Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1994, Side 13
FÖSTUDAGUR 18. MARS 1994
13
Neytendur
Samanburður á bamabílstólum:
Algengt að bílstól-
ar séu rangt notaðir
- enda fylgir þeim sjaldnast leiðarvísir á íslensku
Taliö er algengt aö barnabílstólar
séu rangt notaðir og einnig er býsna
algengt að börn séu höfð laus í bif-
reiðum. Þetta kemur fram í nýjasta
tölublaði Neytendablaðsins en þar
er ítarleg úttekt á þeim barnabílstól-
um sem fást á markaðinum ásamt
lýsingu á hveijum þeirra og verði.
Úttektin nær til u.þ.b. 40 tegunda
hjá 17 seljendum og er þorri þeirra
prófaður og viðurkenndur í sam-
ræmi við evrópskan staðal en þrír
hafa viðurkenningu samkvæmt
bandarískum staðh. Þar segir aö
mikið vanti upp á að leiðarvísir á
íslensku fylgi stólunum og að afar
mikilvægt sé að leiðbeiningum sé
fylgt og að stóllinn sé settur rétt í
bíhnn og hann notaður rétt. Ekki er
mælt með því að stólarnir séu notað-
ir lengur en í u.þ.b. 10 ár.
Sex flokkar
Stólunum er skipt niður í sex
flokka, 0-10 kg fyrir allt að eins árs,
9-18 kg fyrir 1-3 ára, 0-18 kg fyrir 0-3
ára, 0-25 kg fyrir 0-6 ára, 9-25 kg
fyrir 1-6 ára og 9-36 kg fyrir 1-10
ára. Th einfoldunar berum viö hér
eingöngu saman stóla í flokknum
9-18 kg eða fyrir 1-3 ára.
Þar eru sjö stólar í boði, t.d. KL
Jeenay frá Bretlandi sem festa á í 2-3
punkta belti (en það gildir um þá alla)
og er sjálfur með 5 punkta belti og
tvær hallastihingar. Hann var á til-
boðsverði í Bílanausti. Hollenski
stólhnn Spirit er með 4 punkta belti
og býður upp á tvær hallastillingar.
Hann fékkst í Hvelli. Berger plus er
frá Ítalíu og er með fjögurra punkta
belti og hefur óvenju margar halla-
stillingar, eða sjö. Hann fæst í Bama-
heimi.
Bimbo plus fæst í Álímingum og
Mikilvægt er að stóllinn sé settur j bílinn á réttan hátt og hann notaður rétt. Of algengt er að stólarnir séu notaðir
rangt eða að börnin séu höfð laus í bílnum. DV-mynd BG
er frá Ítalíu. Hann er með 4 punkta
belti og sjö hallastilhngar. Cam fæst
í Vörðunni og er líka ítalskur. Hann
er með 5 punkta belti og 4 hahasthl-
ingar. Britax Freeway er frá Bret-
landi. Hann er með 5 punkta belti og
2 hahasthlingar. Hann fæst hjá Skelj-
ungi. Loks fæst hollenski stóllinn
bobob í Fífu. Hann er með 4 punkta
belti og 2 hahastihingar.
Ahir eiga stólarnir að snúa í akst-
ursstefnu en Cam stóhinn má líka
snúa baki í akstursstefnu. Einungis
einum stól fylgdi leiðarvísir á ís-
lensku, bobob-stólnum, en algengt er
að hann sé á ensku. Avallt eru bó
myndir í leiðarvísi. -ingo
Bónus með
20% lægra
í nýlegri skýrslu Hagfræðístof-
unnar, sem gerö var fyrir Bónus,
kemur fram að undanfarin fimm
ár hafl meðalfjölskyldan sparaö
20% í matarinnkaupum með því
að versla í Bónusi í stað annarra
stórmarkaða. Hún hefur að raeð-
altali keypt fyrir 32 þúsund krón-
ur í mánuði í stað 40 þúsunda.
Hafa ber þó í huga óhk verslunar-
form. Bónus býður færri vöruteg-
undir, minni þjónustu, tekur ekki
við greiðslukortum og könnunin
tekur ekki tihit th gæða.
