Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Side 14
14 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Grátkarlar um land allt Komið hefur í ljós, að fleiri en Vestfirðingar telja sig hafa orðið að sæta svo mikilli minnkun þorskkvóta, að til vandræða horfi í kjördæminu. Hagsmunagæzlumenn einstakra kjördæma hafa fetað 1 fótspor starfsbræðra sinna á Vestfjörðum. Matthías er ekki einn 1 heiminum. Fyrstir á vettvang urðu þingmenn Austfjarða og Norð- urlands eystra. Hagsmunagæzlumenn frá Suðumesjum og Vesturlandi fylgdu í kjölfarið. Er nú bara beðið eftir, að kröfugerð frá Reykjavík verði nýjasti liðurinn í at- vinnuátaki kosningaundirbúnings borgarstjórans. Alhr þessir aðilar segja, að líta verði á þorskkvótaleys- ið frá almennum sjónarhóh, en ekki grípa th sértækra aðgerða fyrir aðeins einn landshluta. Það er auðvitað nokkuð th 1 þessu, ef byggt er á þeirri forsendu Vestfirð- inga, að minnkaður þorskkvóti sé stóra vandamálið. Að vísu hafa Vestfirðir þá sérstöðu, að þar er lítið sem ekkert uppland og htið um tækifæri utan sjávarútvegs. Þar hafa menn sérhæft sig í sjávarútvegi og aftur sjávar- útvegi. Það ghdir um Vestfirðinga í meira mæh en aðra landsmenn, að þeir hafa ekki að annarri iðju að hverfa. Fróðlegt hefur verið að fylgjast með, hvernig hags- munagæzlumenn Vestfarða hafa til skamms tíma átt erfitt með að sjá sérstöðuna. Þeir hafa til dæmis verið manna frekastir í kröfum um fyrirgreiðslur th landbún- aðar, þótt þær séu kostaðar af peningum úr sjávarútvegi. Þeir, sem stjórna úthlutun á peningum skattgreið- enda, segjast setja ýmis skhyrði fyrir hinum fyrirhuguðu greiðslum, sem kaha má fyrirhugaðar verðlaunaveiting- ar fyrir óvarlega meðferð á þorskkvóta. Snúast skhyrðin mest um samruna fyrirtækja og samruna sveitarfélaga. Þegar skhyrðin verða sett, ættu úthlutunarstjórar að líta á yfirlýsingar frá Vestljörðum um, að útgerðaraðhar hyggist eða séu byrjaðir að veiða umfram þorskkvóta á forsendum eins konar neyðarréttar, sem sé í stöðunni æðri landslögum, er séu andsnúin Vestfirðingum. Nógu slæmt er að standa að verðlaunaveitingum fyrir óvarlega meðferð þorskkvóta, svo að ekki sé því bætt ofan á að verðlauna útgerðaraðha fyrir að brjóta lög og fara vísvitandi fram úr þorskveiðikvóta. Slíkt fordæmi getur orðið stjómkerfmu nokkuð þungt 1 skauti. Upphlaupið á Vestfjörðum er raunar hluti af víðtækri og raunar óskipulagðri árás á kvótakerfið, sem greirhlega er að verða satt lífdaganna. Stóra spumingin er, hvað taki við af þessu kerfi, þegar búið er að slátra því. Verð- ur það færeyskt stjómleysi eða auðhndaskattur? Þegar Vestfirðingar tala um rétt manna th að stunda sjá á sama hátt og forfeðumir gerðu, em þeir óvhjandi að biðja um sams konar öngþveiti í ofveiði og það, sem hefur framkahað hrun fiskistofna við Færeyjar og hrun sjálfstæðs þjóðfélags á eyjunum í kjölfarið. Upphlaupið á Vestfjörðum staðfestir um leið enn einu sinni, að afkastageta veiðiflota og fiskvinnslustöðva er hér á landi langtum meiri en efni standa th. Dæmið geng- ur aldrei upp fyrr en skipum hefur verið stórfækkað og fiskvinnslustöðvum