Dagur - 30.12.1988, Síða 2
2 - DAGUR - 30. desember 1988
Passið
ykkur á
myrkrinu!
UMFERÐAR
RÁD
f-------------------------------\
Skrifstofutækni
Eitthvað fyrir þig?
Námskeið í skrifstofutækni hefst 9. janúar.
Nánari upplýsingar veittar í síma 27899.
Tölvufræðslan Akureyri hf.
Glerárgötu 34.
V________________________________/
Sauðárkrókur:
Félagar úr Skátafélagi Eilífsbúa að undirbúa flugeldasöluna og pakka inn
tjölskyldupökkunum vinsælu. Mynd: -bjb
Vegna fréttar í Degi sl. miðviku-
dag af umferðarslysi sunnan til í
Hofteigshæð, skammt norðan við
bæinn Hof í Arnarneshreppi, er
rétt að taka fram að bíllinn sem
kom úr suðri nam ekki staðar úti
í hægri vegarkanti. Pá er ástæða
til að geta þess að gönguskíða-
mennirnir komu ekki að kyrr-
stæðum bílnum, eins og skilja
mátti af fréttinni, heldur stöðv-
uðu þeir hann.
Iláltu tonni af púðrí
skotið upp u m áramótin
Á Sauðárkróki eru það skátar
og björgunarsveitin sem selja
flugelda að venju og að þessu
sinni fer salan fram í nýbygg-
ingu sýsluskrifstofunnar og
lögreglustöðvarinnar við
Suðurgötu 1. Þar var byrjað að
selja sl. miðvikudag og að
sjálfsögðu voru guttarnir
mættir fyrstir manna. Búast
má við að Sauðkrækingar og
nærsveitamenn skjóti rúmlega
hálfu tonni af púðri upp í loftið
er þeir fagna nýju ári og
kveðja það gamla.
Flugeldasala Björgunarsveitar
Skagafjarðar og Skátafélagsins
Eilífsbúa er ein aðal tekjulind
þeirra og hingað til hafa engir
aðrir aðilar ruðst inn á þann
markað. Flugeldasalan við
Suðurgötu 1 verður opin í kvöld
til kl. 22.00 og á morgun, gaml-
ársdag, frá kl. 9-14.
Það má geta þess til gamans að
flugeldar voru seldir tvö ár í röð í
skúr á óbyggðri lóðinni við
Suðurgötu 1, þar sem þeir eru nú
seldir í nýbyggðu húsinu, svo að
segja á sama stað. -bjb
Golfklúbbur Akureyrar:
Áramótafagn-
aður að Jaðri
Félagar í Golfklúbbi Akureyrar
láta ekki deigan síga þótt nú sé
miður vetur og ætla þeir að
fagna saman komu nýs árs.
Á gamlárskvöld verður fagn-
aður að Jaðri með tilheyrandi
húllum-hæi og hefst hann um
miðnætti. Hljómsveit Finns Eydal
mun skemmta gestum fram eftir
nóttu og eru allir velkomnir. VG
Leiðrétting
■ : -
FÉLACAR í HJÁLPARSVEIT SKÁTA ÓSKA
Þökkum dyggart stuðning
Stuðlum að slysalausum áramótum
V7ð erum ykkur til aÖstoÖar
— Ávallt viöbúin
183 tonn seld úr Mar-
gréti EA í Þýskalandi
Frystitogarinn Margrét EA
710, skip Samherja hf. á Akur-
eyri, seldi 183 tonn í Bremer-
haven á miðvikudag. Gott
verð fékkst fyrir aflann sem
var mestmegnis ísaður karfi.
Eitt hundrað áttatíu og þrjú
tonn voru seld úr Margréti EA í
Bremerhaven og var heildarverð-
mæti aflans 13,2 milljónir króna.
Meðalverð fyrir aflann var kr.
72,33 sem þykir mjög gott verð.
Uppistaðan í aflanum var karfi,
eða 169 tonn, og fengust kr.
74,47 fyrir kílóið af honum. Fjög-
ur tonn af þorski seldust fyrir kr.
84,35 kílóið.
Þess skal getið að Margrét EA
er fyrsti íslenski togarinn, búinn
flakafrystibúnaði, til að selja
ísaðan fisk erlendis. Drangey frá
Sauðárkróki seldi einnig erlendis
Jólakrossgáta
- Leiðrétting
Þeir sem ráðið hafa jólakrossgátu
Dags, sem birtist í Jólablaði II
þann 20. desember sl., hafa vænt-
anlega veitt því athygli að einn
tölusetta reitinn vantar inn í
lausnina.
Lausnin er fólgin í tölusettum
reitum frá 1-76, en ef gátan er
rétt ráðin mynda stafirnir í þess-
um reitum vísu. Vegna mistaka
gleymdist að merkja reit nr. 8 en
8. stafur í lausninni á að vera J.
Krossgátuunnendur eru beðnir
velvirðingar á þessu. Jafnframt er
rétt að minna á að lausnir þurfa
að hafa borist blaðinu fyrir 16.
janúar nk.
fyrir jól en það skip er búið heil-
frystibúnaði. EHB
SkagaQörður
- Húnaþing:
Jólahald í
ró og spekt
Jólahald í Skagafjarðarsýslu
og Húnaþingi fór fram i ró og
spekt, ef marka má umsögn
lögreglunnar. Að venju voru
haldnir dansleikir víða um hér-
uð og þurfti lögreglan lítil
afskipti af þeim að hafa. Á
Skagastrandarvegi var ekið á
hross á Þorláksmessu og þurfti
að aflífa hrossið þar á
staðnum. Á nákvæmlega sama
stað var aftur ekið á hross,
þriðja í jólum, og að þessu
sinni slapp hrossið án mikilla
meiðsla. I báðum tilvikum
skemmdust bifreiðirnar tölu-
vert. Hrossin voru bæði úr
sama hópi.
Á annan í jólum voru dansleik-
ir á Blönduósi, Árgarði og í
Bifröst á Sauðárkróki og mörg
önnur lokuð samkvæmi voru
víða. Allt fór þetta friðsamlega
fram og sömu sögu má segja um
dansleiki í Víðihlíð og Ketilási
Fljótum á þriðja í jólum. í gær-
kvöld var heljarmikið barnaball á
Húnavöllum og að sjálfsögðu
verða víða dansleikir á nýársnótt.
Þá verður dansleikur á nýársdag í
Bifröst sem Kvenfélag Sauðár-
króks heldur. -bjb/fh