Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1994, Síða 25
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994
33
pv_________________Afmæli
Ólafur Jóhannesson
Ólafur Jóhannesson, bóka- og
skjalavörður Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, til heimiiis að Boga-
hhð 10, Reykjavík, er sextugur í dag.
Starfsferill
Ólafur fæddist í Stapaseli í Staf-
holtstungum en ólst upp á Flóða-
tanga í sömu sveit. Hann stundaði
nám við Reykholtsskóla, ML og
Viskadalens folkhögskola í Svíþjóð,
lauk stúdentsprófi frá öldungadeild
MH1988 og B A-prófi í bókasafns-
og upplýsingafræðum frá HÍ1992.
Ólafur hóf störf hj á Veðurstofu
íslands 1956 og var fyrst aðstoðar-
maður á Flugveðurstofunni á Kefla-
víkurflugvelh, síðar deildarstjóri
fjarskiptadeiidar Veðurstofunnar í
Reykjavík til 1985 en hefur verið
bóka- og skjalavöröur Rafmagns-
veitu Reykjavíkur frá 1991. Hann
hefur verið búsettur í Reykjavík frá
1955.
Ólafur hefur setið í stjórn Starfs-
mannafélags ríkisstofnanna (SFR)
og var varaformaður þess um skeið,
sat í samninganefndum SFR og
BSRB, var fuhtrúi BSRB í kjara-
deilunefnd og fuhtrúi BSRB í stjórn
Vinnueftirhts ríkisins 1980-92.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 10.8.1961 Gerðu
Ásrúnu Jónsdóttur, f. 8.12.1936,
hjúkrunarfræðingi. Hún er dóttir
Jóns Stefánssonar, ritstjóra Gjahar-
hornsins og útsölustjóra ÁTVR á
Akureyri, og Gerdu Stefánsson
sjúkraþjálfara en þau eru bæði lát-
in.
Systkini Ólafs eru Jón, f. 2.3.1927,
lyfjafræðingur; Helga, f. 18.5.1928,
ljósmóðir; Guðrún, f. 28.5.1930,
starfsmaður Delta; Sveinn, f. 31.12.
1931, hreppstjóri á Flóðatanga; Ey-
steinn, f. 29.4.1934, teiknari í Kaup-
mannahöfn; Auður, f. 14.1.1936,
hj úkrunarfræðingur.
Foreldrar Ólafs voru Jóhannes
Ólafur Jóhannesson.
Jónsson, f. 24.6.1895, d. 21.12.1990,
b. í Stapafehi og síðar á Flóðatanga,
og kona hans, Ingibjörg Sveinsdótt-
ir, f. 8.9.1895, d. 3.11.1989, húsfreyja.
Ólafur og Gerða Ásrún verða á
Borgundarhólmi á afmæhsdaginn.
Sviðsljós
Vill fá „venju-
leg" hlutverk
Þegar Christian Slater er spurður
hverjum hann vildi helst hkjast þá
stendur ekki á svarinu - Spencer
Tracy. Margir eiga nú erfitt með
að sjá samlíkingu á milli þeirra
tveggja en Christian er fuhviss um
að honum takist það með tímanum.
Það sem hann þurfti fyrst og fremst
á að halda til þess er að fá hlutverk
venjulegra manna í stað þeirra fjöl-
mörgu „furðufugla" sem hann hef-
ur túlkaö í gegnum tíðina.
Christian hefur leikið frá því
hann var 8 ára gamall og eitt af því
sem hann hefur lagt mikla áherslu
á er að leika undir stjórn viður-
kenndra leikstjóra og með reynd-
um leikurum. Eins og hann gerði
með Kevin Costner í myndinni um
Hróa Hött, Sean Connery í Nafni
Rósarinnar og Jeff Bridges í Tuc-
ker. Þegar honum bauðst að leika
enn einn „furðufughnn“ í mynd-
inni Jimmy Hohywood ákvað hann
að slá th þar sem mótleikarinn er
Joe Pesci og leikstjórinn Barry Le-
vinson.
