Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1994, Side 17
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994
25
§11
m
3
fc
,ö
Ellert f éll í kjöri
til stjórnar UEFA
EUert B. Schram, sem hefur átt sæti í stjórn Knattspymusambands
Evrópu, UEFA, um árabil, féll í kosningu til framkvæmdastjómarinnar
á þingi sambandsins í Vínarborg í gær.
Ellert hefur starfað mikið hjá UEFA og leitt hinar ýmsu nefndir sam-
bandsins en nú síðast var hann formaður fjölmiðlanefndar og varaformaö-
ur framkvæmdanefndar Evrópumóta félagsliða.
Það var íri sem tók sæti Ellerts í stjórninni og var það ein þriggja breyt-
inga á henni. Svíinn Lennart Johansson var endurkjörinn forseti UEFA
til fjögurra ára.
Ipswich skoðar Eið
Útsendarar frá enska úrvalsdeildarhðinu Ipswich voru í gær komn-
ir í hóp þeirra sem fylgjast grannt meö Eiði Smára Guöjohnsen úr Val
í Evrópukeppni drengjalandsliða í knattspymu á írlandi. Að sögn
Sveins Sveinssonar, stjómarmanns í KSÍ, vom mennfrá fleiri enskum
félögum mættir á staðinn þegar íslenska liðið mætti því belgíska í
gær. Þess má geta að Ipswich reyndi mikið að fá Amór, foður Eiðs,
tíl sín fyrir nokkrum árum.
Eins og DV sagði frá í gær eru Sampdoria, Feyenoord, Ajax, PSV
Eindhoven, Anderlecht og tvö spænsk félög með menn á írlandi til
að fylgjast með Eiði Smára.
jmferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar.
Símamynd Reuter
□rfuknattleik:
Ltlanta
eð 3ja stiga körfu í lokin
Rice eftir leikinn. Kewin WUlis var
atkvæðamestur leikmanna Atlanta,
skoraði 17 stig og tók 16 fráköst.
Byron Scott tryggði Indiana sigur á
Orlando með 3ja stiga körfu tveimur
sekúndum fyrir leikslok. Reggie MUler
skoraði 24 stig fyrir Indiana en Shaqu-
Ule O’Neal skoraði 24 stig, tók 19 frá-
köst og blokkaði 5 skot í Uði Orlando.
„Við gerðum allt það sem þarf til að
vinna körfuboltaleik en gleymdum 3ja
stiga skyttu þeirra í lokin,“ sagði Brian
HiU, þjálfari Orlando.
AKred þjálfar KA
en hættr ad spila
- Guðmundur þjálfar lið Aftureldingar áfram
„Ég verð allavega áfram þjálfari
KA-liðsins en ég geri ráð fyrir að
hætta sem leikmaður. Ég á von að
hópurinn muni halda sér að mestu
og ég veit ekki annað en Valdimar
og Sigmar Þröstur verði áfram með
liðinu. Það eru margir ungir strákar
aö koma upp og ég er bjartsýnn fyrir
næsta tímabU. Mig langar að fylgja
þessu liði eftir, helst án þess að
spila,“ sagði Alfreð Gíslason, leik-
maður og þjálfari 1. deildar Uðs KA
í handknattleik við DV í gær en hann
hefur gengið frá áframhaldandi
samningi viö félagið.
Alfreð, sem kom KA-Uöinu í úrsUt
í bikarkeppninni og í 8-Uða úrsUt ís-
landsmótsins, lék síðustu leikina
með KA nánast á annarri löppinni
en í dag fer hann í speglun vegna
þrálátra hnjámeiðsla og gæti þurft
að fara í uppskurð.
Kemur Jakob frá Noregi?
„Við ætlum að reyna að bæta við
leikmanni í hópinn og þá í mína
stöðu svo ég geti nú hætt. Við förum
á kreik einhvern næstu daga og finn-
um mann. Einn af þeim sem koma
til greina er Jakob Jónsson en hann
Alfreð Gíslason þjálfar KA-menn
áfram.
er kannski að koma heim frá Nor-
egi,“ sagði Alfreð.
Guðmundur áfram
með Aftureldingu
Guðmundur Guðmundsson mun
stýra Uði Aftureldingar þriðja árið í
röð. Undir hans stjóm komst Uðið í
úrsUtakeppnina á sínu fyrsta ári í 1.
deild en var slegið út í 8-liða úrsUtun-
um af Haukum.
