Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1994, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1994, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994 Erlendbóksjá Metsölukiljur Bretland Skáldsögur: 1. Thomas Keneally: Schindler's Ust. 2. Jeffrey Archer: Honour among Thieves. 3. Vikram Seth: A Suitable Boy. 4. James Clavell: Gal-Jin. 5. P.D. James: The Children of Men. 6. John Grisham: The Pelican Brief. 7. Terry Pratchett: Johnny and the Dead. 8. Terry Brooks: The Talismans of Sbannara. 9. Catherine Cookson: The Year of the Virgins. 10. Joanna Trotlope: The Rector's Wife. Rit almenns eðlis: 1. J. McCarthy 8t J. Morrell: Some Other Rainbow. 2. Jung Chang: WiTd Swans. 3. Alan Clark: Diaries. 4. Brian Keenan: An Evil Cradting. 5. Stephen Fry: Paperweight. 6. Gerry Conlon: Proved Innocent. 7. Nick Hornby: Fever Pitch. 8. Steve Jones: The Language of the Genes. 9. Gordon West: Jogging Round Majorca. 10. James Gleick: Genius. (Byggt á The Sunday Times) Danmörk Skátdsögur: 1. Peter Hoeg: Freken Smillas fornemmelse for sne. 2. Michael Crichton: Kuglen. 3. Toni Morrison: Sula. 4. Bjarne Reuter: En rem af huden. 5. P.G. Wodehouse: Lad PSmitb klade den. 6. Isabel Allende: Andernes hus. 7. Christopher Davis: Philadelphia. (Byggt á Politiken Sondag) Gagnrýnar skáldsögur Einn kunnasti rithöfundur Víet- nama um þessar mundir heitir Du- ong Thu Huong. Hún er 47 ára aö aldri og býr aö ýmsu leyti viö svipað- ar aðstæður og kollegar hennar gerðu á síðustu árum Sovétríkjanna. Bækur hennar fást til dæmis ekki lengur útgefnar í heimalandi hennar þar sem ríkisvaldið stýrir allri þóka- útgáfu. Þær sjást heldur ekki í hillum bókaverslana. Samt eru þær mikið lesnar í landi þar sem um 90% þjóð- arinnar kunna að lesa og bækur eru ennþá mikilvægari en sjónvarp. Blaðamaður bandaríska stórblaðs- ins New York Times heimsótti Du- ong nýlega í heimaborg hennar, Hanoi, en fyrir skömmu kom skáld- saga eftir hana út í Bandríkjunum. Sú heitir Paradise of the Blind eða Paradís hinna blindu og gefur að sögn gagnrýnenda sterka mynd af mann- lífi í Víetnam hin síðari ár og rótgró- inni pólitískri spillingu. Hin illu öfl í sögunni eru ekki bandarískir her- menn Víetnamstríösins, enda gerist sagan að því loknu, heldur spilltir póhtíkusar sem hafa svikið hugsjón- ir byltingarinnar sem kom þeim til valda. „Það sem ég skrifa er yfirleitt byggt á því sem ég sé í kringum mig,“ seg- ir hún. Og bætir við: „Stundum sé ég hræðilega hluti.“ Sjö mánuði í fangelsi Sjálf man Duong stríðið vel. Hún var dóttir eins af skæruliðaforingj- um Ho Chi Minhs. Tvítug að aldri fór Duong Thu Huong á heimili sínu i Hanoi. Umsjón: Elías Snæland Jónsson hún að skemmta hermönnum á víg- stöðvunum með leiksýningum. Seinna skrifaöi hún svo skáldsögur sem náðu miklum vinsældum. Duong yfirgaf kommúnistaflokk landsins árið 1990. Sjálf kveðst hún hafa verið rekin úr flokknum en starfsmenn flokksins segja aö hún hafi sagt sig úr honum. Hvað sem því líður þá var hún handtekin ári síðar, í apríl 1991, og látin dúsa í fang- elsi í sjö mánuöi án dóms og laga. Henni var gefiö að sök að hafa ætlað að smygla „afturhaldsskjölum" úr landi. Þar var átt við ritsmíðar henn- ar sjálfrar. „Eg var færð út fyrir Hanoi og hald- ið þar í pínulitlu herbergi," sagði hún í viðtalinu við New York Times. „Þeir heimtuðu aö fá að vita hvort ég hefði haft samband við hættulegt fólk - útlendinga eða Víetnama sem búa erlendis. Það var allt saman yf- irskin til að áreita mig og hræða.