Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1993, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1993, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1993 Spumingin Eyðir þú miklu í jólagjafir? Sigurborg Hrönn Sigurbjörnsdóttir: Nei, þaö geri ég ekki. Sigurbjörg Jóhannesdóttir: Já, ég eyði miklu. örvar Már Kristinsson: Nei, ég eyði ekki miklu í jólagjafir. Óli Björgvinsson: Sem allra minnstu. Eðvald Gunnlaugsson: Ég hef ekki efni á að kaupa jólagjafir. Lesendur Islensk verkefni í ellefu löndum: Hvert fara gjald- eyristekjurnar? Gunnar Jóhannsson skrifar: Ég hef lengi haft áhuga á að við íslendingar heíjum verkefnaútrás til annarra landa. Á þetta hefur veriö minnst í ræðu og riti af hinum og þessum mönnum sem hafa lagt á ráðin um hvernig megi að þessu standa og hvaða verkefni væru lík- legust til að bera sig og skapa skil- yrði fyrir fleiri verkefni ef vel tækist til með þau fyrstu. Nú virðist vera kominn skriður á þessi mál því að ég sá í DV fyrir skömmu að þeim fjölgar verulega íslensku fyrirtækj- unum sem hasla sér völl erlendis með verkefni í gangi. Það er sem sé á ekki færri en ellefu stöðum sem við íslendingar eigum hlut að máh í framleiðslu, iðnaði, vinnslu sjávarafla eða fiskveiðum og tæknilegum framkvæmdum. Þegar betur er að gáð er þó hvergi getið sérstaklega um að þama sé um veru- lega ábatasöm verkefni að ræða eða að gjaldeyrisöflun verði umtalsverð fyrir íslenskt þjóðfélag. Öh fram- leiðsla, sem íslensk fyrirtæki skapa hér heima og seld eru í útlöndum, veröur ósjálfrátt innlegg í þjóðarbúið og af því lifum við að meiru eða minna leyti öh, íslenskir þegnar. Ég er ekki enn farinn að skhja hvernig útrás íslenskra aðila eða fyr- irtækja í fjarlægum löndum skUar gjaldeyri í íslenskt þjóðarbú, ef það gerist þá yfirleitt. Ég skU hins vegar afar vel að íslenskir aðUar reyni fyr- ir sér með verkkunnáttu sinni eða annarri þekkingu á erlendum vett- vangi. Það hefur ahtaf verið þannig í einhverjum mæh. En þar er einung- is um að ræða að skapa sjálfum sér atvinnu, ekki að færa einhveija fúlgu gjaldeyris inn í þjóðarbúið. Hvernig væri nú að einhver fjölmiðilhnn (helst vUdi ég að það yrði DV) kann- aði hvernig eða hvort þessi verkefni í fjarlægum löndum skili einhveijum hagnaði til 'okkar hér heima eöa hvort þetta eru allt einungis hugljúf- ar skýjaborgir fyrir okkur að oma okkur við þegar kreppan fer að sýna klærnar fyrir alvöm. Islensk fyrirtæki og verkefni í fjarlægum löndum Múrmansk: Ýmis verkefni í Kamtsjatka: lceMac í sjávarútvegi. Virkir-Orknir í varmaorku- j iönaöi og fleiri verkefnum.j Mexíkó: Mexíkans- íslenska útgerð arfélagið hf. hugar aö verk- efnúm í sjáv- arútvegi. Chlle: Grandi hf. meö hlut I útgeröar- fyrirtækinu Frosur. Namibía: Nýsir hf. í ýmsum verkefnum, einkum í sjávarútvegi. Óman: Fyrirtækið Omak í sjávarútvegs- verkefnum og meiru. Kína: Lakkrísverk- smiöja viö | Hong Kong, ísl. stjórn- völd huga þar aö verk- efnum. jndónesia: íslenskir trésmiöir annast rekstur dansks trjávinnslu- j fyrirtækis. DV Aðeins hugljúfar skýjaborgir til að orna sér við? spyr bréfritari. Fastir í fyrri ráðherraembættum Bjarni Bjarnason skrifar: Mér finnst