Ehert B. Schram
Óraunhæfar
sparnaðaraðgerðir
Allt frá því aö núverandi ríkis-
stjóm tók við völdum hef ég oft
gagnrýnt aöferðir fv. heilbrigðis-
ráöherra, Sighvats Björgvinssonar,
til að spara í heilbrigðiskerfinu. í
gagnrýni minni hef ég ekki síst lagt
áherslu á þá staðreynd að ekki hef-
ur verið um raunverulegan sparn-
að að ræða - miklu frekar tilfærslu
á sköttum.
Vonir voru bundnar við breyttar
áherslur með nýjum ráðherra en
Guðmundur Árni Stefánsson virð-
ist ætla að fara nákvæmlega í hjól-
for Sighvats, þrátt fyrir stór orð er
hann hafði áður látið falla.
Biðlistar lengjast
Sighvatur fékk Ríkisendurskoð-
un til að gera fyrir sig úttekt á
spamaði hjá sjúkrahúsum lands-
ins. Með skýrslunni var það ætlun
hans að sanna að „spamaður"
hefði ekki komið niöur á þjónustu
sjúkrahúsanna og biðlistar hefðu
ekki lengst. En eins og margt annað
hjá núverandi ríkisstjóm stóðst
það ekki nákvæma athugun, enda
erfitt að meta langtímaáhrif niður-
skurðarins sem nú era að koma í
ljós.
Einstaklingum á biðhsta eftir að-
gerðum hefur fjölgað á hálfu ári
úr 390 í 520. Ástandið er svo alvar-
legt aö Ragnar Jónsson, sérfræð-
ingur á Slysa- og bæklunardeild
Borgarspítalans, segir í nýlegri
blaðagrein að biðtími eftir helstu
aðgerðum bæklunarlækna sé nú
orðinn svo langur aö árangur
ýmissa aðgerða sé í hættu. Einnig
segir læknirinn að talsverö hætta
sé á aö ýmsar nýjungar, svo sem
hryggjarskurðlækningar, muni
lognast út af í nafni sparnaðar.
Grein læknisins styður það sem
ég hef haldið fram á Alþingi und-
anfarin ár. Heilbrigðisráðherra
hefur hvað eftir annað kastað
krónunni en sparað eyrinn. Það
hefur nefnilega gleymst að „marg-
ar bæklunaraögerðir fela í sér
beinan fjárhagslegan ávinning,
breyta óvinnufæmm einstaklingi í
vinnufæran, rúmfóstum í rólfær-
an“, svo vitnað sé í grein læknisins.
Vanhugsaðar aðgerðir
Ég hef áður lýst þeim áhuga mín-
um að hið opinbera takist á við
kerfisbreytingar en ráðherrar láti
ekki sijórnast af vanhugsuðum,
fljótfærnislegum aðgerðum. Um
slík vinnubrögð era mýmörg
dæmi. Hugmyndir hins nýja heil-
brigðisráðherra varðandi leikskóla
sjúkrahúsanna eru í þeim anda -
fljótfærnislegar og illa undirbúnar.
Sjálfur er ég sammála því að sveit-
arfélög annist rekstur leikskólanna
en eins og nú er unnið er afar ólík-
legt að hugmyndir heilbrigðisráð-
herra nái tilætluðum árangri.
Breyting af þessu tagi tekur hins
vegar langan tíma og hún þarf góð-
an og vandaöan undirbúning. Hún
Kjállariim
Guðmundur Bjarnason
þingmaður Framsóknar-
flokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra
Heilsukortin
Heilsukortin era gott dæmi um
örvæntingarfulla leit að nýjum
tekjulið - og það er ljóst að þama
er nýr skattur á ferð. Eins og marg-
ar aðrar aðgerðir ríkisstjómarinn-
ar bitnar þessi helst á þeim sem
minnst mega sín. Áætlað er að tekj-
ur af sölu heilsukorta verði um 400
millj. kr. á ári. Heilsukortin, í þeirri
mynd sem kynnt hafa veriö, eru
einhver skaðvænlegasta breyting á
uppbyggingu heilbrigðis- og trygg-
ingakerfisins sem gerð hefur verið
í tið ríkisstjómar Davíðs Oddsson-
ar og er þó af ýmsu að taka.