“ Fljótlega var hún sett í fangelsi. „Á klefa mínum var enginn gluggi - að- eins hurð með litlu gati sem hægt var að kíkja út um,“ sagði hún. Fangavistin fór illa með hana lík- amlega; hún léttist til dæmis um hátt í tuttugu kíló. Sumarið sem hún var i fangelsinu hrundu Sovétríkin, en til þeirra höfðu kommúnistar í Víetnam lengi sótt stuðning. „Þegar Sovétríkin voru að hverfa varð augljós breyting á afstöðu lögreglumannanna til mín,“ segir Duong. „Ég gat rökrætt við þá og þeir hlustuðu á þaö sem ég hafði að segja. Jafnvel fangaverð- irnir viðurkenndu í mín eyru aö þeir tryðu ekki lengur á Marxismann. Margir þeirra höfðu lesið bækur mínar." Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: 1. John Grisham: The Client. 2. Thomas Keneally: Schindler's List. 3. Belva Plain: Whispers. 4. Larry McMurtry: Streets of Laredo. 5. Jobn Jakes: Homeland. 6. Catherine Coulter: Lord of Raven's Peak. 7. Jarnes A. Michener: Mexico. 8. John Sandford: Winter Prey. 9. Steve Martini: Prime Witness. 10. Robert B. Parker: Paper Doll. 11. Peter Straub: The Throat. 12. Kevin J. Anderson: Jedi Search. 13. Larry Bond: Cauldron. 14. Richard North Patterson: Degree of Guílt. 15. Sue Miller: For Love. Rit almenns eðlis: 1. Thomas Moore: Care of the Soul. 2. M. Scott Peck: The Road Less Travelled. 3. Maya Angelou: I Know why the Caged Bird Sings. 4. Aphrodite Jones: Cruel Sacrifice. 5. Joan W. Anderson: Where Angels Walk. 6. Deborah Laake: Secret Ceremonies. 7. Peter Mayle: A Year in Provence. 8. Gait Sheehy: The Silent Passage. 9. Benjamin Hoff: The Tao of Pooh. 10. Deborah Tannen: You Just Don't Understand. 11. Martin L. Gross; A Call for Revolution. 12. Gerry Conlon: In the Name of the Father. 13. Bernie S. Siegei; Love, Medicine, and Miracles. 14. H.G.Moore&J.L.Galloway: We Were Soldiers Once.. .and Young. 15. Rush Limbaugh: The Way Things Ought to Be. (Byggt á New York Times Book Revlew) Vísindi Slæmar fréttir fyrir skemmdarvarga: Sykur í bensín gerir bílvélum ekki mein Það þýðir ekkert að hella úr svona poka t bensintank bíls ef menn ætla sér að vinna skemmdarverk. Haröari en demantar Allir vita hvað demantar eru: hreinir kolakrystallar. Og þar aö aukl haröasta efnið sem til er. Eöa hvað? Tveir vísindamenn, þeir Char- les M. Lieber og Chumxning Niu, viö Harvard háskólann í Banda- ríkjunum, hafa búið til efhi sem þeir segja að sé hugsanlega enn harðara en demantar, efni sem er blanda kolefnis og niturs. Lie- ber segir að tilraunir hafi staðfest að sameindabygging eínisins sé sterk. Ekki er þó hægt að kanna hörku þess fyrr en tekist hefur að búa til stórt og hreint stykki af því. Annar vísindamaöur spáði fyr- ir hörku koleftiis og nitursam- bands árið 1989. Efnið verður hugsanlega hægt að nota sem húöunarefni í iðnaði. Ratsjáin fer í mann- greinarálit Við Washington háskólann í St. Louis í Bandaríkjunum er nú verið að vinna að nýrri ratsjá sem getur gert greinarmun á flugvél- um sem fljúga inn í geisla henn- ar. Hún getur sem sé séö hvort um er að ræöa flugvél sem ógn gæti 8taðiö af. Ratsjár þær sem nú eru í notk- un greina ekki á milli flugvéla og getur það haft hörmulegar afleið- ingar, eins og þegar Bandaríkja- menn skutu niöur íranska far- þegavél áriö 1989. Bófar