Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1993, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993
7
Fréttir
Ungar systur gera það gott 1 skákíþróttmni:
Hafa náð langt á
skömmum tíma
Harpa og Þorbjörg Elsa Ingólfsdætur við verðlaunapeningana sem þær
hafa sankað að sér á þessu og seinasta ári fyrir mjög góðan árangur í
skákíþróttinni. DV-mynd Brynjar Gauti
Þrátt fyrir að þær hafi aðeins teflt
í tvö ár hafa systumar Harpa og
Þorbjörg Elsa Ingólfsdætur náð ótrú-
lega góðum árangri í skákíþróttinni.
Stúlkurnar, sem eru aðeins 11 og
12 ára, hafa náð góðum árangri und-
anfarið og fyrir þremur vikum varð
Harpa, sú eldri, íslandsmeistari í
flokki stúlkna 15 ára og yngri. Þor-
björg Elsa varð ásamt systur sinni
og tveimur öðrum stúlkum í fyrsta
sæti í íslandsmóti grimnskólasveita
stúlkna í skák sem haldið var fyrir
viku. Hún varð í fjórða sæti á skák-
þingi Kópavogs sem haldið var fyrir
nokkra. Þá urðu systumar í fyrsta
og öðru sæti á páskamóti skákþings-
ins.
„Ég æfi tvisvar í viku með Taflfé-
lagi Kópavogs, byrjaði bara af því að
það var skákkennsla í skólanum,"
segir Harpa. Hún segist ætla að halda
áfram enda gangi henni mjög vel.
Átrúnaðargoð hennar er Judith
Polgar „sem hætti í skóla til að geta
teflt,“ segir Harpa sem ætlar þó ekki
að feta í fótspor hennar að því leytinu
til.
Móðir stúlknanna, Ása Ámadóttir,
segir að mikill skákáhugi sé í fjöl-
skyldunni. „Við bjuggum uppi í
Borgamesi þar til fyrir hálfu þriðja
ári að við fluttum í Kópavog með
viðkomu í Reykjavík. Þar voru þær
í frjálsum og vom mjög efnilegar.
Þegar þær fluttu hingað voru þær
of ungar til að fara í frjálsar. Þær em
með mikla orku eins og öll börnin
mín og reyndar teflir öll fjölskyldan.
Þær eiga bróður sem er 9 ára og hafa
kennt honum að tefla ásamt okkur
hinum og þær eiga líka eldri systur
sem er 17 ára og kenndi þeim að tefla
þegar þær vom 8 til 9 ára,“ segir Ása.
Hún tekur það'fram að þetta sé ein-
ungis leikur hjá þeim. Þótt þær séu
metnaðargjamar þoh þær vel að tapa
og séu vel afslappaðar fyrir mót.
-PP
Stjömumáltíð McGóðborgari*
AÐEENS kr. 549,-
Stjömumáltíð McGóðborgari m. osti *
AÐEINS kr. 579,-
VEITINGASTAÐUR FJÖLSKYLDUNNAR,
SUÐURLANDSBRAUT 56
I
LÁTTU EKKI OF MIKINN HRAÐA
VALDA ÞÉR SKAÐA!
yU^ROAR
*/>
Jólatilboð
13.900 stgr.
IMMO-HIT
RR-6012
ferðatæki með
segulbandi, FM-MB
og LB útvarpi og inn-
byggðum hljóðnema.
Verð áður kr. 5.980.
ýkt
%
Jólatilboð kr. 4.990 stgr.
%
IMPiI-HIT HCD-312
ferðageislaspilari með
straumbreyti og
heyrnartólum.
Verð áður
kr. 15.980.-
X
Jólatilboð
kr. 13.900 stgr.
X
>/,
,X
Allt tll hljomflutnlngs fyrlr:
HEIMILIÐ - BÍLINN
OG
DISKÓTEKIÐ
n
ÍXdOiO
ÁRMÚLA 38 (Selmúlamegin), 105 Reykjavík
SÍMAR: 31133 813177 PÓSTHÓLF1366
Jólatilboð
kr. 4.990
A.
stgr.