Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1994, Page 28
36
FÖSTUDAGUR 18. MARS 1994
Víðast kaldi
Albert Guðmundsson.
Er ekki að
grínast
„Ég hef ekki veriö aö grínast meö
mín framboðsmál í fortíöinni. Ég
er búinn aö vera í borgarstjórn,
forseti borgarstjómar, þingmað-
ur og ráðherra og á grundvelb
þess geta menn metiö alvöruna í
þessu hjá mér. Ég fór ekki sjálf-
viljugur af þingi,“ sagöi Albert
Guömundsson um alvöruna á
bak viö yfirlýsingar um hugsan-
legt framboö til borgarstjórnar.
Ummæli dagsins
Kemur ekki á óvart
„Þaö hefur alltaf verið ljóst aö
ef Norömenn semdu viö Evrópu-
sambandiö myndi þaö gera kröfu
til þess aö fara með alla samninga
um veiðar á þessum hafsvæðum.
Þess vegna kemur þaö ekki á
óvart þótt Evrópusambandið
gangi í bö meö Norðmönnum í
þessu efni. Þaö hefur blasaö viö
aö svo færi,“ sagöi Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráöherra
um samning Norðmanna og ESB.
Endurspegla kvíða
„Ég tel aö þessar niðurstööur
endurspegb ákveöinn kviöa ís-
lendinga viö einangrun þegar
frændþjóöirnar streyma inn í
Evrópusambandið. Ég tel aö þetta
sé ákveðin viöhorfsbreyting og
menn séu opnari nú en áöur fyrir
því að kanna aðild," sagöi Össur
Skarphéðinsson um niðurstöðu
skoðanakönnunar DV um aðild
aö ESB. Samkvæmt könnuninni
er meirihluti þjóðarinnar fylgj-
andi aðbdarumsókn.
Kynjafordómar
„í sakleysi mínu hélt ég aö nú
á árinu 1994 gæti maður treyst
því aö „fagleg umfjöllun" lærðra
manna væri ekki krydduð lág-
kúrulegum ödipusarduldum
kynjafordómum á borð viö þá
sem verðbréfamiðlarinn gerir sig
sekan um, ekki einu sinni heldur
níu sinnum í grein sinni til varn-
ar óskabarni þjóöarinnar Eim-
skip hf. Hvern íj... skiptir þaö
máh í málefnalegri umræöu al-
mennt, hvort viðmælandinn er
dekurdís, frekjudós eða fitu-
bolla?" skrifar Jenný St. Jens-
dóttir viöskiptafræöingur í Mbl.
um grein VUhjálms Bragasonar,
löggbts verðbréfamiðlara og við-
skiptafræðings.
Magnús
Scheving
spjallar hjá
SÁÁ
ÞolfimísnilUngurinn Magnús
Fundir
Scheving talar um gildi Ukams-
ræktar kl. 22.30 í kvöld hjá SÁÁ
í Úlfaldanum og mýflugunni aö
Ármúla 17a. Að loknum spjaU-
fundinum veröur diskótek fram
. eför nóttu.
Austan- og norðaustanátt verður á
landinu í dag og víðast kaldi. Um
sunnan- og vestanvert landiö verður
Veðrið í dag
víöast bjartviöri en áframhaldandi
éljagangur á Noröur- og Austur-
landi. Frost veröur 5 tU 10 stig í fyrstu
en eins til fimm stiga frost aö degin-
um. Á höfuðborgarsvæðinu verður
norðaustangola eða kaldi og léttskýj-
aö. Frost 2 til 5 stig í dag en allt að
12 stiga næturfrost.
Sólarlag í Reykjavík: 19.37
Sólarupprás á morgun: 07.33
Síðdegisflóð í Reykjavík: 22.02
Árdegisflóð á morgun: 10.18
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjað -7
Egilsstaðir skýjað -9
Gaitarviti snjóélás. klst. -7
Keílavíkurílugvöllur léttskýjað -6
Kirkjubæjarkiaustur léttskýjað -6
Raufarhöfn snjókoma -6
Reykjavík léttskýjað -8
Vestmannaeyjar léttskýjað -8
Bergen skýjað -2
Ósló skýjað -1
Stokkhóimur skýjað -5
Þórshöfn skýjaö -1
Amsterdam rign. ás. klst. 4
Berlín skýjað 2
Chicago alskýjað 3
Feneyjar heiðskírt 5
Frankfurt skýjað 2
Glasgow skýjað 3
Hamborg snjóél 1
London skýjað 6
LosAngeies skýjað 16
New York heiðskírt -2
Nuuk alskýjað -7
Orlando heiðskirt 9
París rigningás. klst. 6
Vín léttskýjað 12
Washington alskýjað 3
Winnipeg frostúði -A
Veðrið kl. 6 i morgun
Bjargaði hjónum úr logandi bíl:
„Ég átti óvænt erindi upp í EgUs-
staði þennan dag,“ sagði Rúnar
Kristinsson, vörubifreiöarstjóri á
Eskifirði, en hann kom að alvar-
legu bbslysi á Fagradal síöastUðinn
þriöjudag og vann þar merkUegt
björgunarafrek ásamt ökumanni
vörubilsins sem lenti í árekstrinum
er varð í slæmu skyggni.
Lenti framhluti fólksbílsins und-
ir vörubílnum þannig að stuöari
_____4___________________________
Maður dagsins
vörubílsins nam við framrúðu
fólksbilsins. Eldur kom upp i báö-
um bílunum.