hefur verið stórfækkað. Auðlindaskattur, öðm nafni veiðheyfagjald, hefur þann kost umfram kvótakerfi að halda ekki aðeins veið- inni í hófi, heldur lágmarka einnig kostnað þjóðfélagsins af fyrirhöfninni við að ná aflanum. Sú skömmtunarað- ferð hefur reynzt bezt, þegar auðlindin er takmörkuð. Upphlaupið á Vestfiörðum er lærdómsríkt. Miklu máh skiptir, að menn dragi af því réttar ályktanir, svo að niðurstöður aðgerðanna verði öhum th góðs. Jónas Kristjánsson LAUGARDAGUR 5. MARS 1994 Kreppt að Jeltsín úr ýmsum áttum Ákvöröun Dúmunnar, neðri deild- ar Rússlandsþings, um almenna sakaruppgjöf fyrir „afbrot á sviö- um stjórnmála og efnahagsstarf- semi“ hefur tvenns konar póhtíska þýöingu. Annars vegar er meiri- hluti þingheims að bjóða Boris Jeltsín forseta birginn. Falhö hefur verið frá ákærum á hendur forsp- rökkum valdaránstilraunar haröl- ínumanna í ágúst 1991, hætt rann- sókn í málum þingforustunnar sem reyndi uppreisn gegn Jeltsín i okt- óber í haust og leiðtogamir látnir lausir úr fangelsi. Frá lagalegu sjónarmiði orkar þessi ráðstöfun tvímæhs að því leyti að enginn af þeim sem verið er að afstýra að þurfi að standa fyrir máh sínu hefur verið sakfehd- ur. Má halda því fram að með því að þiggja sakaruppgjöfma játi hlut- aðeigendur sekt sína. Jeltsín kaus þó ekki að vefengja samþykkt Dúmunnar á slíkum grundvelh, heldur reyndi að fá sak- sóknara til að draga á langinn að sleppa sakbomingum frá í haust úr Lefortovo fangelsinu. Saksókn- ari kvaðst ekki hafa heimild til að fresta framkvæmdinni, þótt hann teldi ákvörðun Dúmunnar ranga, og sagði af sér. Kom í hlut aðstoðar- manns hans aö undirrita fyrirskip- un um að sleppa fóngunum. Mál þetta allt er til þess fallið að sýna hve veik staða Jeltsíns er orö- in, eftir að kosningarnar í desemb- er skiluðu þingi sem er honum andsnúið. Þar með er öðrum hluta thgangs forgöngumanna sakar- uppgjafarinnar náð, en þeir em flokkar kommúnista og þjóðemis- sinna. Hitt markmið þeirra er að leitast við aö slá eftir mætti striki yfir úrshtaatburðina á hðnum um- brotaárum. Valdaránstilraunin 1991 leiddi á skömmum tíma til upplausnar Sovétríkjanna. Upp- reisnartilraunin gegn Jeltsín varð til þess að sett var ný stjórnarskrá sem kveður á um víðtækt vald for- seta en þingkosningar samkvæmt henni mynduðu þing sem er forset- anum andstætt. Ákvörðun Jeltsíns að beija upp- reisn þingfomstunnar niður með hervaldi hefur, ásamt bágum efna- hag rússnesks almennings og ring- ulreið í þjóðfélaginu, orðið tíl þess aö lýðhylh forsetans hefur rénað umtalsvert. Hann hefur séð sig til- neyddan að mynda ríkisstjórn þar sem nær allir forsprakkar mark- aðsvæðingarviðleitni á síðustu misserum eru utangarðs. í stefnuræöu á þingi daginn eftir aö það samþykkti sakaruppgjöflna lét Jeltsín fá orð falla um þörfina á að festa efnahagsumbætur í sessi, en ræddi því meira um að ekki mætti fara of geyst í breytingar og gæta þess að taka tillit til rúss- neskrar sérstöðu og rússnesks hugsunarháttar. Þar að auki fór forsetinn mörgum orðum um ásetning sinn að veija Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson hagsmuni