Dagur - 21.12.1960, Qupperneq 22

Dagur - 21.12.1960, Qupperneq 22
átt hjá fénu. Það var sama hvað á vegi þess varð, kvikt eða kyrrt, lifandi eða dautt, það komst aldrei úr jafnvægi á líkan liátt og þarna átti sér stað. Frásögninni væri því í raun og veru einsaett að ljúka hér. En mig langar þó til að bæta við nokkrum orð'um. Mætti það þá skoðast sem stuttur þáttur út af fyrir sig. Daginn eftir að þetta gerðist, var ég sendur út í Tungusveit með bréf áleiðis til hreppsstjórans í Lýtingsstaðahreppi, Jóhanns Péturssonar á Brúnastöðum. Var það varðandi lömbin, sem Hjálmar fann. Skyldi Jóhann, sem hreppstjóri, ráðstafa þeim, sem hann og gerði. — Þegar ég kom út í dalinn þennan dag, þá var þar á ferð bóndi einn sem átti heima þar nokkuð út í sveitinni. Hann hafði átt eitthvei-t erindi fram í Vestur- dal daginn áður, þó ekki fram á innstu bæi. Var hann nú á heimleið, og varð ég honum samferöa um stund, ásamt fleira fólki. Annars mun hann hafa verið frem- ur fátíður gestur þar fremra. — Þetta var vel látinn sæmdarmaður, grandvar til orðs og æðis, eftir því sem ég vissi bezt, greindur í bezta lagi, falslaus og fá- skiptinn að jafnaði. En sá ljóður var á, að „fylgja“ þessa manns hafði stundum þótt hin hvumleiðasta, svo að óhöppum ýmsum, slysum á mönnum og jafnvel dauða þeirra átti að hafa valdið. Fór það ekki dult að Ábæjarskotta átti að fylgja honum, og það í frekara lagi, enda var hann allnáinn afkomandi þess fólks, sem hana átti helzt að hafa alið. Það var alkunnugt þar í sveit, að eitt hið kunnasta sagnaskáld vort um og eft- ir aldamótin síðustu, notaði einn þess- ara slysa-atburða að uppistöðu í eina sögu sína, þótt dulnefni ein séu að sjálf- sögSu greind þar. Maður þessi var nokkuð hniginn að aldri þá er þetta var. Hann var kvæntur, og áttu þau hjón tvö myndarleg og mann vænleg börn, dreng á 17. ári og stúlku, tveim eða þremur árum eldri. Pilturinn dó fáum vikum síðar, eða um miðjan desember næsta á eftir, — með voveif- legum hætti. Og þó að fátt eða ekki væri um það rætt, þá virtist það eins og liggja í loftinu, að það hörmulega slys þætti vart með eðlilegum atvikum hafa orðið. Og vissu þá allir við hvað átt var. — Stúlkan hefur hinsvegar lifað allt til þessa, og má vera að svo sé enn. Hún er horfin úr Skagafirði fyrir áratugum síðan, að heimilisfangi í það minnsta, hefur aldrei gifst né eignast afkomanda. Síðari hluta æfinnar mun hún langtím- 22 JÓLABLAÐ DAGS um saman ekki hafa borið sitt fulla barr sakir heilsubrests. Þarf því enginn lengur að óttast fylgju þessa manns, né niðja hans, því sjálfur er hann látir.n fyrir löngu, og ættleggur- inn deyr þar með út. Að sjálfsögðu vil ég ekki halda því fram, að þessi umræddi atburður á Þor- ljótsstöðum haustið 1902, hafi staðið í sambandi við för mannsins fram í Vest- urdal hinn sama dag. Til þess brestur mig alla heimild. En ég get heldur ekki neitað að þeirri hugsun hafi skotið upp hjá mér. Þegar skýringa er vant, og eng in líkleg er fyrir hendi, þá verður manni stundum fyrir að leita hins ólíklega. Og því skyldi maður ekki vera barn síns tíma — og sinnar sveitar. En jafnvel þó að svo hefði verið, að þarna hafi verið á ferðinni hin svo- nefnda fylgja mannsins, og færa hefði mátt, með einhverjum hætti, sönnur á það, — myndum við þá vera nokkru nær hinum raunverulega kjarna málsins fyrir það, og sízt að miklum mun nær? Nei, vissulega ekki. Því hvað er