Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1994, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994
Útlönd
DV
Ekkióbreyit
ástandþóttESB
verði hafnað
Gro Harlem
Brundtland,
forsætisráð-
herra Noregs,
varaði þá landa
sína sem eru
tortryggnir í
garð Evrópu-
sambandsins
við því að trúa aö allt verði ái'ram
eins, bara við þaö eitt að hafna
aöild að sambandinu.
„Við stöndum á krossgötum
hvað sem verður. Að segja nei er
ekki aö segja já við því að allt
verði sem fyrr. Ný staða kemur
upp ef allir aörir, einnig nágrann-
ar okkar á Noröurlöndum, velja
samvinnu á sama tíma og við
stöndum utan gátta. Það mun
breyta sambandi okkar við ESB
og nágrannalönd okkar á Norð-
urlöndum,“ sagði Gro á norska
þinginu. Þá vísaði hún á bug
áhyggjum um að ESB-aöild
mundi rústa norska velferöar-
kerfinu. NTB
Kosningamar í Suður-Afríku framlengdar um einn dag:
Hvíti maðurinn lætur
ekki hrekja sig burt
- segir Eugene Terre Blanche, leiðtogi suður-afrískra nýnasista
Atkvæðagreiðsla í fyrstu kosning-
um Suður-Afríku með þátttöku allra
kynþátta hófst ekki af alvöru fyrr en
í morgun í sex fyrrum heimalöndum
blökkumanna þar sem skipulags-
leysi hafði komið í veg fyrir að millj-
ónir manna gætu neytt kosningarétt-
ar síns í fyrsta sinn á ævinni.
Annars staðar í landinu lokuðu síð-
ustu kjörstaðimir dyrum sínum á
miðnætti eftir að landsmenn höfðu
fengið þrjá daga til aö ganga að kjör-
boröinu og velja nýja þjóðareiningar-
stjórn og binda þar með enda á rúm-
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp að Þjóðbraut 13, Akranesi, laugardag-
inn 7. maí 1994, kl. 14.00.
BE-759 ED-095 FZ-640 IC-375 IT-887 KD-882
Þá verður ennfremur þar boðið upp eftirtalið lausafé:
Tricano tjaldvagn ásamt fortjaldi, árg. 1993, fnr. SJ-998 og Steinbock lyftari.
Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESI
Uppboð á lausafjármunum Eftirtaldar bifreiðar og dráttarvélar verða boðnar upp við lögreglustöðina á Hvolsvelli föstudaginn 6. maí nk. kl. 15.30. LV-352 0-962 P-768 X-3369 Ld-2041 X-1697 R-68192 N-139 ZK-535 L-2197 JV-289 B-216 GÖ-347 G-17872 Einnig: tveggja vetra hestur með hnakk og beisli. Theodolit hornamæl- ingatæki og Wild hallamælir. Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg. Sýslumaðurinn í Rangárvallasýslu
UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Strandgötu 52, Eskifirði, mánudaginn 2. maí 1994 kl. 11.00, á eftirgreindum eignum: Hafnargata 35, Fáskrúðsfirði, þingl. eign Pólarsfldar hf., gerðarbeiðandi Logi Egilsson hdl.
Hamarsgata 24, Fáskrúðsfirði, þingl. eign Aðalheiðar Valdimarsdóttur, gerðarbeiðandi Atli Gíslason hrl. Hammersminni 6, Djúpavogi, þingl. eign Margrétar Sigurðardóttur, gerð- arbeiðandi Jóhannes A. Sævarsson hdl.
Bakkastígur 17, Eskifirði, þingl. eign Bentínu Gylfadóttur og Péturs Ge- orgssonar, gerðarbeiðandi Áslaug Björgvinsdóttir ftr.
Mánagata 5, Reyðarfirði, þingl. eign Sævars Kristinssonar og Gyðu Páls- dóttur, gerðarbeiðendur Ath Helga- son lögfr. og Ólafúr Garðarsson hrl. Markarland 6A, Djúpavogi, þmgl. eign Baldurs Gunnarssonar, gerðar- beiðandi Veðdeild Landsbanka ís- lands.