Rússlands í hvivetna, sér í lagi á því svæði sem áður tald- ist tfl Sovétríkjanna. Áskfldi hann Rússum rétt tfl að láta sig skipta kjör fólks af rússnesku þjóðemi í öðrum ríkjum, sem að sjálfsögðu era nýfrjáls nágrannaríki Rúss- lands. Ástandið í Rússlandi einkennist nú af þvi að þar er í myndun mark- aðskerfi, sem er enn bæði ófull- burða og spillt, en víða er eina at- vinna fólks við stóru, gömlu ríkis- fyrirtækin, sem haldið er uppi með ríkisframlögum. Hætta á óðaverð- bólgu vofir stöðugt yfir. Að völdum situr veik ríkisstjórn með óljósa stefnu og reyni Jeltsín forseti að beita valdi sínu er þingið víst tfl að leitast við að bjóða hon- um birginn. Forsetakosningar eiga aö fara fram 1996. Jeltsín hefur ekki sagt afdráttarlaust að hann muni ekki sækjast eftir endurkjöri, en talið er víst að sú verði niðurstaðan. Tveir höfuðandstæðingar hans hafa þegar látið í ljós að þeir muni gefa kost á sér, Vladímír Zhír- ínovskí, foringi þjóðernissinna- flokksins er annar og hinn þjóðern- issinninn Alexander Rútskoj. Hann var varaforseti Jeltsíns en gekkst fyrir uppreisnartillögunni gegn honum. Þá hvatti hann til hertöku sjónvarpsstöðvar og stjórnarbygginga, en í fyrsta viðtal- inu eftir lausn úr fangelsi kvaðst hann myndi beita sér fyrir þjóðar- sátt. Aðrir orðaöir við forsetaframboð eru Viktor Tsjernomídin, forsætis- ráðherra og miðjumaður, og Grig- ori Javlinski, umbótasinnaður hagfræðingur. Alexander Rútskoj gengur úr fangelsi í einkennisbúningi hershöfðingja og með heiðursmerkin sem hann var sæmdur fyrir framgöngu sina í stríðinu í Afganistan. Símamynd Reuter Skoðaiúr aimarra Ekki fleiri byssulög „Um 20 þúsund byssulög eru tfl í Bandaríkjunum og það er aðeins verið að blekkja kjósendur að koma með fleiri til viðbótar. Þaö er hneyksli hvernig réttarkerfið í landinu er. Hvernig væri nú að refsa glæpamönnunum sem eru með ólöglegar byssur í stað þess að koma með fleirl lög á löglega byssueigendur sem em aðeins ábyrgir fyrir örlitlum hluta af öllum þeim glæpum sem framdir em þar sem byssur koma við sögu?“ Úr leiðara USA Today 1. mars 1994. Tóbak og unga fólkið „Um 400 þúsund Bandaríkjamenn deyja árlega af völdum sjúkdóma sem tengjast sígarettureyking- um. Reykingar hafa aukist mikið á meöal ungs fólks og það sést á sígarettuauglýsingum (Josephine Ca- mel) að unga fólkið er sá hópur sem reynt er að höfða sem mest tfl. Tóbaksframleiðendur hafa svo sem engan annan úrkost þar sem svo margir eldri Bandaríkjamenn hafa gert sér grein fyrir hættunni af völdum reykinga og hætt.“ Úr leiðara The New York Times 27. febrúar 1994. Ritskoðun á kennsluefni „Verk rithöfundanna Annie Dillard og Alice Walker voru bönnuð sem kennsluefni í Kaliforníu í síðasta mánuði. Verkin þóttu m.a. óguðleg, oíbeldis- hneigö og ýta undir grænmetisát. Ef fræðslunefndir ákveða að banna bömum að lesa einhver ákveðin verk vegna þess að bömin eru ekki talin nógu vitsmunaleg tfl að greina á mflli hvað sé rétt og hvað rangt þá hefur þeim bara einfaldlega verið illa kennt yfir höfuð. Úr leiðara USA Today 3. mars 1994.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.