fylgja manns í þessari mynd, hvað er ættar- fylgja, og hvernig verður hún til, og hvernig starfar hún? Og hvernig má það ske, að einn maður, öðrum fremur, að ekki sé talað um heilan ættbálk, sé ofur- seldur þeim álögum að hljóta, án vilja síns, vitundar og nokkurra sjálfráðra að- gerða, að vekja hjá meðbræðrum sínum ótta og vinna tjón, ef svo ber undir. Jú, vitanlega hefur hver maður sín sérkenni, sinn persónuleika, og það án efa ættgengt oft að meira eða minna leyti, og vér vitum að sönnu ekki hversu mikill máttur kann að búa þar að baki. Og það má kannske kalla þetta fylgju. En það er ekki sú sem hér er átt við, heldur hin, sem verður sýnileg, heyran- leg og jafnvel áþreifanleg, og það í nokk- urri fjarlægð fré viðkomandi persónu, sem hefði orðið að vera, ef eitthvert sam band hefur verið á milli hins nefnda manns, sem var staddur einhvers staðar langt úti í Vesturdal, og þess, er gerðist samtímis fram á Þorljótsstöðum. Nei, vér stöndum þar frammi fyrir óræðu at- riði, gátu, sem ýmsir hafa glímt við, en virðist liggja utan við mörk mannlegs skilnings að leysa. Oss nútmamönnum nægja sem sé ekki lengur þau svör, er þjóðtrúin hafði áð- ur fyrr oítast við þessu, þau, að hér væru einfaldlega á ferð afturgöngur eða uppvakningar, draugar eða djöflar, for- ynjur eða fylgjur manna, og ýmsir aðrir kynjagripir. Og hún vissi einnig hvernig margt af þessu hafði orðið til. Tveir Svartdælir í Húnaþingi gerðu Ábæjar- skottu að því sem hún varð, þingeyskur bóndi Þorgeirsbola.nafngleymdur galdra- maður af Suöurnesjum Irafellsmóra o. s. frv. Og trúin vissi enn meira: Hér var Satan sjálfur að verki. Þessir menn, og aðrir slikir, sem við svona framleiðslu fengust, voru hans verkfæri og útvaldir þjónar. Og með þessum hætti var málið upplýst fyrir öllum þorra manna. Var því ekki að undra, þó að þetta þættu ekki aufúsugestir. En þetta var á meðan galdratrúarofs- inn geisaði um löndin, og ærði jafnt leikmenn sem lærða, draugatrúin óð uppi, og kenningin um myrkravöldin var prédikuð sem sjálfsagður sannleikur. — En nú er þessi faraldur genginn yfir með öllum sinum ótta og ægilegu refsidóm- um, og þjóðtrúin að þessu leyti orðin að sagnfræðilegu ævintýri, mögnuðu myrkri aldanna og ofsatrúarblandinni fáfræði. En hefur þá þjóðtrúin vaðið algera villu og reyk þarna? Var hér aðeins um oftrú að ræða, missýningar, misheyrnir og því um líkt. Það er sjálfsagt ekki á voru vaídi að komast að hinu sanna þar. En ég hygg, að fáir nútíma menn, sem á annað borð hugsa um þessi mál af al- vöru, fallist á að svo muni hafa verið að öllu leyti. Eflaust hefur trúin, og óttinn villt mörgum manni sýn þarna. Hins vegar verður það vart í efa dregið, að enn x dag gerist svo margt í kringum oss, sem vér ekki fáum ráðið fram úr, og telja verður hliðstætt sumu af því, sem áður var, að hæpið er að hafna öllu eldra. En flest mun það nú með mildara svip en áður var, enda mætir að jafnaði meiri skilningi og raunhæfari athugun. Og nú heitir það yfirleitt dularfull fyrir- brigði. Ollu lengra höfum vér ekki náð enn sem komið er, þrátt fyrir vaxandi vizku, leit og vísindi. Ef til vill opnast mönn- um einhvern tíma sýn yfir það svið, þar dulmál lífsins og tilverunnar eru skýrð og skilin, framar þvi sem nú er kostur á, og lögmálið fyrir ættarfylgjum og öðru slíku, verði oss opinberað — eða afsann- að. i,

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.