Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Síða 19
LAUGARDAGUR 5. MARS 1994 19 Ættarveldið II á Stöð 2: Barist um auð og völd Margir munu bíöa spenntir eftir sýningu bandarísku framhalds- myndarinnar Ættarveldið II sem verður í næstu viku á Stöð 2. Þessi mynd er nefnilega sjálfstætt fram- hald framhaldsmyndar sem sýnd var á Stöð 2 í september 1992. Enn er það Lucky Santangelo sem er í sviðsljósinu. Hún er gift kvikmyndaleikaranum Lennie Golden þegar hér er komið sögu. Lucky er lifandi eftirmynd föður síns, Ginos Santangelo, hvað snert- ir atorku og metorðagirnd og nú er það hún sem heldur um stjórn- taumana. Hún ákveður að kaupa kvikmyndaver handa eiginmanni sínum og flækist þar með í mis- kunnarlausa vaidabaráttu í Holly- wood. Eigandi kvikmyndaversins, Abe Panther, er tilbúinn að selja en sal- an er þó háð ákveðnum skilyrðum, heldur vafasömum. Abe veit að tengdasonur hans hefur framleitt klámmyndir og selt eiturlyf í skjóli hins virðulega og rótgróna kvik- myndavers. Hann krefst þess nú aö Lycky gerist ritari tengdasonar- ins til þess að koma upp um glæpa- starfsemi hans. Lucky neyðist til að ljúga að eig- inmanni sínum að hún þurfi að fara til Japans í leynilegum erinda- gjörðum því að Abe gerir þá kröfu að enginn nema hann viti um ráöa- bruggið gegn eiturlyfjasalanum. Þegar Lucky er tekin til starfa sem „einkaritari" kemur í ljós að ýmis- legt óhreint leynist í pokahorninu. Keppinautar Lucky er ekki ein um aö vilja eignast Panther-kvikmyndaverið. Einn umsvifamesti kaupsýslumað- ur í New York, Martin Swanson, hefur ákveðið að kaupa það og venjulega stendur ekkert fyrir hon- Kim Delaney og Jack Scalia fara með aðalhlutverkin I Ættarveldinu II. um þegar hann tekur slíkar ákvarðanir. Hann hyggst nota fyr- irtækið til að gera hjákonu sína, Venus Maríu, hamingjusama. Eig- inkona hans, Deena, hefur hins vegar strengt þess heit að koma honum fyrir kattarnef ef hann standi í framhjáhaldi. Lucky á sér fleiri andstæðinga. Einn þeirra er glæpahundurinn Santino Bonatti sem leggur á ráðin um að drepa hana og hálíbróður hennar, lögfræðinginn Steven Di- mes. En Lucky er sannur fulltrúi ættar sinnar og stendur af sér allar hryðjur. það er fátt sem getur kom- ið í veg fyrir að hún verði forstjóri Panther-kvikmyndaversins en hún kemst jafnframt að því að ástin getur skipt meira máli í lífinu en peningar og völd. Með aðalhlutverk í þessari spennandi mynd, sem gerð er eftir metsölubók Jackie Collins, Lady Boss, eru Kim Delaney, Jack Scal- ia, John Radolph og David Selby. Fyrri hluti myndarinnar er á dag- skrá miðvikudagskvöldið 9. mars næstkomandi og seinni hlutinn fimmtudagskvöldið 10. mars. Málarinn kom .,.'-.y.vovr Það er engin tilviljun að Málarinn kom best út í verðkönnun DV. é:J % 1 Því önnur eins verð sjást hvergi! I INNIMÁLNINGfrá kr. 362,- lítrínn FYRSTA FLOKKS GÓLFTEPPI frá kr. 445^ m2 v 7// GÓLFDREGLAR frá kr. 595,- m ÚTIMÁLNINGfrá kr. 442,- lítrínn GÓLFDÚKARfrá kr. 795,- m2 TEPPAFLÍSARfrá kr. 1.595,- m2 ' y Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 9.00 - 18.00, laugardaga frá ki. 10.00 - 13.00 Skeifunni 8 - simi 81 35 00 Götuhæö, Faxafeni 12, áhvílandi 15 millj. (10 ára). Greiðslub. ca 250 þús. á mán. Verð 23 millj. Laust strax. Uppl. Laufás, s. 812744. TIL SÖLU VERSLUNARHÚSNÆÐI mmosasam VönduS óO W hljómtækjasamstæ&a, með geislaspilara, tvöfoldu kassettutæki, útvarpi, góóum hótölurum, fullkominni fjarslýringu og innbygg&um vekjara ó fróbæru verbi - Goldstar FFH-333L Aðeins 44,900,- kr, eða 39.900,' stgr. Krakkar athugið! Teiknisamkeppni barna Tannlæknafélag íslands efnir til teikni- samkeppni meðal barna yngri en 12 ára. Heiti efnisins er: „TENNURNAR MÍNAR" Veitt verða 5 verðlaun í hverjum aldurs- flokki en aldursskipting er eftirfarandi: 1. Yngri en 6 ára 2. 6-7 ára 3. 8-9 ára 4. 10-11 ára í verðlaun eru verðlaunapeningar, bolir, húfur, bækur og leikföng, sem verða afhent 7. apríl nk., en þá er alþjóðlegur tannheilsudagur. Teikningar skulu sendar fyrir 20. mars nk. merktar: Tannlæknafélag íslands Síðumúla 35 Pósthólf 8596 128 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.