Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Side 12
12 LAUGARDAGUR 5. MARS 1994 Erlend bóksjá Metsölukiljur Bretland Skáldsögur: 1. Georga Eliot: Middlemarch. 2. Thomas Keneally: Schíndler's List. 3. Elizabeth George: Missing Joseph. 4. Joan Brady: Theory of War. 5. John Grisham: The Peiican Brief. 6. Colin Forbes: By Stealth. 7. Helen Forrester: The Liverpool Basque. 8. Robert James Waller: The Bridges of Madison County. 9. Kazuo Ishtguro: The Remains of the Day. 10. Anne Fine: Madame Doubtfire. Rit almenns eðlis: 1. Jung Chang: Wild Swans. 2. Nick Hornby: Fever Pitch. 3. Brian Keenan: An Evil Cradling. 4. James Herriot: Every Living Thing. 5. Stephen Briggs: The Streets of Ankh-Morpork. 6. Stephen Fry: Paperweight. 7. Dirk Bogarde: The Great Meadows. 8. Antonia Fraser: The Six Wives of Henry VIII. 9. IMancy Friday: Women on Top. 10. S. Milltgan & A. Ciare: Depression and how to Survive It. (Byggt é The Sunday Times) Danmörk Skáldsögur: 1. Peter Hoeg: Froken Smitlas fornemmelse for sne. 2. Mary Wesley: En tvivlsom affœre. 3. James Ellroy: Sorte Dahiia. 4. Robert Goddard: Fra billede til billede. 5. Laura Esquivel: Hjerter i chili. 6. Peter Hoeg: Forestilling om det 20. árhundrede. 7. Peter Hoeg: Fortaallínger om natten. (Byggt á Politlken Sondag) Yossarian snýr aftur Fáir rithöfundar hafa markað jafndjúp spor með fyrstu skáldsögu sinni og Joseph Heller. Frumraun hans á skáldskaparsviðinu, Catch-22, tók á hermennsku í síðari heimsstyrjöldinni með allt öðrum hætti en eldri banda- rísk skáldverk og átti sinn þátt í að breyta afstöðu Banda- ríkjamanna til styrialdar á sjöunda áratugnum. Sagan varð fljótlega sígild og nafn hennar að sérstöku hugtaki fyrir mótsagnakennt reglurugl kerfisins. Heller, sem fæddist í New York áriö 1923, átti skiljan- lega erfitt með að fylgja þessum mikla bókmenntasigri sínum eftir. Samt hélt hann áfram að skrifa þannig að ný verk komu frá hans hendi með hléum. Something happened (1974) fiallar um kvöl einstaklings í heimi viðskiptaskrifræðis. Good as Gold (1979) tekur á bandarískum þjóðmálum um miðjan áttunda áratuginn. Og God Knows (1984) er „sjálfsævisaga" Davíðs, konungs ísraels. Stríð sem fáránleg skrítla En ekkert þessara skáldverka kom að gæðum eða vin- sældum nálægt sögunni um Yossarian og félaga hans í bandaríska flughernum í síðari heimsstyrjöldinni - en hún hefur selst í um 10 milljónum eintaka. í augum þeirra var stríðið fáránleg skrítla sem Yossarian hafði engan áhuga á að taka þátt í. En það reyndist alls ekki svo auðvelt fyrir Yossarian að losna undan frekari herþjónustu. Flugliði í bandaríska flughernum gat að vísu sloppið við aö fara fleiri árásar- ferðir með því að lýsa sjálfan sig geðveikan. En reglan, sem gekk undir heitinu Catch-22, gerði ráð fyrir að sér- hver flugliði sem hefði vit og vilja til að losna undan frek- ari þátttöku í stríðinu gæti eðli málsins samkvæmt ekki verið geðveikur. Þess vegna varð Yossarian að halda áfram að varpa sprengjum á óvininn. Tímamót Heller skildi við söguhetju sína á floti einhvers staðar í Miðjarðarhafinu. En nú snýr Yossarian aftur í nýrri skáldsögu, Closing Time, sem er væntanleg á markað vestra í haust. Joseph Heller: hefur skrifað nýja skáldsögu um Yossar- Umsjón Elías Snæland Jónsson Nýja skáldsagan gerist á okkar tímum í New York. Margt hefur borið fyrir