Dagur - 21.12.1960, Page 9

Dagur - 21.12.1960, Page 9
éyska grund. Var ég sem ungi er veltur út úr hreiðri, þarna þekkti ég engan og enginn mig, og heilsaði engum og enginn mér. En samt vissi ég að gamla vjnkona mín var þarna og hún myndi gteiða götu mína, sem síðar kom á dag- inn. Setti ég nú upp mitt blíðasta bros og gekk til karlanna tveggja, sem ég var að blikka í vélinni og fór að daðra við þá, en þeir horfðu bæði hræddir og hissa á þennan freka kvenmann og voru ekki ginkeyptir fyrir mínum félagsskap. Sá ég nú að eytt hafði ég mínum brosum og „blikkum“ til ónýtis og iðraðist. En sá nú að annar karlinn var haltur og lofaði Guð fyrir að hafa ekki bundið trúss við þá og ákvað að vera gætnari í karlamáium eftirleiðis. Ég lagði nú ein út í lífið og treysti á mátt minn og vinkonu mína. Kom ég einhvern veg, mætti þar manni er ég heilsaði. Spurði ég hann hvort þar væri ekki til bær er Eiðar heitir. Hvað hann svo vera og ætti hann þar heima og benti mér á lágreistan bæ. Ég tjáði hon- um frá minni-ferð, en hann bauð mér heim til sín til meðdegisverðar og kvað mig ekki mundu fá fylgd um eyna né neina aðra fyrirgreiðslu fyrr en eftir miðdag. Þáði ég boð hans með þökkum og þótti nú vel á horfast. Var ég nú jekki í neinum vafa um það, hver nú væri farinn að stjórna. Fór ég nú heim með þessum gestrisna manni og var tekið forkunnar vel. Kom þá upp, að hjón þessi voru frá Húsavík og konan frænka mín í Skútustaðaætt. Þáði ég þarna góðan beina og bendingar um, hvernig haga skyldi ferð minni, svo að til mests fróðleiks og gagns mætti verða, og bauð konan mér son sinn 10 ára til fylgdar. Húsbóndinn þarna var eilthvert brot af fræðimanni eins og margir alþýðumenn. Átti hann meðal annars eina laufríka grein lausavísna, og átti ég heiðurssess í syrpu hans, þó nokkuð vafasaman. Bað ég hann að lofa mér að heyra eitthvað af því, sem við mig var kennt, las hann mér ljóðin, sumt af þessu hafði ég heyrt en sumt ekki. Ekkert af því átti ég, bað ég hann að þurrka mig út. Þótti mér þó verra, því þetta var viðkunnanlegur kveðskapur. Nú var liðin 1 klukkustund af þess- um fjórum, sem ég hafði til umráða, svo ekki var til setunnar boðið. Kvaddi ég því þetta góða fólk og heimili gömlu vinkonu minnar óg fór austur á björg með drengnum. Lögðum við á bratt- ann eftir gömlum götuslóðum manna og dýra, grasi grónum og svo þægilega gamalkunnum úr sveitinni.»jFór ég þá að hugleiða hvort ég væri á helslóð húsbóndans frá Eiðum, sem hrapaði í björgunum og skreið heim á hvíta- sunnunótt, fótbrotinn og lemstraður. Varð það hans banamein. Það mun hafa verið 1896. Hinn ungi ferðafélagi minn var skír og greinargóður drengur. Fræddi hann mig um margt viðvíkjandi kúa- og fjár- eign, búskap og lifnaðarháttum eyjar- .skeggja. Var hann þar kúasmali. Gerði ég þarna nokkrar vísindalegar athug- anir í grasafræði og komst að þeirri niðurstöðu, að þar væri að finna allt það, sem algengast er á úthaga-vall- lendi milli hafs og öræfa á ísandi, og kannaðist við margt úr minni heima- byggð. Héldum við nú austur á bjargbrún- ina og var þar bæði fagurt og ægilegt niður að líta. Þarna var fjörugt ástalíf, og fugl á öllum sillum. Ég hef aldrei verið fim að klifra, leizt mér því ráð- legast að eiga sem minnst við bjöi'gin. Þetta var heldur ekki minn fugl frá Mývatni, nema krían. Hagaði hún sér svipað og systur hennar þar. Ekki komst ég í færi, nema við einn kríu- unga. Hann var svo nauðalíkur ungan- um, sem sat á Stígatjarnar-hróinu, þegar ég var að reka kvíaærnar í gamla daga, að mig dauðlangaði til að taka hann og gæla við hann, en þorði það ekki fyrir kríunum, sem ætluðu að drepa mig. Eftir nokkra dvöl þarna á bjargbrún- inni, fór ég að taka sólarhæðina. Sá ég þá að ekki var tími til að skoða alla eyna og yrði ég því að sleppa öðrum hvorum endanum. Varð það niðurstað- an, að halda norður. Réði það úrslitum, að mig minnti að vinkona mín hefði líka átt heima á Básum, en hún stjórn- aði alveg fex-ð minni, bak við tjaldið. Skildi ég þarna við di'enginn og hélt norður að haugi Gi'íms sáluga. Þarna norður á eynni var yndislegt að vera. Ríkir þar ólýsanleg fegui'ð og friður. Þarna át ég skai-fakál og Ólafssúru og gei'ði nokki-ar fræðilegár athuganir um aldur Gi'ímseyjar, þi'óun og tilveru. Fór nú vitaminið að vei'ka á anda minn, ásamt fegui'ðinni og sögulegum minningum, sem ekki vai'ð hjá komizt að gefa útrás í ljóði. Fór ég þá að svip- ast um eftir Pegasus og kom ég brátt auga á hann, þar sem hann kroppaði gi-ængx-esið af þúfnakollunum. Hann er æfinlega þar nálægur sem hans er mest þörf. Lagði ég nú við klárinn og steig á bak. Tölti hann þai’na um þúfurnar og var hann í góðu skapi, gangþýður og taumléttur. Varð þarna til eitt ódauðlegt lítið ljóð, sem ég set hér svo það glatist ekki. Ég er á tölti um eyna, áður hér Grímur bjó og Aðalbjörg átti heima, áður en Baldvin dó. Einhver Ólafur kóngur ágirntist þennan stað, Einar Olgeii'sson sletti sér eitthvað fi’am í það. Svo kom hann séra Pétur, sem annála færði í letui', um nítjándu öldina alla, af þessu fékk hann skallá. Utlendir upp hér óðu, yfir möi'kina tróðu, þeiri'a ox'ð skildu engir betur, en Aðalbjöi'g gamla og Pétur. Átu þeir fugla og fiska, sem færðir voru upp á diska, skonrok þeir skeinktu úr pokum, skömmuðust burt að lokum. Oft komu hvítibirnir, í kólgum af norður slóð, séra Pétur þá samdi og sendi þeim ki'öftug ljóð. Enn vei'pa súlur á sillum, svartfugl og máfager. Kríurnar óðar ai'ga og ætla að sálga mér. Nú var ég orðin svo æst að yrkja, að ég lagði inn á nýjar bi'autir og fór að yi'kja atómljóð. ég elslta þennan hest sem ber mig yfir krókóttar götuslóðir þessarar sögufrægu eyjar ég finn sæta remmu úthafsöldunnar sem kemur fi'á norðuríshafinu og brotnar við björgin og deyr en andvörp hennar blandast JÓLABLAÐ DAGS 9

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.