Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Page 12
12 LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994 Erlend bóksjá Metsölukiljur Bretland Skáldsögur: 1. Bernard Cornwell: Rebel. 2. Dick Francis: Driving Force. 3. Danielle Steel: Mixed Blessings. 4. Timothy Zahn: The Last Command. - 5. Robert James Waller: The Bridges of Madison County. 6. Armistead Maupin: Maybe the Moon. 7. Robert Ludlum: The Scorpio lllusion. 8. Catherine Cookson: The Maltese Angel. 9. Judith Krantz: Scruples 2. 10. Terry Pratchett: Lords and Ladies. Rit almenns eðlis: 1. Jung Chang: Wild Swans. 2. Brian Keenan: An Evil Cradling. 3. Nick Hornby: Fever Pitch. 4. James Herriot: Every Living Thing. 5. Stephen Fry: Paperweight. 6. Stephen Briggs: The Streets of Ankh-Morpork. 7. Betty Shine: Mind Waves. 8. Bili Watterson: The Days Are Just Packed. 9. Gary Larson: The Chickens Are Restless. 10. Nancy Friday: Women On Top. (Byggt á The Sunday Times) Danmörk Skáldsögur: 1. Peter Hoeg: Froken Smillas fornemmelse for sne. 2. Isabel Allende: Andernes hus. 3. Jorn Riel: Kloften. 4. Johannes Mollehave: Kærlighed og dæmoni. 5. Hanne Vibeke Holst: Thereses tilstand. 6. John Grisham: Fírmaets mand. 7. Peter Hoeg: Forestilling om det 20. árbundrede. (Byggt á Politiken Sondag) Undanfarna áratugi hafa bækur um málefni kvenna verið góð sölu- vara í Bandaríkjunum. Kvennafræði þessi hefur einkum snúist um slæma stöðu kvenna og leiðir og markmið í baráttu þeirra fyrir jafnrétti og sjálfsvirðingu. í þessu bókaflóði hefur oft borið á harðri gagnrýni í garð karla fyrir margar ýmist raunverulegar eða ímyndaðar syndir. Að því kom að karlar fóru að snú- ast til varnar á ritvellinum og skrifa um eðli og sjálfsvitund karlmanna. Þáttaskil urðu í þeim efnum árið 1990 þegar Robert Bly sendi frá sér Iron John: A Book about Men. Hún varð metsölubók og sýndi aö mikill mark- aður var vestra fyrir bækur um það sem kalla má karlafræði. Skriða fór af stað og nú er vart þverfótað fyrir slíkum bókmenntum. Bókablað stórblaðsins The New York Times tók nýverið saman yfir- lit um þær bækur af þessu tagi sem forvitnilegastar þykja. Þar kennir margra grasa, enda hafa höfundamir fátt annað sameiginlegt en að þeir eru karlar. Hér á eftir er getið þeirra bóka sem New York Times-menn töldu helst athygb verðar. Sumir höfundanna vilja að karlar taki mark á framkominni gagnrýni og breyti hegðan sinni og eðb. Þeirra á meðal em prófessor við Alabama- háskóla, Wibiam G. Doty, höfundur Myths of Masculinity, og R. Wilbam Betcher og William S. Pollack, sál- fræðingar við þekkt bandarísk sjúkrahús, en þeir rituðu saman bók- ina ln a Time of Fallen Heroes: The Re-Creation of Masculinity. Endalok karlmennsku? John Stoltenberg, rithöfundur í New York, gengur einna lengst í þá átt að gera lítið úr mikilvægi karl- mennsku í The End of Manhood: A Book for Men of Conscience. And- stæð sjónarmið er að finna í Boys Will Be Men: Masculinity in Troubled Times eftir Richard A. Hawley, skólastjóra í Cleveland. Svo eru þeir sem snúast af hörku á móti gagnrýni kvenna á karla. í þeim hópi eru David Thomas, fyrrnrn ritstjóri Punch tímaritsins enska og Umsjón Elías Snæland Jónsson höfundur Not Guilty: The Case in Defense of Men, og Warren Fcirren sem skrifaði