Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1994, Blaðsíða 32
w
sagði Hulda.
óbærileg en ég varð að vcra sterk þeirra.
vegna bamanna,“ sagðiHulda Cole Hulda átti þá ósk heitasta að
lifriiift&S
T A
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Rltstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 63 27 06
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRUAR 1994.
Landsveit:
Fimmtán
kindur
fennti í kaf
Fimmtán kindur fennti í kaf á bæn-
um Stóra-Klofa í Landsveit í óveðr-
inu sem gekk yfir Suðurland aðfara-
nótt síðastliðins laugardags.
Að sögn húsfreyjunnar á Stóra-
Klofa var grafa fengin til að ná kind-
unum upp en þær björguðust allar.
„Ein þeirra lenti í sprungu og var
á þriggja metra dýpi. Við erum með
fjárhund og hann var alltaf að hnusa
í snjóinn á einum stað og þar reynd-
ist vera kind á þriggja metra dýpi.
Við grófum því niður á hana með
skurðgröfu," segir húsfreyjan.
Búfé á Stóra-Klofa gekk laust og
var gefið hey úr rúlluböggum en nú
er því gefið við bæinn. -pp
Jón Kr. Sólnes:
Nýstaðasem
ég mun skoða
vandlega
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
„Það er búið að höggva á þennan
hnút og niðurstaða er fengin. Upp er
komin ný staða og ég mun skoða þá
stöðu vandlega. Ég lýsti því yfir fyrir-
fram að ég myndi ekki sætta mig við
að dregið yrði um þetta,“ sagði Jón
Kr. Sólnes þegar Þórarinn B. Jóns-
son hafði hlotið 3. sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins við bæjarstjórnar-
kosningarnar í vor með hlutkesti.
Jón og Þórarinn urðu jafnir í 3.
sæti í prófkjöri flokksins á dögunum.
„Ég fagna auðvitað þessari niður-
stöðu. og vona að Jón sætti sig við
5. sætið og við getum unnið einhuga
í kosningabaráttunni sem framund-
an er,“ sagði Þórarinn.
Þorlákshöfn:
Bruggaritekinn
Lögreglan á Selfossi lokaði brugg-
verksmiðju.í heimahúsi í Þorláks-
höfn í gærkvöld.
Ungur maður var handtekinn og
viðurkenndi hann eign á 100 til 200
lítra tækjum og því magni af gambra
sem var hellt niður og landa sem
hald var lagt á.
Málið var unnið í samvinnu við
lögregluna í Hafnarfirði og Reykja-
vík. Fylgst hafði verið með mannin-
um í talsverðan tima áður en látið
vartilskararskríða. -pp
LOKI
Þá ættu ráðherrarnir loksins
að vera upplýstir!
Erum komin
heim til að
byrja nytt lif
Ægix Már Káxasan, DV, Suðuxnesjuni:
„Eg er svo ánægð og okkur Ifður
svo vel að vera komin heim til að
byrja nýtt líf hér á landi. Það er
eins og að fá nýtt tækifæri aftur.
Ferðin heim var ævintýraferð -
nýög skemmtileg og tilhugsunin
spennandi aö vera á leiðinni heim.
í samtali viö DV í morgun þegar
hún kom með Flugleiöavél frá New
York ásarnt þremur börnum sín-
Hulda bjó, sem kunnugt er af
fréttum í DV, nærri Fairbanks í
Alaska við sára fátækt og mikla
erfiöleika. Eiginmaður hennar var
fyrii' nokkru úrskurðaður í 10 ára
komast heim og nú hefur sá di*aum-
ur hennar ræst. Starfsmenn Flug-
leiða og Flugleiðir borguðu fargjald
þeirra frá Alaska til New York og
ferðina frá New York sáu Flugleið-
ir um.
„Eg vil þakka starfsfólki Flug-
leiöa og félaginu fyrir þjálpina við
að láta þennan draum rætast,"
Veðriðámorgun:
Frost
1-6stig
Á morgun verður sunnan- og
suðaustanlands víða strekking-
ur. Éljagangur verður um landið
sunnan- og vestanvert en þurrt
og nokkuð bjart norðaustan- og
norðanlands. Frost verður 1-6
stig á láglendi.
Veðrið í dag er á bls. 28
Leynd yf ir
lánveitingu
Stjóm Fiskveiðasjóðs hefur ákveð-
ið að lána nýjum eigendum SR-mjöls
um 550 milljónir til að skuldbreyta
áhvílandi lánum Landsbankans á
fyrirtækinu. Mikil leynd virðist hvíla
yfir lánveitingunni því aðilar máls-
ins vilja ekki gefa upplýsingar um
hana.
Alls námu áhvílandi lán Lands-
bankans til Síldarverksmiðja ríkis-
ins tæpum einum milljarði króna.
Björgvin Vilmundarson, sem er
bæði bankastjóri Landsbankans og
stjórnarformaður Fiskveiðasjóðs,
vildi ekkert tjá sig um málið í morg-
un. Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ og stjómarmaður Fiskveiða-
sjóðs, vísaði á starfsmenn sjóðsins
þegar hann var spurður um lánafyr-
irgreiðsluna í morgun. Svavar Ár-
mannsson, aðstoðarforstjóri Fisk-
veiðasjóðs, vísaði hins vegar á stjórn-
ina og vildi ekkert tjá sig um máÚð.
-kaa
Selfoss:
hafa ekki gef ið
kostásér
Hulda Cole ásamt börnum sinum; Haföldu Magdalenu, 7 ára, Arnari Davíð, 11 ára, og Kára, 6 ára, við heimkomuna
í morgun. DV-mynd Ægir Már
„Þetta er mikið starf og ég hef enn
ekki gert upp hug minn hvort ég
ætla að gefa kost á mér í prófkjörið.
Það skýrist í dag eða á morgun,"
sagði Bryndís Brynjólfsdóttir, odd-
viti sjálfstæðismanna á Selfossi, í
samtali við DV í morgun.
Upp er komin sérkennileg staða í
prófkjörsmálum sjálfstæðismanna á
Selfossi þar sem tveir efstu menn
listans í síðustu bæjarstjórnarkosn-
ingum, Bryndís Brynjólfsdóttir og
Sigurður Jónsson, höfðu ekki gefið
kost á sér í prófkjör þegar fresturinn
til þess rann út klukkan 18 í gær. Þá
höfðu sex manns skilað inn nöfnum
sínum, þar á meðal tveir núverandi
bæjarfulltrúar, Björn Gíslason og
Ingunn Guðmundsdóttir.
Að sögn Ólafs Bjömssonar, for-
manns sjálfstæðisfélagsins á Selfossi,
hefur Sigurður Jónsson kennari
ákveðið að draga sig í hlé. Sam-
kvæmt heimildum DV kemur sú
ákvörðun nokkuð á óvart þar sem
Sigurður mun hafa látið í ljós áhuga
á að skipa efsta sæti listans í kom-
andi kosningum.
„Við ræddum við Bryndísi á fundi
í gærkvöldi og fórum fram á að hún
tæki þátt í prófkjörinu. Við viljum
að hún leiði listann í kosningunum.
Þó ekki hafi margir skilað inn nöfn-
um áður en fresturinn rann út þá
mun prófkjörsnefndin raða mönum
á prófkjörslista," sagði Ólafur. -hlh
NSK
KULULEGUR
Suduriandsbraut 10. S. 686499.
ÞREFALDUR1. vinnmgur
t