Ein af ástæðunum fyrir því að
hann ákvaö að taka hlutverki Wih-
iams í Jimmy Hollywood var að
hann var búin að skrifa undir
samning um að leika í Murder in
the First sem er réttarsaga sem
gerist á íimmta áratugnum. Þar
leikur hann ungan lögfræðing sem
fær prófmál sem er því sem næst
tapað fyrirfram. Hann ákveður
samt að berjast fyrir sigri og stork-
Christian hefur leikið fjölmörg
aukahlutverk eins og t.d. í Nafni
Rósarinnar en nú er hann farinn
að fá aðalhlutverkin sjálfur.
ar öhu kerfinu um leið.
Þegar stóri jarðskjálftinn reið yf-
ir í janúar var Christian við tökur
á Murder in the First. Það var ver-
ið aö taka upp stór réttarhöld að
viðstöddum 400 áheyrendum.
Christian var úti undir beru lofti
þegar jarðskjálftinn reið yfir en
þeir sem voru enn inni hlutu marg-
Christian Slater segir að í Holly-
wood gildi það vissulega mikið að
þekkja rétta fólkið en þegar á
hólminn er komið eru þaö hæfi-
leikarnir sem allt veltur á.
ir hverjir skrámur og marbletti.
Enginn slasaðist þó alvarlega og
sviðsmyndin skemmdist ekki mik-
ið svo að hægt var að halda áfram
án mikilla tafa en Christian segir
aö þetta hafi minnt sig allrækilega
á hversu smá við öll erum í raun
og veru.
Tilkynningar
Opið hús og afmælis-
hátíð í Samvinnuskólanum
Opiö hús og afmælishátíð verður í Sam-
vinnuskólanum á Bifröst þann 30. apríl
kl. 13-17. Starfsemi skólans verður
kynnt. Hátíðardagskrá hefst kl. 16. Meðal
efnis verður ávarp rektors, stutt yfirht
yfir sögu og þróun skólans, dagskrá frá
fyrrverandi og núverandi nemendum,
tónUst og skemmtiatriði.
Leiðrétting
í hringiðunni miðvikudaginn 27.
aprh sl. var nafn drengsins sem hlaut
fyrstu verðlaun í nýsköpunarkeppni
grunnskólanna. Hann heitir ekki
Jóhannes Elíasson heldur Haukur
Elfar Hafsteinsson.
Messa og kirkjukaffi
ísfirðinga í Reykjavík
ísfirðingafélagið gengst fyrir messu og
kirkjukaffi 1. maí kl. 14 í Breiðholtskirkju
Mjódd, Þangabakka 5, Reykjavík. Sr. Örn
Bárður Jónsson mun messa. Kirkjukaffi
að lokinni messu.
Opið hús og hátíðar-
kaffi í MÍR
Hátíðarkaffi verður að venju á boðstólum
í opnu húsi MÍR að Vatnsstíg 10 sunnu-
daginn 1. mai á alþjóðlegum baráttu- og
hátíðsdegi verkalýðsins. Húsið opnað kl.
14. Kafiihlaðboðr, hlutavelta og kvik-
myndir. Þá verða og til sýnis svartlistar-
myndir eftir listamenn frá Hvíta-Rúss-
landi og Úzbekistan.
Félag Snæfellinga
og Hnappdæla
Fjölskyldudagur félagsins verður hald-
inn 1. maí og hefst með guðsþjónustu í
Áskirkju kl. 14. Prestur sr. Ámi Bergur
Sigurbjömsson. Kaffiveitingar að lokinni
guðsþjónustu í safnaðarheimih kirkj-
unnar.
Opið hús hjá bahá’i
samkvæmt áöur auglýstri dagskrá í
Samtúni 20 á laugardagskvöld kl. 20.30.
Kvikmyndasýning
í Norræna húsinu
Sunnudaginn 1. maí kl. 14 verða sýndir
tveir þættir um Línu Langsokk sem heita:
Pippi Háller Avskedsfest og Pippi gár
ombord í Norræna húsinu. Kvikmyndin
er byggð á bók eftir Astrid Lindgren.
Sýningin tekur eina klst. og er með
sænsku tali. Allir velkomnir og aðgangur
ókeypis.
Félag eldri borg-
ara í Kópavogi
Spiluð verður félagsvist að Fannborg 8
(Gjábakka), Kópavogi, í kvöld kl. 20.30.
