Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 5. MARS 1994
43
„Hvaö varð síðan um þennan Mídas?“ sagði Bergdis og sýndi nú umræðuefninu í fyrsta sinn einhvern
áhuga. Hún sperrti alitaf eyrun þegar gull var nefnt.
Nökkvi læknir
og Mídas
konungur
Gríska goðafræðin hefur um
langt árabil verið helsta áhugasviö
Nökkva læknis. „Líf guðanna á
Olympsfjalli endurspeglar örlög og
sögu mannkyns," sagði Nökkvi við
Bergdísi konu sína. „Ekkert gerist
lengur sem ekki á sér hliöstæðu í
htríkum og lostafullum heimi heh-
enskra guöa. Losti og framhjáhöld
nútímamannsins eiga sér hlið-
stæðu í óslökkvandi girnd guðanna
og fylginauta þeirra. Eiginlega er
ég farinn að sjá allt fyrir. Ekkert
kemur mér lengur á óvart í þessu
lífi. Allt rennur eina slóð ofan í
ginnungagap glötunarinnar,
„abyssuna" hið endanlega tóm.“
Bergdís ranghvolfdi í sér augunum
og hristi höfuðið með mæðusvip.
Hún var fyrir löngu orðin dauðleiö
á heimspekilegum vangaveltum
Nökkva læknis um heim á helvegi.
„Að þú skulir ekki skammast þín
fyrir að láta svona,“ sagði hún
stundum. „Þú átt allt; yndisleg
böm, glæsilegt hús og japanskan
bíl. Þú ert í góðri stöðu og átt mig
fyrir konu. Fáir læknar hafa fengið
eins mörg tækifæri og þú. Kiwanis-
menn hringja í þig í hverri viku til
að halda fyrirlestra um læknis-
fræðileg efni og knattspymudeild
Einheija bauð þér að stjóma þorra-
blóti fyrr í vetur. En þú ert eigin-
lega aldrei ánægður. Af hveiju get-
ur þú ekki verið í urrandi stuði og
glaðst yfir öllu því sem þú hefur í
lífinu?"
„Erégvanda-
málafíkill?"
Nökkva leiddist þessi ræða Berg-
dísar enda skildi hún ekki gildi
harmsins og sársaukans. „Þér líður
eiginlega best illa," sagði Bergdís
klökkum rómi. „Ef þú hefur ekki
einhver vandamál til að kljást við
býrðu þau bara til. Þú ert mesti
vandamálafíkill sem ég þekki. Þú
ferð í fráhvörf ef þú hefur ekki ein-
hvern harm til að fljúgast á við.“
Nökkvi svaraði þessu fáu. „Þú skil-
ur ekki dýptina í tilverunni," sagði
hann eftir talandi þögn. „Sjálfur
líkist ég mest Mídasi konungi. Allt
sem hann snerti varð að gulli og
sömu sögu má segja um mig. Mér
gengur allt í haginn og flest verður
að gulli eða sigrum í höndum mín-
um. En það færir mér enga ham-
ingju fremur en Mídasi." „Hvað
varð síðan um þennan Mídas?"
sagði Bergdís og sýndi nú umræðu-
efninu í fyrsta sinn einhvern
áhuga. Hún sperrti alltaf eyrun
þegar gull var nefnt. „Hann bað
guðina að taka frá sér þennan
beiska eiginleika enda gat hann
ekki lengur étið. Allt sem tungan
Á læknavaktiniú
Óttar
Guðmundsson
læknir
kom við varð líka að ómeitanlegum
góömálmi. Þeir létu þá vaxa á hann
asnaeyru. Mídas konungur vildi
fyrir hvem mun koma í veg fyrir
að þegnar hans vissu af þessum
eyrum. Hann gekk því með stóran
hatt á höfði til að dylja þau og bann-
aöi öllum að tala um þennan van-
skapnað. Rakarinn hans gat þó
ekki orða bundist fremur en marg-
ir starfsbræður hans. Hann sá eyr-
un þegar kiippa þurfti hár kon-
ungsins.
Hárskeri þessi gróf holu í fjöruna
og hvíslaði ofan í hana að konung-
urinn hefði asnaeyru. Upp úr hol-
unni óx gróður sem ljóstraöi upp
um leyndarmál konungins. Þegar
vindurinn bærir blööin og grasið
hvísla þau stöðugt: Mídas konung-
ur hefur asnaeyru, Mídas konung-
ur hefur asnaeyru."