Bónus hefur aö meðaltah verið
með rúmlega 38% lægra verð en
stórmarkaðir á grænmeti og
ávöxtum, tæplega 20% á kjöti,
tæplega 14% á pakkavöru og tæp-
lega 9% á mjólkurvöru. Verð-
munur á mhli Hagkaups og Bón-
uss hefur ekki breyst eftir að
Hagkaup keypti hlut í Bónusi.
Lægra
meðalverð
í þessari sömu skýrslu segir að
meðalverð helstu matvara hafi
lækkaö undanfarin 5 ár um tæp-
lega 17% að raunvirði. Aðrir út-
gjaldaliðir heimhanna hafa stað-
ið í stað að raunvirði eða hækkað
um aht að 60% umfram almennt
verðlag. Samkeppni í matvöru,
hagkvæmni í innkaupum heimil-
anna og áhugi fjölmiðla á neyt-
endamálum (t.d. verðkannanir
DV) séu hluti skýringarinnar á
þvi af hverju matvara haíi hækk-
að minna en aðrir útgjaldahðir
heimilanna. -ingo
Pastauppskriftasamkeppnin:
Mílanófarar valdir í dag
Barnabílstólar fyrir 1-3 ára
— 9-18 kg -
16000
-.300
Úrshtin í pastasamkeppninni
verða tilkynnt á Bylgjunni í dag svó
þátttakendur eru að vonum orðnir
spenntir. Föstudagsuppskriftin birt-
ist hér og ein auka þar sem ákveðið
hefur verið að veita aukaverðlaun.
Þeir sem hljóta 1., 2. og 3. verðlaun
fá ferð til Mílanó, matarkörfu og
bókaverðlaun og þeir sem eru í 4.,
5. og 6. sætunum hljóta matarkörfur
og bókaverðlaun.
Pasta með smokkfiski
400 g Bariha pastaslaufur
400 g smokkfiskur
400 g niðursoðnir tómatar {1 dós)
1 msk. tómatpuré
3-4 söxuð hvítlauksrif
ólífuolía
1 msk. basil
1 tsk. timian
1 tsk. oregano
rasp
hveiti
1 saxaður laukur
salt og pipar eftir smekk
Sjóðið pastað. Veltið smokkfiskin-
um upp úr hveiti og steikið í ol-
íunni. Stráið raspi yfir svo það fari
utan á smokkfiskinn og kryddið með
salti og pipar.
Setjið tómatana, tómatpuré, hvít-
lauk, basil, timian, oregano og lauk
í pott og sjóðið saman. Setjið pastað
fyrst á diskinn, þá tómatkryddsós-
una og að síðustu smokkfiskinn.
Grænmetislasagne
Eitt broccolihöfuð
slatti af ferskum sveppum
'A laukur
'A blaðlaukur
'A hvítlaukur
ein dós niðursoðnir tómatar
1 peli rjómi
1 piparostur
brauöostur
smjör, hveiti, mjólk
ólífuolía
Italian seasoning
steinselja
Barilla grænar lasagneplötur
Framkvæmd:
Gufusjóðið broccoli nokkrar mín.,
steikið laukinn, blaðlaukinn og
nokkur hvítlauskrif í ólífuolíu (ekki
brúna). Takið laukinn af og steikið
sveppina. Bætið kálinu og lauknum
út í og veiðið tómatana upp úr dós-
inni og setjið á pönnuna. Kryddið
með Italian seasoning. Hellið helm-
ingnum af rjómanum út á og látið
krauma smástund.
Ostasósa:
Bræðið 4 msk. af smjörva í potti
og bætið 1 dl af hveiti út í. Hrærið
stöðugt í á meðan. Bætiö !4-l lítra
af mjólk varlega út í, hrærið í á með-
an, setjið 'A rifinn piparost út í, nokk-
ur rif af mörðum hvítlauk og stein-
selju. Látið suðuna koma upp.
Síðan er lögunum raðað í eldfast
mót með hefðbundnum hætti: osta-
sósa, plötur, ostasósa, grænmetis-
sósa, plötur, ostasósa, grænmetis-
sósa o.s.frv. Efst eru plöturnar þakt-
ar með ostasósu og rifnum osti, 'A
piparosti og jafnt af brauðosti. Af-
ganginum af ijómanum hellt yfir.
Bakað við 200°C í 45 mín. með álpapp-
ír og u.þ.b. 15 mín. án álpappírs. Bor-
ið fram m/heitu smábrauði.
-ingo