Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Side 4
4 LAUGARDAGUR 5. MARS 1994 Fréttir Forseti Hæstaréttar blandar sér ítrekað í opinbera umræðu um málefni réttarins: Afskiptin eru fá- heyrð og óheppileg - að mati virtra lögfræðinga sem segja að Mður eigi að ríkja um æðsta dómstól landsins „Mér er ekki kunnugt um að svona hafi gerst áður i Hæstarétti. Forsetar réttarins hafa haldið sig mjög fjarri sviðs- Ijósinu, að minnsta kosti að eigin frumkvæði,“ sagði mjög virtur lögfræðingur í samtali við DV. DV-mynd BG Hrafn Bragason, forseti Hæstarétt- ar og fyrrum varaforseti réttarins, hefur sem slíkur a.m.k. fjórum sinn- um blandað sér í umræður um ýmis málefni dómstólsins á síðustu fimm mánuðum. Forsetinn hefur m.a. þótt tala niður til Alþingis, löggjafar- valdsins, lögmanna og jafnvel al- mennings. Hann er tahnn hafa farið langt út fyrir þau mörk í almennum umræðum sem fyrrum forsetar Hæstaréttar hafa gert. Hrafn hefur tekið þátt í umræðum um launamál hæstaréttardómara, byggingu húss fyrir Hæstarétt, kærumál lögmanna og umíjöllun fjölmiðla um mál dóms- ins. „Mér er ekki kunnugt um að svona hafi gerst áður í Hæstarétti. Forsetar réttarins hafa haldið sig mjög fjarri sviðsijósinu, að minnsta kosti að eig- in frumkvæði,“ sagði mjög virtur lögfræðingur í samtali við DV Annar sagði eftirfarandi: „Þetta er mjög óheppilegt, að forseti Hæsta- réttar blandi sér í mál með þessum hætti. Það á að ríkja friður um dóm- stólinn." Talaði í niðrandi tón um þingmenn Talsvert bar á Hrafni þegar launa- mál hæstaréttardómara bar á góma síðastliðið haust. Hann tók þá þátt í umræðum, sem varaforseti Hæsta- réttar, um auknar launagreiðsiur til hæstaréttardómara og rökstuddi mál sitt m.a. með auknu vinnuálagi í dóminum. Hrafn tók við af Þór Vilhjálmssyni sem forseti Hæstaréttar í byrjun þessa árs. Skömmu eftir það urðu miklar umræður um byggingu húss fyrir Hæstarétt og skrifaði þá forseti dómsins grein í Morgunblaöiö þar sem hann gagnrýndi m.a. Davíð Oddsson forsætisráðherra, Ólaf Ragnar Grímsson, formann Alþýðu- bandalagsins, og Kristínu Ástgeirs- dóttur, þingmann Kvennalistans. í greininni vék hann að „uppá- komu“ á Alþingi og talaði í raun í mjög niðrandi tón um ráðherrann og þingmennina. Að áliti margra þótti forseti æðsta dómstóls landsins með þessu sýna löggjafarvaldinu litla virðingu. í greininni sagði m.a. um Ólaf Ragnar Grímsson: „Uppákoman var að vísu ekki eins vel upp sett og venjulega þegar for- maður Alþýðubandalagsins sviðset- ur með hvíslvinum sínum hjá fjöl- miðlunum... Áhorfendur hafa þrátt fyrir þessa augljósu galla á sýning- unni tekið þessari uppákomu fremur vel og klappað sviðsetjurum lof í lófa. Líklega virt frummælandanmn til vorkunnar að hann hafði ekki reynslu hinna færustu fagmanna í uppákomufræðum." Kristín Ást- geirsdóttir var sú sem átt var við með frummælandanum. Hörð gagnrýni „f.h. Hæstaréttar" Eftir að Hrafn varð forseti Hæsta- réttar lét hann einnig til sín taka með því að skrifa umdeilt bréf til Lög- mannafélags íslands, Dómarafélags- ins og héraðsdómstólanna í landinu. Þar kom fram hörð gagnrýni á lög- menn vegna þess að kærumálum af þeirra hálfu til réttarins hafði fjölgað verulega. í bréfinu vék hann m.a. að því að í sumum kærumálum lög- manna virtist enginn tilgangur á bakvið, nema þá að hefta framgang mála. Hrafn lét að því Uggja í bréfinu að rétt væri að beita svoköUuðum refsimálskostnaði í ríkari mæU en fram að þessu hefði verið gert. Listi fylgdi með í bréfinu yfir þá lögmenn sem oftast höfðu kært niöurstöður héraðsdómstóla á landinu. Þó að Hrafn skrifaði undir bréfið „f.h. Hæstaréttar" sagði forsetinn að hann hefði skrifað undir það per- Fréttaljós Óttar Sveinsson sónulega en ekki sem fuUtrúi réttar- ins. Um þetta sagði Tómas Gunnarsson hæstaréttarlögmaður sem var einn þeirra kæruglöðustu á Usta Hrafns: „Ég ætla ekki að banna Hrafni Bragasyni að hafa sínar skoðanir en það er fráleitt að hann eigi að nota sína stofnun sem eitthvert skjól eða forsvarsaðila og tala eins og hann sé að tala í nafni réttarins. Hrafn Braga- son getur komið inn í blaðaumræðu ef honum sýnist en þá verður hann að gjöra svo vel að skrifa undir sem Hrafh Bragason lögfræðingur.