Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Page 4
4
LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994
Fréttir
Slippstöðin Oddi á Akureyri:
Allir starfsmenn fengu
uppsagnarbréf í gær
- hluti starfsmanna endurráðinn takist að forða fyrirtækinu frá gjaldþroti
Gylfi Kristjánsson, DV, AkuiByri;
Um 130 starfsmenn Slippstöðvar-
innar Odda hf. á Akureyri fengu
uppsagnarbréf í gær en auk þeirra
eru um 30 manns á uppsagnarfresti
og einhveijir þeirra missa vinnuna
nú um mánaðamótin. Flestir þeir
sem fengu uppsagnarbréf afhent í
gær eru með þriggja mánaða upp-
sagnarfrest.
„Þetta er búið að liggja í loftinu í
nokkum tíma og ég held að þetta
hafi ekki komið mönnum svo mjög á
óvart. Það breytir því hins vegar
ekki að þetta er mikið áfaU fyrir
hvern og einn sem f lendir. Það er
þó hægt að segja að þetta séu hrein-
legri aðgerðir en að vera að
smáfækka í starfsliðinu," segir Hörð-
ur Stefánsson, formaður starfs-
mannafélags fyrirtækisins.
Uppsagnimar em settar fram í
samráði við stærstu lánardrottna
fyrirtækisins. Slippstöðin Oddi hefur
verið í greiðslustöövun síðan í byrj-
un ágúst á síðasta ári og fengið hana
framlengda tvívegis. Greiðslustöðv-
un lýkur 22. febrúar nk. Þá verður
ekki um frekari frest að ræða og
Mikil endurnýjun verður á framboðslistanum því að aðeins einn af fjórum aðal- og varabæjarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins gefur kost á sér.
Prófkjör sjálfstæðismanna á Akranesi:
Jöf n og spennandi bar-
átta um fyrsta sætið
- þó að tengslin úr knattspymunni geti haft mikið að segja
Prófkjör sjálfstæðismanna á
Akranesi fer fram nú um helgina
og gæti baráttan um fyrsta sætið
orðið tvísýn og spennandi. Mikil
endumýjun verður á framboðslist-
anum því að aöeins einn af fjórum
aðal- og varabæjarfulltrúum
flokksins gefur kost á sér. Ellefu
frambjóðendur em í kjöri og beij-
ast tveir þeirra um fyrsta sætið.
Gunnar Sigurösson, formaöur
knattspymudeildar ÍA, þykir lík-
legur til að bera sigur úr býtum þó
að baráttan viö Guðmund Guðjóns-
son, verktaka og formann Sjálf-
stæðisfélagsins, geti orðið hörð.
Gunnar Sigurösson hefur verið
virkur í Knattspymufélagi ÍA og
viðloðandi knattspymuna á Skag-
anum í tuttugu ár. Hann er um-
deildur maður í bænum en þrátt
fyrir það er búist við að persónu-
fylgi hans og öflugt stuðnings-
mannalið fleyti honum í fyrsta
sætið. Það kom nokkuö á óvart
þegar Gunnar ákvað að gefa kost á
sér í prófkjöri sjálfstæðismanna
því að hann hafði verið álitinn
framsóknarmaður auk þess sem
Framsóknarflokkurinn hafði
skömmu áður boðið honum sæti á
hsta framsóknarmanna.
Orðsporiö nægir ekki
Aðalkeppinautur Gunnars, Guð-
mundur Guðjónsson, er vinsæll
verktaki í bænum og vel af honum
látið í störfum hans fyrir flokkinn.
Ekki er þó búist við að þetta góða
orðspor nægi honum í vinsælda-
kosningunni um helgina þvi að
sumir sjálfstæöismenn óttast að
verktakafyrirtæki og forysta í bæj-
armálum fari ekki saman. Þá
minnast þeir sérstaklega reynsl-
unnar úr Kópavogi og Hafnáríirði
þar sem tveir þekktir verktakar,
Gunnar L Birgisson og Jóhann G.
Bergþórsson, hafa verið í foryst-
unni og stundum komist í klemmu
Fréttaljós
Guðrún Helga
Sigurðardóttir og
Sigurður Sverrisson
vegna hagsmunaárekstra.
Búist er við að baráttan um ann-
að sæti á lista sjálfstæðismanna á
Akranesi verði tvísýn þó að margir
spái því að Elínbjörg B. Magnús-
dóttir nái kjöri í annað sætið og
Pétur Ottesen komist í þriðja sæfi.
Elínbjörg er meðal annars vara-
þingmaður fyrir Vesturland og sit-
ur í miðstjóm Alþýðusambands
íslands. Pétur er hins vegar af góð-
um og gegnum Skagaættum og var
afl hans og alnafni á sínum tíma á
þingi fyrir Vesturland. Pétur þykir
frambærilegur og skeleggur strák-
ur.
Sigríður Guðmundsdóttir skrif-
stofumaöur, Bjarki Jóhannesson
framkvæmdastjóri og Jóhannes
Finnur Halldórsson viðskiptafræö-
ingur beijast um fimmta, sjötta og
sjöunda sætiö en aðrir frambjóð-
endur eru: Þórður Þ. Þórðarson
bifreiðarstjóri, Guöjón Georgsson
rafvirki, Gunnar Olafsson húsa-
smíðameistari og Hjörtur Gunn-
arsson tæknifræðingur.
