Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1994, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUk 29. APRÍL 1994
7
dv Sandkom
Áfram, áfram
Eittafslagorð- .
om Sjálfstæðis-
flokksinsfyrir
kosDingamarí
vorer,.Áfram
Reyltjavik0.
L'm svipað leyti
ogþaðvar : / : ■
kynntvann ;:;
iiolniiölakóng-
urinnBerlus-
coni stórsigur í
kosningunuma
, Ítalíuenflokk-
ur hansheítir „Áfram Italía". Það
virðistþví ýkt um þessar mundir að
vera „Áíram" þetta og hitt. En þetta
er kannski ekki svo frumlegt þvi affir
vita hvað æstar boltabullur hafa
öskrað á kappleikjum um óraunatíð.
Að auki telja hafníirskir kratar að
reykvískir sjálfstæðismenn haii stol-
iö slagorði þeirra fyrir kosningarnar
1990, sem var auðvitaö „ÁframHafn-
arfjörður“. Einnig fmnst haíhfirsk-
um krötum reykvískir sjáifstæðis-
menn hafa stoliðfrá sér öllum mjúku
málunum'
Áhrif ofdiykkju
Fráþvímann-
skepnan upp-
gótvaðiáfengið
hefurneysta
ölsinsþóitum-
deild, sér í lagi
eftirviðkom-
ancfiskepna
gerðistupplýst.
Víkurblaðiö
\itnarifor-
vitnilcgagrcini
blaðiSafna- ;
húss Húsavík-
ur um bindindismál sem skrifuð var
áriö 1844. Um ofdrykkju segir i grein-
inni á aðeins nýlegii íslensku: „Hún
skaöar likamann einnig að svipaðri
tiltölu oghún ollir máttleysi, riðu,
uppsölu, sinadráttum, átumeinum,
blóðspíu og mörgum öörum sjúk-
dómum. Þó er þaö ótalið sem ógurleg-
ast er af völdum hennar en það er
æði eða vitfirring og sjálfsmorð. Þetta
ætti hvur sá að íhuga af alvöru sem
elskar að öðru leyti sæmd og velferð
sína og annarra...“ Hvemig væri aö
taka mark á þessum 150 ára gömlu
sannindum ogbarahætta þessu suffi?
Her manns
Steingrímur
Hermannsson
sesteftirhelg-
ina í stól seöia- ■
bankastjóra.
Hannerbúínn
aðkveðjaþing-
flokkinnsitm :
meöfonnleg-; ;:
um hætti, Hali-
tiórÁsgriins-
sonfærfor-
mannsstólinn
hansogJóhann
Einvarðsson fær aftur stólinn sinn í
Reykjaneskjördæmi. En Steingrímur
mun áreiðanlega láta að sér kveða í
Seðlabankanum og verða „andht“
bankans út á við. Hagyrðingar hafa
auð vitað myndað sér skoðun á gangi
mála og einn sendi þessa:
í bankann fer Stemgrímur Hermanns,
hann vinnur þar ínnan um her manns.
Hannbtýantanagar,
íputtanasagar,
svo talaðu varlega tii hans.
Bókarbruninn
í viðtaliviönýtt
tímaritsem
nefnist Extra-
hlaðiö rifjar
Friðrik Þór
Friðriksson
kvikmynda-
gerðarmaður
uppskemmti-
legeftirmiil j
myndarhans,
Brennu-Njáls-
stigu,eneinsog
allirmuna
sýndi myndin bara bók scm fúðraöi
upp. Þegar myndin var sýnd í Sjón-
varpinu rak ónefhdur heiroilisfaðir
syni sína tvo til að horfa á Brennu-
Njálssögu og fór síðan sjálfur aö sofa.
Svo komu drengimir hrópandi frá
sjónvarpinu: „Pabbi, pabbi, bókin
hrennur." Umþetta segir Friðrik það
agalegt að fóik reki börnin sín til að
horfa á Brennunjálssögu ogfari svo
haraaðsofaámeðan!
Fréttir
Sérstök
messa fyrir
lögregluna
„Á sunnudaginn ætlum við að vera
meö sérstaka lögreglumessu. Til-
gangurinn er að vekja athygli á and-
legri sálgæslu lögreglumanna vegna
álags í starfi og fleira í þeim dúr.
Markmiðið er að reyna að fá þjón-
ustu lögreglupresta um alit land en
nú eru einungis starfandi lögreglu-
prestar í Reykjavík og Hafnarfirði.
Þeir eru okkur innan handar aö til-
kynna aðstandendum um dauðsfóll
og einnig að hjálpa okkur ef við erum
undir miklu álagi,“ segir Jónas S.
Magnússon, formaður Landssam-
bands lögreglumanna.
Lögreglumessan verður í Bústaða-
kirkju og hefst klukkan 13.30 og
munu þrír prestar, sem allir hafa
starfað með lögreglunni, þjóna í
messunni. Þaö eru þeir Pálmi Matt-
híasson, Sigurður Kr. Sigurðsson í
Grundarfirði og Kjartan Orn Sigur-
björnsson, sjúkrahúsprestur á
Landakoti. Kjartan Örn hefur ein-
mitt verið lögregluprestur hjá lög-
reglunni í Reykjavík og Hafnarfirði
undanfarið. Meöal annars mun lög-
reglukórinn syngja við messuna og
lögreglumenn taka þátt í henni á
annan hátt. Jónas á einnig von á að
dómsmálaráðherra og biskup ís-
lands sæki umrædda messu. Hún
verður opin öllum.