heimsins, bæöi raunveruleg- ir og uppdiktaðir, hafa kynslóð fram af kynslóð talið sig vera að eyðileggja bíla náungans með því að hella sykri í bensíngeyma þeirra. Samkvæmt þjóðsögum þorparanna kemst sykur- inn með því móti inn í þílvélarnar og eyðileggur í þeim ventlana. Lögreglunni er að sjálfsögðu mæta- vel kunnugt um sykurbrelluna og þegar grunur leikur á að henni hafi verið beitt sogar hún bensín úr tank- inum og sendir í greiningu. John Thornton, prófessor í glæpafræðum við Berkeley háskólann í Kaliforníu, segir hins vegar að þessi lífseiga þjóðsaga meðal bófanna sé bara alls ekki á rökum reist. Þar sem sykur leysist ekki upp í bensíni kemur hann ekki fram í bensíni sem hefur verið sogað upp úr geymi með sog- röri. Af sömu ástæðum fer sykurinn heldur ekki inn í véhna og jafnvel þótt svo væri myndi hann ekki gera mikinn óskunda, að sögn Thorntons. Thornton starfaði hjá glæparann- sóknarstofu lögreglunnar áður en hann sneri sér að háskólakennslu og það var á þeim vettvangi sem for- vitni hans um sykurblandað bensín vaknaði fyrst. „Rannsóknarlögreglumenn komu öðru hverju með bensínkönnu og þaö brást ekki að þeir höfðu sogaö bens- ínið upp úr bílgeymi,“ segir Thom- ton. Um síðir ákvað Thomton að rann- saka hvort hugboð hans um að sykur leystist ekki upp í bensíni væri rétt en það byggði hann á grundvallar- prinsippum efnafræöinnar. Sykur- inn myndi þvi setjast á botninn á bensíntankinum þar sem sogrörið næði ekki til hans. Hann merkti sykur með geislavirk- um kolefnisatómum og blandaði honum saman við bensín. Hann setti blönduna síöan í skilvindu sem skildi eindimar sem ekki höfðu leyst upp frá vökvanum. Magn geislavirkni í vökvanum sýndi hversu mikill hluti sykursins leystist upp í bensíninu. Það reyndist vera sáralítið, ekki nema tæplega ein teskeið í sextíu lítra tanki. „Þegar öllu er á botninn hvolft leysist sykur bara ekki upp í bens- íni,“ segir Thomton. Og jafnvel þótt svo væri myndi hann ekki gera mik- ið af sér. Thornton vísar í rannsókn- ir verkfræðinga sem helltu kvart- kílói af sykri beint í vélarblöndung og eini afraksturinn var svartur reykur. Engar skemmdir. „Sykur í bensíntankinum er aUs ekki eins slæmt og við höfum alltaf haidið," segir Thomton. Klósettíhúsun- um í Pompei Hollenskir fornleifafræðingar fullyrða að klósett hafi verið í næstum öllum húsum í gömlu rómversku borgunum Hercul- aneum og Pompei. Þar með hafa þeir kveðið niður þá þjóðsögu aö Rómverjar hafi yfirleitt gert þarf- ir sinar á almenningssalernum. Klósett Rómverjanna vom ýmist á bak við sérstakt tjald í eldhúsinu, úti í garði eða undir tröppum húsanna. Klósettskálin var úr steini og hvíldi hún á sér- stöku röri. Við enda rörsins var svo ílát sem húseigendur gátu fengið tæmt gegn sérstakri greiðslu. Ilmefni gerirbý- flugurvitlausar Afrísku drápsbýflugurnar sem mörgum stendur stuggur af hafa nú loks fyrirhitt ofjarl sinn þar sem eru svoköllaðar Höíða- býflugur frá Suðiu--Afríku. Þegar þær síöarnefndu ráðast inn í bú hinna gefa svokaUaðar plat- drottningar Höfða-býflugnanna frá sér ilmefhi sem fær drápsflug- umar til að ráðast hverja gegn annarri. Drápsbýln verða hreinlega brjáluð af ilmefninu sem plat- drottningamar gefa frá sér og ráðast á allt sem fyrir er. Að end- ingu taka Höfða-býin svo öll völd í búinu. Umsjón Guðlaugur Bergmundsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.