Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1994, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994
Iþróttir
Leikiðumbrons
og Evrópusæti
Fyrsti leikur Selfyssinga og
Víkinga um bronsið í 1. deild
karla i handknattleik fer fram á
Selfossí á þriðjudagskvöld. Ann-
ar leikurinn fer fram í Víkinni
flmmtudaginn 5. maí og ef þríðja
leikinn þarf fer hann fram á Sel-
fossi laugardaginn 7. maí. Sigurl-
iðið fær sæti í EHF-keppninni.
Goifmótí
Grindavík
Opna Fiskimjöls og Lýsismót
Golfklúbbs Grindavíkur verður
haldið á laugardaginn að Húsa-
tóftavelli og hefst klukkan 8,
Leiknar verða 18 holur með og
án forgjafar. Skráning í mótið fer
fram í dag klukkan 17-21 í golf-
skálanum i síma 92-68720.
Lokahófhjá FH
Handknattleiksdeild FH ætlar
að vera með lokahóf sitt í veit-
ingahúsinu Hraunholti í kvöld og
hefst það klukkan 20. Þar verða
meistararaflokkar karla og
kvenna og 2. flokkur karla og
kvenna ásamt öllu starfsliði FH
í vetur. Miðaverð er krónur 500.
Ársþing sund-
þjálfaraumheigina
íslenska Sundþjálfarasam-
bandið heldur ársþing sitt um
helgína í íþróttamiðstööinni í
Laugardal. Búast má við góðu
þingi og mjög fróðlegum nám-
skeiðum sem haldin verða i
tengslum við fundinn. Erlendu
sundþjálfararnir munu halda
námskeið um ýmis málefni og þá
má búast viö fróölegum umræö-
um um barna- og unglingaþjálfun
á íslandi í framtíðinni og um
landsliðsuppbyggingu til ársins
2000. Þingið hefst klukkan 12 á
morgun og verður framhaldið
klukkan 10 á sunnudaginn.
Vöfflurmeðrjóma
og nýtf íþróttahús
Knattspyrnufélagið Fram á 86
ára afmæli á sunnudaginn, 1.
maí, Afþvl tilefni verður opið hús
í félagsheimili félagsins við Safa-
mýri frá kl. 14.00 á sunnudag.
Gestum er boöið upp á að skoða
nýtt íþróttahús félagsins frá kl.
14.00 til 16.00 og Framkonur bjóða
gestunum upp á vöfflur með
rjóma.
Spennandií
B-deildinni
Ármann sigraði Árvakur, 2-0, í
B-deild Reykjavíkurmótsins i
knattspymu á gervigrasinu í
Laugardal í gærkvöldi. Fjögur lið
berjast um tvö efstu sætin þegar
fjórum leikjum er ólokið en tvö
efstu liðin mætast í úrslitaleik
um sæti í A-deild. Staðan í B-deild
er þannig:
Leiknir...4 3 0 1 10-3 8
Fjölnír...4 2 1 1 11-4 6
Þróttur...3 2 0 1 8-2 5
Ármann....4 2 116-65
Léttir....3 1 0 2 3-8 3
Árvakur...4 0 0 4 3-18 0
Notrköpingí
úrslifaleikinn
Norrköping sigraði Luleá, 1-3,
í undanúrslitum sænsku bikar-
keppninnar 1 knattspymu í gær-
kvöldi. Það verða því Norrköping
og Helsingborg sem leika til úr-
slita um bikarinn en Helsingborg
vann Malmö FF í fyrrakvöld.
eruábls.23
Ragnar einvaldur
í stað Jóhanns Ben
Ragnar Ólafsson hefur verið ráðinn landsliðseinvaldur í golfi og tekur
hann við af Jóhanni Benediktssyni sem gengt hefur þessari virðingar-
stöðu undanfarin ár með afar góðum árangri.
Ragnar hefur mikla reynslu sem kylfmgur enda verið í fremstu röð
mörg undanfarin ár. Hann hefur lagt kylfurnar á hilluna með keppni
fyrir augum og hyggst einbeita sér að nýja starfinu. Ragnar hefur í vetur
verið aöstoöarþjálfari Einars Þorvarðarsonar hjá handknattleiksliði Sel-
fyssinga í 1. deildinni.