Málefnalega samstiga
Prófkjörsbaráttan á Akranesi
hefur verið róleg að undanfomu
og frambjóðendumir málefnalega
samstiga enda um persónukosn-
ingu að ræða. í prófkjörinu á Akra-
nesi gildir sú regla að frambjóöend-
ur hljóti bindandi kosningu séu
þeir nefndir á meira en helmingi
atkvæðaseðla. Kjömefnd er þá
skylt að gera tillögu um óbreytta
röð til fulltrúaráðsins en fulltrúa-
ráöið hefur lokaorö um uppröðun
á lista þó að ekki sé líklegt að röð-
inni á mönnum í efstu sætum verði
breytt.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á
Akranesi fer fram laugardaginn 29.
janúar í Sjálfstæöishúsinu viö
Heiðargerði og er það aðeins opið
flokksmönnum og öðrum stuðn-
ingsmönnum frambjóðenda. Kjör-
staður verður opnaður klukkan tíu
og lokað klukkan 22. Úrslit ættu
að vera kunn á sunnudagsmorgun.
vonast er til að fyrir þann tíma verði
hægt að afstýra gjaldþroti með
nauöasamningum.
Guðmundur Tulinius, fram-
kvæmdastjóri stöðvarinnar, sagði í
gær að með uppsögnum starfsmanna
væri fyrst og fremst verið að opna
möguleika til róttækrar endurskipu-
lagningar í fyrirtækinu vegna aölög-
unar að mjög erfiðri verkefnastöðu
og óvissu um verkefni næstu mán-
uði. Tækist að koma í veg fyrir gjald-
þrot fyrirtækisins væri fyrirhugað
að endurráða hluta starfsmannanna
innan næstu þriggja vikna en það
færi eftir verkefnum. Hins vegar
væri Ijóst að um verulega fækkun
starfsmanna yrði að ræða.
Sjálfstæöismenn í Njarðvík með prófkjör:
Barátta um 3.
og4.sætið
- óttastaðbikarleikurinndragiúrkjörsókn
Sjálfstæðismenn í Njarðvík
streyma í Sjálfstæðishúsið á laug-
ardaginn til að greiöa atkvæði í
prófkjöri flokksins fyrir bæjar-
stjórnarkosningamar í lok maí.
Prófkjörsbaráttan hefur farið vel
fram og verið róleg enda meiri-
hiutastjóm sjálfstæðismanna og
óháðra gengið stóráfallalaust þetta
kjörtímabil. Átta frambjóðendur
em 1 Kjöri, þar af ein kona, en ailir
bæjarfulltrúar flokksins gefa kost
á sér til endurkjörs.
Búist er við aö Ingólfur Bárðar-
son, rafverktaki og forseti bæjar-
stjómar, haldi fyrsta sætinu og aö
Jónína Sanders hjúknmarfræð-
ingur nái kjöri í annað sæti hstans.
Meiri óvissa ríkir um útkomuna í
þriðja og fjórða sætið. Sex fram-
bjóðendur sækjast eftir kjöri í þessi
sæti og er baráttan mest milU bæj-
arfuUtrúanna Vaiþórs S. Jónssonar
yfirverkstjóra, Kristbjöms Al-
bertssonar kennara og varabæjar-
fuUtrúans Áma Inga Stefánssonar
framkvæmdastjóra.
Aðrir frambjóðendur em: Böðvar
Jónsson fasteignasaU, Guðjón Óm-
ar Hauksson fuUtrúi og Jakob S.
Sigurðsson vélvirki.
Sameiningar-
og atvinnumál
Prófkjöriö í Njarðvík er aðaUega
persónukosning eins og í flestum
öðrum bæjarfélögum í landinu en
tvennt er þó ofarlega í huga sjálf-
stæðismanna að þessu sinni, ann-
ars vegar atvinnumálin á Suður-
nesjum og hins vegar sameining
sveitarfélaga.
Atvinnuástandið hefur verið erf-
itt í sveitarfélögunum á Suðumesj-
um eins og víðar á landinu að und-
anfomu og knýjandi að leita lausna
á vandanum.
Þá greiða íbúar í Njarðvík, Kefla-
vík og Höfnum atkvæði um sam-
einingu þessara þriggja sveitarfé-
Fréttaljós
Guðrún Helga
Sigurðardóttir
laga 5. febrúar. Frambjóðendur í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins hafa
misjafnar skoðanir á sameining-
unni og er erfitt aö segja hvaða
áhrif það getur haft á útkomuna í
prófkjörinu.
Búist er við að ríflega 300 bæj-
arbúar greiði atkvæði í prófkjörinu
þó að líklegt sé að úrslitaleikurinn
í bikarkeppni Körfuknattieikssam-
bands íslands í Laugardalshöll
mflli ÍBK og UMFN geti haft áhrif
á kjörsóknina. Ákveðið hafði verið
aö loka kjörstað klukkan 18 en
tíminn var lengdur vegna eindreg-
inna óska frá stuðningsmönnum
Njarðvíkurliösins.
Prófkjör sjálfstæðismanna fer
fram í Sjálfstæðishúsinu 1 Njarðvík
á laugardaginn og stendur frá 10
til 22.