Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Qupperneq 3
LAUGARDAGUR 5. MARS 1994 3 Fréttir Hæstiréttur dæmir mann fyrir umboðssvik: 12 mánaða fangelsi fyrir milKónasvik - 9mánuðirskilorðsbundnirtilþriggjaára Hæstiréttur dæmdi í gær 46 ára karlmann í 12 mánaöa fangelsi fyrir' umboðssvik. Þar skulu af 9 mánuðir vera skilorðsbundnir og þeir falla niður að 3 árum liönum. Maðurinn hafði áður verið dæmdur í 5 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir héraðs- dómi en eiginkona hans sýknuð. Það var í febrúarmánuði sem hjón- in voru ákærð fyrir að hafa misnotað aðstööu sína sem handhafar víxil- eyðublaðs. Maðurinn haíði fengið það í hendur frá fyrrum starfsfélaga sínum með áritun hans sem útgef- anda og framseljanda. Þeir höfðu rekið saman fyrirtæki sem varð gjaldþrota. Maðurinn viðurkenndi að hafa í ársbyijun 1991 sett á víxilinn, án samráðs við útgefanda og framselj- anda, dagsetningu og 12 milljón króna upphæð. Hélt hann þvi fram að fjárhæðin væri byggð á samantekt löggilts endurskoðanda á gögnum frá sér um skuld samstarfsaðila síns. Þetta féllst rétturinn ekki á og taldi að manninum hefði verið með öllu óheimil sú meðferð víxileyðublaðs- ins sem hann viðhafði. „Með útfyllingu víxilsins og síöari hagnýtingu hans ... misnotaði ákærði gróflega aðstöðu sína og ber að staðfesta þá niðurstöðu héraðs- dómara að atferli þetta varði við 249. gr. almennra hegningarlaga," segir í dómnum. Með tilliti til þeirra afdrifaríku af- leiðinga sem verknaöurinn hafði í för með sér fyrir brotaþola, og þess að maðurinn hafði tvívegis áður gerst sekur um auðgunarbrot, þótti réttin- um hæfileg refsing 1 ár. Eins og fyrr sagði voru 9 mánuðir skilorðsbundn- ir til 3 ára. Manninum var jafnframt gert að greiða áfrýjunarkostnað, saksókn- aralaun og málsvamarlaun skipaðs verjanda. -pp Borgarstjóm: Samþykkti þúsund manna atvinnuátak Borgarstjóm samþykkti á fundi sínum á fimmtudag tillögu borgar- stjóra um átak til að skapa 1000 manns atvinnu í Reykjavík í vor. Á fundinum lögðu borgarfulltrúar minnihlutans til að jafnræði kynj- anna í átaksverkefnum borgarinnar yrði tryggt og leitað yrði eftir sam- starfi við atvinnurekendur og verka- lýðsfélög um skipun nefndar sem fylgdist með sveiflum í atvinnulífinu, auk þess sem komið yrði á fót reglu- legu samstarfi við atvinnurekendur um upplýsingastreymi varðandi rekstur fyrirtækja. Tillögur minni- hlutans verða teknar fyrir í borgar- ráði á þriðjudag. -GHS SVE-málið: Hamingjuóskir í tilefni af samkomulagi Markúsar Amar Antonssonar borgarstjóra við starfsmenn SVR hf. nýlega hafa full- trúar minnihlutaflokkanna í borgar- stjóm óskað borgarstjóra „til ham- ingju með að hafa séð að sér“ í SVR- málinu. í bókun frá síðasta borgar- stjómarfundi segir að það sé skoðun borgarfulltrúanna að „borgarstjóri hefði átt að þora að stíga skrefið til fulls“ og gera SVR hf. aftur að borg- arfyrirtæki. í bókun frá borgarfulltrúum Sjálf- stæðisflokksins frá sama fundi segir aö með samkomulaginu við starfs- menn SVR hf. sé því markmiði náð að sátt hafi tekist um laun og kjör starfsmanna hjá SVR hf., auk þess sem fyrirtækinu hafi verið „sköpuð skilyrði til að ná aukinni hagkvæmni í rekstri og jöfnuð samkeppnisað- staða þess við aðila í einkarekstri", einsogsegiríbókuninni. -GHS SVRhf.: Stjórninánægð Stjóm SVR hf. hefur lýst yfir ánægju með nýgert samkomulag Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar og borgarstjóra um málefni starfsmanna SVR. í fréttatilkynn- ingu frá stjóminni kemur fram að stjómarmenn vonist til þess að gott samstarf takist við starfsmenn og að friður ríki um starfsemi hlutafélags- insíframtíðinni. -GHS rd GuffníffminiD WLaugavegi 178 Borðapantanir í síma 679967 BOKSM. VA o ® bókii' lítn W Q I o u S U Uj^»“'“uö BÖKINJUM ÁSTINA OB HJONABANDIB f æ s t í næstu bokabúó Ert þú á leíó f hjónaband eöa vilt þú b»ta hjónaband þitt? Hvernig getur þú höndlað hamingjuna í nánu sam- bandi við maka þinn? Hér er fjallað um makaval, þroskaða og óþroskaða ást, réttarstöðu hjóna- bandsins, brúðkaup og brúðkaupssiði, ólíka menningu kvenna og karla og leitina að jafnrétti í hjónabandi. Ennfremur er fjallað af nærfærni um þau marg- víslegu vandamál sem mæta öllum hjónum á lífsleiðinni og bent á leiðir til að leysa þau og gera gott hjónaband betra. í bókinni er að finna mikinn fróðleik um flest það sem lýtur að sambandi tveggja einstaklinga og óhætt að fullyrða að hún getur vísað mörgum veginn til betra og innihaldsríkara lífs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.