það vera orðið eins og fastur hður h)á mörgum fjölmiðlum aö spyija fyrrverandi ráðherra áhts á ýmsu sem snertir verksvið nýs ráð- herra sama embættis. Þetta er mjög áberandi fyrst eftir myndun nýrrar ríkisstjómar en dregur svo úr því eftir því sem ríkisstjómin situr leng- ur. Það er heldur ekki um gildan samanburð aö ræða hjá hinum fyrr- verandi ráðherrum eftir því sem lengra líður frá embættisferh þeirra og áhuginn á verkum þeirra sem fyrrverandi ráðherrar dofnar veru- lega. Annar þáttur þessa sama máls er ekki minna áberandi. Hann er sa að ráðherrar, sem láta af störfum eftir stjómarskipti, vilja oft festast í sín- um fyrri ráöherraembættum og opna varla munninn án þess að vitna í sín fyrri störf eða til að gagnrýna ein- mitt þann ráðherra sem fer meö embætti þess fyrrverandi. Þetta hef- ur veriö afar áberandi í seinni tíð. Ekki bara hjá þeim fyrrverandi ráð- herrum sem nú standa utan ríkis- stjómar heldur tók að bera á þessu fyrir meira en áratug. Fjölmiðlar ýta verulega undir þessa áráttu hjá hinum fyrrverandi ráðherrum með því jafnvel að bera undir þá hvort þeir séu sammála eða samþykkir hinum og þessum atriö- um sem em helst á döflnni. Viö þetta uppveðrast þessir sömu fyrrverandi ráðherrar og telja sig vera að gefa tímamótayfirlýsingar um viðkom- andi málefni. - Af þessu leiðir líka að þegar næst er stokkað upp eftir alþingiskosningar og ný ríkisstjóm mynduð þykir ekki annað við hæfi en aö velja sömu menn í ráðherra- stöður og oftast í sömu embættin í stað þess að gefa nýjum mönnum tækifæri. Ráðherraembættum hér og stjórnsýslu í heild er því mun hætt- ara við stöönun en víðast annars staðar. Á enn að gera út á verkföll? Sveinbjörn skrifar: Á þessari stundu er ekki annað sýnna enað sjómannasamtökin ætli sér að hetja enn eina verkfallaorr- ustuna. Það virðist sem sé eiga að gera út á verkföllin enn á ný, jafnvel þótt nú sé fullreynt að ekkert hefst með verkfóllum annað en vinnutap með tilheyrandi kjararýrnun þann tíma sem verkfall stendur. Það mátti svo sem alltaf vita að það Hringið í síma 63 27 OO mitti kl. 14og 16-cðaskrlflð Nafn og símanr. vcrður að fylgja bréfum yrðu sjómenn sem yrðu fyrstir til að hóta verkföflum. Sjómenn hafa reynst þjóðinni dýr þjóðfélagsstétt og ekki sú sanngjamasta. Sjómanna- afsláttur, fatapeningar og rýmri skattmeðferð til handa sjómönnum er þaö sem efst er í hugum annarra launþega sem ekki njóta neinna for- réttinda á borð við sjómenn. Hvaða ráöum á að beita gagnvart sjómönnum? Er yfirleitt nokkur von til þess að einhveijum ráðum verði beitt þegar svo til öll sjómannastéttin hyggst leggja niður störf? Stjómkerf- ið hér á landi er þannig uppbyggt að það getur ekki tekist á við verkfalls- aðgerðir. Það verður sífellt erfiðara fyrir ríkisstjómir að koma til móts við starfsstéttir í kjarabaráttu án þess að launahækkanir eða umsamin hlunnindi (en þau em einna efdsótt- ust í kjarasamningum) fylgi eftir upp aðra launastiga. Nýlegir dómar Kjaradóms (kjara- nefndar eða hvað þessir einráðu dómstólar heita allir) eru þess eðhs að sjálfgefiö var að alhr aðrir kæmu á eftir með kröfur sínar þegar búið var að dæma ekki bara einni stétt heldur tveimur