Myth of Male Power: Why Men Are the Disposable Sex. Farrell var áður stjórnarmaður í National Organization for Women í Bandaríkjunum en snýst nú harka- lega til varnar körlum. Sumir leggja áherslu á að mjúkur, tilfinningaríkur maður leynist hið innra með flestum körlum og hann sé hægt að leysa úr læðingi með réttri meðferð. Um það má t.d. lesa í The Lover within: Acessing the Lo- ver in the Male Psyche eftir Robert Moore og Douglas Gillette og í Sexu- al Peace: Beyond the Dominator Vir- us eftir Michael Sky. Adam Jukes leggur hins vegar áherslu á að út- skýra neikvæða þætti í skapgerð karla í Why Men Hate Women. Sumir höfundar telja mikiivægt að karlar rækti karlmennsku sína. Einn þeirra er Michael Meade, höfundur Men and the Water of Life: Initiation and the Tempering of Men. Að lokum bækur sem reyna að meta þá breytingu sem orðið hefur í samskiptum og verkaskiptingu kynj- anna síðustu áratugi. No Man’s Land: Men’s Changing Commit- ments to Family and Work er ein shk eftir Kathleen Gerson, prófessor í félagsfræði í New York. Onnur er American Manhood: Transform- ations in Masculinity from the Revol- ution to the Modern Era eftir E. Anthony Rotundo sögukennara. DV Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: 1. John Grisham: The Pelican Brief. 2. Richard North Patterson: Degree of Guilt. 3. Thomas Keneally: Schindler's List. 4. Jude Deveraux; The Invitation. 5. James Patterson: Along Came a Spider. 6. John Grisham: A Time to Kill. 7. Danielie Steel: Míxed Blessings. 8. Stephen King: Dolores Claiborne. 9. Dean Koontz: Winter Moon. 10. Anne Rice; Interview with the Vampire. 11. Catherine Coulter: The Rebei Bride. 12. John Grisham: The Firm. 13. Amy Tan: The Joy Luck Club. 14. William J. Coughlin: Inthe Presenceof Enemies. 15. Kazuo Ishiguro: The Remains of the Ðay. Rit almenns eðlís: 1. M. Scott Peck: The Road Less Travelled. 2. Rush Limbaugh: The Way Things Ought to Be. 3. Nellie Bly: Oprah! 4. Thomas Moore: Care of the Soul. 5. Maya Angelou: I Knowwhythe Caged Bird Sings. 6. Michael Jordan: Rare Aír. 7. Ann Rule: Everything She ever Wanted. 8. Peter Mayle: A Year in Provence. 9. Benjamin Hoff: The Te of Piglet. 10. Joan W. Anderson: Where Angels Walk. 11. Benjamin Hoff: The Tao of Pooh. 12. James Gleick: Genius. 13. Gail Sheehy: The Silent Passage. 14. Robert Fulghum: Uh-oh. 15. Deborah Tannen: You Just Don't Understand. (Byggt á New York Times Book Review) Vísindi Leitað að Nýr tölvustýrður skanni: Nú geta menn séð hugsanir í heilanum Ný tækni gerir visindamönnum kleift að fylgjast með starfsemi heilans. orsök há- þrýstings Þýskir vísindamenn á Max- Delbrtick stofnunínni fyrir sam- eindalæknisfræði í Berlín eru komnir á slóð aríbera sem veldur háum blóðþrýstingi. Viðfang rannsókna þeirra er arfberinn fyrir ensímið renin og tilgangur- inn er að kanna livort arfberi þessi sé öðruvísi hjá fólki sem þjáist af of háum blóðþrýstingi. Ef arfberi þeirra sem hafa of háan blóöþrýsting er írábrugðinn veröur með blóðprufu hægt að sjá fyrir um hver eigi á hættu að fá háþrýsting. Slíkt hefði aftur á móti í för með sér að hægt yrði að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir sjúkdóminn. Leikir lykill að menning- unni „Fjölbreytni leikja endurspegla ekki