Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1993, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1993, Blaðsíða 44
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augiýsingar - Askrift - Dreífing: Sími S31TO0 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993. Akranes: Formaður Skagamanna íframboð Sigurður Sverxisson, DV, Akranesi: Ellefu manns hafa gefið kost á sér til þátttöku í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins á Akranesi fyrir komandi bæjarsfjómarkosningar. Frestur til að skila inn nöfnum rann út kl. 22 í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum DV er hvor- ugur núverandi bæjarfulltrúa flokksins í þessum 11 manna hópi. Kjömefnd fjallar um væntanlega þátttakendur í prófkjörinu á fundi á mánudag og leggur þá hugsanlega fram fleiri nöfn. Það nefna sem mesta athygli vekur í hópnum er nafn Gunnars Sigurðs- sonar, formanns Knattspymufélags ÍA. Samkvæmt heimildum DV hafði hann áður hafnað boði um sæti á framboðslista framsóknarmanna. Neyðarkall af Lögreglunni á ísafirði barst rétt eftir miðnætti símtal frá loftskeyta- stöð sem var meö símtal frá neyðar- skýlinu á Botnsheiði. í símanum var maður sem sagðist hafa fariö út af veginum uppi á Breiðadalsheiði, rétt ofan við Súgandafjarðarafleggjara. Hafði maðurinn fest bílinn í snjó- mðningi sem myndað hafði falskan kant á veginum. Að sögn Guðmundar Fylkissonar, varðstjóra hjá lögreglunni á ísafirði, fóm vaskir sveinar frá lögreglunni upp á heiði og aðstoðuðu manninn á sérútbúnum jeppa lögreglunnar og spiluðu bílinn hans upp á veginn. Að sögn Guðmundar var veður mjögkaltuppiáheiðinnienstillt. -pp Eldurísorpi og feitipotti Kveikt var í öskutunnum á tveimur stöðúm í borginni í nótt og gær- kvöldi, við Frostafold og Súðarvog. Slökkvilið var kallað á vettvang í bæði skiptin en grnnur leikur á að kveikt hafi verið í í báðum tilvikum en í fyrra skiptið var um sorp- geymslu í fjölbýlishúsi að ræða en skemmdir af völdum elds og reyks voru óverulegar. Þá var slökkviliðið kallað að Bræðraborgarstíg á 7. tímanum í gærkvöldi þar sem eldur var í feiti- potti á eldavél. Eldurinn var slökktur en nokkrar skemmdir urðu á eldhús- innréttingu af völdum elds og íbúð- inniafvöldumsótsogreyks. -pp LOKI Svo er bara að sjá hvort ÍA- menn skora jafn mikið í póli- tíkinni og fótboltanum! Sett hefur verið dreifingarbann á kjúkiinga frá tveimur framleiðend- um eftir að salmonella greindist í sýni frá þeim í árlegri úttekt Holl- ustuverndar ríkisins. Franklín Georgsson, forstöðu- maður rannsóknarstofu HoIIustu- vemdar ríkisins, segir aö til séu yfir tvö þúsund tegundir af salmon- eilu en að einungís tvær þeirra séu beinlínis hættulegar mönnum. „Við töldum ekki ástæðu til að innkalla kjúklingana frá öðru bú- inu þar sem við vitum núna hvaða salmonellutegund átti í hlut. Sýni frá hinu búinu eru enn í rannsókn en ég tel mjög óliklegt að farið verði í að innkalla kjúklingana þaðan. Við höfum áður greint salmonellu þar og teljum okkur vita af hvaða tegund hún er.