Líklega er hér um að ræða fyrsta
skrefið í tvenns konar heilbrigðis-
þjónustu. Annars vegar fyrir þá
sem eiga næga fjármum og hins
vegar þá sem minna mega sín. Það
skapast með því að gefa mönnum
„Sjálfsagt er að athuga vandlega hvort
draga megi úr rekstri einhverra stofn-
ana eða hætta rekstri þeirra, en þá
verður líka að vera alveg ljóst að sú
aðgerð leiði ekki til aukins kostnaðar
fyrir ríkissjóð í stað þess að draga úr
honum.“
má ekki stofna rekstri heilbrigðis-
þjónustunnar í hættu.
Sjálfsagt er að athuga vandlega
hvort draga megi úr rekstri ein-
hverra stofnana eða hætta rekstri
þeirra, en þá verður líka að vera
alveg ljóst aö sú aðgerö leiði ekki
til aukins kostnaöar fyrir ríkissjóð
í staö þess að draga úr honum.
kost á vah um hvort þeir taka þátt
í fjárhagslegri uppbyggingu
sjúkratrygginganna. Það er sorg-
legt til þess að vita að ráðherra sem
kennir sig við jafnaðarmennsku
skuh hafa forgöngu um þessa árás
á samhjálp velferðarkerfisins.
Guðmundur Bjarnason
Guðmundur Árni Stefánsson heilbrigðisráðherra. - „... virðist ætla að
fara nákvæmlega i hjólför Sighvats, þrátt fyrir stór orð er hann hafði
áður látið falla.“
Skoðanir annarra
Raunhæf raunvaxtalækkun?
„Raunvaxtalækkun af þeirri stærðargráðu, sem
Davíö Oddsson talar um, myndi nánast jafngilda
byltingu í efnahags- og atvinnulífi landsmanna. Svo
mikil raunvaxtalækkun myndi lækka vaxtaútgjöld
sjávarútvegsins um nokkra mihjarða og miklar fjár-
hæðir myndu losna í rekstri annarra fyrirtækja svo
og heimilanna í landinu, en skuldasöfnun þeirra
hefur verið mjög th umræðu að undanfornu. Spurn-
ingin er hins vegar sú, hvort raunhæft sé að tala um
svo mikla raunvaxtalækkun."
Úr forystugein Mbl. 24. okt.
í mótsögn við kjarasamninga
„Það er tvímælalaust í fuhkominni mótsögn við
forsendur gildandi kjarasamninga að fjármagna
lækkun matarskatts með almennri skatúagningu,
sem kæmi jafnt niður á láglaunafólki sem öðrum.
Síðast en ekki síst er ljóst að kaupmáttarspár, sem
gerðar vora í vor, hafa ekki gengið eftir. ... Ljóst
er aö ríkisvaldið má hafa sig allt við th að koma í
veg fyrir að kjarasamningunum verði sagt upp eftir
örfáa daga.“ Úr forystugrein Dags 23. okt.
Ástandið í miðbænum
„Þaö hlýtur að koma að því að hlutaðeigandi yfir-
völd þuríi að svara þeirri spurningu hvort þau vhji
að fólk safnist þarna saman á þessum tíma eða ekki.
Ef ekki; th hverra ráða ætla þau að grípa th þess að
koma í veg fyrir það? Ef þau hins vegar vhja að fólk
safnist þarna saman þurfa þau eðhlega að koma hlut-
unum þannig fyrir að fólkið geti veriö þar við þær
aðstæður og í því ástandi aö eðhlegt geti tahst.
Ómar Smári Ármannsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn í Mbl. 26. okt.