Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 5. MARS 1994 Fréttir__________________________________________________ Frakkar slaka á iimflutmngshindrimum á ferskum fiski: Markaðir í uppnámi og verð aldrei lægra - segir Elísabet Óskarsdóttir í Bolougne Frakkar eru verulega famir að slaka á innflutningshindrunum á ferskum fiski. Innflutningur freö- fisks og saltfisks er áfram háður ströngum skilyrðum. Elísabet Óskarsdóttir starfar hjá Unipesche í Boulogne sem er stærsta franska fyrirtækið sem flytur inn íslenskan fisk. Elísabet sagðist í sam- tali við DV sjá greinileg merki þess að Frakkar væru búnir að slaka mjög mikið á kröfum um heilbrigðiseftirlit með ferskum fiski. Tilslakanir Frakka lýsa sér t.d. í því að pappírsskjöl, gerð í Bretlandi, eru samþykkt á ensku en áður urðu þau að vera á frönsku. Ekki þarf að merkja hvem ferskfiskkassa fyrir sig sem hefur, að sögn Elísabetar, verið nær óframkvæmanlegt. Þá er ekki lengur 48 klukkustunda bið eftir ferskum fiski á meðan hann er í sýnatöku. Elísabet sagði að fyrst hefði borið á tilslökunum Frakka sl. miðvikudag og ekki væri vafi á að þrýstingur bandarískra og íslenskra stjómvalda m.a. heföi haft áhrif. Það er álit Elísabetar að aðgerðir Frakka hafi ekki skilað tilætluðum árangri. Þær hafi bitnað á innan- landsmarkaði, Bretlandsmarkaði og sömuleiðis Þýskalandsmarkaði. „Allir markaðir eru í uppnámi og fiskverð í Frakklandi og annars stað- ar hefur aldrei verið lægra. Markaðs- lögmáhn fengu að ráða en Frakkar gleymdu að gera ráð fyrir því að fisk- ur frá löndum utan Evrópusam- bandsins er bara unninn annars staöar og kemur til Frakklands sem flakaður Evrópusambandsfiskur. Frakkland er vaðandi í ódýrum flök- um frá Bretlandi. Þetta er slíkt vand- ræðamál fyrir Frakka að þaö tekur engu tali,“ sagði Elísabet. Fljótfærni og vanþekking Elísabet tók undir með Birgi Jó- hannssyni hjá Nord Mome að franskir eftirlitsmenn væru orðnir hundleiðir á ástandinu og sömu sögu væri að segja um franska fiskkaup- endur. „Með innflutningshindrun- um vom stjórnvöld fyrst og fremst að friða sjómennina, án þess að gera sér grein fyrir afleiðingimum. Þetta er fljótfæmisákvörðun, tekin í al- görri vanþekkingu á því hvemig þessi markaður hagar sér,“ sagði Elísabet. Unipesche ætlar að halda áfram að láta tollafgreiða ferskfiskinn utan Frakklands eftir helgina en síðan á Elísabet von á „eðlilegu" ástandi. „Eðlilegt" ástand er að fyrirtækið flytji inn um 200 tonn af íslenskum ferskfiskiáviku. -bjb Smygl í leiguskipi: Um 400 lítrar af vodka og 35 þúsund sígarettur - fundustíklefaskipverja Fimm skipveijar á Úranusi, leigu- skipi Samskipa, viðurkenndu við yf- irheyrslur rannsóknardeildar Toll- gæslunnar að hafa ætlað að smygla tæplega 400 lítrum af 75 prósenta vodka, kampavíni, koníaki og viskn. Að auki viöurkenndu þeir smygl á 35 þúsund sígarettum. Skipið kom til landsins aðfaranótt fimmtudags úr millilandasiglingu. Það vom svo tollverðir skipavaktar Tobgæslunnar í Reykjavík sem fundu smygbð í gærmorgun í klefa eins skipverjanna en skipverjarnir höfðu flutt það úr gámi á þilfari skipsins í klefann eftir að skipið hafði verið tollskoðað. 11 manns em í áhöfn skipsins, þar af fimm íslendingar, og viðurkenndu þeir alUr að hafa ætlað að flylja smygUðtillandsins. -pp 358 umsóknir Ágúst Einarsson, tormaður banka- ráðs Seðlabankans, var heldur kátur siödegis i gær þegar hann hafði fengið f hendur bunka með 358 umsóknum um stöður seðlabanka- stjóra en umsóknarfresturinn rann út í gær. Af þessum 358 eru 327 umsóknir frá nemendum í MH og 31 umsókn frá öðrum. Bankaráös- menn hittast á mánudag til að fara yfir umsóknirnar. -GHS/OV-mynd BG t'KI Sii WídlJI MlR títtrií.cíí:**:. iih t«í>t lki:y S.