Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1994, Qupperneq 46
58
LAUGARDAGUR 5. MARS 1994
Afmæli
Reynir Axelsson
Reynir Axelsson, stærðfræöidósent
við HÍ, Reynimel 74, Reykjavík,
verður fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Reynir fæddist á Bíldudal og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR1963, stundaði nám í stærð-
fræði viö háskólann í Göttingen
1963-66 og við Princeton-háskóla
1966-70 og lauk doktorsprófi í stærð-
fræði við háskólann í Munster 1973.
Reynir hefur starfað við HÍ frá
1975, verið sérfræðingur við Raun-
vísindastofnun og er nú dósent við
HÍ. Þá er hann ritstjóri Orðaskrár
íslenska stærðfræðafélagsins.
Fjölskylda
Reynir kvæntist 29.7.1989 Önnu
M. Magnúsdóttur, f. 7.8.1952, tón-
hstarmanni. Hún er dóttir Magnús-
ar Petersen, verkamanns í Reykja-
vík, sem nú er látinn, og Elísabethar
Vilhjálmsson, þjálfara í bogfimi í
Reykjavík.
Dætur Reynis og Önnu eru Birta
Reynisdóttir, f. 25.7.1990, ogMaría
Elísabet Reynisdóttir, f. 4.3.1992.
Systir Reynis er Edda Axelsdóttir,
f. 23.11.1935, húsmóðir í Reykjavík,
gift Herði Jónssyni og eiga þau þrjú
börn.
Foreldrar Reynis voru Axel Magn-
ússon, f. 2.12.1905, d. 26.1.1972, vél-
smiður á Bíldudal, og María Jónas-
dóttir, f. 28.9.1913, d. 10.9.1986, hús-
móðir og matselja á Bíldudal.
Ætt
Axel var sonur Magnúsar, járn-
smiðs á Bíldudal, Jónssonar, frá
Meðalholti í Gaulverjabæjarhreppi,
og Ingunnar Jensdóttur, b. í Mýrar-
húsum við Auðkúlu, Kristjánsson-
ar, sterka á Borg, Guðmundssonar,
skutlara í Vigur, Guðmundssonar,
ríka á Auðkúlu, Arasonar. Móðir
Jens var Guðbjög, systir Matthías-
ar, afa Ásgeirs Ásgeirssonar forseta
og Matthíasar Einarssonar yfir-
læknis, fóður Louisu myndhstar-
manns. Guðbjörg var dóttir Mark-
úsar, prests á Álftamýri, Þórðarson-
ar, stúdents í Vigur og ættfóður Vig-
ur-ættarinnar, Olafssonar, lögsagn-
ara og ættfóður Eyrar-ættarinnar,
Jónssonar. Móðir Ingunnar var
Jensína Margrét Halldórsdóttir, frá
Hafnardal, Jónssonar.
María var dóttir Jónasar, b. í
Reykjarflrði á Barðaströnd, Ás-
mundssonar, hreppstjóra á Borg-
um, Jónassonar. Móðir Jónasar var
Kristjana Jónsdóttir.
Móðir Maríu var Jóna Ásgeirs-
dóttir, skipstjóra á Álftamýri, Jóns-
sonar, prests á Hrafnseyri, Ásgeirs-
sonar, prests í Holti í Önundarfirði,
bróður Þórdísar, móður Jóns for-
seta. Ásgeir var sonur Jóns, prests
í Holti, Ásgeirssonar. Móðir Jóns á
Hrafnseyri var Rannveig Matthías-
dóttir, b. á Eyri, bróður Markúsar,
prests á Álftamýri, af Vigurætt.
Reynir Axelsson.
Móðir Ásgeirs, skipstjóra á Álfta-
mýri, var Guðrún, systir Guðmund-
ar, skutlara í Vigur. Móðir Jónu
Ásgeirsdóttur var Jóhanna Bjarna-
dóttir, b. á Bakka, Ásgeirssonar og
HelguJónsdóttur.
Reynir tekur á móti gestum í
Skólabæ viö Suðurgötu milh kl.
17.00 og 20.00 á afmælisdaginn.