Skagamenn urðu í gærkvöldi síðasta
liðið til að tryggja sér sæti í 8 liöa úrslit-
um litlu bikarkeppninnai- í knattspyrnu
þegar þeir sigmöu HK, 0-1, í Kópavogi.
Mihajlo Bibercie skoraði sigurmarkið
úr vítaspyrnu, aðeins þremur núnútum
fyrir leikslok.
HK var þegar komið áfram en Skaga-
menn máttu ekki tapa leiknum með
þremur mörkum, þá hefði Selfoss kom-
ist áfram. Lokastaðan í A-riöh varö
þannig:
Akranes.............3 2 1 0 4-1
HK..................3 2 0 1 4-1
Seifoss.............3 1114-5
Grótta..............3 0 0 3 2-7
Þar með er endanlega ljóst hvaöa li
mætast í 8-Iiða úrslitum keppninnar;
Akranes - FH
HK- Grindavík
Stjaman - Breiðablik
Keflavík-ÍBV
Leikirnir fara íram á morgun, laugai
dag, og hefjast klukkan 14.
Geir og Júlíus
Evrópumeist-
arar á ntorgun?
- síöari úrslitaleikur Alzira og Linz
Geir Sveinsson og Júlíus Jónasson
geta tryggt sér sigur í EHF-keppninni
í handknattieik með liði sínu Alzira
á morgun en þá leikur liðið síðari
úrslitaleik sinn gegn austurríska lið-
inu Linz og fer leikurinn fram í Aust-
urríki. Alzira vann sigur í fyrri leikn-
um sem fram fór á Spáni um síðustu
helgi, 23-19.
„Nú er bara aö duga eða drepast.
Maður hefur sjaldan komist nærri
því að vinna Evrópumeistaratitil svo
þaö verður lagt allt í sölurnar. Við
vorum ekki að leika neitt sérstaklega
vel þegar við unnum þá í fyrri leikn-
um en samt sigruðum viö með fjög-
urra marka mun. Á móti kemur það
að austurríska liðið átti heldur ekki
sinn besta dag þannig að við reiknum
með mjög erfiöum leik. Það sem kem-
ur til með að hjálpa okkar er að örv-
henta skyttan Rúmeninn Dumitru
leikur að nýju með okkur eftir
meiðsh og hann styrkir hðiö mikið,“
sagði Geir Sveinsson við DV í gær.
Spurningin, sem brennur á mönn-
um, er sú hvað Geir ætlar að gera
eftir þetta tímabil. Kemur hann heim
og leikur á Islandi næsta vetur eða
verður hann áfram á Spáni?
„Ég hef ekki tekiö neina ákvörðun.
Ég er með samning við Alzira eitt ár
til viðbótar en eftir allt sem á undan
er gengið hjá félaginu veit ég ekki
hvort ég spila áfram með liðinu. Ég
mun hitta forráðamenn félagsins í
næstu viku og ræða málin. Það eru
nokkir möguleikar í stöðunni. Einn
er sá að þeir vilji rifta samningi, ann-
ar að þeir'vilji semja upp á mikla
launaiækkun eða sá þriðji að halda
áfram á sömu braut. Ég er með góðan
samning og breytist hann ekki myndi
ég alveg vilja halda áfram.“
Fari svo að þú komir heim munt þú
þá ganga til liðs við þina gömlu félaga
í Val?
„Það er ekkert sjálfgefið að ég fari
til Vals taki ég þá ákvörðun að koma
heim. Það er samt rosalega erfitt að
fara eitthvað annað en máhð er að í
dag tel ég mig ekki standa í neinni
skuld við Val. Maður á ekki það mik-
ið eftir í þessu og þetta hreinlega
snýst um það að þú verður bara að
hugsa um sjálfan þig. Það kemur al-
veg til greina að þjálfa en það sem
gæti orðið árekstur í því er landslið-
ið. Aðspurður hvort hann væri með
þjálfaratilboð upp á vasann sagði
Geir: „No comment".
Möguleikar íslands
eru úr sögunni
- eftir tap gegn Belgum, 2-1, í gær
ísland er úr leik í Evrópukeppni
drengjalandsliöa eftir 2-1 ósigur fyrir
Belgum í úrslitakeppninni á írlandi.
ísland á eftir aö leika við Úkraínu
en þar sem Úkraína náði jafntefli
gegn Tyrkjum í gær, 1-1, á íslenska
liðið ekki lengur möguleika á öðru
sætinu í riðlinum.