Búðareyri 27, 27A, 27B, Reyðarfirði, þingl. eign Verktaka hf., gerðarbeið- andi Búnaðarbanki Islands. Búðavegur 12b, Fáskrúðsfirði, þingl. eign Friðmars Péturssonar, gerðar- beiðandi sýslumaðuiinn á Eskifirði.
Búðavegur 38, Fáskrúðsfirði, þingl. eign Sigþórs Rúnarssonar, gerðar- beiðendur sýslumaðurinn á Eskifirði, Húsnæðisstofriun ríkisins og Guð- mundur Pétursson hrl. Stekkjarbrekka 9, Reyðarfirði, þingl. eign Kolls hf., gerðarbeiðandi sýslu- maðurinn á Eskifirði.
Strandgata 14A, Eskifirði, þingl. eign Vaðlavíkur hf., gerðarbeiðendur Eski- fj arðarkaupstaður, Fiskveiðasjóður og Byggðastofiiun.
Búðavegur 49, Fáskrúðsfirði, þingl. eign Pólarsfldar hf., gerðarbeiðendur sýslumaðurinn á Eskifirði, Iðnlána- sjóður og Sigríður Thorlacius hdl. Hafnargata 21, Fáskrúðsfirði, þingl. eign Akks hf., gerðarbeiðendur Garð- ar Briem hdl. og Þorgerður K. Gunn- arsdóttir lögfr.
Svínaskálahlíð 19, Eskifirði, þingl. eign Hjalta Sigurðssonar, gerðarbeið- endur sýslumaðurinn á Eskifirði, Benedikt Sigurðsson hdl., Veðdepd Landsbanka íslands og Kristján Ól- afsson hdl.
Hafhargata 32, Fáskrúðsfirði, þingl. eign Pólarsfldar hf., gerðarbeiðendur sýslumaðurinn á Eskifirði og Sigríður Thorlacius hdl. Sæberg 13, Breiðdalsvík, þingl. eign Guðmundar Björgólfssonar, gerðar- beiðendur Hróbjartur Jónatansson hrl., Elvar Ö. Unnsteinsson hdl. og Ingólfúr Friðjónsson hdl. Tunguholt, F áskrúðsfj arðarhreppi, þingl. eign Ingibjargar Jóhannsdótt- ur, gerðarbeiðandi Veðdeild Lands- banka íslands.
Hafiiargata 33, Fáskrúðsfirði, þingl. eign Pólarsfldar hf., gerðarbeiðendur Logi Egilsson hdl., Magnús Guðlaugs- son hdl., Kristbjörg Stephensen lögfr., sýslumaðurinn á Eskifirði og Sigríður Thorlacius hdl.
SÝSLUMAÐURINN Á ESKDIRÐI
Eugene Terre Blanche, leiðtogi nýnasista
og spáði byltingu og striði.
Suður-Afríku, var vígreifur á fundi með stuðningsmönnum sinum i gær
Simamynd Reuter
lega þriggja alda valdaeinokun hvíta
minnihlutans. Almennt er álitið að
Afríska þjóðarráðið fari meö sigur
af hólmi og að Nelson Mandela verði
fyrsti svarti forseti landsins. Nýr for-
seti tekur við embætti 10. maí.
F.W. de Klerk, síðasti hvíti forseti
Suður-Afríku, ákvað að framlengja
kjörfund um einn dag í KwaZúlú,
heimalandi zúlúmanna, Venda,
Lebowa og Gazankulu í norðurhluta
Transvaal og í Transkei og Ciskei í
austurhluta Höfðahéraðs.
„Fólk okkar hefur ekki getað greitt
atkvæði í sumum landshlutum,"
sagði de Klerk.
Framlenging kjörfundar þýðir að
talning hefst ekki fyrr en í fyrramál-
iö og er búist við fyrstu tölum um
miöjan dag.
Þyrlur og flutningavélar suöur-
afríska flughersins hófu að flytja
kjörseðla og önnur kjörgögn til af-
skekktra staða fyrir dögun í morgun.
Þá stóð einnig til að senda fleiri al-
þjóðlega eftirlitsmenn á vettvang.