launahækkun og það með samþykki stjómvalda. Er nokk- ur von til þess að almenningur láti það gott heita og yfir sig ganga að ein og ein starfsstétt fái ávísun upp á kjarabætur en aörar ekki? Ekki á meðan skattar, útsvar og neysluvör- ur hækka - allt með samþykki stjórnvalda. Oftrúáopinbera lífeyrissjódi Björn skrifar: Hamagangur starfsmanna hins nýja hlutafélags SVR út af aðild að lífeyrlssjóði starfsmanna Reykjavíkurborgar sýnir að núk- il er trúin á hina opinberu lífeyr- issjóði. Það er eins og menn haldi að opinberu lífeyrissjóðir séu eitthvað sterkari en aðrir iífeyris- sjóðir. Þessu er einmitt öfugt far- ið. Hinum opinberu sjóðum er mest hætt við að verða gjaldþrota og mun fyrr en hinum almennu sjóðum. Og einmitt þessa dagana er líklegt aö senn sé úti um það öryggi sem opinberir lífeyrissjóð- ir hafa búið við til þessa. SamvlnnavSnsfri flokkanna? Gunnar Einarsson skrifar: Skyldi nokkrum manni detta í hug aö minnihlutaflokkarnir í borgarstjórn, eða svokallaðir vinstriflokkar, geti sameinast um sæmiiega stjórn á Reykjavik? Margir eru þeir sem hafa gagn- rýnt eitt og annað í rekstri borg- arinnar og sumt af því á rétt á sér. Ég held hins vegar aö engum detti reyndar í hug aö framtíð Reykjavíkur eigi að fela minni- hlutaflokkunum. Allar slikar vangaveltm- hljóta einfaldlega að vera settar fram til gamans. Meira að segja hugmyndin um sameiginlegt borgarstjóraefni, af hvoru kyninu sem er. Málþingogspá- stefnur Snorri skrifar: Víötækar fundaherferðir hafa veriö í höfuðborginni og úti um landsbyggöina. Þetta eru spá- steíhur, málþing og ráðstefnur af ýmsu tagi, allt irá efnahagsvand- anum til kvörtunar kvemia yfir því hve lítið þeira er sinnt til stjómunarstarfa og fjölmiöla- vinnu. - Engin þessara spástefna eða málþinga hefur komið með neina lausn á umræddum vanda. Mér skilst að flestar ráðstefnurn- ar þjóni því hlutverki helstu að gefa fólki, sem ekki viil vera heima hjá sér í frítímum sínum, tækifæri á afdrepi einhvers stað- ar annars staðar og eru konur í meirihluta. ingólfstorgftil fyrirmyndar Sigfús hringdi: Mig langar til að lýsa ánægju minni með hið nýja Ingólfstorg, sem ég tel vera til fyrirmyndar að frekari framkvæmdum i horg- ini og jafnvel víðar um landiö. Ég vil t.d. taka Hlemmtorgið sem dæmi um staö sem lagfæra mætti í líkingu viö Ingólfstorg, jafnvel Lækjartorgiö og Óöinstorg. Þetta þýðir Iika að gömlu kofarnir, sem standa við og í nálægö Ingólfs- torgs, veröa nú að víkja í eitt skipti fyrir öli. Líka eru hús í Kirkjustrætisröðinni sem verður að fiarlægja hið snarasta. - Fegr- un borgarinnar er forgangsmái. Leiðrétfting við lesendabréf Carls J. Eiríkssonar í lesendabréfi frá Carh J. Eiríks- syni í DV 2. des. sl. hefur orðið setningabrengl og leiðréttist það hér með. - Hinn leiörétti kafli verður því þannig: „Einn kepp- andi Skotfélags Kópavogs æfði nærri daglega um haustið. Hann vissi síðsumars 1992 að mótið yrði haldið seinna á árinu. Það vissi ég ekki því að skv. upplýsingum frá ÍBR í júní 1992 var mótinu neftúiega aflýst. Ég æfði því ekk- ert fyrr en ll dögum fýrir mótið, þegar mótið var auglýst."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.