Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1993, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1993, Blaðsíða 24
36 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993 íþróttir Guðmundur Bragason, þjálfari Grindvíkinga, og Mirko Nikolic, Serbinn í liði KR, í slag undir körfunni. Guðmundur og félagar höfðu betur þrátt fyrir að vera undir nær allan leikinn. DV-mynd GS ISLENSKA KÖRFUBOLTABLAOIÐ Þcss vcgna hætti lordan! Charics Barklcy talar tæpitungulaust Hcimsokn a m.. TwOzzi ... !>'« .. ... HornetS'ðEði Vcggspjald; KR-ingar yf ir í 38 mínútur - en Grindavlk vann samt, 74-75 Grindvíkingar unnu mjög góöan sigur á KR-ingum í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöldi. Lengi vel leit þó út fyrir sigur KR-inga á Nes- inu en gestimir skutust fram úr á lokasekúndunum og fóru til Grinda- víkur með öll stigin þrjú sem í boði voru. Lokatölur urðu 74-75 eftir að KR hafði haft tíu stiga forskot í leik- hléi, 48-38 og mest náð 13 stiga for- skoti í leiknum er staðan var 67-54. Þessi tvö Uð berjast um að komast í úrshtakeppnina úr b-riðUnum ásamt Haukum, um annað sætið í riðUnum, en efsta sætið virðist frá- tekið fyrir Njarðvíkinga fram á vor- ið. KR var yfir í 38 mínútur af 40 gegn Grindavík í gærkvöldi og slíkt dugar ekki aUtaf til sigurs. Það sannaðist í gærkvöldi og GrindavíkurUðið var ljónsterkt á lokakaflanum, vel stutt af nokkrum hópi stuðningsmanna. í blálokin var það stórskyttan Hjörtur Harðarson sem innsiglaði sigurinn með glæsilegri þriggja stiga körfu. Reyndar hafði Hjörtur sig alltof lítið í frammi í leiknum og ekkert Uð, með slíkan leikmann innanborðs, má við því að hann hafi sig ekki í frammi. Reyndar komust færri að en vildu í Uði Grindvíkinga í gærkvöldi því Wayne Casey fór algerlega á kostum og skoraði 36 stig. Lið KR er mjög ungt og þrátt fyrir að Uðið geti leikið mjög vel kæmi það á óvart ef KR kæmist í úrsUtakeppn- ina, einkum vegna þess hve margir leikmenn Uðsins eru ungir og reynsluUtlir. En framtíðin er björt hjá KR og eftir eitt eða tvö ár verður þetta Uð í aUra fremstu röð ef rétt verður á málum haldið. Davíð Griss- om var yfirburðamaður hjá KR. Hann er einn besti körfuknattleiks- maður landsins í dag og sýndi það og sannaði í gærkvöldi. Davíð lék mjög vel í vörninni og ekki síður í sókninni. Hann er í mjög góðri æf- ingu um þessar mundir og hefur lík- lega aldrei leikið betur. Mirko Nik- oUc er önnur uppistaða Uðsins, langt frá því að vera flinkur miðherji en kemstlangtáseiglunni. -SK KR (48) 74 Grindavlk 2 -0, 15 8, 2518, (38) 75 36-29, 46-13, (48-38), 50-50, 67-5! 74-72, 74-75. Stig KR: Mirko Ni Grissom 17, Ólafur 15, Ósvaldur Knu 1, 67-62, 69-70, kolic 22, Davið Jón Ormsson isen 10, Her- mann Hauksson 8, urðsson 2. Stig Grindavíkur. 36, Nökkvi Már Jói Benedikt Síg- Wayne Casey ísson 12, Guð- mundur Bragason Ilarðarson 11, Mart 2 og Pétur Guðmur 12, Hjörtur 1 Guölaugsson dsson 2. 3ja stiga körfur: K Dómarar: Leifur R 6, Grindavík S. Garðarsson Áhorfendur: Um OlljJlyög gOOli 100. Maður leiksins: Grindavík. iVayne Casey, Staðan Staðan í Visadeildinni í körfu- knattleik eftir leikinn í gær- kvöldi: A-riðill: Keflavík....12 7 5 1171-1031 14 Snæfell.....12 5 7 977-1029 10 SkaUagr.....12 4 8 964-1006 8 Valur.......12 3 9 1030-1153 6 Akranes.....11 2 9 877-1036 4 B-riðill: Njarðvík....13 12 1 1186-1018 24 Grindavík...l2 9 3 1044-1003 18 Haukar......12 8 4 1007-902 16 KR..........12 6 6 1092-1059 12 TindastóU... 