Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1994, Qupperneq 6
6
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994
Vidskipti
Ufsi á fiskm.
•<8 Fi Fð Mé Þr Mi Fi
Ávöxtun húsbréfa
Bensín 98 okt.
tunna
Þýska markið
Fö Má Þr Mi Fi
Kauph. í Frankfurt
Vaxtalækkun
áhúsbréfum
Meöalverö fyrir ufsa á fisk-
mörkuðum hefur rokkaö til og frá
að undanfómu, eða frá 34 í 45
krónur kílóiö. Framboðið fer
stöðugt minnkandi.
Ávöxtun nýjustu flokka hús-
bréfa náði niður fyrir 5% múrinn
í gær þegar hún fór í 4,98. Á einni
viku hafa húsbréfavextir lækkað
um 0,10 prósentustig eða 2%.
98 oktana bensín í Rotterdam
lækkaði lítillega á miðvikudag
eftir stöðuga hækkun dagana á
undan. Meðalverðið var 170,50
dollara tonniö sl. miðvikudag.
Gengi marksins gagnvart krón-
unni er sem fyrr stöðugt. Sölu-
gengið var 42,61 króna í gær.
Hlutabréfavísitalan DAX-30 í
Frankfurt var í 2250 stigum um
miðjan dag í gær, allnokkru
hærri en fyrir viku.
Forstöðumaöur VÍB um skýrslu Ríkisendurskoðunar:
Aðfinnslur einkum
túlkunaratriði
Sjávarútvegsráðherra fékk í gær
skriflegar greinargerðir um skýrslu
Ríkisendurskoðunar frá Verðbréfa-
markaöi íslandsbanka, VÍB, og sölu-
hópi á hlut ríkisins í SR-mjöli. Ráð-
herra hyggst ekki birta þessar grein-
argerðir fyrr en þær hafa verið
kynntar í fiárlaganefnd Alþingis. í
samtali við DV sagðist Sigurður B.
Stefánsson, forstöðumaður VÍB, hafa
ýmislegt við skýrslu Ríkisendur-
skoðunar að athuga en hann sendi
ráðherra sex blaðsíðna greinargerð.
„Ríkisendurskoðun tekur undir
þau atriði sem okkar ráðgjöf var
byggð á. Það er að Haraldur Haralds-
son lagði ekki fram upplýsingar sem
sýndu fram á að hann haíði fiárhags-
legt bolmagn til þess að ganga til
kaupa á þessum hlutabréfum, jafnvel
þótt hann fengi til þess framlengdan
frest. Ríkisendurskoðun tekur fram
í skýrslunni að endanlegt söluverð
hlutabréfanna hafi verið iúnan
þeirra marka sem talið var eðlilegt í
verðmati VÍB og engin athugasemd
er gerð við aðferðafræðina þar,“
sagði Sigurður.
„Það sem Ríkisendurskoðun finn-
ur að okkar hlut í málinu eru aðal-
lega túlkunaratriði. Ég get haldið því
fram eftir á að tímaáætlun hefði átt
aö vera öðruvísi en við gátum engan
veginn orðið við ósk Akureyrarbæj-
ar um lengri tilboðsfrest. Það er
óréttlátur dómur að ráðgjöf okkar
hafi ekki verið vönduð. Hún var eins
vönduð og kostur var á,“ sagði Sig-
urður.
Hann gagnrýnir Ríkisendurskoðun
fyrir að „víkja ekki einu orði“ að
sölunni sjálfri og hvernig kaupendur
hafa staðið við allar sínar skuldbind-
ingar, jafnvel þótt fiárlaganefnd Al-
þingis hafi beðið um slíkar upplýs-
ingar.
Islandsbankabréfin ruku út í gær:
18 prósenta hækkun
á fimm klukkutímum
um 11 milljóna króna viðskipti
Fjárfestar tóku heldur betur við
sér í gær og keyptu hlutabréf í ís-
landsbanka fyrir tæpar 11 milljónir
króna. Þegar viðskipti hófust klukk-
an niu í gærmorgun var gengi bréf-
anna 0,81 en fimm klukkutímum síð-
ar var gengið komið í 0,96. Það reynd-
ust síðustu viðskipti dagsins og alls
urðu þau 19 samkvæmt upplýsingum
frá Landsbréfum hf. Á aðeins fimm
tímum hækkuðu því íslandsbanka-
bréfin í verði um 18,5%.
Þetta verða að teljast mikil við-
skipti því þar til í gær var búið að
höndla með hlutabréf íslandsbanka
fyrir 21 milljón króna frá áramótum,
þar af fyrir um 15 milljónir í þessum
mánuði. Alls nema því viðskipti með
hlutabréfin um 32 milljónum króna
fyrstu fióra mánuði ársins. Aðeins í
Gengl
1
0,95
0,9
0,85
0,8
0,75
0,7
Kl.
Gengi hlutabréfa
Islandsbanka
1 "fim mttr 4-2)
„oka íerm
1! í mil yó« a
ki ; vi Sskipti
9 10
9.30
12.00 16
11 1445
---—....>
þessari viku hljóða viðskiptin upp á
15 milljónir.
Þau 19 viðskipti sem fóru fram í
gær með hlutabréf íslandsbanka
voru öll frá verðbréfafyrirtækjun-
um. í hópi seljenda var Verðbréfa-
markaður íslandsbanka. Skýringin á
líflegum viðskiptum er einkum talin
sú mikla umfiöllun sem varð um
aðalfund bankans sl. mánudag.
