Dagur - 30.12.1988, Side 3
30. desember 1988 - DAGUR - 3
Hvaö segja þingflokksformenn viö áramót?
Danfríður
Skarphéðinsdóttir:
Stjórnin starfar ekki
áfram án breytinga
„Óvissan í efnahagsmálum og
óvissan um hvort ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar kæmi
bráðabirgðalögum í gegnum
þingið hefur sett mestan svip á
stjórnmálin í haust,“ segir Dan-
fríður Skarphéðinsdóttir, for-
maður þingflokks Kvennalistans.
„Þessi stjórn lagði upp með
þetta huldufólk sem enginn vissi
nánari deili á og þegar nær dró
afgreiðslu bráðabirgðalaganna
hófst örvæntingarfull leit að
stuðningi og birtist þá stuðningur
í röðum borgaraflokksmanna.
Þetta er stuðningur sem að mínu
mati er aðeins hluti af pólitískri
leikfléttu," segir Danfríður.
Danfríður segir stefna í nýjar
stjórnarmyndunarviðræður á
komandi ári. „Þessi ríkisstjórn
jafnréttis og félagshyggju hyggst
skreyta sig fjöörum mannúðar og
mildi. Mér virðist spurningin nú
vera sú hvort sá stuðningur sem
henni virðist standa til boða muni
nægja og hvort þeir sem standa
að stjórninni muni geta þegið
stuðning nú sem þeir afþökkuðu í
haust og á ég þar við Alþýðu-
bandalagið. Mér finnst ljóst að
stjórnin starfar ekki áfram án
breytinga enda flytja. álfar og
huldufólk um áramótin,“ segir
Danfríður.
Hún spáir átakamiðju stjórn-
málanna á fyrrihluta næsta árs.
Þá þurfi að koma fram áþreifan-
legur árangur af efnahagsaðgerð-
um áður en kjarasamningar
hefjast. JOH
Stefán Valgeirsson:
„Vilendurskoðatekju-
öflunarkerfl ríkísins
Stefán Valgeirsson, þingmaður
Samtaka jafnréttis og félags-
hyggju, segir að þegar staðan í
stjórnmálum er metin sé vert að
minnast hvernig ástandið var
þegar „ríkisstjórn Þorsteins Páls-
sonar hrökklaðist frá“. Menn
deili um hvað valdi þeirri slæmu
stöðu sem nú sé í efnahagsmálun-
um. Mikill fjármagnskostnaður
fyrirtækja segi hins vegar að
vandinn hafi skapast vegna efna-
hagsaðgerða ríkisstjórnar Þor-
steins Pálssonar.
„Það kann vel að vera að sum
af þeim frumvörpum sem sam-
þykkt voru fyrir jólin muni ekki
reynast eins og ætlast var til.
Reiknimeistararnir virðast því
miður ekki alltaf koma með
raunhæf dæmi og komi í ljós að
við höfum misstigið okkur að ein-
hverju leyti þá eigum við að vera
menn til að breyta því og bæta
fyrir það,“ segir Stefán.
Hann segist vilja að farið verði
ofan í tekjuöflunarkerfi ríkisins,
losna við matarskattinn og að
tekjuöflunarkerfi ríkisins miði
við að jafna aðstöðuna í þjóð-
félaginu. „Ef þessari ríkisstjórn
tekst þetta ekki þá verður hún
ekki langlíf en takist henni þetta
þá vonast ég til að hún tóri.
Veruleg skref til raunverulegs
jafnréttis þýða að stjórninni er
hætt, verði jaau ekki stigin er ann-
að uppi á teningnum. Skrefin
þarf að stíga áður en til verkfalla
kemur og verði það gert verður
meiri hófsemi á kröfugerðinni,“
segir Stefán. JÓH
Óli Þ. Guðbjartsson:
„Koma þarf í veg
fyrir sundrungu á
stjómmálasviðmu“
„Staðan í efnahags- og atvinnu-
málum þjóðarinnar er með þeim
hætti að nú reynir enn frekar á
þrautseigju og þor en verið hefur
í annan tíma, eða að minnsta
kosti í langan aldur,“ segir Óli Þ.
Guðbjartsson, formaður þing-
flokks Borgaraflokksins við ára-
mót.
Um ástandið í efnahagsmálum
segir Óli að margt bendi til auk-
ins viðskiptahalla og áfram-
haldandi offjárfestingar á höfuð-
borgarsvæðinu þar sem yfirbygg-
ing standi greinilega á brauðfót-
um. Ennfremur nefnir hann
minnkandi sjávarafla og að treg-
lega gangi að stöðva sjálfvirka
útþenslu ríkisbáknsins. Hann
segir ljósu punktana þá að verð-
lag ýmissa útflutningsvara sé hag-
stætt um þessar mundir. Ekki
megi heldur gleyma að afkasta-
geta atvinnutækja þjóðarinnar sé
mikil og að þjóðin búi yfir mikilli
aðlögunarhæfni að breyttum
aðstæðum.