„Aðalheiöur Ingimundardóttir,
sú fyrirhyggjusama kona, gaf mér
bílaslökkvitæki í aftnælisgjöf fyrir
7 árum, reyndar með ósk um aö ég
þyrfti aldrei aö nota það. Ég hef
Rúnar Kristinsson.
haft það í mínum bfl síöan. Það
kom sér vel við þessar aðstæður
þar sem ég náði að slá á eldinn og
vinna viö þaö dýrmætan tíma við
aö bjarga hjónunum sem voru fóst
í brennandi bílnum,“ sagði Rúnar.
Rúnar er vörubílstjóri aö atvinnu
en þykir einkar handlaginn og út-
sjónarsamur og sannkaUaður þús-
undþjalasmiður í hveriu sem hann
tekur sér fyrir hendur. Harrn er
kunnur steinkantahleðslumaður
hér um slóðir og notar þá valda
steina úr náttúrunni til verksins.
„HeimUið og fiölskyldan og vel-
ferð hennar ásamt starfinu og um-
hverfinu er aöaláhugamál mitt Ég
hef gaman af garðrækt og gróður-
setningu tijáa. Og áhugamáUn eru
mörg en aftur á móti UtiU tími til
að sinna þeim þar sem ég er alltaf
að safna í botnlausa baukinn hans
Frissa," segir Rúnar.
Rúnar er giftur Guðrúnu E.
Karlsdóttur og eiga þau fiórar dæt-
ur, Rögnu Kristbjörgu, Katrínu
Regínu, Hildi Þuríði og Ölmu Rún.
Emil Thorarensen
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 874:
EyhóR-
Varaskeifa
Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði
Tveir
kvenna-
leikir
í 1. deild kvenna í handbolta fer
fram leikur í átta liða úrsUtum.
Valur og Fram mætast kl. 19.30 á
Hlíðarenda.
íþróttir
í 1. deild kvenna í körfubolta
mætast Grindavík og KR kl. 20 í
Grindavík.
Skák
Garrí Kasparov þurfti ekki einasta að
þola yfirburðasigur erkifiandans
Karpovs á mótinu í Linares heldur var
hann i ofanálag ásakaður um að hafa
rangt við í skák sinni við Judit Polgar.
í miklu tímahraki snerti Kasparov
riddara sirrn og ætlaði að leika honum
til c5 en hætti við og sneri honum til f8.
Sumir héldu að Kasparov hefði sleppt
riddaranum á c5 en skákdómari úrskurð-
aði að svo hefði ekki veriö og Kasparov
fékk að „taka leikinn upp“.
Svona var staðan. Kasparov hafði svart
og átti leik:
Kasparov sá sig um hönd í stöðunni,
enda blasir við að 36. - Rc5? 37. Bc6 kost-
ar hann lið. Skákin tefldist: 36. * Rf8 37.
Re4 R8d7 38. Rxf6+ Rxf6 39. Dxb6 Rg4
40. Hft e4 41. Bd5 e3 42. Bb3 De4 43.
Bxc2 Dxc2 44. Hd8 Hxd8 45. Dxd8+ Kh7
46. De7 Dc4! og Judit gafst upp.
Bridge
Sveit Guðlaugs Sveinssonar var framan
af undankeppni íslandsmóts 1 sveita-
keppni í baráttu um sæti í úrslitum. Hún
lagði sterka sveit L.A. Café, 21-9, í ann-
arri umferð og var 27 impa yfir í hálfleik
í leik sínum á móti sveit Metró í ijórðu
umferð. Sveinn Sigurgeirsson og Jón
Stefánsson, sem sátu NS í fyrri hálfleik
þess leiks, spiluðu sérlega vel og stigu
varla feilspor. Þeir hnekktu til dæmis
þriggja granda samningi vesturs með
öryggi í þessu spili í leiknum. Sagnir
gengu þannig, austur gjafari og NS á
hættU: ♦ ÁD109
¥ 65
♦ 64
* Á9832
♦ 652
♦ KG
V KG9
♦ D108753
+ KG
♦ 8743
V D
♦ KG9
+ D10754
¥ Á1087432
♦ Á2
+ 6
Austur Suður Vestur Norður
-Pass Pass 14 1*
2» 2* 2 G Pass
3» 3* 3 G P/h
Sveinn Sigurgeirsson í norður var ekki á
því að gefa slag í útspilinu og spilaði því
út hjartasexunni. Sagnhafi byrjaði á því
aö renna niður sjö slögum í hjarta og
henti fjórum tíglum heima. Síðan spilaði
hann spaða á gosann sem drepinn var á
drottningu. Þá spilaði Sveinn tígli, lítiö
spil úr blindum, suður átti slaginn á kóng
og spilaði aftur spaða og spilið fór einn
niður. Á hinu borðinu voru spiluð fjögur
hjörtu, slétt unnin og sveit Guðlaugs
Sveinssonar græddi 10 impa á spilinu.
Sömu spil voru spiluö í öllum leikjum
og algengasti samningurinn var 4 hjörtu
sem unnust í fleiri tilfellum en ekki. Þó
á sá samningur að vera niður með bestu
vöm. Sveit Metró náði að jafna leikinn í
síðari hálfleik og hann fór 15-15 í vinn-
ingsstigum. Sveit Guðlaugs tapaði síðan
illa, 4-25, gegn sveit Tryggingamiðstöðv-
arinnar síðar í keppninni og þá var
draumurinn um sæti í úrslitum úti.