Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1994, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1994, Page 4
4 FÖSTBDAGUR II. MARS 1994 Fréttir Réttarhöld á Egilsstöðum í gær vegna árásarmálsins á fulltrúa sýslumanns á Eskifirði: Eg gerði mér grein fyrir að ég var í lífshættu - sími eyðilagður, skreið eftir gólfi og missti meðvitund við að tengja annað tæki Gísli Gislason, verjandi Jóns Ingva, (er yfir lögregluskýrslur meö ákærða í dómsalnum í gær. Eftir aö árásin á Júlíus Magnússon, fulltrúa sýslumanns á Eskifirði, var yfirstaðin á heimili hans snemma að morgni 8. janúar var búið að gera símtæki hans óvirkt og hann svo máttfarinn eftir bar- smíðar og spörk að hann missti a.m.k. einu sinni meðvitund þegar hann reyndi að ganga og skríða um íbúðina til að freista þess að tengja annað símtæki til að kalla eftir hjálp. Hann sagðist hafa fengið 3-5 hnefahögg í bringspalimar og nokkur fóst spörk í kviðarholið eft- ir að árásarmaðurinn kýldi hann í gólfið. Þetta kom m.a. fram við dómsyf- irheyrslu vegna málsins í Héraðs- dómi Austurlands í gær. Júlíus og sakborningurinn, Jón Ingvi Hilm- arsson, 20 ára, og félagar hans voru yfirheyrðir fyrir dómi í gær. Júlíus og Jón Ingva greindi á um hvernig árásin var - sakborningurinn við- urkenndi aðeins að hafa tekið um axlimar á fórnarlambinu og veitt því hnefahögg í líkamann. Jón Ingvi og félagar hans sögðu að fyrr um kvöldið, á Hótel Öskju á Eskifirði, hefði sýslumannsfull- trúinn kallað þá dópista og gefið í skyn að Jón Ingvi væri að fara í fangelsi vegna afbrotamála sem Júlíus, sem fulltrúi sýslumanns, hafði þá til meðferðar. Jón Ingvi er einn ákærður í málinu - fyrir stórfellda líkamsárás, húsbrot og árás á opinberan starfsmann. Rík- issaksóknari sá ekki ástæðu til aö ákæra tvo félaga hans sem voru með honum á heimili fulltrúa sýslumanns umrædda nótt. „Ég þekki þig“ „Eg fór á hótehð á fóstudags- kvöldinu á milli klukkan tíu og ell- efu og settist þar við borð. Ég ræddi viö hótelstjórann og starfsstúlku þar og pantaði mér veitingar. Ég veitti því athygli að í innri sal sátu menn. Nokkru síðar átti Jón Ingvi leið fram hjá mér og segir: „ég þekki þig“,“ sagöi Júhus Magnús- son, fulltrúi sýslumanns á Eski- Qrði, við dómsyfirheyrsluna í gær. Júhus sagðist hafa kynnst Jóni Ingva fyrst í gegnum starf sitt þeg- ar hann innheimti sekt hjá honum haustiö 1992 - hann heföi beðið lög- regluna um að ná í hann. Við þetta tækifæri sagði Júlíus að hann hefði gefiö piltinum hollráð í sambandi við afbrot phtsins. „Ég sagði hon- um þá að ef hann hætti ekki afbrot- um myndu mál hans ekki verða afgreidd með sekt,“ sagði Júlíus. Hann kvaðst hafa fengið ákæru í hendur vegna nýlegra afbrota Jóns Ingva um einni viku fyrir umrætt kvöld. „Ég sagði honum að það væri hugsanlegt að hann fengi óskh- orðsbundinn dóm.“ Júhus sagðist einnig hafa vitaö til þess að Jón Ingvi hefði verið handtekinn á Þorláksmessu grun- aður um fíkniefnabrot. Hann sagði að samtal þeirra á hótehnu hefði verið stutt og síðan hefði Jón Ingvi gengið í burtu. Af frekari samskipt- um sínum viö Jón Ingva á hótehnu og tvo félaga hans sem síðan komu heim til hans um nóttina sagði Júl- íus að einn piltanna hefði hneyksl- ast á því við sig að hafa verið að segja Jóni Ingva að hann væri að fara í fangelsi. Um annan félaga sakbomingsins sagöi Júlíus að hann hefði birt honum dómsátt vegna fíkniefnamáls nokkrum dög- um áður en sá hefði verið ósáttur viö sektarfjárhæðina. Júlíus kvaðst hafa fengið sér tvö glös á hótelinu. Klukkan hálfsex hringir síminn Júlíus sagöi að hann hefði haldið heim til sín um klukkan eitt tU tvö um nóttina og lagst til svefns en klukkan hálfsex um morguninn hefði síminn hringt. „Ég heyri rödd sem mér heyrist vera rödd ákærða. Ég sagði hahó en röddin hinum megin sagði að ég skyldi hætta að skipta mér af málum á Eskifirði og ég skyldi koma mér í burtu úr bænum." Júlíus kvaöst hafa lagt tólið á en síminn hefði hringt aftur og sama rödd sagt það sama og áður. „Ég fór að sofa en dyrabjallan hringdi um hálftíma síðar." Júlíus sagðist hafa farið tU dyra og opnað og þá séð Jón Ingva og tvo félaga hans sem voru með honum á hótelinu. „Þeir töluðu hver ofan í annan og sögðust óhressir meö mitt starf.“ Júlíus sagði ungu mennina hafa verið ósátta við tal hans um fíkni- efni og fangelsi. Sýslumannsfulltrúinn baðst afsökunar „Ég sagöi þeim að alhr yröu að vinna sín störf. Ég sagði strax að ef ég hefði sagt eitthvað sem þeim mislíkaði þætti mér það leitt og baðst afsökunar á því.