Dagur - 03.06.1988, Qupperneq 13
3. júní 1988- DAGUR- 13
hvað er að gerasf?
Ferðafélag Akurevrar með
ferð til Flatevjar
Ferðafélag Akureyrar mun
hefja sumarstarf sitt með
fuglaskoðunarferð á laugar-
daginn 4. júní út í Flatey á
Skjálfanda. Petta er einstakt
tækifæri til að komast til
Flateyjar og í för munu vera
kunnugir menn sem frætt
geta fólk um sögu eyjarinn-
ar og fuglalíf.
í bókinni Landið þitt
ísland er sagt þannig frá
Flatey: „Byggð hófst mjög
snemma í Flatey enda var
þar gott til fiskifanga. Á
þessari öld fjölgaði fólki þar
um skeið og var flest um
120, árið 1942. Byggðin var
öll á sunnanverðri eyjunni.
Var þar þá allmikið athafna-
líf og gerð bryggja. Komið
var upp félagsheimili og
barnaskóla. Kirkja var í
Flatey frá fornu fari, út-
kirkja frá Þönglabakka. Par
var kirkja helguð Maríu
guðsmóður í kaþólskum sið.
Árið 1894 var kirkja lögð
niður í Flatey og flutt til
Brettingsstaða en síðan vígð
að nýju í Flatey 1960. Nú er
Flatey í eyði á vetrum en
dvalist er þar við sjósókn á
sumrum."
Fyrir þá sem hafa áhuga
þá eru upplýsingar veittar
og tekið á móti skráningu í
síma 22720 milli kl. 16 og 19
í dag.
Samúel sýnir í
Alþýðubankanum
Listkynning MENOR og
Alþýðubankans á Akureyri
Sjómannadagurinn:
Fjölbreytt
dagskrá
á Akureyri
Sjómannadagurinn verður
haldinn hátíðlegur um allt
land þessa helgi. Á Akur-
eyri verður margt gert til
skemmtunar fyrir fólk á öll-
um aldri. Dagskráin hefst á
morgun, laugardag kl. 15:00
á Torfunefsbryggju þar sem
fram fer kappróður og
munu allmargar sveitir hafa
tiltynnt þátttöku.
Á sunnudaginn, sjálfan
sjómannadaginn, verða
guðsþjónustur kl. 11:00. í
Akureyrarkirkju messar sr.
Þórhallur Höskuldsson og í
Glerárkirkju sr. Pálmi
Matthíasson. Sjómenn
munu aðstoða við báðar
þessar guðsþjónustur.
Kl. 13.30 hefst dagskrá
við sundlaugina. Þar mun
lúðrasveit leika létta tóna,
ræður verða fluttar, bæði
fyrir hönd útgerðarmanna
og sjómanna og sjómenn
verða heiðraðir. Áð því
loknu fer fram stakkasund,
björgunarsund, reiptog,
koddaslagur o.fl.
Þá má ekki gleyma Slysa-
varnadeild kvenna sem mun
sjá um kaffisölu á Hótel
KEA á sunnudaginn frá kl.
15.00. Þar verða mikiar
kræsingar á boðstólum en
konurnar hafa lagt mikla
vinnu í undirbúning kaffi-
sölunnar.
kynna myndlistarmanninn
Samúel Jóhannsson. Samúel
hefur haldið 4 einkasýning-
ar, 3 á Akureyri og 1 í
Reykjavík. Hann hefur tek-
ið þátt í mörgum samsýning-
um, á Akureyri, Húsavík og
Reykjavík.
Á listkynningunni eru 12
verk, 5 akrilverk unnin á
striga og 7 teikningar með
bleki á pappír. Verkin eru
öll unnin á árunum 1987 og
1988.
Kynningin er í Alþýðu-
bankanum á Akureyri Skipa-
götu 14 og lýkur henni 1.
júlí.
Akureyri:
Tvö golftnót
um helgina
Um helgina verða haldin tvö
golfmót á Jaðarsvellinum á
Akureyri, Olíubikarinn og
Jóhannsbikarinn.
Olíubikarinn hefst á laug-
ardag kl. 13. Leiknar verða
18 holur. Á sunnudaginn
verður haldið öldungamót
þar seni leikið verður um
Jóhannsbikarinn. Mótið
hefst kl. 10 og er opið öllum
50 ára og eldri. Leiknar
verða 18 holur með og án
forgjafar.
Listahátíðardagar:
Verk Gunnlaugs Scheving
Listahátíðardagar á Akur-
eyri hefjast í kvöld með
myndlistarsýningu í Glugg-
anum. í tilefni Listahátíðar í
Rcykjavík 1988 hefur Lista-
safn Islands tekið saman
sýningu á verkum Gunn-
laugs Scheving, sem verð-
ur í Glugganum, Glerárgötu
34 og hefst hún í kvöld,
föstudaginn 3. júní kl. 21 og
mun tónlistarfólk frá Tón-
skólanum á Akureyri leika
við opnunina.
Sýningin verður opin frá
3.-12. júní og er mikill feng-
ur fyrir Akureyringa og nær-
sveitamenn að fá verk eftir
Gunnlaug Scheving til sýn-
ingar í Glugganum.