aðeins menningarlega fjöl- breytni okkar heldur felur hún í sér lykilinn aö skilningi okkar á mismunandi menningarsamfé- lögum," segir Gert Eicher, pró- fessor viö Hamborgarháskóla, sem er að safna saman upplýsing- um um leiki manaskepnunnar frá upphafi. : - Hann segir að margir gamalla og glataðra leikja hafi ýtt undir forvitni, sköpunargleði og næmi en tölvuleikir samtímans hvelji ítins vegar til samkeppni. Ný tegund af tölvustýrðum skanna gerir vísindamönnum nú kleift að sjá hvernig mannsheilinn starfar. Vísindamenn geta virt fyrir sér þær sýnilegu breytingar sem verða í heilanum þegar menn tala, hugsa, hlusta eða dreymir. Öll heilastarfsemi gengur á súr- efnisinnihald blóðsins og auðvelt er aö rekja slóð blóðs sem hefur misst súrefnið því þáð gefur frá sér veikt segulmerki. Það eru þessi merki sem heilaskanninn nemur og færir yfir á filmu. Á myndum úr skannanum má til dæmis sjá að þaö krefst meiri starf- semi af hálfu heilans að setja orð í samband við það sem það táknar en að endurtaka orðið. Fleiri svæði í heilanum fara af stað og skanna- myndimar sýna að hugsanatengslin eiga upprana sinn á svæði sem er á bak við vinstra augað, djúpt inni í heilanum. Bandarískir vísindamenn sjá fyrir sér að þessi tækni muni innan skamms gera m^ðhöndlun geðrænna sjúkdóma árangursríkari. Heilaskönnunin leiðir nefnilega í ljós að sjúkhngar sem þjást af geð- klofa eða þráhyggju hafa óeðlilega hringrás blóðs í heilanum. Hægt er að gera hana eðlilega á ný með þvi að breyta efnajafnvæginu. Floga- veikisjúklingar geta einnig glaðst yf- ir þessari nýju skannatækni því hún getur með leífturhraða staðsett sjúku svæðin í heilanum. Skannatækni þessi á uppruna sinn í Nottingham á Englandi en hún hef- ur verið endurbætt í New Jersey í Bandaríkjunum. Þessi nýja tækni hefur nú rutt sér til rúms á fimm stöðum í Bandaríkj- unum og þangað leita vísindamenn í stórum stíl. Þeir telja hana vera verulega framfór frá því sem áöur þekktist. Dr. Kamil Urgubil frá læknadeild háskólans í Minnesota telur að þessi nýja aðferð sé jafn þýðingarmikil fyrir taugalæknisfræöina og upp- götvun erfðalykilsins var fyrir frumurannsóknirnar. Kaffidrykkja og bein- þynning Konum sem drekka að jafnaði tvo kaffibolla á dag ævina út virð- ist hættara á að missa steinefni úr beinum sínum en slíkur missir getur leitt til beinþynningar. Steinefnamissinn er þó hægt að bæta upp með því að drekka eitt ipjólkurglas á dag. Þetta eru niðurstöður rann- sóknar sem vísindamenn við há- skólann í San Diego gerðu á 890 konum á aldrinum 50 til 98 ára. í skýrslu vísindamannanna segir að steinefnamissir í mjöðm- um og hrygg aukíst við aukna kaffineyslu og að hann sé óháður aldri, þyngd og öðrum þáttum. Beinþynning veldur því að hein verða brothættari en ella. GPS aðstoðar blinda Þess verður ekki langt að bíða að blindir geti nýtt sér GPS-stað- setningarkerfið til að vita hvar þeir eru niðurkomnir í borginni eða bænum þar sem þeir búa. Það var kanadískur verkfræöi- nemi sem tengdi GPS-tækið við tölvuna sina og sló inn staðarnöfh á gönguferð sinni um bæinn. Blind- ur maöur þarf svo ekki annað en ýta á hnapp til að fá tölvuna th að lesa upp hvar hann er staddur. Umsjón Guðlaugur Bergmundsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.