“ Júlíus sagð- ist hafa verið að beina orðum sín- um til eins af þremenningunum ídómsaJnum Óttar Sveinsson þegar „ég fæ 3-4 snögg og fóst hnefahögg í bringspalimar. Þetta kom alveg flatt upp á mig. Ég hrökk frá, hrasaði og datt. Þegar ég feU sparkar ákærði nokkur spörk í mig.“ Júlíus sagði spörkin hafa komið í kviðarhol og rifbein. Hann sagðist hafa orðið dasaður en þó ekki misst meðvitund „Af fasi ákærða fannst mér hann beita öllu afli.“ Júhus sagðist hafa reynt að standa á fætur og bandað meö hendinni tU hinna í von um að þeir hjálpuðu sér. „Ég reyndi að standa á fætur en þá sparkaði ákærði enn í mig,“ sagði Júlíus. Þegar þarna var komið sögu sagðist fórnarlambið hafa reynt að tala pUtana þijá til í því skyni að sleppa við frekari atlögur. Þá hefði Jón Ingvi hætt og hinir vikið frá. „Komið þið inn og við skulum tala saman," sagði Júhus. Hann sagðist hafa fundið fyrir sársauka í kviðarholi en fljótlega dofnað. Þegar inn í eldhús var komið bauð JúUus mönnunum upp á kók og sígarettur og hann ræddi við manninn sem skömmu áður gekkst undir dómsátt vegna fíkniefna- brots - hann hefði sagt honum að ef hann væri óhress með sektar- fjárhæðina og greiðsluskilmála skyldi hann bara koma og ganga frá máUnu eins og honum hentaði. Rænulítill og síminn slitinn úr sambandi „Þeir voru kurteisir en Jón Ingvi hótaði: „Ég ætla aö lemja þig meira“,“ sagði Júlús. Þegar menn- irnir fóru út sýndi einn þeirra Júl- íusi hvemig hann haföi slitið snúru á símtæki í sundur og sagt: „Ég ætla að sýna þér að þú getur ekki hringt á lögregluna." JúUus sagðist hafa orðið svo das- aður eftir árásina að hann hefði ákveðið að leggja sig, þá hafi klukk- an verið um 6.30. Klukkan 8.20 sagðist hann hafa vaknaö meö mikla verki í kviðarholi, rifbeinum og brjóstkassa. Hann sagðist hafa ætlað að kalla á hjálp og þá munað eftir því að annað símtæki var inni í skáp í húsinu. Þegar hann teygði sig eftir því hefði hann misst með- vitund. Hann sagðist hafa vaknað upp og séð símtækið fyrir framan sig á gólfinu og ákveðið að fara með það inn í stofu til að reyna að tengja tækið. „Ég stóð upp og féll og geröi mér grein fyrir að ég var í lífs- hættu. Ég var svo máttfarinn að ég gat ekki hreyft mig nema mjaka mér eftir gólfinu." Júlíus náði síðan að tengja símtækið við innstungu og náð sambandi við lögreglubíl. Hann hefði verið á leið til Eski- fjarðar frá Reyðarfirði og síðan hefðu tveir lögregluþjónar komið en Júlíus sagðist með naumindum hafa náð að opna fyrir þeim úti- dyrnar. Eftir þetta var kaUað á lækni og ákveðið að senda Júlíus á Borgar- spítalann. Þegar þangað kom síðar um daginn hafði blætt inn í kviðar- hol hans þar sem stór æð haiði sprungið. Um tveir lítrar af blóði voru í kviðarholinu. Líf hans hékk á bláþræði áður en hann gekkst undir 2-3 klukkustundar langa að- gerð. Hann lá á sjúkrahúsinu í eina viku en þurfti síðan að leggjast aft- ur inn. Hann var um fimm vikur frá vinnu. Aðspurður um líðan í dag sagði JúUus að hann hefði það ágætt en hann fyndi þó til þegar hann reyndi mikið á sig. Hann kallaði okkur dópista Jón Ingvi og félagar hans greindu frá því að þeir hefðu verið á Hótel Öskju, hitt þar JúUus og verið ósáttir við það sem hann hafði við þá að segja um afbrotamál ákærða. Einn þeirra sagði m.a. að Júlíus hefði kaUað þá dópista þegar þeir voru á Hótel Öskju. Þremenning- arnir fóru í gleöskap í tveimur húsum á Eskifirði um nóttina en síðan sögðust þeir hafa haldið að heimiU Júlíusar að Lambeyrar- braut 4. JúUus sagöi að félagar Jóns Ingva hefðu báðir horft á árásina á sig en þeir báru hins vegar fyrir dóminum að þeir hefðu ekki séð þegar félagi þeirra gekk í skrokk á Júlíusi - þeir hefðu verið uppi á stigapalUnum fyrir framan úti- dymar. Frcun kom að þremenning- arnir hugðust kæra JúUus fyrir ummæU hans fyrr um kvöldið við þá og Jón Ingvi bar aö þegar þre- menningamir komu að heimili Júl- íusar hefði hann sagt við sig: „Við sjáumst á Litla-Hrauni." Guðjón Ólafur Jónsson, sækjandi af háUu ákæruvaldsins, heldur sóknarræðu sína og GísU Gíslason hdl. flytur vörn fyrir sakboming- inn í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Arngrímur ísberg héraðsdóm- ari mun kveða upp dóm í máUnu á næstu vikum. í dómsal í Héraösdómi Austurlands í gær. Fv. Guöjón Ólafur Jónsson, fulltrúi rikissaksóknara, Arngrimur ísberg héraðsdómari, héraðsdómsrit- ari, Gisli Gíslason verjandi og Jón Ingvi Hilmarsson sem er ákærður í málinu. DV-myndir Ottar Sveinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.