Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1993, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993
Fréttir_________________________________________________________________________________dv
16 ára piltur hefur liðið miklar kvaiir eftir landadrykkju á föstudagskvöldið:
Lagður inn og sterkur
grunur um landaeitrun
- nánast enginn svefn og einkenni sem lýsa sér í höfuðverk, ofskynjunum og sjálfsvígshugleiðingum
16 ára piltur hefur veriö lagður inn
á göngudeild á Landspítalanum eftir
að hafa á síðustu dögum liðið miklar
þjáningar sem raktar eru til landa-
drykkju síðastliðið föstudagskvöld.
Sterkur grunur leikur á að um svo-
kallaða landaeitrun sé að ræða en
fjórir læknar hafa annast piltinn eft-
ir helgina, þar af tveir næturlæknar.
Pilturinn vakti meira og minna í
þijá sólarhringa eftir landadrykkj-
una á föstudagskvöldið. Þangað tii á
mánudagskvöldið kom honum nán-
ast dúr á auga og þjáðist hann af
höfuðverk, ýmsum ofskynjunum og
sjálfsvígshugleiðingar komu einnig
upp á yfirborðið.
Umræddur piltur fékk sér áfengi
ásamt nokkrum kunningjum á föstu-
dagskvöldið en þeir drukku annars
konar landa en hann - a.m.k. var
hann keyptur af öðrum aðila. Piltur-
inn fann ekki beint til áfengisáhrifa
af því áfengi sem hann keypti en
kvartaði yfir því að vera „skrýtinn í
höföinu".
Undir hádegi á laugardagsmorgun
fór móðir piltsins að hafa áhyggjur
af því að sonur hennar hafði ekkert
sofið og eftir þaö hafa framangreind
einkenni komið verulega í ljós. Hún
hefur vakað mjög mikið yfir syni sín-
um frá því að einkennin gerðu vart
við sig og í gærkvöldi hafði hún að-
eins sofið í um tvær klukkustundir
síðustu þrjá sólarhringa á undan.
Á mánudagskvöld kom nætur-
læknir og taldi ekki ólíklegt að um
landaeitrun væri að ræða hjá piltin-
um. Hann gaf honum tvöfaldan
sprautuskammt í því skyni að sjúkl-
ingurinn næði að sofna. Hann náði
því en hin slæmu einkenni héldu
áfram. Á þriöjudagskvöldið kom
annar læknir og var þá ákveðið að
leggja piltinn inn á Landspítalann.
Jóhann Ólafur Jóhannsson, læknir
á þeirri deild sem annast piltinn,
vildi ekki tjá sig um máhð viö DV á
þessu stigi en sagði móöurinni í sam-
tali við hana í gærkvöldi að vonir
stæðu til að sonur hennar næði sér
að fullu þrátt fyrir það sem á undan
er gengið. Líðan piltsins var eftir at-
vikum góð í gærkvöldi en hann var
engan veginn búinn að ná sér.
Læknirinn kvað einkenni þau sem
komið hafa fram lýsa sér með þeim
hætti að um eitrun sé að ræða vegna
landans sem pilturinn drakk - hins
vegar sé ekki hægt að staðhæfa neitt
í þessu sambandi. Samkvæmt heim-
ildum DV hefur talsverður íjöldi
slíkra tilfella komið upp áður þar
sem ungmenni hafa verið lögð inn.
Þá hefur verið talið að einkennin
stafi af landadrykkju, eða a.m.k. af
vökva sem seldur er sem landi.
-Ótt
Bygging iþróttahúss og sundlaugar vió Klébergsskóla á Kjalarnesi er nýhafin en ráögert er að Ijúka byggingunni
næsta haust. Þegar er búið að grafa grunninn og verður fljótlega farið í að steypa sökkla. Jón Pétur Líndal, sveit-
arstjóri á Kjalarnesi, segir að fyrirhugað sé að reisa límtréshús og verði unnið í því fram eftir vetri. Með vorinu
verði sundlaug og pottar steyptir. Búist er við að heildarkostnaður við framkvæmdirnar verði tæpar 90 milljónir
króna. * -GHS/DV-mynd GVA
Tillögur meiriMuta fiárlaganefndar við 2. umræðu:
Hækka fjárlagafrum-
varpið um 681 milljón
- mest af þessu fer til heilbrigðismála og menntamála
Stuttar fréttir
Líkkistuvinnu*
stofanvann
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi í gær Kirkjugarða Reykja-
vikur til að greiða Líkkisluvinnu-
stofú Eyvindar Árnasonar 15
milljónir króna i skaðabætur.
Lögmaðurdæmdur
Lögmaður í Reykjavík var
dæmdur í 9 mánaða fangelsi í
Héraösdómi Reykjavíkur í gær
fyrir að hafa dregið sér 2,4 millj-
ónir króna af bróðurarfi til ni-
ræðrar konu. Auk þess voru lijón
dæmd fyrir að draga sér fé af
sama arfi.
Spáir rtngulreíð
Ferðamálastjóri spáir algjörri
ringulreið eftir áramót þegar
virðisaukaskattur veröur lagöur
á ferðaþjónustu. Þetta kom fram
á Ríkissjónvarpinu.
nyrvnsqon
Ágúst Þór Árnason hefur um
stundarsakir verið ráöinn rit-
stjóri Tímans eftir aö Þór Jónsson
vék úr stólnum.
Gjaldþrotaieið
vænlegust
Atvinnurekendur telja svokail-
aða gjaldþrotaleiö vænlegustu
leiðina út úr viðvarandi efna-
hagsþrengingum ogniöurfærslu-
leiöina þá næstvænlegustu. Þetta
kom fram á spástefhu Stjómun-
arfélagsins í gær.
LjndogLýsingieitt?