í lífi helstu sögupersónanna. Yossarian sjálfur á að baki þrjú hjónabönd og ýmis störf en vinnur nú sem viðskiptaráðgjafi. Önnur eftirminnileg söguhetja í Catch-22, svartamarkaðsbraskarinn Milo Mindbender, er fyrir löngu orðinn risamilli; nafn hans er skráð á stórhýsi í Rockefeller Center. Heller segir að nýja skáldsagan sé að verulegu leyti sjálfsævisöguleg. En hún fialli í leiðinni um lok ákveðins tímabils, eins og nafn sögunnar vísi til, því kynslóöin sem barðist í síðari heimsstyrjöldinni sé að hverfa nú undir lok aldarinnar. Honum virðist hafa legið mikið á hjarta við ritun þess- arar sögu. Þannig skilaði hann í upphafi inn 1100 blaðs- íðna handriti. Með aðstoð ritstjóra forlagsins var það skorið niður um nærri 500 síður. Og þannig birtist skáld- sagan lesendum. Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: 1. John Grisham: The Client. 2. LaVyrie Spencer: November of the Heart. 3. Thomas Keneally: Schindler's Líst. 4. Kevin J. Anderson: Jedi Search. 5. Dean Koontz: Winter Moon. 6. V.C. Andrews: Ruby. 7. Richard North Patterson: Degree of Guilt. 8. Julie Garwood: Savíng Grace. 9. Steve Martini: Prime Witness. 10. Barbara Delinsky: Suddenly. 11. Lilian Jackson Braun. The Cat Who Went into the Closet. 12. John Grisham: The Pelícan Brief. 13. Robin Cook: Terminal. 14. Terry Brooks: The Talismans of Shánnara. 15. Dick Francis: Driving Force. Rit almenns eölis: 1. Thomas Moore: Care of the Soul. 2. M. Scott Peck: The Road Less Travelled. 3. Maya Angelou: I Knowwhythe Caged Bird Sings. 4. Joan W. Anderson: Where Angels Walk. 5. Rush Limbaugh: The Way Things Ought to Be. 6. Peter Mayle: A Year in Provence. 7. Benjamin Hoff: The Tao of Pooh. 8. Gail Sheehy: The Silent Passage. 9. H.G. Moore8i J. L. Galloway: We Were Soldiers Once. . .and Young. ■10. James Gleick: Genius. 11. Deborah Tannen: You Just Don't Understand. 12. Nellie Bly: Oprah! 13. Benjamin Hoff: The Te of Píglet. 14. Norman Maclean: Young Men 8i Fire. 15. Ann Rule: Everything She ever Wanted. (Byggt á New York Times Book Review) Forfeður mannkynsins í Asíu fyrr en ætlað var Forfeður okkar fóru frá Afríku áður en þeir höfðu fundið upp steinverkfærin. Vísindi Karlleður- blökur framleiða mjólk Bandarískir og kanadískir vís- indamenn hafa uppgötvaö fyrstu sannanir þess að karldýr leður- blökutegundar einnar í Malasíu geta framleitt mjólk í brjóstum sínum. Svo virðist þó sem þeir hafi ekki haft ungviði á brjósti. Frekari rannsókna er þó þörf áður en hægt verður að slá nokkru alveg fóstu. Þaö er lífeðlisfræöilega mögu- legt að karlar framleiði mjólk en það er aftur á móti afar sjald- gæft. Vitað er að það hafi gerst meðal húsdýra þar sem innrækt- un hefur veriö mikil og hjá kari- mönnum sem hafa gengist undir hormónameðferö. Ekki er vitað til þess að það hafi gerst meðal villtra dýra í náttúrunni. Hátækni- fuglahræða Bandarískt fyrirtæki hefur þró- að hátækni-fuglahræðu sem hentar vei námufyrirtækjum sem vilja koma í veg fyrir að fuglar fari í úrgangsefnatjamir sem oft eru fullar af eiturefnum á borð viö blásýru. Fuglahræðan byggist á hljóö- kerfi sem tengt er við ratsjá og gefur frá sér hin mestu óhijóð þegar fuglar nálgast tjömina. Ratsjáin er svo nákvæm að hún greinir fuglana mun betur en mannfólkiö getur. Ýmsar spurningar hafa nú kviknað um þróun mannskepnunnar eftir að tveir