Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1994, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994
Fréttir
Skoðanakönnun DV um sjálfsstjóm borgarhverfa:
Borgarbúar vilja f á
völd í hverf in sín
Yfirgnæfandi meirihluti íbúa
Reykjavíkur vilja að borgarhverfin
Ummæli
fólks í könn-
uninni
„Ég held að það væri til góðs
að auka sjálfstæði hverfanna,“
sagöi kona. „Þessu lýðræðisbrölti
fylgir bara kostnaður," sagði
eldri kona. „Reykvikingar hafa
engu fengið að ráða hingað til.
Hverfastjórnir væru til bóta,“
sagði karl. Hverfastjórnir yröu til
að gera einfalt mál flókiö,“ sagði
kona. „Ég held að núverandi fyr-
irkomulag sé-það skásta," sagði
karl. Annar karl sagði Reykjavík
ekki það stóra borg að það tæki
þvi að gera hverfin sjálfstæðari.
„Þetta er ekki tímabært og krefst
meiri undirbúnings,“ sagði hann.
„Sjálfsstjórn borgarhverfa yrði
of þung í vöfum og kostnaðurinn
gæti íarið úr böndunum. Hug-
myndin á hins vegar rétt á sér,“
sagöi karl. Yngri kona sagöist sjá
bæði kosti og galla við aukna
sjálfsstjóm borgarhverfanna.
„Fólkið í hverfunum veit best
hvemig það viil nota þá peninga
sem fara í sameiginlega sjóði,“
sagði ungur maður. Kona sagði
að fóik ætti að fá að ráða sínu
nánasta umhverfi. „Ég hef aldrei
leitt hugann að þessu," sagði
kona. „Aukin sjálfsstjórn er
kjaftæði og kaUar á þungt og mið-
stýrt kerfi,“ sagði miðaldra karl.
„Borgarhverfin eru alltof lítil til
að fá sjálfsstjórn," sagði ungur
karl.
- tæplega28prósentvlljaóbreyttástand
fái aukna sjálfsstjóm. Þetta er niður-
staða skoðanakönnunar sem DV
framkvæmdi í vikunni. Af þeim sem
tóku afstöðu vilja 72,1 prósent að
hverfin fái aukna sjálfsstjórn en and-
víg eru 27,9 prósent.
Urtakið í skoðanakönnun DV var
600 manns, allt kjósendur í Reykja-
vík. Jafnt var skipt á milli kynja.
Spurt var: „Ertu fylgjandi eða and-
vígur aukinni sjálfsstjóm borgar-
hverfa?" Könnunin fór fram á mánu-
dags- og þriðjudagskvöld. Skekkju-
mörk í könnun sem þessari em tvö
til þrjú prósentustig.
í skoðanakönnuninni tóku 84,9
prósent úrtaksins afstöðu til spurn-
Niðurstaða skoðanakönnunarinnar
Spurt var: „Ertu fylgjandi eöa andvígur aukinni sjálfsstjórn borgarhverfa?"
Fjöldi Hlutfall
Fylgjandi aukinni sjálfsstjórn 367 61,2%
Andvígir aukinni sjálfsstjórn 142 23,7%
Cákveðnir 88 14,7%
Svara ekki 3 0,5%
ingarinnar. Fylgjandi aukinni sjálfs- 23,7 prósent. Óákveðnir reyndust
stjórn borgarhverfa reyndust 61,2 14,7 prósent og 0,5 prósent neituðu
prósent úrtaksins en andvíg voru að svara.
Aukin sjálfsstjórn borgarhverfa
nda í Reykjavík samkvSskoðanakönnun DV
AndMglr
Rússneskur radíóverkfræðingur vinnur á Þórshöfn:
Keyrir til Moskvu á
Lödu meðaðraítogi
Vladimir Katsjentsjev, radíóverkfræðingur, hefur notað fritimann til að gera
upp gamla og lúna Lödu og i sumar ætiar hann að keyra á Lödunni til
Moskvu. DV-mynd Sigurður
DVvannífirma-
keppniFáks
Firmakeppni Fáks var haldin
nýlega i góðu veðri. Rúmlega 150
firmu styrktu Fák aö þessu sinni.
Keppt var í fimm flokkum.
Óánægju hefur gætt meðal félaga
með keppni í karlaflokki því hhm
hefðbundni áhugamaður átti vart
möguleika á sigri en með því að
bæta við meistaraflokki rættist
úr.
Meistaraflokkurinn er nefni-
lega skipaður þeim knöpum sem
telja sig vera atvinnumenn i
greininni og veija þeir sjálfir
hvort þeir séu gjaldgengir þar eða
þá annars staðar.
DV sigraði í meistaraflokki.
Sveinn Ragnarsson keppti á stóð-
hestinum Óríon frá Litla-Bergi
fyrir DV og stóö efstur. _
í barnaflokki sigTaði íspan og
var keppandi fyrirtækisins Davíð
Matthíasson á Vini.
í unglingaflokki sigraði Jón Ól-
afsson byggingameistari og var
Ragnheiður Kristjánsdóttir kepp-
andi fyrirtækisins á Rökkva.
