Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1994, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1994, Side 9
'FÖSTÚÖ&GtJR !il: '’MÁRS T99ft Varekki boðiðí heimsókntil konungsins Husseín Jórdaníukon- ungi var ekki boöið í heim- sókn til kon- ungs Sádi- Arabíu, Fahd, þegar hann fór í pilagrímsfór til Mekka á dögunum. Diplómat- ar arabarikjanna segja aö Fahd hafi með framkomu sinni sýnt Hussein mikla litilsviröingu. Sagt er aö Hussein haft vonast eftir fundi meö Fahd til að reyna aö bæta samband landanna sem varð mjög stíft vegna Persaflóa- stríðsins. Fahd konungur hefur lýst þvi yfir að hann vilji fá afsökunar- beiðni frá Arafat, leiötoga PLO, og Hussein fyrir að hafa staðið með írak i Persaflóastríðinu. Bannaðaðtaka útlendinga fram yfiraðra Ferðamannahótel á Sri Lanka sem taka utlendinga fram yfir aðra veröa sektuð og missa leyfið samkvæmt nýjum reglum frá ferðamálaráðuneyti Sri Lanka. „Mismunun af einhverju tagi af hendi hóteleigenda verður ekki látin viögangast," sagði ferða- málaráðherrann á dögunum en vitað er til þess að mörg hótel hafi hreinlega neitað að taka viö Sri Lanka búum þar sem nóg væri af útlendingum á svæðinu og þeir væru betri viðskiptavinir. Sri Lanka fær um 400 þúsund feröamenn á ári hverju og þá aðallega frá Evrópu. Verðaaðbæta mannréttindin í Austur-Tímor Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur lagt fram beiðni til stjórnvalda Indónesíu um að mannréttindi í Austur-Tímor verði bætt. Nefndin vill að þeir sem hafa verið handtekmr en ekki enn fengið dóm verði látnir lausir og að rannsókn verði hafin á fjöldamorðum hersveita sem fram fóru í nóvember 1991. Miklar óeirðir hafa ríkt í Aust- ur-Tímor og mannréttindabrot veriö framin þar síðan indónes- ískar hersveitir réðust þar inn árið 1975 eftir brottfór Portúgala. Beitti fyrrum konusínaof- beldi Fyrrum eig- inkona iVxl Rose. söngvara hljómsveitar- innar Guns N’ Roses, ætlar í mál við Rose vegna þeirra likams- meiðinga sem-hún þurfti að þola af hans hálfu þegar þau voru gift. Erin Everly, sem er dóttir hins þekkta söngvara Don Everly, gift- ist Rose í apríl 1990 en þau skildu sama ár. Everly segir að Rose hafi lamið sig illfiega öll þau fjög- ur ár sem þau voru saman og hann hafi oft notað ýrasa hluti til að lemía hana meö. „Hann dró mig á hárinu, batt mig og sló og henti mér til og frá," segir Everly sem vill fá skaðabætur fyrir það andlega og líkamlega tjón sem hún varð fyrir. Everly, sem er fyrrum fyrirsæta, segist óttast um öryggi sitt vegna þess hversu ofbeldishneigður Rose er. Reuter Konur og meðganga: Fæða stærri börn ef þær borða f isk samkvæmt danskri rannsókn Óléttar konur, sem fá mikið af fisk- olíu á meðgöngutímanum, fæða síð- ur fyrir tímann og eignast stærri og heilbrigðari börn en aðrar konur, samkvæmt rannsókn sem dönsk heilbrigðisyfirvöld stóðu fyrir. Böm þeirra mæðra sem borðað höfðu fiskolíu fæddust að meðaltali fjórum dögum seinna en önnur böm og þau voru einnig 107 grömmum þyngri. „Niðurstöðurnar benda til þess að í framtíðinni getum við ef til vill fyr- irbyggt að börn fæðist fyrir tím- ann,“ sagði Sjurdur Olsen, einn læknanna sem framkvæmdi rann- sóknina. „Börn sem fæðast fyrir tím- ann eru nefnilega með háa sjúk- dóms- og dánartíðni og því em þessar niöurstöður mjög mikilvægar." Rannsóknin, sem fram fór á fæð- ingarspítala í Árhus í Danmörku, náði yfir alls 533 óléttar konur og fylgst var með konunum og börnum þeirra fyrir og eftir fæðingu. Rannsóknin fór fram með þeim hætti að konunum var skipt í þrjá hópa; einum hópnum voru gefin fjög- ur grömm af fiskolíu eftir 30. viku meðgöngunnar, öðrum var gefin ólívuolia en þeim þriðja ekki neitt. Ástæðan fyrir því að könnunin var gerð er mismunandi ástand færey- skra og danskra barna en færri og færri böm í Færeyjum fæðast fyrir tímann og færeysk börn eru almennt þyngri og heilbrigðari en þau dönsku. Læknar höfðu lengi haft grun um aö ástæöan fyrir þessu væri sú hve mikinn fisk Færeyingar borða. Heimild BT Oléttar konur, sem borða mikinn fisk á meðgöngutímanum, fæða síður fyr- ir tímann og börn þeirra verða stærri og heilbrigðari en önnur börn. Þýskur njósnari tekinn í Rússlandi Þýskur njósnari, sem talinn er hafa stundað njósnir í Rússlandi fyrir þýsku stjórnina, var handtek- inn í Moskvu í gær. Þýska stjórnin hefur ekki viljað segja neitt um málið. Yfirmaður leyniþjónustunnar