Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1994, Blaðsíða 18
■>s
FÖSTUDAGUR 18. MARS 1994
íþróttir unglinga
Unglingalandslið karla í borðtennis:
Ísland sigraði Svíþjóð
í fyrsta landsleiknum
- Guðmundur væri toppmaður í Svíþjóð, sagði þjálfari Svíanna
. í '
Guðmundur Stephensen, hinn 11 ára Víkingur, lagði Svíana i öllum sínum
leikjum. DV-myndir Hson
Unglingalandslið íslands, undir 16
ára, lék landsleik í borðtennis gegn
Svíþjóð í Laugardalshöll 13. mars og
og sigruðu okkar strákar, 7-2. ís-
lenska liðiö lék mjög vel og ljóst að
framfarir hjá Ingólfi Ingólfssyni hafa
orðið gífurlegar að undanförnu. Það
er þó á engan hallað þó það komi
fram að Guömundur Stephensen, 11
ára, var í algerum sérflokki i lands-
leiknum og sigraði hann Svíana í
öllum þrem leikjum sínum.
Sænsku leikmennirnir eru allir í
hópi þeirra albestu í sínum aldurs-
flokki í Svíþjóð - en þeir verða allir
14 ára á þessu ári.
Góður leikmaður bættist í íslenska
liðið í Svíþjóð en það er Adam Harð-
arson sem hefur lengi verið búsettur
í Stokkhólmi og æft og spilað af fuU-
um krafti undanfarin ár - og styrkti
hann liðið mjög.
Hinn stóri sigur íslands hefur vak-
ið mikla athygli í Svíþjóð og þeir hjá
sænska Borðtennissambandinu
skilja hreint ekkert í því hvernig
standi á þessu stóra tapi á íslandi,
því engar sögur fara af góðu gengi
íslenskra borðtennisleikara á alþjóð-
legum vettvangi.
Umsjón
Halldór Halldórsson
Boðsmót á laugardeginum
Á laugardaginn fyrir landsleikinn
var haldið hoðsmót í Kennaraháskól-
anum og var sænska landsliðið þar
með. Úrsht urðu þau að Guðmundur
sigraði alla andstæðinga sína-og lék
úrslitaleikinn gegn Ingólíi Ingólfs-
syni og sigraði í oddaleik, 21-10.
Guðmundur frábær
Þjálfari sænska liðsins, Peter
Áhlgren, kvað frammistöðu íslensku
strákanna hafa komiö sér mjög á
óvart:
„Ég hef ekki áður séð íslenska spU-
ara og varð ég mjög hissa á getu
þeirra. Þeir náðu sér mjög vel á strik
í flestum leikjanna. - En ég er að
sjálfsögðu mjög óánægður meö leik
minna manna og veit ég að þeir geta
betur - en svona gengur þetta bara
- það er ekki aUtaf hægt að vinna.
Að mínu mati myndi Guðmundur
Stephensen vera toppmaður í flokki
11 ára í Svíþjóð, í það minnsta. Guð-
mundur er mjög tekniskur og harð-
skeyttur spUari. Það væri mjög gam-
an að sjá Guðmund leika gegn sterk-
ustu Svíunum í ílokki 11 ára, en ég
held að hann stæði uppi sem sigur-
vegari - hann er það góður. Það
bendir því aUt tU þess að Island komi
til með að eignast borðtennisstjörnu
í heimsklassa," sagði Ahlgren.
Gott veganesti fyrir
Evrópumótið í París
Sigurður Valur Sverrisson, formað-
ur Borðtennissambandsins, kvaðst
mjög ánægður með hina stórkostlegu
frammistööu íslenska Uðsins:
„Þetta sænska lið er mjög sterkt,
því allir þessir strákar voru í topp-
baráttunni á sænska meistaramót-
inu - svo það eru engir aukvisar hér
á ferð. Við hljótum því að vera bjart-
sýnir í framhaldi af þessum góða
árangri. Næsta verkefni strákanna
verður Evrópumót ungUnga í Paris
15. júlí,“ sagði Sigurður.
Verður Dao Ben áfram?
Það er ljóst að hinn kínverski þjálf-
ari, Hu Dao Ben, á mikinn þátt í þess-
ari velgengni hjá unglingalandshð-
inu og vonandi starfar þessi snjalh
þjálfari áfram á íslandi.
Úrslit leikja:
Guðmundur Stephensen, í„ sigraði
Niklas Ahlström, S., 21-18, 21-23,
21-15.
Adam Harðarson, í., tapaði fyrir
Petter Turegard, S., 13—21, 20-22.
Ingólfur Ingólfsson, í., sigraði Tob-
ias Larsson, S„ 22-20, 21-11.
Adam Harðarson, í„ sigraði Niklas
Ahlström, S„ 15-21, 21-13, 21-18.
Guðmundur Stephensen, í„ sigraði
Tobias Larsson, S„ 16-21,21-7,21-19.
Ingólfur Ingólfsson, í„ tapaði fyrir
Petter Turegard, S„ 12—21,13-21.
Adam Harðarson, í„ sigraði Tobias
Larsson, S„ 21-23, 21-16, 21-17.
Ingólfur Ingólfsson, í„ sigraði Ni-
klas Ahlström, S„ 21—16, 21-17.
ísland sigraði því í 7 leikjum gegn
2 sigrum Svía, sem er frábær árangur
þar sem Sviar eru ein besta borð-
tennisþjóð í heimlnum. Ljóst er af
þessu að framfarir í borðtennis-
íþróttinni hér á landi hafa verið gíf-
urlegar undanfarin ár.
-Hson
Petter Turegard er talinn eitt mesta borðtennisefni Svía nú. Leikur hans
gegn Guðmundi bauð upp á allt það besta í borðtennis.
Sænska landsliðið er skipað mjög efnilegum spilurum. Frá vinstri: Tobias
Larsson frá Trollhattan, Petter Turegard frá Stokkhólmi, Peter Ahlgren þjálf-
ari og Niklas Ahlström frá Malmö.
islenska landsliðið eftir hinn glæsta sigur gegn Svium. Frá vinstri: Adam Harðarson, Ingólfur Ingólfsson, Guðmund-
ur Stephensen og Kristján Haraldsson þjálfari. Næsta verkefni strákanna verður Evrópukeppni unglingalandsliða,
u-15 ára, í París 15. júlí.