“ Efni bréfs Hrafns var birt ífjölmiðl- um. Jón Steinar Gunnlaugsson sagði m.a. um innihald þess: „Aðalatriðið í málinu er að dómstóllinn getur tek- ið á máUnu lögum samkvæmt. Leiðin til þess er ekki sú að áfrýjunardóm- stóU eins og Hæstiréttur sé að senda frá sér glósur eins og þær sem birt- ast í þessu dreifibréfi forseta réttar- ins. Forseti Hæstaréttar og stofnunin sem slík tefla á tæpasta vað með því að senda þetta frá sér í þessum bún- ingi.“ Jón Stéinar sagði jafnframt að þar eð Hrafn hefði skrifað undir bréfið fyrir hönd Hæstaréttar bæri ekki að Uta á það sem neitt einkabréf. Bréfið sem var „ekki eiginlegt“ Síðasta útspU Hrafns er annað bréf til Lögmannafélagsins, Dómarafé- lagsins og héraðsdómstóla. Þar segir hann m.a. að „gögnin og samantekt- in“ í fyrra bréfinu hafi verið send „af mér sem stjómanda réttarins og eðU- lega í hans nafni. Samantekt þessi er ekki eiginlegt bréf. . .“ Hrafn taldi einnig að hrapaUega hefði tíl tekist í „kærumálinu" vegna „frum- hlaups" lögmannanna Jóns Odds- sonar og Tómasar Gunnarssonar. Hrafh sagði að bréfið ætti ekki að ljósrita og ætti aUs ekki að birtast í fjölmiðlum. Varðandi samskipti rétt- arins við lögmenn sagði Hrafn að rétturinn þyrfti að taka upp ýmislegt við þá eins og gerð og frágang ágripa, skiúlegan flutning kænnnála og „hvemig eigi að haga samgangi lög- manna við fjölmiðla um einstök dómsmál". Hrafn taldi nauðsynlegt aö koma einhveiju öðm formi á sam- skipti en bréflegu. Einkennist af hörku og jafnvel hroka Það sem viðmælendur DV telja fyrst og fremst óviðeigandi hjá Hrafni er að hann skuU, sem forseti æðsta dómstóls landsins, blanda sér af hörku og jafiivel hroka í deUur og umræður á meðan „friður á að ríkja um æðsta dómstig landsins", eins og menn hafa orðað það. Varðandi bréf- in telja menn eðUlegt að rætt sé sam- an um tilhögun og samstarf lög- manna og réttarins enda em þeir fyrmefndu í raun starfsmenn hans á meðan þeir reka mál fyrir Hæsta- rétti. „Það er sjálfsagt og eðUlegt að menn taU saman og hafi samvinnu um að hafa hluti þannig að þeir gangi sem greiðast. Það er ekkert við það að athuga en það er aUtaf spuming hvemig á að leggja slikt fyrir. En það getur verið gott að tala saman um hlutina," sagði lögmaður við DV. Um samgang lögmanna við fjöl- miðla varðandi einstök dómsmál, það er aðUa utan dómstólsins um ákveðin úrlausnarefni hans, sagði Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. í sam- taU við DV í gær að „Hæstiréttur hefði ekkert um það að segja“ - dóm- stóllinn ætti einungis að fara með þau verkefni sem tíl hans væri skot- ið og gera það með þeim hætti sem lög mæla fyrir um. Bréfaskriftir Hrafns tíl lögmanna og dómara, jafnt og óvægin þátttaka hans í umræðum um máefni réttar- ins, þykja þvi óviðeigandi, sérstak- lega á meðan hann er einn um fram- setningu á skoðunum sínum en á sama tíma og hann skrifar undir að erindin séu fyrir hönd Hæstaréttar. Verðkönnun á fermingarmyndatökum: Raunhæf ur saman- burður útilokaður - afarmisiafhthvaðerinnifalið í nýlegri verðkönnun Samkeppnis- stofnunar þar sem kannað var verð á fermingarljósmyndum hjá 14 ljós- myndastofum Vcirð niðurstaðan sú að útilokað væri að gera raunhæfan samanburð. Kemur þaö tíl af því aö afar misjafnt er hvað er innifaUð í uppgefnu verði, bæði fjöldi mynda (sem var frá 4-16), stærð þeirra og stækkanir. Meðfylgjandi tölur verö- ur því að skoða sem upplýsingar fyr- ir neytendur. H[já sumum eru stækkanir inni- faldar í verðinu en stækkun á einni mynd í 13x18 kostaði á bilinu 1.800 (sem var tilboðsverð) og upp í 3.078 krónur, ódýrast hjá Ljósmyndastofu Gunnars Ingimarssonar en dýrast hjá Ljósmyndastofu Rutar. Stækkun á einni mynd í 18x24 kost- aði á bilinu 2.800-4.800 krónur, ódýr- ast hjá Bama- og fjölskyldumyndum og dýrast hjá Sigríði Bachmann. Stækkun á einni mynd í 24x30 kost- aði á bUinu 3.548-6.900, ódýrast hjá Ljósmyndastofu Kristjáns Magnús- sonar en dýrast hjá Sigríði Bach- mann. -ingo Hvað koslar fermingarmyndin? 9700 9900 10000 11 E 1 14000 12000 10000 8000 6000 4000 2000 0 1. Innif. tvær stækkanlr 13x18 2. Val um litmyndir eöa sv/hv. 3. Innif. tvær stækkanir 18x24 13500 1 10800 -44400-11500. 11900 12000 12000 12000 12000 12520 iTrrn i 11 (j M i E I II I I i 1J 8 sl II IJ IJJIJJ II imi iiiiii ii 4. innif. tvær stækkanir 20x25 og 1 stækkun 30x40 í ramma 5. Innif. þrjár stækkanir 13x18 6. Innif. fjölskyldumyndat. og/eða af systkinum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.