Hafnar^öröur:
Vmnumiðlun
skólafólks
Vinnumiðlun skólafólks hefur ver-
ið opnuð í Hafnarfirði og verður
stefnt að því að taka sem allra mest
af ungu fólki upp að 20 ára aldri í
vinnu hjá bænum í sumar auk þess
sem haldið verður áfram að veita
sjálfstætt starfandi unglingum að-
stöðu.
„Við höfum opnað vinnumiölunina
og ætlum að sjá til hversu margir
krakkar leita til okkar. Ég held að
krakkar úr grunnskólunum komi
víöa að luktum dyrum þegar þau
sækjast eftir vinnu hjá fyrirtækjum.
Við vorum með tilraun í fyrra og
veittum krökkum vinnuaðstöðu fyr-
ir bílabón og fleira. Það tókst rosa-
lega vel og við höldum því eflaust
áfram,“ segir Árni Guðmundsson,
æskulýðs- og tómstundafulltrúi í
Hafnarfiröi.
Qm 650 skólakrakkar voru i vinnu
hjá Hafnarfjarðarbæ í fyrra.
Vinnumiðlun skólafólks í Hafnar-
firði er opin alla virka daga frá 10 til
12 og 13 til 16. Skrifstofan er til húsa
að Strandgötu 1 í Hafnarfirði.
Glasafrjóvgun:
Meinatæknar
sakaðir um
skilningsleysi
Þriggja vikna verkfall meinatækna
hefur komið illa við starfsemi glasa-
frjóvgunardeildar Landspítalans.
Þórður Óskarsson, sérfræðingur á
kvennadeild, segir að meinatæknar
hafi ekki leyft neinar hormónamæl-
ingar frá því verkfallið hófst og því
hafi starfsmenn glasafrjóvgunar-
deildar orðið að grípa til annarra
ráða til að halda starfseminni gang-
andi.
„Starfsemin hefur raskast talsvert
og það er mjög bagalegt. Þegar veriö
er aö örva eggjastokkana þarf aö
fylgjast með hormónasvöruninni,
auk þess sem þungunarpróf hefur
verið gert á blóði. Við höfum haldiö
áfram með meöferðir sem við vorum
byrjaðir á áöur en verkfallið var boð-
að og notum þá sónar og byggjum á
reynslunni. Ökkur finnst við hafa
mætt skilningsleysi hjá meinatækn-
um en kannski fer verkfallið að leys-
ast,“ segir Þórður Óskarsson.
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00
1983- 2.fl. 1984- 3.fl. 01.05.94-01.11.94 12.05.94- 12.11.94 kr. 62.552,20 kr. 74.127,40
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, apríl 1994.
SEÐLABANKIÍSLANDS
Umsóknir um sumardvöl í
orlofshúsum og tjaldvögnum V.R.
Auglýst er eftir umsóknum um dvöl í orlofshúsum og tjaldvögnum V.R. sumariö
1994.Umsóknir á þar til gerðum eyöublöðum sem fást á skrifstofu V.R. þurfa aö
berast skrifstofu V.R., Húsi verslunarinnar, 8. hæð, í síðasta lagi föstudaginn 29.
apríl 1994.
Orlofshúsin eru á eftirtöldum stöðum:
Einarsstöðum á Völlum S-Múl.
Flúðum Hrunamannahreppi
Akureyri
Húsafelli í Borgarfirði
Ölfusborgum við Hveragerði
Auk húsanna eru 10 tjaldvagnar leigðir til félagsmanna.
Húsin og vagnarnir eru laus til umsóknar tímabilið 27. maí til 16. september.
Úthlutunarreglur:
Við þessa úthlutun byggist rétturtil úthlutunar áfélagsaldri í V.R. aðfrádregnum
fyrri úthlutunum orlofshúsa. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur fást á
skrifstofu V.R. og er reglunum dreift með umsóknareyðublaðinu.
Leigugjald: kr. 9.000,00 - 10.500,00 á viku í orlofshúsi
kr. 7.000,00 - í tjaldvagni í 6 daga
kr. 14.000,00 - í tjaldvagni í 13 daga
Sérstök athygli er vakin á því að umsóknir þurfa að berast skrifstofu V.R. í
síðasta lagi 29. apríl n.k.
Upplýsingar um hverjir hafa fengið úthlutað orlofshúsi/tjaldvagni munu liggja
fyrir 9. maí n.k.
Umsóknareyðublöð ásamt reglum um úthlutun eru afhent á skrifstofu V.R., Húsi
verslunarinnar 8. hæð. Ekki verður tekið á móti umsóknum símleiðis, en senda
má útfyllt umsóknareyðublöð i myndrita nr: 888356.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
v______________________________________________________________________)
lllugastöðum í Fríjóskadal
Miðhúsaskógi í Biskupstungum
Stykkishólmi
Kirkjubæjarklaustri