Húsið öllum opið.
Félag eldri borgara
i Reykjavík og nágr.
Félagsvist kl. 14 í dag í Risinu. Göngu-
Hrólfar fara að venju kl. 10 laugardags-
morgunn frá Risinu.
Leikhús
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
l Sími 11200
Stóra sviðið kl. 20.00
GAUKSHREIÐRIÐ
eftir Dale Wasserman
5. sýn. í kvöld, nokkur sæti laus, 6. sýn.
sud. 1/5, örfá sæti laus, 7. sýn. föd. 6/5,
örfá sætl laus, 8. sýn. föd. 13/5, nokkur
sæti laus.
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Simonarson
Á morgun, uppselt, þrd. 3/5, uppselt, fid.
5/5, uppselt, laud. 7/5, uppselt, sud. 8/5,
örfá sæti laus, mvd. 11/5, uppselt, fimd.
12/5, nokkur sæti laus, laud. 14/5, upp-
selt, laud 28/5, uppselt. Ósóttar pantanir
seldardaglega.
SKILABOÐASKJÓÐAN
eftir Þorvald Þorsteinsson
Ævintýri með söngvum
Á morgun kl. 14.00, örfá sætl laus, mvd.
4/5 kl. 17.00, örfá sæti laus, laud. 7/5 kl.
14.00, nokkur sæti laus, sud. 8/5, kl. 14.00,
laud. 14/5 kl. 14.00, sud. 15/5 kl. 14.00.
Ath. Sýningum lýkur sud. 15. mai.
Mlöasala Þjóóleikhússins er opln alla
daga nema mánudaga frá 13.00-18.00
og fram að sýningu sýningardaga. Tekiö
á mótl símapöntunum virka daga
frákl.10.
Græna linan 99 61 60.
Greiðslukortaþjónusta
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
GLEÐIGJAFARNIR
eftirNeil Simon
með Árna Tryggva og Bessa Bjarna.
Þýðing og staðfærsla Gisli Rúnar
Jónsson.
Á morgun, örfá sætl laus, fim. 5. maí, lau.
7. mai, fáein sæti laus, fös. 13/5.
Stóra sviðið kl. 20.
EVA LUNA
. Leikrit eflir Kjartan Ragnarsson og
Óskar Jónasson. Unnið upp úr bók Isa-
bel Allende. Lög og textar eftir Egil
Ólafsson.
I kvöld, fáein sæti laus, föstud. 6. mai,
sunnud. 8. mai, fimmtud. 12. maí, laugard.
14. maí, fáein sætl laus, næstsíðasta sýn-
ing, föstud. 20. mai siðasta sýning. Ge|s|a
diskur með lögunum úr Evu Lunu til sölu
í miðasölu. Ath.: 2 miðar og geisladiskur
aðeinskr. 5.000.
Miðasala er opin kl. 13.00-20.00 alla
daga nema mánudaga. Tekið á móti
miðapöntunum í síma 680680 kl.
10-12 alla virka daga.
Bréfasími 680383.
Greiðslukortaþjónusta.
Munið gjafakortin okkar.
Tilvalin tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavikur -
Borgarleikhús.
Einkaklúbbsball
í Festi
Laugardaginn 30. apríl stendur Einka-
klúbburinn fyrir vordansleik í Festi,
Grindavík. SSSól leikur fyrir dansi. Á
undan ballinu koma klúbbfélagar saman
á veitingahúsinu Café Bóhem og horfa á
Eurovison.
Húnvetningafélagið
Spilar á laugardag kl. 14 í Húnabúð,
Skeifunni 17. Allir velkomnir.
Félagsstarf aldraðra
I Gerðubergi
í dag, fóstudag: hárgreiðsla og fótsnyrt-
ing. 25 ára afmæh félagsstarfsins. Handa-
vinnusýning, hátíðarkaffi kl. 15, kór fé-
lagsstarfs aldraðra syngur kl. 16 undir
stjóm Sigurbjargar Hólmgrímsdóttur.
Leikfélag Akureyrar
OPEKIJ
DRAUÍiURINN
CZ
C
eftir Ken Hill
í Samkomuhúslnu kl. 20.30.