jarðvísindamenn færðu nýlega sönnur á það að einn af forfeörum mannkynsins hefði veriö í Asíu einni milljón ára fyrr en áður var haldið. Vísindamennirnir, þeir Carl Swis- her og Garniss Curtis, sem starfa við Mannkynsupprunastofnunina í Ber- keley í Kaliforníu, sögðust hafa ald- ursgreint steingerving af Homo erectus, eða hinum upprétta manni, einum forvera mannkynsins, sem fannst á eynni Jövu í Indónesíu og að hann væri 1,8 milljón ára gamall. Swisher og Curtis notuðu ná- kvæma nútímamælitækni við ald- ursákvörðunina. Annars vegar var um að ræða steingerða höfuðkúpu ungs barns sem fannst árið 1936 við Mojokerto á Jövu og steingerð brot úr hauskúpum sem fundust í Sangir- an á Jövu á síðari hluta áttunda ára- tugarins. Aður var talið að Mojokerto-höfuð- kúpan væri um einnar milljónar ára gömul og aö steingervingarnir frá Sangiran væri milli 700 þúsund og 900 þúsund ára gamiir. Sú fyrrnefnda reyndist hins vegar 1,8 milljón ára gömul og brotin 1,6 milljón ára göm- ul. Þetta eru elstu steingerðu leifar forföður mannsins sem fundist hafa utan Afríku og þær eru jafngamlar steingervingum af Homo erectus sem fundist hafa í Afríku. „Spumingunni um hvenær for- feður mannsins fluttu burt frá Afr- íku er þvi enn ósvaraö," sagði Swis- her. Þeir Curtis kynntu niðurstöður sínar á fundi vísindamanna í San Francisco fyrir stuttu og grein um þær birtist í nýjasta tölublaði tíma- ritsins Science. Vegna hinnar nýju aldursgreining- ar hafa nú kviknað miklar efasemdir um þá viðteknu kenningu að Homo erectus heíði átt uppruna sinn í Afr- íku fyrir um tveimur milljónum ára og hann hefði ekki hætt sér út fyrir álfuna fyrr en milljón árum síðar þegar hann dreiíðist um Asíu og sunnanverða Evrópu. Samkvæmt þeirri kenningu fór Homo erectus ekki frá Afríku fyrr en hann hafði fundið upp steinöxina sem gerði honum kleift aö hagnýta sér nýtt umhverfi. En elstu steinverkfæri af þessari tegund, sem fundist hafa í Afríku, eru ekki nema 1,4 milljón ára gömul eða fiögur hundruð þúsund árum yngri en steingervingarnir á Jövu. Þaö þýðir að Homo erectus var hugs- anlega ekki vopnaður öxum þessum þegar hann yfirgaf heimahagana í Afríku. „Við verðum kannski að leita að nýjum ástæðum fyrir því að Homo erectus fór frá Afríku, kannski bara vegna breytinga á umhverfinu," sagði Carl Swisher. Ljóstækni hjá skradd- aranum Skraddarar hafe nú eignast nýtt tæki sem auðveldar þeim vinnuna þegar þeir þurfa að taka mál af fólki til að sauma á það fót. Vísindamenn við háskóla í Englandi hafa búið til sérstakan skanna sem þarf ekki nema nokkrar sekúndur til að ákvarða stærðina á viökomandi. Það tek- ur hins vegar tuttugu mínútur með hinni hefðbundnu mál- bandsaðferð. Ljósgeislum er beint að kúnn- anum sem stendur uppi á palli sem snýst hægt í hring. Mynda- tökuvélar flytja síðan upplýs- ingarnar í tölvu sem dregur upp teikningu af fótunum. Hin hliðin á hafísmnn Ör þróun hefur verið í gerð lít- iUa ómannaðra kafbáta sem vis- indamenn nota til rannsókna í úthafinu. FuUkomnastur slikra kafbáta er Ódysseifur n semMIT háskólinn í Massachusetts tekur í notkun á næstunni í íshafinu. Fyrst í staö mun Ódysseifur rannsaka neðri hlið hafíss- breiðna svo vísindamenn geti öðl- ast betri skilning á því hvernig sprungur myndast og dreifa úr sér. Umsjón Guðlaugur Bergmundsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.