Til hamingju
með afmælið
5. mars
85 ára
Unnur Þorleifsdóttir,
Hornbrekkuvegi 1, Ólafsfirði.
80 ára
Anna Magnúsdóttir,
Högnastig 10, Flúðum.
75 ára
Óiafur Ámason,
Vesturgötu 80, Akranesi.
70 ára
Aðalheiður Valdemarsdóttir,
Nónvörðu 6, Keflavík.
Sigurbjörn Óskar Kristinsson
málari,
Sléttahrauni 18, Hafnarfirði.
Konahanser
MargretheKrist-
inssonhúsmóðir.
Þautakaámóti
gestumíGolf-
skálanum á Hval-
eyrarholtiídag
kl. 16-19.
Aðalbjörg Þorkelsdóttir,
Vestmannabraut 34, Vestmanna-
eyjum.
60 ára
Sigurást Erla Jónsdóttir,
Glæsibæ, Hofshreppi.
Jón Pétur Pétursson,
Norðurbyggö 14, Akureyri.
50 ára
Björn Sigurðsson, starfsm. hjá
Lýsihf.,
Birkimel 8, Reykjavík.
Eiginkona hans
er Valgerður
Eygló Kristófers-
dóttir, starfsm.
hjáKassagerð
Reykjavíkur.
Þaueruaðheim-
an.
Reidar J. Óskarssun,
Rafnkelsstaðavegi 8, Garði.
Sigurður Sveinsson,
Austurvegi 19, Selfossi.
Sveinn Sveinssonframreiðslu-
meistari (átti afmæli 4.3),
Ánalandie,
Reykjavík.
Eiginkonahans
erMargrétNiel-
sen snyrtisér-
fræðingur.
Þau takaámóti
gestum sunnu-
daginn6.3.íÁtt-
hagasal Hótel
Sögufrákl. 16.
40 ára
Hermína Stefánsdóttir,
Ægisgötu 14, Akureyri.
Hafsteinn Eyj ólfsson,
starfsm. Varnarbösins,
Blikabraut9, Keflavík.
Eiginkonahans
erlngaLóaHah-
grímsdóttir.
Þautakaámóti
gestumáafinæl-
isdaginníFri-
múrarasalnum
aðBakkastígl6í
Njarðvík kl.
20-23.
KarvelGránz,
Norðurstíg 5, Njarðvík.
Una Hannesdóttir,
Þrastanesi 6, Garðabæ.
Ásthildur Alfreðsdóttir,
Vesturströnd 6, Seltjamarnesi.
Sigriður K. Bjarkardóttir,
Lyngholti 21, Akureyri.
Guðrún I. Traustadóttir,
Reyrengi 29, Reykjavík.
Þórunn Bjömsdóttir,
Kópavogsbraut 18, Kópavogi.
Guörún Snæbjömsdóttir,
Kjarrmóum 13, Garöabæ.
Steinunn Tryggvadóttir,
Álfatúni 12, Kópavogi.
Leiðrétting
IafmæhsgreinumLárusHer- i konahansenLárusogMaríaskildu.
mannsson sl, fimmtudag var kona Hún er nú gift Guðmundi Jónassyni
hanssögðveraMaríaSófusdóttir. byggingameistaraogeruþaubúsett
Hið rétta er að hún er fyrrverandi | íKópavogi.
J *
Margrét H. Pálsdóttir
Margrét Hjördís Pálsdóttir húsmóð-
ir, Fannarfelli 4, Reykjavík, er sjötíu
ogfimmáraídag.
Starfsferill
Margrét er fædd á Ölduhrygg í
Svarfaðardal og ólst þar upp.
Margrét flutti með foreldrum sín-
um til Hríseyjar 1933. Fimm árum
síðar kynntist hún eigimanni sín-
um, Birgi Runólfssyni, en þau flutt-
ust til Siglufjarðar 1940 og bjuggu
þar á Eyrargötu 5. Birgir féh frá
1970 og fjórum árum síðar flutti
Margrét th Reykjavíkur þar sem
hún býr enn. A Siglufirði ráku þau
sitt eigið fyrirtæki, Vöruflutninga
Birgis Runólfssonar, en Margrét
starfaði þar með manni sínum sam-
hhða húsmóðurstörfum.