“ Franklín sagði næstum ómögu- legt að komast alveg fyrir salmon- ellu í kjúklingum og sagði að hún væri næsta víst í cinhverjum þeirra kjúklinga seldh’ væru i búö- um. „Hún hefur hins vegar engin álrrif á gæði kjúklinganna og drepst við 70 gráða hita. Ef fólk passar aö matreiða kjúklingana vel og að vökvi úr hráum kjúklíngi berist ekki á milli matvara með áiiöldum eða öðru er engin hætta á ferð- um,“ sagði Franklin. Þó ekki sé ástæða til að innkaila kjúklinga frá þessum tveimur framleiðendum fá þeir ekki að dreifa því sem eftir er af lagernum í verslanir. „Þeir fá e.t.v. að hita- meðhöndla kjúklingana, þ.e. nota þá í heita rétti eða annað slíkt und- ir eftirliti," sagði Frankiín. -ingo Veðriðámorgun: Víða verður frost Á morgun verður austlæg átt, víða allhvöss sunnanlands og vestan en hægari noröanlands. Slydda verður syðst á landinu, él eða slydduél austan til en él á annesjum norðanlands og á Vest- fjörðum. í öðrum landshlutum verður víða léttskýjað. Hiti verð- ur nálægt frostmarki sunnan til en annars verður frost. Veðrið í dag er á bls. 52 Stokkseyri: Frystihúsið án raf magns Rafvpita Solfncc hc»fnr láfift lnlía Rafveita Selfoss hefur látið loka fyrir rafmagnið til Hraðfrystihúss Stokkseyrar. Talið er að 15-20 tonn af tilraunavinnslu á kola séu í frysti- geymslum Hraðfrystihússins. Lokað var fyrir rafmagnið á þriðjudag og geta frystigeymslumar verið án raf- magns í þrjá til fjóra daga. Pétur Reimarsson, framkvæmda- stjóri Ámess í Þorlákshöfn, segir að Fiskeyri hf. á Stokkseyri eigi ógreidda skuld hjá Rafveitunni en Fiskeyri hefur rekið fiskvinnslu í húsnæði Hraðfrystihússins. For- ráðamenn Fiskeyrar telja rafmagns- reikmnginn rangan. Búist er við að rafmagnsreikning- urinn verði greiddur í dag og opnað verðifyrirrafmagnið. -GHS Fjármálaráðherra: Erfitteða útilokað Biðstaða hjá borgarráði Skilyrði til skautaiðkunar hafa verið frábær í frostinu og logninu undanfarna daga. Þegar þessir krakkar voru að renna sér á skautasvellinu I Laugardalnum í gær var sólin lágt á lofti en yljaði samt. Skautaleysi ætti ekki að aftra neinum frá því að liðka á sér fæturna því að hægt er að taka skauta á leigu á staðnum. DV-mynd GVA „Erindi Böðvars Bragasonar, lög- reglustjóra í Reykjavík, um skil- greiningu á hugtökunum spilakassi eða happdrættisvél Happdrættis Há- skóla Islands hefur verið vísað til borgarstjómar og það er biðstaða hjá borgarráði um málið. Eins og um- sóknin er hjá rekstraraðilanum er verið að sækja um nætursöluleyfi og ef þeir verða túlkaðir sem spilakass- ar þá em ákvæði í lögreglusamþykkt um það að ekki verði heimilt að hafa þá opna lengur en til hálftólf á kvöld- in,“ sagði Gunnar Eydal, skrifstofu- stjóri borgarstjómar, við DV. -ÍS ili ALÞJÓÐA LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ Lágmúla 5, s. 681644 Þegar til lengdar latur „Það er tahð útilokað að setja jöfn- unartolla á skipaviðgerðir og mjög erfitt að setja þá á nýsmíði. Það er eðh jöfnunartoha að brúa bihð á milli niðurgreidds verðs á vöru og heimsmarkaðsverðs. Við höfum ekk- ert heimsmarkaðsverð á skipum eins og stáli eða hveiti eða öðrum shkum vörum. Þess vegna er þetta snúið og erfitt mál,“ sagði Friðrik Sophusson fjármálaráðherra. Hann átti í gær fund með fuhtrúum Samiðnaðar þar sem þetta var rætt. Fuhtrúar skipasmíðaiðnaðarins vilja og telja hægt að setja jöfnunartoha á niðurgreiddar erlendar skipasmíðar fyrir Islendinga. Friðrik Sophusson sagði að niðurstaðan af þessum fundi hefði verið sú að lögfræðingar Sam- iðnar og fjármálaráðuneytisins héldu með sér fund og fæm yfir þessi atriði. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.