í kvöld, nokkur sætl laus, laugardag 30.
april, laugardag 7. mai, nokkur sæti laus.
Ath. Sýningum lýkur i mai!
fiar Par
eftir Jim Cartwright
SÝNT í ÞORPINU, HÖFÐAHLÍÐ1
Sýningar hefjast kl. 20.30.
Sunnudag 1. mai, föstudag 6. mai. Ath.
Fáar sýningar eftir.
Ath. Ekki er unnt að hleypa gestum i
salinn eftir að sýning er hafin.
ÆVINTÝRITRÍTILS
-barnaleikrit
Frú Emilía sýnir í samvinnu við LA
í Samkomuhúsinu.
Á morgun kl. 11. Aðeins þessi eina sýn-
ing. Verð miða kr. 400.
Aðalmiðasalan i Samkomuhúsinu er
opin alla virka daga nema mánudaga
kl. 14-18 og sýningardaga fram að
sýningu. Simi 24073.
Símsvari tekur við miðapöntunum ut-
an afgreiðslutíma.
Ósóttar pantanir að BarPari seldar í
miðasölunni i Þorpinu frá kl. 19 sýn-
ingardaga. Simi 21400.
Greiðslukortaþjónusta.
leikLiIstarskóli íslands
Nemenda
leikhúsið
SUMARGESTIR
eftir Maxim Gorki
i leikstjórn Kjartans Ragnarssonar.
Á morgun kl. 20.
Þriðjud. 3. mai kl. 20.
Miðapantanir i sima 21971.
Tónleikar
Vortónleikar Rangæinga-
kórsins í Reykjavík
verða haldnir í Fella- og Hólakirkju laug-
ardaginn 30. apríl kl. 17. Stjórnandi kórs-
ins er Elín Ósk Óskarsdóttir, píanóundir-
leik annast Hólmfríöur Sigurðardóttir og
þverflautuleik annast Maríanna Más-
dóttir. Gestir kórsins er Söngflokkur
MFA. Á efnisskránni eru íslensk og er-
lend lög.
Vísnatónleikar í
Norræna húsinu
Sunnudaginn 1. mal kl. 16 verða haldnir
opnunartónleikar Norrænna vísnadaga í
Norræn húsinu. Þar koma fram Thérese
Juel og Max Áhman frá Svíþjóð, Rod
Sinclair, fulltrúi Dana, Sinikkas Lange-
land frá Noregi, Mecki Knif frá Finn-
landi, Kári Petersen frá Færeyjum, Hörð-
ur Torfason, Guðrún Gunnarsdóttir og
Valgeir Skagfiörð frá íslandi.
Horn og orgel í
Hallgrímskirkju
Sunnudaginn 1. maí kl. 17 verða tónleikar
í Hallgrímskirkju á vegum Listvinafé-
lagsins. Jósef Ognibene og Hörður
Áskelsson leika saman á horn og orgel.
Þeir flytja verk eftir Corclli, Dandrieu,
Saint-Saöns, Strauss, Boéllmann og Tele-
man.
Einleikstónleikar
Gerðubergs
Gunnar Kvaran sellóleikari kemur fram
á fjórðu og síðustu einleikstónieikum
Gerðubergs í vetur laugardaginn 30. apríl
kl. 17 og spilar Gísli Magnússon á píanó.
Á efnisskrá eru bæði einleiksverk samin
fyrir selló og verk samin bæði fyrir selló
og píanó.
Merkjasala Björgunar-
sveitar Ingólfs
Björgunarsveit Ingólfs í Reykjavik verð-
ur 50 ára á þessu ári og mun halda upp
á það með margvíslegum hætti. M.a. er
útgáfa sérstaks afmælismerkis sem verð-
ur selt í hinni árlegu merkjasölu sveitar-
innar um þessa helgi. Söluböm á aldrin-
um 10-12 ára munu ganga í hús í Reykja-
vik og bjóða merkið til sölu á 200 kr.
Tapaðfundið
Fjallahjól tapaðist
Blátt 26 tomma fjallahjól með svörtum
yrjum tapaðist frá íþróttahúsinu í Kapla-
krika á miðvlkudagmn sl. miUi kl. 17 og
18. Finnandi vinsamlegast hringi í síma
654653.
1