Margrét og Birgir störfuðu bæði á
kosningaskrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins á Siglufirði en þau létu í
té húsnæði undir starfsemina í ára-
raðir. Hún tók jafnframt þátt í starfi
félags sjálfstæðiskvenna þar í bæ.
Fjölskylda
Margrét giftist 30.12.1960 Birgi
Runólfssyni, f. 2.1.1917 á Komsá í
Áshreppi, d. 5.5.1970, vöruflutninga-
bifreiðarstjóra en þau hófu sambúð
mun fyrr eins og aö framan er get-
ið. Foreldrar hans: Runólfur Björns-
son, f. 19.1.1887, d. 7.8.1963, bóndi
á Kornsá, og Alma Alvilda Anna
Möller, f. 1.5.1890, d. 5.7.1959, hús-
freyjaáKornsá.
Böm Margrétar og Birgis: Alma
Birgisdóttir, f. 26.5.1939, sjúkraliði,
hún er búsett í Svíþjóð og á fimm
börn; Brynsteinn Guðnason (ætt-
leiddur), f. 26.7.1946, starfsmaður
hjá Volvo, hann er búsettur í Sví-
þjóð og á tvö börn; Páll Birgisson,
f. 4.3.1948, d. 12.9.1969, vörubifreiö-
arstjóri á Siglufirði, hans kona var
Kristrún Gunnlaugsdóttir, þau
eignuðust tvo syni; Runólfur Birgis-
son, f. 4.3.1948, framkvæmdastjóri,
maki Hólmfríður Alexandersdóttir,
þau eru búsett á Siglufirði og eiga
tvö börn; Björn Birgisson, f. 12.8.
1949, rennismiður, maki Álfhildur
Þormóðsdóttir, þau eru búsett á
ísafirði og eiga þrjú börn; Fihppus
Hróðmar Birgisson, f. 29.8.1950,
verkstjóri á ísafirði, hans kona var
Guðbjörg K. Aðalbjörnsdóttir, þau
skildu, þau eiga einn son; Þorsteinn
Birgisson, f. 8.8.1951, rekstrar-
tæknifræðingur hjá Hitaveitu
Reykjavíkur, maki Ragnheiður
Steinbjömsdóttir dehdarstjóri, þau
em búsett í Reykjavík og eiga þrjá
syni, Þorsteinn átti tvö börn fyrir;
Þormóður Birgisson, f. 8.8.1951,
stýrimaður, maki Eyrún Péturs-
dóttir, þau eru búsett á Siglufirði
og eiga þijú börn. Dóttir Margrétar
og fósturdóttir Birgis: Elíngunnur
Birgisdóttir, f. 26.12.1944, starfs-
maður FSA, hún er búsett á Akur-
eyri og á sex böm. Barnabarnabörn-
in erufjórtán.
Systkini Margrétar: Steingrímur
Pálsson, f. 23.8.1907, d. 1958, cand.
mag., hans kona var Emilía Karls-
dóttir, látin, þau bjuggu í Reykjavík,
þau eignuðust þrjú böm; Eiríkur
Pálsson, f. 22.4.1911, fyrrverandi
bæjarstjóri í Hafnarfirði og síðar
skattstjóri og forstjóri Sólvangs,
maki Björg Guðnadóttir, þau eru
búsett í Hafnarfirði og eiga þrjú
börn; Sólveig Pálsdóttir, f. 22.4.1911,
Margrét H, Pálsdóttir.
húsmóðir, hennar maður var Ragn-
ar Kristjánsson, látinn, skrifstofu-
maður, Sólveig er búsett í Reykja-
vík; Stefanía Pálsdóttir, f. 22.12.1912,
hárgreiðslumeistari og fyrrverandi
kennari í Iðnskólanum í Reykjavík,
maki Ólafur J. Ólafsson endurskoð-
andi, þau eru búsett í Reykjavík og
eignuðusttvö börn.