„Það er ljóst núna að hópurinn sem
Guðmundur Guðmundsson þjálfar
Aftureldingu áfram.
var í vetur mun halda sér að mestu
en við ætlum hins vegar að reyna
að styrkja hópinn enn frekar fyrir
næsta tímabU. Gunnar Andrésson er
nýkominn úr mikUU aðgerð þannig
að við vitum ekki á þessari stundu
hvort hann verður klár í slaginn fyr-
ir næsta tímabU en vonandi nær
hann sér að fullu og verður með okk-
ur næsta vetur,“ sagði Guðmundur
Guðmundsson í samtali við DV í gær.
Góð aðstaða Týs og Þórs en meistaraflokkur IBV útundan:
Leikmenn ÍBV mótmæla
- viðræður um að félögin tækju meistaraflokkana strönduðu
Þoistemn Guimaisson, DV, Eyjuitu
Leikmenn meistaraflokks ÍBV í
knattspyrnu hafa fengið sig fuUsadda
af aðstöðuleysi sínu í Eyjum. Leik-
menn liðsins og þjálfarar hafa sent
íþróttafélögunum Tý og Þór bréf þar
sem aðstöðuleysinu er harðlega mót-
mælt. Týr og Þór sjá um að reka
yngri flokkana og hafa byggt sér upp
myndarlega aðstöðu á síðustu árum.
Bæði félögin eiga glæsileg félags-
heimili og sinn grasvöUinn hvort.
Meistara- og 2. flokkur ÍBV er félög-
unum hins vegar algerlega óviðkom-
andi og sér knattspyrnuráð ÍBV al-
farið um að reka þá flokka. Eina að-
staða meistaraflokks ÍBV er bún-
ingsklefi í íþróttamiðstöðinni og lítið
herbergi í félagsheimfli bæjarins. Á
heimaleikjum IBV í 1. deUdinni þurfa
leikmenn Uðanna að ganga langa
vegalengd frá HásteinsveUi tíl bún-
ingsklefa íþróttamiðstöðvarinnar í
stað þess að nýta búningsklefa í fé-
lagsheimili Týs, sem er alveg við
HásteinsvöUinn.
í vetur hafa Týr og Þór átt í viðræð-
um um að félögin taki deUdir og ráð
ÍBV inn á sig, sérstaklega í ljósi þess
að harðnað hefur á dalnum hvað
varðar rekstur deildanna og Týr og
Þór sitja enn ein að aðalfláröfluninni
í Eyjum, Þjóðhátíðinni. Fyrirkomu-
lagið sem um er rætt er að annað
félagið fái knattspyrnu karla og
handknattleik kvenna en hitt félagið
knattspyrnu kvenna og handknatt-
leik karla. Viðræður þessar sigldu
hins vegar í strand fyrir skömmu,
aðaUega vegna þess að deUt var um
hvort kasta ætti upp á það hvaða
greinar félögin fengju. Þess vegna
eygja leikmenn ÍBV Utla von um að
aðstaða Uðsins verði bætt og því var
sent bréf tfl Týs og Þórs.
í bréfinu, sem undirritað er af leik-
mönnum ÍBV og þjálfara, eru Týr og
Þór beðin um að láta eigin hagsmuni
víkja fyrir hagsmunum heUdarinn-
ar, þaö er knattspymunnar í Vest-
mannaeyjum. í lok bréfsins segir:
„Það eina sem vantar er að stjórn-
endur Týs og Þórs leggi tU hUðar eig-
in hagsmuni og selji hag fótboltans
á oddinn. Einnig fmnst okkur ekki
viðeigandi að knattspyrnuráð, sem
hefur nóg með að reka og stjóma
knattspyrnudeUdinni, noti stóran
hluta krafta sinna til að þrasa við
menn sem eiga að vera samheijar
en ekki mótheijar í þessu máli.“
íþróttir
Mark Hateley, sóknarmaður-
inn skæði hjá Glasgow Rangers,
liefur skrifað undir nýjan þriggja
ára samning við félagið.
Gott Hjá Kuwait
LandsUö Búlgaríu og Kuwait
skUdu jöfn í vináttuiandsleík í
knattspyrnu í gærkvöldi, 2-2.
