Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1993, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1993, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993 11 Utlönd Þungur róöur hjá umbótasinnum í rússnesku kosningunum: Liðsmenn Jeltsíns þykja of leiðinlegir - kannanir benda til sundurlyndis á fyrsta lýðræðislega þinginu „Eg veit að Rússa skortir ekki heil- brigða skynsemi. Þessa vegna er ég viss um að þeir muni kjósa stjórnar- skrána. Það skiptir mestu máli,“ sagði Borís Jeltsín Rússlandsforseti í gær. Lokaspretturinn er nú hafinn í kosningabaráttunni í Rússlandi. Þar verður bæði kosið til þings og Jeltsín vonast eftir að fá stuðning helmings kjósenda við nýja og umdeilda stjómarskrá. Forsetinn þarf hreinan meirihluta til að stjómarskráin hans öðiist gildi. Ekki þykir fráleitt að svo fari. Útlitið er verra í þingkosningun- mn. Þar er sýnt að umbótaöflin munu vart ná að hafa afturhalds- sinnana undir þegar nýtt þing verður kallað saman. Valkosti Rússlands, stuðningsflokki Jeltsíns, er spáð mestu fylgi en á hinum væng stjóm- máianna em líka flokkar sem njóta mikils stuðnings. Þar era gömlu kommúnistamir sterkastir. Menn Jeltsíns hafa notið forrétt- inda í sjónvarpi en það kemur fyrir lítið því málflutningur þeirra á ekki greiða leið að eyram almennings. Jegor Gajdar, helsti sérfræðingur Jeltsíns í efnahagsmálum, hefur haldið langar ræður í sjónvarpi um verðbólgu og peningamál og enginn skilur hvað hann er að fara. Annar umbótamaður, Grígoríj Javlinski úr flokki umbótasinna, þykir skemmtilegri. Hann styður margt í umbótum Jeltsíns og er væntanlegur bandamaður á þinginu. Javlinski hefur engu að síður gagn- rýntJeltsínhart. Reuter Með og á móti uinbótum Jeltsíns 100 Móti FINLUX INVAR SUPER 8LACK FST MYNDLAMPI INVAR húðun gefur meiri skerpu en áður hefur þekkst. Aukahlutir: Mynd imynd (2stöðvaráskjánum ieinu) kr. 19.500 Stgr. 28" NICAM hi-fi STEREO 2x25 vatta magnari, 2 tvöfaldir hátalarar ásamt bassa woofer INVAR SUPER BLACK FST myndlampa, með SVM (Speed Velocity Modulation) texta- varpi með íslenskum stöfum, SUPER-VHS inngangi, 2 Euro scart-tengjum, forritanlegri, einfaldri en fullkominni fjarstýringu. Rétt verð 144.500 kr. Jólatilboð kr. 119.950 stgr. HLJÓMCO FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005 Afborgunarskilmálar Jólabækur frá Hörpuútgáfunni Smásögur - Endurminningar ✓ / A LANDINU BLAA Smásögur og þættir Afmælisbók jónasar Árnasonar Fáir íslenskir höfundar hafa notið meiri vinsælda en Jónas Árnason. Honum hefur tekist að draga upp svipmyndir sem seint gleymast. Hlý kímni hans er grátbrosleg, oftar í ætt við gáska og kæti en kaldhæðni. Skemmtileg bók sem margir munu fagna. ✓ LIFSGLEÐI Viðtöl og frásagnir sjö þekktra samferðamanna. Sagt er frá viðburðaríku lífi, skemmti- legum og ógleymanlegum persónum, gildi trúar og já- kvæðs lífsstíls. Þeir sem segja frá eru: Áslaug S. Jensdóttir, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Einar J. Gíslason, Kristinn Þ. Hallsson, Pétur Sigurðsson, Sigfús Halldórsson og Sigríður Rósa Kristinsdóttir. Þórir S. Guðbergsson skráði. Verð: 3420 kr. Verð: 2990 kr. Fyrir fjölskylduna MATREIÐSLUBÓK MARGRÉTAR Höfundur þessarar bókar, Margrét Þorvaldsdóttir, hefur dvalið víða erlendis og kynnst þár matarvenjum ýmissa þjóða. Uppskriftirnar eru aðlagaðar íslenskum aðstæðum og innlendu hráefni. Fljótlegt, ódýrt, Ijúffengt og auðvelt, eru aðalsmerki bókarinnar sem er prýdd fjölda litmynda. GETTU ENN Ný spurningabók eftir Ragnheiði Erlu Bjarnadóttur Efni bókarinnar er ætlað lesendum á öllum aldri og spurningarnar ýmist léttar eða þungar um hina ólíkustu efnisflokka. Hér eru um 700 spurningar settar fram með sama hætti og í spurningakeppni framhaldsskójanna. Skemmtilegt tómstundagaman fyrir fjölskyldur, skóla og vinafundi. HÖRPUÚTGÁFAN STEKKJARHOLT 8-10 - 300 AKRANES SÍÐUMULI 29 - 108 REYKJAVÍK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.