í Þýskalandi, Bernd Schmidbauer, gaf út þá yfirlýsingu að ekki yrði gefin nein skýring á máhnu fyrr en sannanir lægju fyrir. Rússneska fréttastofan, Interfax, skýrði frá því að njósnarinn hefði verið handtekinn af embættis- mönnum rússnesku gagnnjósna leyniþjónustunnar. Ekki var skýrt frá því hver maðurinn væri eða hvaðan úr Þýskalandi hann kæmi en aðeins sagt aö hann ynni fyrir þýsku leyniþjónustuna. Fréttin um njósnarann kemur aðeins nokkmm dögum eftir að til- kynnt var um handtöku á rúss- neskum njósnara í Moskvu sem talinn er hafa stundað njósnir fyrir Breta. Stutt er einnig síðan njósnarinn Aldrich Ames, sem vann fyrir bandarísku leyniþjónustuna (CIA), var handtekinn í Bandaríkjanum og sakaður um að hafa stundað njósnir fyrir fyrrum Sovétríkin og síðarRússland. Reuter IRA varpar aftur sprengj um á Heathrow-f lugvöll Skæruhðar írska lýðveldishersins, IRA, létu enn til skarar skríða gegn Heathrow-flugvelli við Lundúnir skömmu eftir miðnætti í nótt þegar þeir vörpuðu sprengjum á hann í annað sinn á rúmum sólarhring. Tahð er aö skæruliðarnir hafi varpað þremur sprengjum í átt aö flugstöðvarbyggingunni en þær sprungu ekki. Lögreglan staöfésti nokkrum klukkustundum síðar að árásin hefði nánast verið eftirlíking sprengjuárásarinnar á eina flug- braut vallarins í fyrrakvöld. Yfirvöld á flugvelhnum sögðu að sprengjukastið í nótt hefði ekki vald- ið neinum alvarlegum skemmdum og ekki heföu nein meiðsl hlotist af. Tahð er að sprengjunum hafi verið varpað úr bíl við Hilton-hótelið og að skotmarkið hafi verið suðurflug- brautin. Tafir urðu á flugi frá flugstöð núm- er fjögur í morgun vegna árásarinn- Elísabet Englandsdrottning lenti á Heathrow skömmu áður en sprengj- unum var varpað í nótt. Simamynd Reuter ar og í sumum thvikum var ferðum hreinlega aflýst. Venjulega fara tutt- ugu og fimm þúsund manns um fiug- stöð fjögur á fostudegi á þessum árs- tíma. Stjórnvöld í Bretlandi og írlandi voru einhuga í gær í fordæmingu sinni á árásinni í fyrradag en Dick Spring, utanríkisráðherra írlands, flaug til Lundúna til viðræöna v* sir Patrick Mayhew, Norður-írlands málaráðherra bresku stjórnarinnar, um friðartillögur ríkjanna. Sprengjunum var varpað nokkrum klukkustundum eftir að Gerry Ad- ams, leiðtogi Sinn Fein, póhtísks arms IRA, varaði viö frekari aðgerö- um til aö þrýsta á bresku stjórnina. Flugvél meö Elísabetu Englands- drottningu innanborðs lenti á Heat- hrow aðeins þremur klukkustund- um fyrir árásina í nótt. Drottningin hafði verið í heimsókn til landa Karíbahafsins. Reuter 9 _______________Útlönd Enskur klerkur vill láta brenna kvenpresta Bjöm Bjömason, DV, Engiandi: Enskur klerkur hefur látið hafa það eftir sér opinberlega að brenna beri kvenpresta á báh einsog gert var við nomir fyrr á öldum. Séra Anthony Kennedy, prest- ur í Lutton í Lincolnskíri, er orö- inn þreyttir á yfirgangi kvenkoh- ega sinna og segir þær eigna sér andlega krafta sem þeim beri enginn réttur til. „Það kann að vera ólöglegt nú á dögum en ef lög miðalda heföu gilt myndi ég láta brenna bölvað- ar dræsurnar," sagði séra Kennedy og bætti viö að það hefði verið auglýsing á höklum handa þunguðum prestum sem hefði fyllt hann shkum eldmóði. Spænskileikar- inn Fernando Reylátinn Spænski kvikmynda- leikarinn Fern- ando Rey, sem f&f*. , lék m.a. í b. fln myndum eftir Pfl,: Æ meistara Luis Bunuel svo og The French 1 Connection hinni amerísku lést á heimhi sínu í Madríd á miðviku- dag, 76 ára að aldri. Hann var nýkominn af sjúkrahúsi þar sem hann var í krabbameinsmeðferð. Rey var einhver þekktasti leik- ari Spánverja utan heimalands- ins og kom hann fram i rúmlega eitt hundrað myndum. Myndíðnaðurinn í Evröpu aftar- lega á merinni Lönd Evrópu verða að rétta myndiðnaði sínum hjálparhönd svo hann geti mætt þeim kröfu sem nýir tímar gera th hans, einkum á sviði rannsókna og þjálfunar. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá samtökum evrópskra kvik- myndaleikstjóra i vikunni þar sem segir einnig að Evrópulöndin séu ekki tilbúin að mæta þeim kröfum sem framtíöin gerir og að marka veröi stefnu í þessum málum, bæði hvaö varðar menn- ingarlegu hhðina og svo þá sem snýraðiðnaðinum. Reuter Stokke tripp trapp Stóllinn sem vex með barninu 5 ára ábyrgð Sama verð og annars staðar á Norðurlöndum kr. 9.760,- Faxafeni 7 s. 687733 I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.