Sporting að hlið Benfica
Sporting náði Benfica á toppi
portúgölsku knattspyrnunnar í
gær með 3-1 sigri á EstorU.
SiakthjáÞjóðverjum
Þýsku heimsmeistararnir í
knattspyrnu þóttu slakir þegar
þeir sigruðu Sameinuðu arabísku
furstadæmin, 9-2, í Abu Dhabi.
Fimm uppseidir
Framkvæmdanefnd HM í
knattspymu tUkynnti í gær að
uppseh væri á fimm leiki. Það eru
Ítalía-lrland, Ítalía-Noregur,
Argentína-Grikkland, Argent-
ína-Nígería og Belgía-Holland.
LoksunnuSvíar
Sænsku óljTnpíumeistararnir í
íshokki mmu loks leik á heims-
meistaramótinu á Ítalíu í gær
þegar þeir möluöu Frakka, 6-0.
Þeir höfðu gert jafntefli við Norð-
menn og tapað fyrir Finnum.
Kanada vann Þýskaland, 3-2, í
gær og hefur unnið alia þijá leiki
sína á mótinu. Kanada og Rúss-
land standa best að vígi í A-riðli
en Bandaríkjamenn, sem unnu
Tékka, 5-3, í gær eru efstir í B-
riðli og Finnar era næstir.
SerbinntilÍA
Zoran Miljkoric, serbneski
varnarmaðurinn sem leikur með
Skagamönnum í knattspyrnunni
í sumar, kom til landsins í gær.
UEFA-þjóðir 49
Aðildarþjóðir Knattspyrnu-
sambands Evrópu eru orðnar 49
eftir aö ísrael, Azerbadjan,
Moldavía og Makedónía voru
formlega teknar inn á þingi sam-
bandsins í Vínarborg i vikunni.
Spenna í snókernum
Undanúrslitaleikimir í heims-
meistarakeppninni í snóker í
Sheffleld eru hörkuspennandi.
Þegar gert var hlé í gærkvöldi
voru Stephen Hendry og Steve
Davis jafnir, 4-4, en Jimmy White
var 4-3 yfir gegn Ðarren Morgan.
Fashanuívanda
John Fashanu hjá Wimbledon
hefur enn á ný verið klagaður til
enska knattspyrnusambandsins
fyrir hörku. Richard Jobson, leik-
maður Oldham, var fluttur á
sjúkrahús með heilahristing eftir
að hafa fengið högg frá Fashanu
í leik liðanna á þriðjudag.
Rauðuðjöflamir
Stuðningsmenn Manchester
United á íslandi, Rauðu djöflam-
ir, halda almennan félagsfund á
veitingahúsinu Feiti dvergurinn
á morgun, laugardag, kl. 14.
Eyjamenn fá liðsstyrk
>rstaim Gnnnarsson, DV, Eyjum:
Knattspymuliði ÍBV bættist óvæntur
isauki í vikunni. Þórir Ólafsson, sem
ikið hefur með 3. deildar liðinu Vast-
•vik í Sviþjóð síðastliðin 4 ár, er geng-
in til liðs við ÍBV. Þórir, sem á nokkra
aglingalandsleiki að baki, er 27 ára.
ann lék með ÍBV sumarið 1985 þegar
ÍBV vann 2. deildina en síðan fór hann
á Seyðisflörð og lék þar í nokkur ár.
Þaðan fór liann til Svíþjóðar. Þórir er
alhliða leikmaður, getur spilað á miðj-
unni og í framlínunni og hefur staðið
síg með mikilli prýöi í Sviþjóö.
Huginn til Hattar
Eyjamaðurinn Huginn Helgason er
genginn til liðs við 3. deíldar lið Hattar I
frá Egilsstöðum. Huginn, sem er 22
ára, á að 15 baki leiki í 1. deild og hef-
ur skoraö 2 mörk í þeim leikjum. Hug-
inn tók sér frí frá knattspyrnu á síö-
asta ári en hefur nú tekið fram skóna
áný.
íbr Mfl. karla, A-deild krr
REYKJAVÍKURMÓT
MEISTARAFLOKKUR KARLA
KR - VÍKINGUR
í kvöld kl. 20.00
á gervigrasinu í Laugardal
B-deild: ÞRÓTTUR-LÉTTIR á morgun kl. 17.00