Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1994, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994
3
Fréttir
Holland:
íslendingur
fékk árs
fangelsi
Eyþór Eðvarösson, DV, Hollandi;
Íslendingurinn, sem var handtek-
inn á aðalbrautarstöðinni í Amsterd-
am 17. mars síðastliðinn, var í fyrra-
dag dæmdur í árs fangelsi.
Dómurinn féllst þannig á kröfu
ákæruvaldsins. Samkvæmt hoi-
lenskum lögum á íslendingurinn,
sem var tekinn með um 300 grömm
af amfetamíni og nokkurt magn af
alsælupillum, von á að fá felldan nið-
ur þriðjung þess tíma sem er umfram
sex mánuði. Þess vegna má hann eiga
von á að dómurinn styttist um tvo
mánuði þannig að hann þurfi ekki
að sitja inni nema í 10 mánuði.
Samkvæmt upplýsingum Korsten
Horst, sem er saksóknari ákæru-
valdsins í Amsterdam, er ekki ljóst
hvar íslendingurinn kemur til með
að sitja dóminn af sér en það ræðst
af því hvar laust pláss er. Samkvæmt
samningi milli Hollands og íslands
getur hann sótt um að fá að afplána
dóm sinn á íslandi en samkvæmt því
sem Horst segir hefur ekki komið
fram slík beiðni.
Hjartasjúklingar:
Fækka sjúkl-
ingum á
biðlistum
Á annað hundrað fundarmenn á
aðaifundi Félags hjartasjúklinga á
Eyjaíjarðarsvæðinu samþykktu ein-
róma ályktun þess efnis að heilbrigð-
isráðherra gripi til ráðstafana til að
fækka sjúklingum á biðhsta.
Fundurinn skoraði á Guðmund
Árna Stefánsson, ráðherra heilbrigð-
ismála, að beita sér fyrir fjölgun
hjartaaðgerða á Landspítalanum svc
hægt sé að fækka á löngum biðlist-
um.
Ásahreppur:
Kæravegna ,
vegafram-
kvæmda
Hreppsnefnd Ásahrepps í Rangár-
vallasýslu hefur verið kærð til fé-
lagsmálaráðuneytisins vegna vega-
framkvæmda i hreppnum sem eiga
að hefjast í vor. Meiningin er að
byggja upp og malbika þjóðvegi í
hreppnum næstu tvö árin og er gert
ráð fyrir að kostnaðurinn nemi 96
miUjónum króna. Hlutdeild ríkisins
nemur átta mUljónum króna á þessu
ári, samkvæmt vegaáætlun.
„Ég er nýbúinn að fá bréf frá félags-
málaráðuneytinu og er ekki búinn
að svara því. Einstaklingur í hreppn-
um telur að sveitarstjórn eyði fjár-
munum í vegi sem ríkið eigi að leggja
en þetta er ekkert nýtt. Sveitarfélög-
in hafa oft flýtt fyrir framkvæmdum
með því að lána fé í vegi því að þess-
ir vegir hafa setiö á hakanum hjá
ríkinu og ekkert fyrir þá gert,“ segir
Jónas Jónsson oddviti.
Ferntslasað
Femt var flutt á slysadeild eftir
þriggja bíla árekstur á mótum Lækj-
argötu og Hverfisgötu í Hafnarfirði
í gær. Mikið eignatjón varð, tveir
bílanna eyðUögðust en ekki alvarleg
slys á fólki. >
útsala á
notuðum
bílum
Á FIMMTUDAG, FÖSTUDAG OG
LAUGARDAG HELDUR GÓÐIR BÍLAR
A GOÐU VERÐI REYNDAR A ÞETTA VIÐ UM ALLA AÐRA DAGA LlKA
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA TIL KL. 18 OG LAUGARDAGA KL. 10-17.
ÖRFÁ SÝNISHORN AF NOTUÐUM BÍLUM AF ÝMSUM GERÐUM Á SÉRSTAKLEGA GÓÐU VERÐI
MMC Lancer GLSi ’91, sjálfsk., m/od.,
ek. 33.000. V. 890.000.
BMW 520i
V. 1.490.000.
sjálfsk., ek. 59.000.
Toyota Corolla XL ’91,5 g., ek. 75.000.
V. 590.000.
MMC Galant GLSi ’88, sjálfsk. m/od,
ek. 84.000. V. 790.000.
Lancia 410
V. 170.000.
87, 5 g., ek. 55.000.
Subaru Legacy GL, '91, ek. 43.000,
sjálfsk., 4x4. V. 1.290.000.
SÝNISHORN AF ÚRVALINU AF NOTUÐUM DAIHATSU OG VOLVO BÍLUM MEÐ 6 MÁNADA ÁBYHGD
Volvo 740 GL, '87, ek. 71.000, 5 g
V. 890.000.
Volvo 240 GL, '88, ek. 81.000, sjálfsk.
V. 870.000.
FAXAFENI8 • SÍMI 9I- 68 58 70