Dagur - 03.06.1988, Blaðsíða 17
3. júní 1988- DAGUR- 17
Á efstu hæð frystihússins á
Grenivík, er skrifstofa Knúts
Karlssonar frystihússtjóra. Er
blaðamenn Dags áttu leið þar
um á dögunum, þótti tilheyra
að heilsa upp á hann og forvitn-
ast um hvernig daglegur rekst-
ur gengur á þessum síðustu og
verstu tímum. Frystihúsið gerir
út einn bát, en hann heitir
Núpur og er gerður út á línu.
Það hóf fyrst rekstur árið 1968
og hefur verið í stöðugri upp-
byggingu síðan.
Þennan dag var verið að vinna
grálúðu úr Hrímbaki frá Akur-
eyri og var hans von aftur innan
fárra daga. Grálúðan er heilfryst
á Japansmarkað.
Aðspurður um hvernig gengi
að gera út frá Grenivík sagði
Knútur að útgerð á bátaflotanum
væri erfið. „Það hefur verið sér-
staklega erfitt í vetur vegna afla-
skorts. Reksturinn er geysilega
erfiður núna og er það mikil
breyting frá því í fyrra. Okkur
vantar tilfinnanlega tekjuauka á
móti kostnaðarauka. Báturinn er
á útilegu og á haust- og vetrar-
vertíð hefur yfirleitt verið góður
ítalirnir eru mjög kröfuharðir á skreiðina
afli en svo er því miður ekki nú.
Við vorum einn af fáum stöðum á
Norðurlandi sem lentum í því að
það kom afturkippur í fiskvinnsl-
una við kvótakerfið og fórum við
illa út úr því."
Frystihúsið á Grenivík vinnur
aðallega á Evrópumarkað þessa
dagana. „Upphaflega unnum við
mest á Bandaríkjamarkað en
höfum fært okkur til. Svo hefur
verið saltað meira í ár en í fyrra
þar sem saltfiskurinn er hagstæð-
ari. Á vorin vinnum við þorsk í
Ítalíuskreið því það virðist gefa
góða raun. Þarna er um að ræða
stóran og góðan þorsk, yfirleitt
besta fiskinn. ítalirnir eru mjög
kröfuharðir á skreiðina, þeir
bleyta hana upp og matreiða
samkvæmt þeirra hefð. Þetta er
dýrasta varan sem við getum
framleitt í dag.“
Knútur sagði trilluútgerð á
staðnum hafa aukist. Flestir bát-
anna á staðnum leggja upp frá
Grenivík og aflinn er þá unninn í
frystihúsinu. „Trillurnar eru
dálítið á grásleppu núna, en yfir-
leitt eru þeir á handfærum, línu
eða netum.“
Um 90% afla heimabáta á
Grenivík er þorskur. „Við erum
þó alltaf tilkippilegir til að taka
allan afla sem við getum komið í
lóg." I frystihúsinu vinna á bilinu
40-70 manns yfir sumarið. Stefnt
er að því að vinna ekki lengur en
10 tíma á dag og 8 tíma á dag yfir
veturinn. Þegar mikið liggur við
er unnið á laugardögum. Unnið
er samkvæmt hefðbundnu bónus-
kerfi í frystingunni. „Við höfum
áhuga á hlutaskiptakerfi og ætl-
um að kynna okkur það nánar.
Tilraun hefur verið gerð með litla
flæðilínu og er það að mörgu leyti
gott. Það hefur verið skortur á
vinnuafli í frystihúsinu. Við erum
nú með þrjá Nýsjálendinga í
vinnu. Skortur er á leiguhúsnæði,
en fasteignaverð er lágt.“
Á Núpi eru 10-15 manns að
jafnaði og er hann úti í viku til tíu
daga. Núpur siglir mikið á Vest-
firði en var þarna í túr fyrir aust-
an. Aöspuröur um hvort einn
bátur nægði þeim sagði Knútur
svo ekki vera. „Það þyrfti að
auka afkastagetuna hjá honum
og í raun þyrftum við að hafa tvö
svona örugg skip. En verð á bát-
um er hátt um þessar mundir og
við erum ekki í stakk búnir til að
hugsa um svoleiðis lagað í bili,“
sagði Knútur að lokum. VG
SumarstuðSi
í Sjallanum
Ein vinsælasta dans-
og 5tuðhljóm5veit íslands
StuðhompanTið
heilsar sumri og shemmtir gestum Sjallans
föstudags- og laugardagskvöld.
Mu sKín sólin T Sjallanum
og allir mæta f sumarfötum.
★
Sjómannadagurínn
T Sjallanum
Að vanda heldur 5jallinn sjómannadaginn
hátíðlegan og býður alla norðlenska
sjómenn og velunnara þeirra velkomna
í glæsilegan þríréttaðan kvöldverð og
sjómannaball fram eftir nóttu.
StuðkompanTið heldur sjóriðunni
gangandi á dansgólfinu.
Óvæntar uppákomur.
Njóttu ferðarinnar!
Aktu eins og þú vilt að aðrir aki
Góða ferð! ||
UMFHROAR
RÁÐ
. SPARAÐU SP0RIN
ÞU ÞARFT EKKILENGUR
AÐ UMSKRÁ
Frá 1. júní þarf ekki lengur að umskrá
bifreið þegar hún er seld úr einu umdæmi í
annað eða eigandi flytur á milli umdæma.
Umskráningar verða þó heimilar til 31.
desember n.k.
Við sölu á bifreið þarf því eftirleiðis einungis
að senda nákvæmlega útfyllta sölutilkynn-
ingu ásamt eigendaskiptagjaldi kr. 1.500.-
til Bifreiðaeftirlits ríkisins, eða fógeta og
sýslumanna utan Reykjavíkur.
Dómsmálaráðuneytið