í. : Tollvörður stendur hér viö stæðurnar af vodka- og sigarettukössunum. DV-mynd Sveinn Aðstoðin við Vestfirðinga: Ijóst að aðrir þurfa ámóta aðgerðir - segir Sturla Böðvarsson, þingmaður Vesturlands „Ég geri út af fyrir sig ekki at- hugasemdir við tfllögur um aðgerð- ir til aðstoðar Vestfjörðum enda þótt þær tiUögur um aðgerðir séu öðruvísi en veriö hefur. Það er hins vegar alveg ljóst að staðan á Vest- urlandi er mjög ámóta og á Vest- fjörðum vegna þorskbrests. Ég lít því svo á að varðandi Vestfirði sé í fyrsta kastinu veriö að bregðast við mjög mikiUi hættu á fólksflótta af svæðinu. Þess vegna sé þama tekið til hendinni fyrst. Á því leikur hins vegar enginn vafi aö við verð- um að standa fyrir ámóta aðgerð- um á tilteknum stöðum annars staöar á landinu, þar á meðal á Vesturlandi," sagði Sturla Böð- varsson, fyrsti þingmaöur Vestur- landskjördæmis. Guðjón Guðmundsson, hinn þingmaöur Sjálfstæðisflokksins á Vesturlandi, sagði i DV í gær að hann og aðrir þingmenn kjördæm- isins myndu krefjast þess að sjáv- arútvegsfyrirtæki á Vesturlandi, sem eiga í erfiöleikum vegna kvóta- leysis, eins og vestfirsk fyrirtæki, fái aðstoð. HrafnkeU A. Jónsson, formaður Verkalýðsfélagsins Árvakurs á Eskifiröi, sagði að sér þætti tvennt um það sem til stendur að gera á Vestfjörðum. í fyrsta lagi sagðist hann skilja ótta Vestfiröinga við atvinnuleysi. Líta mætti á þessar sértæku aðgerðir ríkisstjórnarinn- ar til þess að spoma við vaxandi atvinnuleysi þar. En hvað þá með staði eins og til dæmis Austfirði þar sem atvinnuleysi upp á 5 til 15 pró- sent er staöbundið? Hvers eiga þeir aö gjalda? „Hins vegar sé ég ekki að það sé nein lausn á vandanum að auka skuldir ríkissjóös upp á hundmð milljóna króna til aö aðstoða Vest- firðinga tímabundið. Menn verða einfaldlega að draga úr vinnu og veiða þann kvóta sem til er þannig að einhver atvinna sé aUt árið en klára ekki allan kvótann í byrjun veiðiársins," sagði HrafnkeU A. Jónsson. -S.dór Framkvæmdastjóm Evrópu- sambandsins íhugar refsiaðgerð- ir gegn Frökkum vegna innflutn- ingshindrana þenra á fiski frá þjóðum utan sambandsins, þ. á m. íslandi í ffétt norsku frétta- stofunnar kemur fram að fram- kvæmdastjómin segist skilja mótmæU íslendinga, Bandaríkja- manna, Norðmanna og Kanada- manna og íhugi rannsókn. Framkvæmdastjórnin gæti gripið til þess ráðs að halda eftir greiöslum til Frakka sem gæti numiö því tapi sem flskútflytj- endur hafa orðið fyrir. Það yrðu hundrað milljóna króna því ís- lendingar einir hafa misst við- skipti upp á um 209-300 miUjónir króna. -bjb Ráðstefna ungliða: Afhverjuerenn veriðaðræða usnjafnréfti? Ungliðahreyfingar allra stjórn- málaflokka og menntaskólanem- ar halda ráðstefnu um jafnrétti kynjanna á morgun. Ráðstefnan verður í Ráðhúsi Reykjavöan- og þar verður velt upp spurningum eins og: Er hægt að tala um lýðræði þar sem ekki er jafnrétti? Er komin ný tíð í jafnréttisuraræðunni? og af hverju er enn verið að ræða um jafhrétti? Fyrirlesarar verða sex og eftir þeirra framsögu verða paUborðs- umræöur. Ráöstefnan hefst kl. 13.30 og lýkur um kl. 18. Stuttar fréttir Þorsteinnvillkaupa Á sýningu björgunarsveitar- manna ítrekaði Þorsteinn Páls- son þann vilja sinn að kaupa björgunarþyrlu. EB-aðild könnuð Rikisstjómin ákvað i gær að láta kanna kosti og gaUa þess að ganga í Evrópusambandið, áður Evrópubandalagið. Kanadatogarar á leiðinni Tveir Kanadatogarar, sem Hraðfrystihúsið á Þórshöfn og Tangi á Vopnafirði keyptu, koma til Vöpnafjarðar í dag. Eiturgámuráreki Eiturefnagámur, sem banda- rískt skip missti í óveðri fyrr í vetur, fannst á reki skammt aust- ur af landinu síðdegis í gær. 6 milljónir í menninguna Af 60 milljóna króna framlagi til menningarmála á Norðurlönd- um fá íslendingar 6 milljónir frá Norræna menningarsjóðnum. Hagstæðvöruskipti Vöruskipti við útlönd í janúar- mánuði sl. voru hagstæð um rúma 2 milljaröa króna. Aukin noiræn fjárlög Halldór Ásgrímsson leggur til á þingi Norðurlandaráðs aö nor- rænu fjárlögin verði aukin úr 7 í 7,4 miUjarða króna. Þjóðgarðsvörður ráðinn Náttúruverndarráð hefur ráðið Sigþrúöi SteUu Jóhannsdóttur liffræðing i stöðu þjóðgarðsvarð- aríJökulsárgljúfram. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.