Samhengi sögunnar
Bergdís horfði ráðþrota á mann
sinn. Greinilegt var aö hún hafði
ekki skihð samhengi þessarar sögu
við líf mannsins sem hún var gift.
„En hvað kemur þetta þér við?“
sagði hún og brosti vandræðalega.
„Ég óttast svo mjög,“ sagði Nökkvi
„að heimurinn komist að raun um
að ég er með asnaeym undir hatt-
inum. Ég verð að fela eigin tak-
markanir og tilgangsleysi með sí-
felldum sigrum og gulli svo að guð-
imir setji ekki á mig asnaeyru sem
allir sjá og hafa gaman að.“ Berg-
dís gafst upp á þessari umræðu.
„Þú verður þá að halda áfram í
óánægju og leita í sífellu að þessum
endanlega sigri sem mun gefa lífi
þínu einhvem tilgang. En ég veit
að þú finnur hann ekki, hvorki á
Olympsfjalli né heldur í mann-
heimum. Enginn sigur verður þér
nógu stór, Nökkvi minn. Þú verður
alltaf óánægður." Nökkvi dæsti
mæðulega og tók upp handbók í
grískri goðafræði. „Minn maður er
sjálfur Herakles," sagði Nökkvi.
„Hann vann ódauðleg afrek eins
og að moka út fjósið hjá Augiasi
konungi. Og síðasta afrekið var
stórfenglegast. Hann barnaði allar
50 dætur Thespiusar konungs á
sömu nóttunni. Þetta kalla sumir
rómverskir rithöfundar, dáð dáð-
anna: Labor durissimus." Nökkvi
horfði dreymnum augum út í tómiö
enda var hann í huganum kominn
í villta veislu í höllu Thespiusar.
Bergdís horfði á hann með
hneykslunarsvip. „Þaðhlautað
vera að þú fyndir eitthvað kynferð-
islegt í þessari goðafræði til að
gamna þér við. En seint muntu
bama 50 konungsdætur á einni
nóttu. Ætíi þú þyrftir ekki til þess
20 ár miðað við núverandi ástand.“
Hún glotti sigurviss en Nökkvi
læknir leyndi dapurleika sínum og
lífsleiða með því að sökkva sér nið-
ur í sögurnar um heimfór Odys-
seifs.
/HÓTEL- TIL SÖLU - HÓTEL\
Lítiö hótel á landsbyggöinni til sölu, hentar vel
sem fjölskyldufyrirtæki.
ört vaxandi framtíöarmöguleikar.
Hóteliö er staðsett á einum af veóursælustu
stöðum landsins.
Aöeins fjársterkir aðilar koma til greina.
Svarþjónusta DV, sími 91-632700. H-5765.
Leikskólar
Reykjavíkurborgar
Óskum að ráöa sérhæft starfsfólk til stuðningsstarfa
á eftirtalda leikskóla:
Álftaborg v/Safamýri, s. 812488
Rauðaborg v/Viðarás, s. 672185
Sunnuborg v/Sólheima, s. 36385
Einnig vantar þroskaþjálfa og fóstru í leikskólann
Ösp v/lðufell, s. 76989.
Þá vantar fóstru í leikskólann Seljaborg v/Tungusel,
s. 76680.
Allar nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskóla-
stjórar.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
Leikskólar
Reykjavíkurborgar
Lausar eru til umsóknar stöður leikskólastjóra í eftir-
töldum leikskólum sem munu taka til starfa í vor:
Funaborg við Funafold
Lindarborg við Lindargötu
Sólborg við Vesturhlíð
í Sólborg verður lögð sérstök áhersla á samskipan
fatlaðra og ófatlaðra barna.
í Lindarborg verður áhersla lögð á þjónustu við börn
nýbúa.
Fóstrumenntun er áskilin, framhaldsmenntun æski-
leg.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf skilist fyrir 15. mars nk.
Nánari upplýsingar gefa Bergur Felixson fram-
kvæmdastjóri og Margrét Vallý Jóhannsdóttir deild-
arstjóri í sima 27277.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
....... \
Vöndu6 60 W hljómtækjasamstæða, með geislaspilara, tvöföldu kassettutæki, úlvarpi, góðum
hótölurum, fullkominni fjarstýringu og innbyggðum vekjara ó fróbæru vá' - Goldstar FFH-333L
Aðeins 44,900,- kr.
eða 39.900,- stgr.