12 4 8 891-1002 8 Vesna skoraði fjórtán mörk - en þau dugðu ekki gegn Stjömunni Stjarnan sigraði Armann, 18-23, í LaugardalshöU í gærkvöldi í 1. deild kvenna í handknattleik. Sigur Stjömunnar var öruggur frá upphafi og staðan í leikhléi var 7—11, Stjömunni í vil. Vesna Tomajek var allt í öllu hjá Ármanni og skoraði hún öU mörk Ármanns utan fjögur eða aUs 14 mörk. Mörk Ármanns: Vesna 14, Ásta 1, Svanhildur 1, Kristín 1, íris 1. Mörk Stjömunnar: Guðný 5, Ragn- heiður 4, Una 4, Helga 2, Þuríður 2, Herdís 2, Margrét 1, Hrund 1, Ólafía 1 og Ásta 1. Víkingur sigraði ÍBV Víkingur hafði forystu allan leiktím- ann gegn ÍBV í Víkinni í gærkvöldi og sigraði, 21-17. Staðan í leikhléi var 10-9 fyrir Víking. Heiða ErUngsdóttir var best hjá Víkingi en Judith Estergal hjá ÍBV. Mörk Víkings: Heiöa 6, Inga Lára 4, Halla María 4, EUsabet 2, Hulda 2, Svava Ýr 1, Svava S. 1 og MatthUd- ur 1. Mörk ÍBV: Sara G. 5, Judith 4, Andrea 3, Katrín 3 og Sara Ó. 2. Staðan í 1. deild kvenna eftir leik- ina í gærkvöldi: Stjaman......11 10 0 1 244-180 20 Víkingur.....12 10 0 2 264-202 20 Vesna Tomajek skoraði 14 af 18 mörkum Ármanns gegn Stjörnunni. Fram .11 9 0 2 231-190 18 ÍBV .12 7 1 4 282-257 15 Grótta .11 5 2 4 214-193 12 KR .11 5 2 4 184-199 12 Haukar .11 5 0 6 216-239 10 Valur .11 2 2 7 222-230 6 Ármann a. .12 3 0 9 231-265 6 FH .11 2 1 8 200-235 5 Fylkir .11 0 0 11 195-293 0 -HS kjörinn einróma Sigurbjöm Bárðarson var ein- róma kjörinn hestaíþróttamaöur ársins 1993 á stjórnarfundi hjá Hestaíþróttasambandi íslands. í yfirlýsingu frá stjóm HÍS seg- ir að Sigurbjöm sé ímynd hins fulikomna íþróttamanns. Hann sé strangur reglumaðm’ í öllum lífsháttum, stundi íþrótt sína af einstakri alúð og stefni ávallt aö hámarksárangri. -SK Kim Magnús besturískvassi Skvassnefnd íþróttasambands Islands hefur valið Kim Magnús Nielsen, núverandi íslandsmeist- ara, skvassmann ársins 1993. Hann hefur frá því í maí 1992 sigrað á öUum mótum innan- lands sem hann hefur tekið þátt í og aðeins tapað örfáum lotum. Þá hefur Kim Magnús staðið sig vel á mótum erlendis og er skemmst að minnast er hann hafnaöi i 5.-8. sæti af 70 keppendum á smáþjóða- leikunumáMöltu. -SK ísakvalinn íkarate Ásmundur ísak Jónsson var valimi karatemaður ársins 1993 af stjórn Karatesambands ís- lands. Hann þefur um árabil ver- ið einn besti íslendingurinn i kata en einnig náð góðum árangri í kumite. Isak varð íslandsmeist- ari í ár, bæði í kata og hópkata, og varð annar í sínum þyngdar- flokki í kumite, auk þess sem hann hlaut silfurverölaun í sveitakeppni með Þórshamri. íslensk knatt- spyrna1993 Skjaldborg hefur gefið út bók- ina Islensk knattspyma 1993 sem er þrettánda bókin í samnefndum bókaflokki. Hún er 160 blaðsíður, í stóru broti, auk 16 litmyndasiöa og er skreytt með 219 myndum, þar af 30 litmyndum af meistara- liðum ársins og einstaklingum sem sköruðu íram úr. í bókinni er tæmandi yfirlit yfir knatt- spyrnuna á íslandi 1993, auk þess sem rifjuð eru upp árin 1974 og 1975. í herrni eru ennfremur við- töl við Sigurð Jónsson, Þórð Guð- jónsson og Ásgeir Elíasson. Myndband um körfubolta Körfuknattleikssambandið hef- ur i samvinnu við kvikmyndafé- lagið Nýja Bíó hf. gefið út kennslumyndbandið „Meistara- taktar". Þar útskýrir Ingvai’ Jónsson, þjáliari Hauka, ýmis grundvallaratriði sóknarleiks og sýnir á aðgengilegan hátt einfald- ar en öruggar leiöir tíl betri ár- angurs. Nokkrir islenskir lands- liðsmenn aðstoða Ingvar á mynd- bandinu og einnig John Rhodes, leikmaður Hauka. Myndbandið kostar 2.480 krónur. BókumEarvin MagicJohnson Bókaútgáfan HJari hefur gefið út bókina „Ævi mín“ eftir Will- iam Novák sem er ævisaga bandaríska körfuboltasnillings- ins Earvins „Magic‘‘ Johnsons. „Magic" hætti sem kunnugt er að leika körfuknattleik fyrir tveimur árum þegar í Jjós kom aö hann er smitaður af alnæmi en Iiann er einhver besti körfu- boltamaöur sem uppi hefur veriö. f bókinni segir „Magic“ í fullri einlægni ft-á lífshlaupi sínu, glæsilegum ferli og baráttunni viö yfirvofandi sjúkdóm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.