í kvennaflokki sigraði Ár-
mannsfell. Fulltrúi fyrirtækisins
og sigurvegarí var Guðrún Edda
Bragadóttir á Jöru.
Formaður Fáks, Viðar Hall-
dórsson gerði sér lítið. fyrir og
sigraði í karlaflokki á Prinsi.
Hann keppti fyrir Pjetur 0. Niku-
lásson. -E.J.
Rússar láta sér ekki allt fyrir
brjósti brenna og gott dæmi um það
er Vladimir Katsjentsjev, radíóverk-
fræðingur og fyrrum yfirmaður fjar-
skipta á flugvelli í Moskvu. Vladimir
hefur búið á Þórshöfn síðustu tvö
árin, starfað þar í fiski og notað frí-
tímann til að gera upp gamla og lúna
Lödu. í sumar hyggst hann fara með
Norrænu til Noregs og keyra á Löd-
unni með aðra í eftirdragi gegnum
Noreg, Svíþjóð og Finnland alla leið
til Moskvu í sumarfrí til fjölskyld-
unnar sem hann hefur ekki séð í tvö
ár.
„í sumar ætla ég að fara til Rúss-
lands gegnum Noreg, Svíþjóð og
Finnland á Lödunni þó að ég viti
ekki hvernig mér gengur miUi Sankti
Pétursborgar og Moskvu því að þar
getur ýmislegt ófyrirsjáanlegt komið
upp á. Ég kom fljúgandi til íslands
haustið 1992 til að vinna en ég bjó í
Moskvu og kom beinustu leið þaö-
an,“ sagði Vladimir þegar DV hafði
samband við hann á Þórshöfn ný-
lega.
Vladimir frétti af atvinnumögu-
leikum á íslandi gegnum kunningja
sinn í Moskvu sem kvæntist íslensk-
um lækni. Þar sem launin eru marg-
falt lægri í Rússlandi en á íslandi
ákvað hann að fara utan til að þéna
peninga. Fjölskyldan, eiginkona
hans og sonur, átti ekki heimangengt
og varð eftir í Rússlandi. Vladimir
líkar vel á íslandi og ætlar að koma
aftur hingaö eftir sumarfríiö þó að
óvist sé hvort fjölskylda hans kemst
meö honum.
Fíknieöiamálið:
Óljóst hvenær
yfirheyrslur
getahafist
Eftir þinghald í stóra fíkniefna-
máhnu í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær er ijóst að óvíst er hve-
nær yfirheyrslur heflast í málinu.
Ákveðið var að aðalmeðferðin
hefjist 9. maí en þá verður á því
tekið hvort réttarhöldin verði
opin eða haldin fyrir luktum dyr-
um. Búast má við að ákæruvaldið
fari fram á að þegar yfirheyrslur
fara fram yfir sakborningunum
18 verði réttarhöldin lokuð því
hætta geti skapast á því að
ákærðu fylgist með og fái upplýs-
ingar um hvað aðrn segja fyrir
dóminum - m.a. í gegnum ijölm-
iðla og aðra.
Ef til þess kemur að dómarinn
fallist á kröfu ákæruvaldsins um
aö hafa réttarhöldin lokuð má
búast við að verjendur ákveði að
kæra þá ákvörðun til Hæstarétt-
ar. Þetta mun þá þýöa einhverja
töf á að yfirheyrslur hefiist.
Við þinghaldiö í gær var ákveð-
ið að þegar yfirheyrslum Ijúki
verði tekið tveggja vikna hlé á
réttarhöldínum. Verjendur fá þá
tíma til að afla gagna og kalla til
vitni. Ákæruvaldið hefur þegar
iagt fram lista með 12 vitnum sem
veröa yfirheyrð eftir hléið.
-Ótt
Tveir menn voru fluttir, að þvi
að talið er ekki alvarlega slasað-
ir, á slysadeild Borgarspítala í
fyrradag. Mennirnir voru að
vinna að viðgerð á skyggni á
húsi við Laugaveg þegar
skyggnið brast undan fótum ann-
ars þeirra og féil hann um 4
metra i götuna. Hluti verkpalla,
sem hinn mannanna stóð á,
hrundi einnig þannig að hann
féll líka í götuna. Eins og fyrr
sagði voru meiðsl mannanna
ekki talln alvarleg en annar
meiddist á fæti en hlnn á öxl.
DV-mynd Sveinn
Akranes:
Fiskimjöls-
verksmiðjan
stækkuð
„Þetta er nú ekki mikil stækk-
un, Við höfum verið að gera smá-
vegis lagfæringar á verksmiðj-
unni undanfarið og nú langar
okkar aö stækka hana þannig að
afköstin aukist um 150 torrn á
sólarhring,“,sagði Haraldur Stur-
laugsson, forstjóri HB & Co á
Akranesi um stækkun á Síldar-
og fiskimjölsverksmiðju Akra-
ness.
Hann sagði að ekki stæði til að
auka þróarrýmið heldur bara
bræðsluaíköstin. Þróarrýmið er
3300 tonn og eftir stækkun ætti
verksmiðjan að geta brætt 600
tonn á sólarhring. Haraldur sagö-
ist vonast til að breytingum yrði
lokiö fyrir næstu loðnuvertíö.
-S.dór