Landsbankinn íhugar nú sam-
einingu eignarleiguíyrirtækj -
anna Lindar og Lýsingar en
bankinn á Lind að öllu leyti og
40% hlut í Lýsingu. Morgunblað-
ið greinir frá þessu.
Fasteignamat hækkar
Samanlagt fásteignamat ibúða,
jarða, atvinnuhúsnæðis og opin-
berra byggjnga hefur hækkað um
3,65% frá seinasta ári og er tæp-
lega 823 miiljarðar króna, Þá hef-
ur álagningarstofn fasteigna-
skatts hækkað um 3,3%.
Verkfræðistofa á Gaza
Þijár íslenskar verkfræðistofur
undirbúa stofnun verkfræðistofu
á Gaza-svæðinu með 70% eignar-
aðild á móti 30% hlut Paiestínu-
manna. Morgunblaöið greinir frá
þessu. -bjb
Stjómarmeirihlutinn í fjárlaga-
nefnd skilaði í gær nefndaráliti sínu
við 2. umræðu fjárlagafrumvarpsins
sem hefst á morgun eöa föstudag.
Breytingartillögur meirihlutans gera
ráð fyrir 684,4 milljóna króna hækk-
un á fjárlagafrumvarpinu. Við 3.
umræðu má svo gera ráð fyrir að
einhvers staðar verði reynt að skera
niður á móti þessari upphæö.
Fjárlaganefndarmenn segja að
rúmar 400 milljónir af þessari hækk-
un komi frá ríkisstjóminni. Frá
nefndarmönnum sjálfum séu það
ekki nema rúmar 200 milljónir.
Stærsti hluti þessarar hækkunar
er vegna heilbrigðismála og mennta-
mála en rammi menntamálanna hef-
ur víkkaö nokkuð. Einkum vegna
fjárfestinga. Þar er mest um að ræða
nýbyggingaframkvæmdir og við-
haldskostnað á skólahúsnæði sem og
auknar fjárveitingar til ýmsissa
stofnana og samtaka sem heyra imd-
ir menntamálaráðuneytið.
Nýr hður, tengdur menntamála-
ráðuneytinu, kemur inn á fjárlög.
Það er Skákskóh íslands. Lagt er til
að hann fái 2,5 milljónir króna á
næsta ári.
Varðandi heilbrigðisráðuneytið er
einnig mikið um aukið fé í nýbygg-
ingaframkvæmdir og viðhaldskostn-
að á sjúkrahúsum og heilsugæslu-
stöðvum. í flestum tilfellum, alveg
eins og hjá menntamálaráöuneytinu,
er um smáhækkanir að ræða í hverju
verkefni fyrir sig. En þau eru mörg
en safnast þegar saman kemur.
Lagt er til að fjárveiting til yfir-
stjómar utanríkisráðuneytisins
hækki um 6 milljónir á næsta ári frá
því sem gert var ráð fyrir 1 ijárlaga-
frumvarpinu: Þá er gert ráð fyrir
aukinni íjárveitingu til sendiráðs ís-
lands í Washington um rúmar 3
milljónir króna. Einnig að almenn
fiárveiting til sendiráða íslands er-
lendis hækki um 2,5 milljónir króna.
Þá er gert ráð fyrir hærri fjárveit-
ingu til héraðsdóma landsins sem
nemur launahækkunum héraðs-
dómara.
Hér er aðeins um útgjaldahhð fjár-
lagafrumvarpsins að ræða. Tekju-
hlið þess verður ekki rædd fyrr en
við3umræðu. -S.dór
Bandormurinn:
Davíö Oddsson forsætisráð-
herra mælti í gær á Alþingi fyrir
frumvarpi um ráðstafanir í rík-
isfjármáium sem kallað hefúr
verið bandormurinn. Hann sagði
aö tvennt heföi raskað því áformi,
sem ríkisstjórnin lagði upp með
fyrir tæpum 3 árum, að ná frarn
hallalausum fjáriögum. Annars
vegar skuldbindingar fyrri ríkis-
stjórnar sem þessi fékk í arf og
hins vegar versnandi efnahags-
aðsfæður irmanlands og utan.
Hann sagði aö sá friöur á vinnu-
markaöi, sem náðist síðastiiðið
vor, væri mikilvaegur til að auka
stöðugleika í efnahagsmálum.
Sömuleiðis væri verðbólga minni
hér en víðast hvar annars staöar
og viðstóptahaiii færi minnkandi.
Höfuðverkefnið væri þvi að
minnka halla á rikisrekstrinum.
Ilalldór Ásgrímsson gagnrýndi
rikisstjómina og alveg sérstak-
lega viðskiptaráðherra fyrir
vinnubrögð og ýmis ummæli í
vaxtamálunum, Hann sagði ijóst
að atlaga ritósstjórnarinnar í
vaxtamálum heföi komið ailt of
seint og ektó gengið eins og til
var ætlast.
Kristín Ástgeirsdóttfr gagn-
rýndi ýmsan niðurskurð í vel-
ferðarmálum í bandorminum.
Einnig frestun á því að skóla-
máltíðir verði teknar upp, leng-
ing skólatíma og fækkun í bekkj-
ardeildum. -S.dór
Spilakassa-
rannsókn
langtkomin
Rannsóknarlögregla ríkisins
vinnur nú að því að afla gagna í
máli sera er til rannsóknar hjá
henni vegna kæru Gunnars Frið-
jónssonar á hendur Rauða krossi
Islands vegna reksturs spila-
kassa.
Seinustu daga hefur verið rætt
við aðila og unnið að málinu á
annan hátt með hliðsjón af
ákvæðum hegningarlaga.
Rannsókn málsins er langt
komin og má búast við að það
veröi sent ákæruvaldinu innan
nokkurradaga. -pp