Önnur atriði á Listahátíð-
Göngugatan í dag:
Skósala Iions
heldur áfrarn
í dag ætla Lionsfélagar á
Akureyri að fara af stað á ný
með skósölu í Miðbænum.
Síðast seldist um helmingur
birgðanna, en eins og flestir
muna er hér um að ræða
ítalska gæða- leðurskó.
Mikil ásókn var í skóna og
hafa margir sem misstu af
þessum kjarakaupum haft
samband við Lionsmenn og
Ijósvakarýni
rakið raunir sínar. Þeir, sem
og aðrir hafa nú tækifæri til
að bæta fyrir skóleysið og
geta mætt í göngugötuna á
Akureyri kl. 12.00 í dag
þegar hafist verður handa.
Á boðstólum eru sem fyrr,
ódýrir skór, flestir á 200-400
krónur parið. Selt vcrður
fram eftir degi eða eins og
birgðir endast.
ardögum eru tónleikar í sal
Gagnfræðaskóla Akureyrar
10. júní þar sem finnski
baritonsöngvarinn Jorma
Hynninen syngur við undir-
leik Jónasar Ingimundar-
sonar og sýning Black Ballet
Jazz i íþróttaskemmunni 20.
júní. Pessi atriði verða
kynnt nánar síðar.
Leikfélag Akureyrar:
Fiðlarínn á þakinu
Auglýstum sýningum á Fiðl-
aranurn á þakinu fer nú
fækkandi enda komið fram í
júní og virðist þetta ætla að
Um sjónvarpsgláp
á sumarkvöldum
Á þessum tíma árs, þegar bjart
er svo til allan sólarhringinn,
dofnar áhugi margra fyrir sjón-
varpsglápi. Svo er einmitt með
mig, sem betur fer, því þegar litið
er yfir dagskrá sjónvarpsstöðv-
anna, má glögglega sjá hve hún
er döpur eins og reyndar oftast á
þessum árstíma. Á Stöð 2 er t.d.
allt of mikið um endursýndar
kvikmyndir og meira að segja
kvikmyndir sem ekkert er varið í.
Það getur verið í lagi að sjá virki-
lega góðar myndir tvisvar, en
þær verða þá að vera sérstak-
lega góðar og að liöinn sé þó
nokkur tími frá því að þær síðast
voru sýndar. Þá er ekki hægt að
ásaka Sjónvarpið fyrir að halda
fyrir fólki vöku, því nær undan-
tekningarlaust eru dagskrárlok
fyrir klukkan 23.00 virka daga.
Einn þáttur á Stöð 2 vakti
forvitni hjá mér í vikunni sem er
að líða, þátturinn um afbrota-
unglingana í Bandaríkjunum. Þar
var beitt aðferð, sem virtist mjög
áhrifarík, þ.e. að skylda afbrota-
unglinga til þess að heimsækja
fangelsi þar sem fangar, í sam-
vinnu við yfirvöld, lásu yfir þeim.
Ótrúlegt var að sjá tíu árum
síðar, hversu stórum hluta ungl-
inganna hafði tekist að halda sér
frá braut ógæfunnar.
Þá var sömuleiðis ekki hægt
annað en að setjast niður þegar
Stöð 2 kynnti knattspyrnuliðin
sem taka þátt í Evrópukeppni
landsliða á næstunni, en þar var
á ferð ágætlega unninn þáttur.
En það er engin ástæða til
þess aö örvænta vegna lélegs
sjónvarpsefnis, því hver nennir
að hanga inni yfir „imbanum" á
fallegum björtum sumarkvöldum.
Þau á að nota til þess að sinna
áhugamálum utanhúss; golf-
iðkun, gönguferðum, garðvinnu
og bílaþvotti svo eitthvað sé
nefnt. I haust er verðugara að
líta á ný á dagskrá fjölmiðlanna
og sjá hvort hún hafi ekki batnað
svo hægt sé að hafa það nota-
legt á köldum frostdögum í þægi-
legum sófa undir hlýju teppi.
Vilborg Gunnarsdóttir.
vera langt leikár hjá Leik-
félagi Akureyrar. Þrjár sýn-
ingar verða um helgina;
föstudag, laugardag og
sunnudag kl. 20.30. Sýning-
in á sunnudag er 21. sýning
á verkinu en 24. og síðasta
sýning hefur verið auglýst
laugardaginn II. júní.
Söngleikurinn Fiðlarinn á
þakinu hefur notið mikilla
vinsælda í uppfærslu Leik-
félags Akureyrar og er óvíst
livort leikfélaginu takist að
Ijúka leikárinu á auglýstum
tíma því aösóknin er enn
mikil. Væntanlegir áhorf-
endur eru þó hvattir til að
drífa sig sem fyrst vilji þeir
ekki missa af frábærri kvöld-
skemmtun.
Fiðlarinn er stór og fjöl-
menn sýning og margir sem
halda utan um hana. Stefán
Baldursson er leikstjóri,
Magnús Blöndal Jóhanns-
son tónlistarstjóri, Sigurjón
Jóhannsson leikmynda-
hönnuður, Ingvar Björns-
son Ijósameistari og Juliet
Naylor er höfundur dansa.
Leikarar, dansarar, söngv-
arar og hljóðfæraleikarar sjá
um að áhorfendur skemmti
sér vel.