Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Page 33
LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994
41
Lögreglan telur sig ekki hafa sannanir til ad höfða mál á hendur Michael Jackson:
Kynfærin ekki eins
og drengurinn sagði
- Elísabet Taylor segist trúa á sakleysi vinar síns þótt hann hafi borgað vitni fyrir að þegja
„Þaö sem við sjáum á myndunum
passar einfaldlega ekki viö lysingu
drengsins,“ hafa blöö í Los Angeles
eftir ónafngreindum heimildar-
manni í lögreglunni. Um er að ræða
myndir sem teknar voru af kynfær-
um stórpopparans Michaels Jack-
sons eftir aö 13 ára drengur bar á
hann kynferðislega misnotkun.
Eftir aö drengurinn klagaði Jack-
son var hann færður til yfirheyrslu
og þá myndaður hátt og lágt. Jackson
lýsti myndatökunni síðar sem verstu
raun sem hann hefði ratað í um dag-
ana og var bæði sár og reiður þegar
hann sagði frá aðförum lögreglunnar
opinberlega.
Nú kann svo að fara að einmitt
þessar myndir verði til þess að sanna
sakleysi Jacksons. Reynist það rétt
að lýsing drengsins á kynfærum
stórpopparans sé ekki í samræmi við
það sem sjá má á myndunum hlýtur
lögreglan að álykta að frásögn stráks
sé ósönn. Þar með er eina forsendan
fyrir opinberum málarekstri gegn
Jackson úr sögunni og hann laus
allra mála.
Fébætur mælt-
ust illa fyrir
Jackson hefur þegar fallist á að
greiða drengnum jafnvirði nærri 400
milljóna íslenskra króna fyrir að
falla frá ákæru. Þessi gjörningur
þótti benda ótvírætt til sektar Jack-
sons og að hann hefði tekið þann
kostinn þegar kom að réttarhöldun-
um að bæta vitninu meintan skaða
fremur en að láta hann lýsa samvist-
um þeirra fyrir alþjóð.
Jackson hélt þó eftir sem áður fram
sakleysi sínu og sagði að greiðslan
væri aðeins innt af hendi til að forð-
ast óþarfa umtal og æsing meðal al-
mennings. Hann hefði aldrei misnot-
að umræddan dreng kynferðislega
en vildi samt verða laus við mála-
ferli.
Þegar hér var komið sögu trúðu
fáir á sakleysi Jacksons og ekki bætti
úr skák að lögreglan sagði að útilok-
að væri að færa sönnur á að faðir
dregnsins hefði ætlað að nota málið
til fjárkúgunar eins og lögmenn
Michael Jackson eygir nú loks von eftir miklar raunir undanfarna mánuði. Allar likur eru á að fallið verði frá
opinberri ákæru á hendur honum fyrir kynferðislega misnotkun á börnum. Sannanir skortir og höfuðvitnið hefur
dregið sögu sina til baka eftir að hafa fengið hátt í fjögur hundruð milljónir fyrir að þegja. Simamynd Reuter
Jacksons héldu fram í upphafi.
Yfirvöld sögðu og aö samningur
Jacksons og drengsins um bætur
breytti engu um opinbera rannsókn
málsins og hugsanlega ákæru reynd-
ist upphafleg frásögn drengsins á
rökum reist. Kynferðisleg misnotk-
un á börnum varðar við lög og ekki
er hægt að semja um bætur fyrir
hana og láta málið þar með niður
falla.
Nú hefur „lekinn" frá lögreglunni
í Los Angeles orðið til að rétta hlut
popparans á ný. Lögreglan hefur
einnig yfirheyrt þrjá drengi sem sagt
var að Jackson hefði misnotað á bú-
garði sínum í Santa Barbara. Dren-
gimir hafa allir neitað að Jackson
hafi leitað á þá þótt þeir hafi allir
leikið sér oft og mikið saman á bú-
garðinum.
ElísabetTaylor
efast ekki
Jackson er heldur ekki vinalaus
þrátt fyrir raunir sínar. Stoð hans
og stytta er leikkonan Elísabet Tayl-
or. Hún hefur nú enn og aftur lýst
yfir stuðningi við sinn mann. Hún
hefur staðið með Jackson gegnum
þykkt og þunnt og neitað að trúa öll-
um sögum um ósiðsemi.
„Ást Jacksons á börnum er hrein
og sönn. Ég hef ekkert fallegra séð
um dagana," sagði leikkonan í gær.
„Það er mér mikið gleðiefni ef þetta
leiðindamál fellur niður og Jackson
getur aftur snúið sér af fullum krafti
að list sinni.“
Mögrum hefur þótt Taylor vaxa í
áhti við staðfestu sína og trú-
mennsku við vin sinn. Á sama tíma
og áköfustu aðdáendur hans hafa
fyllst efasemdum og jafnvel fordæmt
popparann hefur Taylor haldið
merki hans hátt á lofti og hvergi
hvikað.
Þrátt fyrir að útlitið hafi skánað í
biii hjá Jackson eru raunir hans ekki
úr sögunni. Lögreglan hefur ekki
staðfest að grundvöllur málaferla sé
brostinn. Þá hefur hann orðið fyrir
alvarlegu áfalli vegna alls umtalsins
um brenglað kynlíf. í þeim efnum
skiptasannanirengumáli. -GK