Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994
Sérstæð heimildamynd í Sjónvarpinu á mánudagskvöld:
Hver myrti
fjórða
bróðurinn?
Næstkomandi mánudagskvöld
verður sýnd í Sjónvarpinu mjög sér-
stæö, bandarísk heimildamynd. Hún
heitir á frummálinu Brother’s Keep-
er, eða Á ég að gæta bróður míns?
Myndin fjallar um fjóra bræður, Del-
bert, Bill, Lyman og Roscoe Ward,
eða Ward-bræðurna, eins og ná-
grannarnir hafa kallað þá. Þeir eru
á aldrinum 59-71 og reka gamaldags
mjólkurbú. Bræðurnir eru alir ógift-
ir og hafa varla komið út fyrir landa-
merki jarðar sinnar sem staðsett er
í New York-fylki.
Jörðin hefur verið í eigu ættarinn-
ar í tvær aldir og bræðumir yrkja
hana í sveita síns andlitis. Bústaður
þeirra er hálfgert hreysi, tveggja her-
bergja, sem þeir skipta bróðurlega á
milli sín. Þeir lifa svipuðu lífi og
bændur lifðu fyrir 200 árum. Tveir
•bræðranna, þeir Delbert og Bill, hafa
sofið í sama rúmi svo lengi sem þeir
muna. Líf þeirra hefur verið fábrotið
og kyrrlátt, á heimili þeirra er enginn
sími, ekkert salerni innan dyra og
ekkert rennandi vatn. Bandaríks
nútímaþægindi þekkjast ekki á
heimili Ward-bræðranna.
Látbróðurins
Svo gerist það einn morguninn að
rúmfélagi Delberts, Bill, finnst látinn
í rúmi sínu. Næsta dag er Delbert
handtekinn, grunaður um morðiö á
hinum 64 ára bróður sínum. Að
kvöldi þess dags hefur hann játaö á
sig morðið. Hann skrifar undir játn-
ingu en dregur vitnisburð sinn síöar
til baka og kveðst vera saklaus.
Næstu tíu mánuði berst hann fyrir
sakleysi sínu.
Fólkið í nágrannaþorpinu trúir á
sakleysi hans og telur að hann hafi
verið plataður til að skrifa undir
skjal sem hann gat hvorki lesið né
skihð til þess að ná fram játningu.
Þar kemur að upp rís öflug grasrót-
arhreyfing nágranna Delberts sem
vill hjálpa honum að verja sjálfan
sig. Peningum er safnað með ýmiss
konar samkomuhaldi og öðrum að-
ferðum og stofnaður vamarsjóður
Delberts. Hann er notaður til að
greiða færum rannsóknarlögreglu-
manni og verjanda.
Gerð myndarinnar
Þaö merkilega við þessa heimilda-
mynd er að hún er ekki gerð eftir aö
atburðurinn hefur átt sér stað, held-
ur um leið og hann gerist. Um leiö
og Delbert var ákærður fyrir morðið
voru tökumennirnir mættir með vél-
arnar. Myndin er tekin í réttarsaln-
um, á heimih bræðranna, á fjáröflun-
arsamkomum og öðrum stöðum þar
sem þeir komu við sögu. Hún lýsir
lifi þeirra eins og það gengur frá degi
til dags. Síðast en ekki síst leyfir hún
áhorfandanum að gægjast inn í ver-
öld sem telst ekki til nútímasamfé-
lags.
Myndir verður á dagskrá Sjón-
varpsins klukkan 22.05 á mánudags-
kvöld.
Einn bræðranna, Lyman Ward, á býli þeirra.
Matreiðsluþáttur Sjónvarpsins:
Steiktur saltfiskur
með sinnepssósu
Úlfar Fínnbjörnsson, matreiðslu- 1 dl hvítvín eða mysa
meistari Sjónvarpsins, býður áhorf- 2 /i dl rjómi
endum upp á steiktan saltfisk með salt og pipar
sinnepssósu næstkomandi miðviku- dag, 2 febrúar. í milhtíðinni, nánar Steiktur saltfiskur
tiltekið í dag, verður þáttur hans um matreiðslu á gufusoðnum ufsa með með sinnepssósu
ávöxtum í karrísósu endursýndur. 1 kg saltfiskur
Hann verður á dagskránni klukkan 2 dl hvítvín eða vatn
18.40 í dag.. 1 stk. laukur
Gufusoðinn ufsi með Sósa
ávöxtum í karrísósu 1-2 msk. Dijon sinnep
1 kg ufsi 1 tsk. flskkraftur
hvítvín eða vatn 2 dl hvítvín/mysa 2 dl rjómi
Sósa pipar
1 'A dl epli 1 /i dl banani Kartöílur
1 /i dl mango 400 g Jaðars, rauðar kartöflur
1 /i dl saxaður ananas 1 dl rjómi
1 msk. kókos 1 tsk. timjan
1-2 tsk. karrí salt og pipar
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN
99-6272
DV
SÍMINN E3
-talandi dæmi um þjónustu!
FYRIR LANDSBYGGÐINA:
Sveinn Andri
Sveinn Andri Sveinsson borgarfulltrúi hefur sýnt á liðnu
kjörtímabili að hann tekur starf sitt alvarlega. Hann leggur áherslu
á eftirfarandi stefnumál fyrir næsta kjörtímabil:
* Ráðdeild í borgarrekstri
* Leiksskóli fyrir öll 2 ára börn og eldri
* Reykjavík sé réttnefnd íþróttaborg
* Aflvaki Reykjavíkur hf. efldur til atvinnusköpunar
* Reykjavík yfirtaki löggæslu
* Málefni aldraðra færð frá ríki til borgar
Stuðningsmenn.
5. sæti