Fregnir um hagnað það sem af er
árinu eru einnig taldar hafa ýtt við
fiárfestum.
Fjármálaspekingar spá því að
hlutabréf Islandsbanka hafi náð
botninum og muni hækka í verði á
næstu vikum og mánuðum.
Hlutabréfaviðskipti voru almennt
lífleg í gær. Meðal annars fór gengi
Flugleiðabréfanna úr 1,06 í 1,12.
Dollarinn á niðurleið
Gengi dollars gagnvart íslensku
krónunni hefur verið að lækka und-
anfama daga. Sölugengið var 71,39
krónur í gærmorgun en var 72,59
krónur fyrir tveimur vikum. Lækk-
unin nemur 1,6% á þessum tíma.
Sterlingspundið hefur haldist stöð-
ugt í verði og sömuleiðis gjaldmiðlar
eins og þýska markið og jeniö.
Frá því fyrir viku er gengið örlitlu
hærra á dönsku krónunni, sænsku
krónunni, franska frankanum,
spænska pesetanum og ítölsku lír-
unni. Hins vegar hefur svissneski
frankinn lækkað lítillega.
Um gang mála á erlendum gjald-
eyrismarkaði er það helst aö frétta
að dollarinn hefur lækkað töluvert
gagnvart þýska markinu og sömu-
leiðis japanska jeninu. Hins vegar
hefur gengi marksins og jensins
gagnvart helstu gjaldmiðlum verið
að hækka.
fyrirhugaður
ásundmaga
Fyrirhugað er að flytja út fros-
inn eða ófrosinn sundmaga til
Hong Kong eða Kína og er um
nýjung að ræða þar sem slíkm'
útflutningur hefur litið sem ekk-
ert verið stundaður af hálfu ís-
lendinga. Haraldur Hansen hjá
Prima Marketing hefur unnið að
þessum útflutningi og er hann
þegar kominn í samband við aðila
í Hong Kong sem vilja kaupa
óverkaðan frosinn sundmaga.
Búist er við að stofnkostnaður
viö útflutninginn verði 11 núllj-
ónir króna og hefur borgarráð
Reykjavíkur samþykkt að veita
1,2 milljónir króna sem víkjandi
lán i verkefnið á móti jafnháu
framlagi frá Aflvaka Reykjavikm'
hf. Gert er ráð íyrir að útflutning-
urinn hefiist innan tveggja mán-
aða frá þvi bankaábyrgð kemur.
Áætluð útfiutningsverðmæti eru
50 milljónir króna á mánuði.
Búist er við að verkefnið skapi
strax tíu störfi
SparisjóðurKefla-
víkurhagnast
Ægir Már Karason, DV, Suðumesjum;
Hagnaður varð af rekstrí Spari-
sjóðs Keflavíkur á síðasta ári um
rúmar 18 milljónir króna. Að
meðtöldum hlutdeildarreikningi
nam hagnaðurinn tæpuin 26
milljónum. Hagnaður eftir skatta
nam 15,6 milljónum króna. Heild-
arinnlán sparisjóðsms og veð-
deildar í árslok 1993 námu 5,3
milljörðum og höiðu aukist frá
1992 um tæp 3,37%.
Heildarútlán sparisjóðsins og
veðdeildarinnar i árslok námu 4,9
milljörðum sem er 7,1% meira en
frá fyrra ári. Yfirdráttarlán juk-
ust um 31,7% milli ára. Heildar-
tekjur námu 914 milljónum en
heildargjöld um 896 milljónum.
Hlutdeild Sparisjóðs Keflavikur í
innlánum allra sparisjóða í land-
inu hélst um 15% á síðasta ári.
Markaðshlutdeild sparisjóðsins í
innlánum á meðal innlánsstofn-
ana á Suðurnesjum var 53% á
síðasta ári.
hjáSparisjáði
Norðfjarðar
Um 11,5 milljóna króna hagnað-
ur varð af rekstri Sparisjóðs
Norðfiaröar í Neskaupstað á sið-
asta ári. Þetta er öllu betri af-
koma en árið 1992 þegar hagnað-
urinn var 4,6 milljónir króna. Á
síðasta ári jukust innlán í sjóðn-
um um 5,8% úr382 Í405 milljónir.
Útlán jukust um 8% milli ára,
úr 449 í 485 milljónir króna. Þá
jukust afskriftir útlána um þriðj-
ung milli ára. Árið 1992 afskrifaði
sjóðurinn um 29 milljóna króna
útlán en á síðasta ári voru af-
skriftimar tæpar 38 milljónir.
Landbúnaðar-
sýningíSkaga-
firðiíjúní
Mikið verður um að vera í
Skagafirði helgina 10.-12. júni nk.
Ráðstefna og sýning fer fram á
Sauðárkróki um hátækni í land-
búnaði með yfirskriftinni „Land-
búnaður 2000. Þekking-tækni-
framfarir". Um leið fer fratn sýn-
ing á Hólum í Hjaltadal á því sem
í boöi er í Bændaskólanum.
Meðai þeirra sem standa að
þessum viðburðum eru Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins,
Háskóli islands, Hólaskóli og
Kaupfélag Skagfirðinga. Mark-
; miðiö er aö hefia islenskan land-
búnað til vegs og virðingar og
kynna þær tækniframfarir sem
orðið hafa í greininni.