Foreldrar Margrétar: Páll Hjart-
arson, f. 12.8.1877, d. 11.1.1952, bóndi
að Ölduhrygg í Svarfaðardal, og
kona hans, Filippía Margrét Þor-
steinsdóttir, f. 16.5.1880, d. 14.1.1968.
Ætt
Páll var sonur Hjartar Guðmunds-
sonar, bónda aö Uppsölum í Svarf-
aðardal, og Margrétar Eiríksdóttur.
Filippía Margrét var dóttir Þor-
steins Hallgrímssonar, smiðs og
bónda að Kleif, og Bjargar Stefáns-
dóttur, ljósmóður frá Kjarna.
Margrét tekur á móti gestum á
afmæhsdaginn í Víkingsheimhinu í
Traðarlandi 1 frá kl. 20-23.
Þráinn Þorleifsson
Þráinn Þorleifsson, Lyngbrekku 4,
Kópavogi, er sextugur í dag.
Starfsferill
Þráinn fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk verslunarskóla-
prófifráVÍ 1953.
Að námi loknu starfaði Þráinn við
landmælingar á Keflavíkurflug-
velli. Hann bjó í Kanada 1954-55 og
starfaði þar við landmælingar fyrir
landbúnaðarráðuneyti Saskatche-
wan-fylkis og á endurskoðunardeild
kanadísku samvinnuhreyfingar-
innar í Saskatchewan og Manitoba.
Eftir heimkomuna hóf Þráinn
störf við Veðurstofu íslands hjá
Flugveöurstofunni á Keflavíkur-
fiugvelh, fyrst sem körtaritari og
veðurathugunarmaöur en var þar
síðan eftirlitsmaður fjarskipta við
gervitungl og jafnframt kennari á
námskeiðum fyrir kortaritara. Þrá-
inn var afgreiðslustjóri Alþýðu-
blaösins 1973-74, gjaldkeri Vísis
1974- 75, gjaldkeri Dagblaðsins
1975- 81, er hann varð innheimtu-
stjóri DV, en þar starfar hann enn.
Þráinn starfaði mikið í Alþýðu-
flokknum á sínum yngri árum, sat
m.a. í stjórn SUJ, var formaöur FUJ
í Kópavogi um skeið og sat í stjórn
Alþýðuflokksfélagsins í Kópavogi.
Hann sat í stjórn Varöbergs, var
formaður félagsins ísland-ísrael í
nokkur ár og hefur verið gjaldkeri
kirkjufélags Digranesprestakalls sl.
fjórtánár.
Fjölskylda
Þráinn kvæntist 31.12.1960 Hrefnu
Pétursdóttur, f. 10.11.1936. Hún er
dóttir Péturs Kr. Péturssonar og
Guðbjargar Jónasdóttur sem bjuggu
á Ingjaldshóh og á Hehissandi en
síðan í Reykjavík.
Börn Þráins og Hrefnu eru Pétur
Berg, f. 13.2.1956, búsettur á Akra-
nesi, í sambúð með Ingibjörgu
Skúladóttur og á Pétur son frá fyrri
sambúð, Þráin, f. 18.8.1976, með Sig-
urbjörgu Sigtryggsdóttur; Guðlaug,
f. 28.4.1960, búsett í Kópavogi, var
gift séra Hirti Magna Jóhannssyni
en þau skhdu og er sonur þeirra
Aron Þór, f. 7.10.1986; Þórir, f. 19.3.
Þráinn Þorleifsson.
1961; Rúnar, f. 19.3.1961.
Systkini Þráins eru Hjördís Þor-
leifsdóttir, f. 27.2.1932, kennari, og
Trausti Þorleifsson, f. 6.1.1939, bif-
vélavirki.
Foreldrar Þráins: Þorleifur Sig-
urðsson, f. 20.5.1903, d. í desember
1976, og Sigríður Benjamínsdóttir,
f. 21.5.1911, nú th heimihs að Hrafn-
istu við Skjólvang í Hafnarfirði.
Þráinn og Hrefna eru á Kanaríeyj-
um um þessar mundir.