De Klerk sagði nauðsynlegt að eftir
kosningarnar tæki við stjórn sem
væri í samræmi við vilja yfirgnæf-
andi meirihluta landsmanna.
„Við skulum sameinast sem þjóð
þrátt fyrir skoðanaágreining okkar.
Við skulum starfa fyrir þjóö okkar,
æskuna og komandi kynslóðir,“
sagði de Klerk á fundi meö frétta-
mönnum þegar hann tilkynnti um
framlengingu kjörfundarins.
En ekki eru allir þó á því að sætta
sig við orðinn hlut. Eugene Terre
Blanche, foringi nýnasistahópsins
Andspymuhreyfingar Búa, spáði því
í gær að hvítir andstæöingar meiri-
hlutastjórnar blökkumanna mundu
gera fleiri sprengjutilræði þar til
hvítir menn fengju eigið heimaland.
„Það verða fleiri sprengingar. Ég
fyrirskipaði félagsmönnum mínum
ekki að koma fyrir sprengjum en ég
mun styðja við bakið á þeim í gegn-
um dómskerfið. Við stefnum í bylt-
ingu og stríð. í þeirri byltingu lætur
hvíti maðurinn aldrei hrekja sig
burt,“ sagði Terre Blanche.
Reuter
Endurminningar
Quayles vekja reiði
Endurminningar sem Dan Quayle,
fyrrum varaforseti Bandríkjanna,
hefur skrifað hafa valdið miklum
deilum og er ástæðan sú aö repúblik-
anar eru langt frá því að vera ánægö-
ir með margt sem stendur í bókinni.
í bókinni, sem sögð er skrifuð til
að bæta ímynd Quayles og auka
möguleikana á því að hann geti gefið
kost á sér til forsetaembættisins árið
1996, ræðst Quayle á helstu toppana
innan Repúblikanaflokksins og dreg-
ur ekkert undan.
Það sem helst hefur vakið reiði
repúblikana eru árásir Quayles á
James Baker, fyrrum utanríkisráð-
herra, en hann hefur verið mikils
metinn innan flokksins. Quayle segir
öryggismálaráðgjafa Bush, Bent
Scowcroft, hafa veriö aðalleikmann-
inn í utanríkismálum en ekki Baker
eins og margir haldi.
Þá segir Quayle einnig að barátta
George Bush fyrir endurkjöri áriö
1992 hafi verði sú allra lélegasta á
þessari öld hvað varðar skipulagn-
ingu og þess vegna hafi forsetinn
ekki náð endurkjöri.
Quayle gerir mikið að því að reyna
Dan Quayle reynir að bæta imynd
sína meö nýju bókinni sinni.
Simamynd Reuter
að bæta ímynd sína í bókinni og seg-
ir m.a. að fjölmiðlar hafi gert í því
að láta hann líta asnalega út í fjöl-
miðlum, m.a. með því að taka ræður
sínar úr samhengi og snúa út úr öllu
semhannhafisagt. Reuter
Alþjóðlegur
eyðnidagur
helgaðurfjöl-
skyldunni
Alþjóðlegi eyðnidagurinn þann
1. desember næstkomandi verður
helgaður málefnum fjölskyld-
unnar, hvaða áhrif sjúkdómur-
inn hefur á hana og hvernig hún
berst gegn honum.
Alþjóða heilbrigðisstofnunin
(WHO) áætlar að fimmtán millj-
ónir manna hafi smitast af HIV-
veirunni frá því eyðni var fyrst
greind snemma á níunda ára-
tugnum. Fimm þúsund einstakl-
ingar smitast á hverjum degi.
Að sögn WHO eru það börnin
sem í æ ríkari mæli verða fyrir
barðinu á sjúkdómnum. i fyrra
fæddu eyðnismitaðar mæður um
700 þúsund böm í Afríku einni.
Þá hefur sjúkdómurinn nánast
gert aö engu þann ávinning sem
hefur náðst að undanfomu í bar-
áttunni við ungbamadauða í
mörgum þróunarlöndum.
Alþjóðlegi eyðnidagurinn var
fyrst haldinn þann 1. desember
1988 og er honum ætlað að vekja
almenning til umhugsunar um
Sjúkdóminn. Reuter