Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1994, Síða 5
J
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994
3v Fréttir
Hæstiréttur dæmir 1 höfimdarréttarmáli:
Æviskrár-
ritari tap-
aði málinu
- haföiurLrnöstaölaðaspiirnmgalistameðöðrTLtn
Félag loftskeytamanna vann í gær
mál sem það áfrýjaði til Hæstaréttar
sem tengdist höfundarrétti á ævi-
skrám loftskeytamanna, ritinu; Loft-
skeytamenn og fjarskiptin.
Ritnefnd Félags loftskeytamanna
hafði ráðið mann til að inna af hendi
tvíþætt verk við útgáfu umrædds
rits. í fyrsta lagi var um að ræða
sérstakt, afmarkað verk; „vinnslu
prentsmiðjuhandrits", samkvæmt
fyrirsögn ritnefndarinnar. Verki
þessu skilaði maðurinn, en ágrein-
ingur var um hvort hann hefði lokið
því á fullnægjandi hátt.
Starf mannsins var fyrst og fremst
fólgið í endurskoðun á æviskrártext-
um, sem þegar höíðu verið skráðir á
sérstök stöðluð eyðublöð, öflun upp-
lýsinga í tengslum við hana, þar sem
á þær skorti, og lagfæringar með við-
bótum og úrfellingum til samræm-
ingar. Þá er þess að gæta að maður-
inn vann ekki einn að verkinu og
sumir inntu af hendi verulegt starf.
„Þegar framanskráð er virt verður
ekki tahð að umrætt starf gagnáfrýj-
anda hafi verið þess eðlis að það full-
nægði lágmarkskröfum um frumleik
eða sjálfstæða efnismeðferð til þess
að það skapaði gagnáfrýjanda höf-
undarétt samkvæmt höfundalög-
um.“
Var manninum því gert að greiða
Félagi loftskeytamanna 120 þúsund í
málskostnað. Tveir hæstaréttardóm-
arar skiluðu séráhti og töldu mann-
inn eiga fuhan rétt á að eignast höf-
undarrétt á ritsmíðinni.
Lödukaup rússneskra togarasjómanna eru löngu orðin landsfræg. Hér hafa
þeir hengt á skipshliðina auglýsingar þar sem stendur „Viljum kaupa Löd-
ur“ og á ensku „We want to buy your Lada Samara." DV-myndir Sveinn
Gagnrýnandi New York Book Review:
Jákvæð heilsíðu-
grein um bók Ólafs
„Absolution er verðug viðbót við-
styrka alþjóðlega hefð sem kaha má
Sögur hins bitra bandaríska píla-
gríms - þ.e. sögur af körlum og kon-
um sem hafa flúið tif Bandaríkjanna
í þeirri von að geta byrjað líf sitt upp
á nýtt en uppgötva síðan að syndir
og draugar fortíðarinnar gegnsýra
thveruna sem fyrr,“ segir Brad Leit-
hauser, gagnrýnandi New York Book
Review, hins virta bandaríska bók-
menntatímarits, í langri grein sem
birtist í blaðinu fyrir síðustu helgi.
Þar fjallar hann um bók Ólafs Jó-
hanns Ólafsson, Fyrirgefningu synd-
anna eða Absolution eins og hún
heitir á ensku.
í greininni, sem fyhir samtals rúma
blaðsíðu af dagblaðsstærð, er farið
lofsamlegum orðum um bók Ólafs
Jóhanns, söguþráðurinn rakinn og
ýmsar vangaveltur um samband að-
alpersónanna og siðferðhegar spurn-
ingar sem fram koma.
Leithauser spyr hvort heimurinn
þurfi virkhega aðra bók um haturs-
fuhan mann. Hann segist svara ját-
andi svo lengi sem sömu hæfileikar
ráöa ferðinni og í þessari sögu.
„Söguþráðurinn er hsthega saman
settur en um leið kröftugur. Les-
andinn sogast með og minningabrot
úr fortíðinni eru fimlega ofm inn í
atburðarás nútímans."
Leithauser setur helst út á per-
sónusköpun Olafs þar sem aðalper-
sónan, Pétur Pétursson, er annars
vegar. Persóna Péturs sé of gegnsæ
eða fyrirsjáanleg. Styrkleiki sögunn-
ar liggi miklu fremur í söguþræðin-
um en persónusköpuninni.
Leithauser er kunnugur verkum
Hahdórs Laxness. Honum fmnst
verk Ólafs Jóhanns langa vegu frá
verkum Hahdórs en þar sé persónu-
sköpunin geysilega sterk og samofin
umhverfi persónanna á einstakan
hátt.
Aðalsöguhetjan leitar samúðar í
sögulok. Leithauser segir að „það
beri hstrænum eiginleikum Ólcifs
Jóhanns vitni að lesandinn er reiðu-
búinn aö veita þessa samúð.“
Borðapantanir
í síma 679967 ^
SPARISIOÐUR
REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS
-fyrir þig og þína
AUK / SlA X94-97