Dagur - 23.12.1964, Side 29

Dagur - 23.12.1964, Side 29
JÓLABLAÐ D AGS 29 Þegar Dreyri féll ÞAÐ var 8. júní 1939 sem eftirfar- andi atburður gerðist sem riú verð- ur skýrt frá. Var ég þá tæpra 7 ára og man vel fyrstn atburðarrásina en styðst að öðru leiti við frásagn- ir annarra sem viðlátnir voru og komu þar við sögu. Foreldrar mínir Ástríður Sæ- múndsdóttir og Jóhann Sigvalda- son bjuggu þá á Skriðulandi í Arn- arneshreppi, þar sem sögusviðið er ásamt 8 börnum, var hið elzta dreng ur, Sæmundur að nafni 14 ára en yngstar voru tvíburasystur á öðru ári. Einnig var móðuramma mín Snjólaug Hallgrímsdóttir um sjö- tugt hjá þeim, og Guðrún móður- systir mín var þar vinnandi. Faðir minn hafði um nokkurt árabil hait í vörzlu kynbótatarf, sent nautgriparæktarfélag í hreppn um átti. Var tarfur þessi stór, og þó sérstaklega sver, stórhyrntur, sót rauður að lit og nefndur Dreyri. Var faðir minn vanur að leysa naut ið sjálfur, en þó hafði Sæmundur einnig gert það stöku sinnum. Nú bar svo við umræddan dag að kom ið var með tvær kýr frá Fagraskógi, sem erindi áttu við Dreyra. Stóð þá svo á að pabbi hafði farið til Akur- eyrar um morguninn með mjólkur bílnum, en Sæmundur var í vega- vinnu þarna í sveitinni, og var Jrví ekki gott um vik. En þarna bar að Alfreð Kristensen, síðar bónda á Syðri-Bakka, á dráttarvél og leysti hann tuddann út. Þegar erindum lauk á fjóshlaðinu var Dreyri leidd ur inn í fjósið. Gekk það vel, þar til hann var að ganga upp í básinn sinn, Jrá spyrnti hann við fótum og vildi ekki lengra. Urðu Jrarna I nokkrar stimpingar, sem enduðu með Jrví að nasahringurinn í tarf- inum htíikk í sundur, enda mun hann hafa verið orðinn lélegur. Þótti Jrá viðstöddum ráðlegast að hypja sig út og loka hurð. Man ég að eitthvað af okkur krökkunum var inni í fjósinu þegar nautið varð laust. Var nú allt kyrrt um hríð í fjós- inu, en engan fýsti þar inn að koma Jrví boli hafði sýnt sig áður í nokkr um glettingum. Fjósið sem nautið var í, var að mestu úr torfi og grjóti, og veggirnir mjög þykkir. Aðeins ein þunn panelhurð var fyr ir ])ví. Nú var farið að ráðgast um hvað gera skyldi. F.kki þótti vitlegt að heimilisfólk yrði á bænum, sem var lélegur torfbær. Fór það því allt með vegavinnubíjum út í Kjarna næsta bæ við Skriðuland og dvaldi Jrar nm daginn, nema Gunn- ar á 13. ári sem átti að vera heima við og sjá um að engar skepnur kæmu í námunda við fjósið, og annna, sem neitaði að yfirgefa bæ- inn. Varð nú að ráði að senda til Hermanns bónda Stefánssonar á Kambóli. Fór Sigrún systir mín í Jrá sendiför og bað hún Hermann að athuga hvað hægt væri að gera og hafa með sér byssu. F.n Her- mann var góð skytta ráðhollnr og transtnr maður. Brá hann við og fór í Skriðuland. Þegar þangað kom, var skift um til hins verra í fjósinu. Dreyri var nú orðinn óður og öskraði voðalega. Hermann rauf ofurlítið gat á fjósþekjuna og sá nautið æða fram og aftur um fjósið á mikilli ferð. í einu kastinu rak það annað hornið, mikið og útstætt í stoð eina í fjósinu og hrökk hún sundur, við höggið. Fannst Her- manni rétt að láta pabba vita hvern ig komið væri heima hjá honum. Komst hann með bíl út í Fagraskóg en Jtangað var stytzt í síma. Náði hann sambandi við pablra og skýrði honum frá málavöxtum. Faðir minn tók sér Jrcgar bil á Akureyri og hraðaði för sinni heim. Bílstjórinn var Jóhann V. Jónsson, nú búsettur í Reykjavík. Var þá komið frarn undir hádegi. Sant- kvæmt frásögn hans var pabbi á- kveðinn í að lara inn í fjósið og reyna að sefa bola. Taldi hann lík- ur á að það tækist því hann hefði alltaf verið hlíðinn við sig. Þegar í Skriðuland kom fór pabbi í fjós- treyjuna után yfir ferðafötin og gekk síðan rakleitt inn í fjósið, en bað bílstjórann að bíða úti á með- an. Gerðist nú margt á skammri stund. Sagði faðir minn síðar að nautið hefði Jtekkt sig'Strax þegar hann kom inn í f jósið og róast nokk uð. Reyndi hann að fá bola til að fara á básinn sinn, en er Jtangað var komið, náði skapofsinn yfirhönd- inni og umhverfðist boli svo að engu tauti var við hann komið. Réðist hann á pabba með miklum ofsa og öskrum. Gunnar bróðir minn, Magnús bóndi Sigurðsson vegaverkstjóri og bílstjórinn stóðu úti fyrir og heyrðu lætin inni í Ijós inu, og varð hverft við. Fóru þeir Jrá í dyragættina og sáu hvað úm var að vera. Nautið æddi tun fjósið og J)jarmaði að pabba og hafði hann öðru hvoru á hornum sér, og barst leikurinn upp í einn básinn Gunnar tók nú fjósrekuna og keyrði hana af alefli í hrygg tudd- ans og Jóhann bílstjóri sótti einn- ir að honum. Við ]>essa óvæntu árás truflaðist boli og vildi nú sækja að hinum nyju óvinum. En básinn var Jrröngur og nautið stórt og Jmrfti það ]>ví nokkur andartök til að snúa sér við. En þau andartök liafa

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.