Ekkert var skorað í fyrri hálfleik
en Belgar gerðu tvö mörk með 12
mínútna milhbili í síðari hálfleikn-
um. Fjórum mínútum fyrir leikslok
náði ívar Ingimarsson að minnka
muninn í 2-1 með skalla eftir auka-
spymu frá Eiði Smára Guðjohnsen,
lykilmanni íslenska liðsins, en Belg-
arnir voru með stranga gæslu á hon-
um allan tímann.
„Menn eru vissulega svekktir yfir
að komast ekki lengra en þegar litið
er á þær átta þjóðir sem eftir standa
og að margar sterkar knattspyrnu-
þjóðir falla úr keppni ásamt okkur
er ekki hægt að segja annað en við
séum með mjög raunhæfa útkomu.
Það var synd að tapa þessum leik
gegn Belgum, íslenska hðið sótti
meira en Belgarnir léku af skynsemi
og vörðust vel,“ sagði Sveinn Sveins-
son, stjórnarmaður í KSÍ og einn far-
arstjóra íslenska liðsins, við DV í
gærkvöldi.
Staðan í A-riðli keppninnar er
þannig:
Tyrkland..........2 1 1 0 3-2 4
Úkraína...........2 1 1 0 3-2 4
Belgía............2 10 13-33
ísland............2 0 0 2 2-4 0
Sam Perkins og félagar hans í Seattle unnu öruggan sigur á Denver i fyrstu i
Úrslitakeppnin í NBA-deildinni 1 ki
Miami lagði A
- Byron Scott tryggði Indiana sigur á Orlando m
Úrslitakeppnin í bandarísku NBA-
deildinni í körfuknattleik hófst í nótt
með fjórum léikjum og urðu úrsht
þessi:
Vesturdeild:
SASpurs-UtahJazz............106-89
Seattle-Denver..............106-82
Austurdeild:
Atlanta-Miami................88-93
Orlando-Indiana..............88-89
David Robinson skoraði 25 stig fyrir
SA Spurs og tók 8 fráköst í frekar auö-
veldum sigri hðsins á Utah Jazz. Spurs
komst strax í 15-2 og eftir það var aldr-
ei spurning. Karl Malone var yfir-
burðamaður hjá Utah og skoraði 36
stig.
Seattle átti ekki í vandræöum með
að leggja Denver að velli. Þjóðverjinn
Detlef Schrempf var stigahæstur hjá
Seattle með 21 stig, Gary Payton skor-
aði 20 og Shawn Kemp 16 en hjá Den-
ver var Brian Wilhams með 15 stig.
í austurdeildinni urðu úrslitin óvænt
en báðir leikirnir töpuðust á heima-
velh. Miami vann sinn fyrsta sigur í
úrslitakeppni frá upphafi. Steve Smith
skoraði 22 stig fyrir liðiö, Bimbo Coles
17 og Glen Rice 13. „Þetta er án efa
stærsti sigur okkar á ferlinum," sagði
Bresku stjörnurnar þéna vel
Breskir íþróttamenn í fremstu röð eru ekki
á flæðiskeri staddir fjárhagslega. í gær var birt-
ur listi í bresku tímariti yfir tekjuhæstu íþrótta-
mennina í Bretlandi á síðasta ári.
Listinn fer hér á eftir og upphæðimar eru í
milljörðum íslenskra króna. Einungis er um
launagreiðslur að ræða:
1. Lennox Lewis, hnefaleikar.............1,679
2. Nigel Mansell, kappakstur..........1,198
3. Nick Faldo, golf...................1,123
4. Paul Gascoigne, knattspyma.........0,470
5. Jackie Stewart, kappakstur.........0,395
6. Nigel Benn, hnefaleikar............0,385
7. IanWoosnam.golf....................0,353
8. Gary Lineker, knattspyrna..........0,321
9. ColinMontgomerie.golf..............0,310
10. DavidPlatt.knattspyrna...........0,288
• Tímaritið birti einnig lista yfir tíu ríkustu
íþróttamennina. í fyrsta sæti er kappaksturs-
maðurinn Nigel Mansell með 7,222 milljarða
króna. Nick Faldo, kylfingur, kemur næstur
með 5,564 milljarða króna og í þriðja sæti er
kappakstursmaðurinn Jackie Stewart með
5,531 milljarð króna.