Óli segir fátt þjóðinni mikil-
vægara nú en að komið veröi í
veg fyrir sundrungu og óeiningu á
stjórnmálasviðinu. „Hins vegar
þarf 'að neyta allrar orku til að
byggja brú sátta og samstarfs
milli stríðandi afla í þjóðfélag-
inu. Þetta sáttastarf þarf ekki síst
að fara fram á Alþingi, á milli
einstakra manna, flokka og fylk-
inga. Þar við liggur stundleg vel-
ferð þjóðarinnar um þessar
mundir. Ef þessi brú verður ekki
byggð þá fer illa,“ segir Óli.
JÓH
Margrét Frímannsdóttir:
„Með vorinu sést
hvemig til hefur
tekist í samstarfunf
„Staðan við þessi áramót er
vissulega öðruvísi en ég hafði
reiknað með fyrir ári. Hér sát
stjórn sem hafði mikinn meiri-
hluta á Alþingi og ég trúði því að
hún kæmi til með að sitja út
kjörtímabilið. Mér komu þessi
stjórnarslit í haust á óvart og
reyndar hef ég oft velt því fyrir
mér hvort varð ofan á, málefna-
ágreiningur eða valdatogstreita
manna innan stjórnarinnar," seg-
ir Margrét Frímannsdóttir, for-
maður þingflokks Alþýöubanda-
lagsins, er hún horfir um öxl á
stjórnmálasviðinu.
Margrét sagði það hafa verið
stóra og erfiða ákvöröun hjá
flokki hennar að ganga til sam-
starfs í þessari ríkisstjórn þar sem
mikið hafi þurft að gefa eftir af
stefnumálum flokksins.
„Hvernig til hefur tekist í
stjórnarsamstarfinu hingað til má
deila um. Hér er um bráða-
birgðalausnir að ræða og mcnn
hafa verið að vinna sér tíma til að
finna varanlegar lausnir. Eg
reikna með að með vorinu komi í
ljós hvernig til hefur tekist og þá
verður ljóst hvort þeir aðilar sem
standa að stjórninni hafa varan-
legar lausnir," segir Margrét.
Hún segir að eflaust verði að
eiga sér stað viðræður til að
tryggja ríkisstjórninni meirihluta
í neðri deild Alþingis. „Jafnvel
má segja sem svo að til að tryggja
meirihluta í deildinni verði að
eiga sér stað einhver kaup.“
JÓH
Páll Pétursson:
Óttast stjórnarand-
staðan stöðu embættis-
mannakerfisíns
„Við þessi áramót sjáum við fram
á verulega efnahagserfiðleika á
næsta ári. Maður vonar að ríkis-
stjórninni takist að hrinda í fram-
kvæmd þeim úrbótahugmyndum
sem viö höfum verið með.
Reyndar þarf að bæta viö vegna
þess að vandinn hefur vaxið frá
því stjórnin var mynduö," scgir
Páll Pétursson, formaður þing-
flokks Framsóknarflokksins.
Páll telur að stjórnin muni sitja
út kjörtímabilið. Hann segir Ijóst
að innan stjórnarandstöðunnar
sé að finna fólk sem vilji taka á
málum málefnalega og af ábyrgð
fremur en að láta það sitja fyrir
að fella ríkisstjórnina eða gera
henni erfitt fyrir.
„Ég kvtði ekki baráttunni við
harða stjórnarandstöðu á þingi.
Ég er miklu hræddari viö stjórn-
arandstöðuna í embættismanna-
kerfinu þar sem menn draga
lappirnar og framkvæma ekki
þau fyrirmæli sem stjórnin hefur
gefið. Mcð þæfingi og undan-
færslum er reynt að draga að
framkvæma vilja ríkisstjórnar-
innar. Þetta hefur beinlínis kom-
ið í veg fyrir aö sumt af ætlunar-
verkum ríkisstjórnarinnar hafi
náð fram að ganga."
Páll segir óhjákvæmilegt að
bankakerfið vcrði stokkað upp.
Það streitist viö að halda vöxtum
uppi og framkvæmi ekki þá vaxta-
lækkun sem nauðsynleg sé til aö
komist verði hjá gengislækkun.
Og þingflokksformaðurinn
segir að bændur mcgi búast við
óþurrkasumri. „Ég minnist þess
ekki að það liafi brugðist að þeg-
ar ártalið endar á 9 þá kemur
óþurrkasumar,“ segir Páll að
lokum. JÓH
Eiður Guðnason:
„Veisluföngunum
fækkar eitthvað"
Eiður Guðnason formaður þing-
flokks Alþýðuflokksins segir að
ekki hafi verið skortur á hrak-
spám frá því ríkisstjórn Stein-
gríms Hermannssonar settist á
valdastóla í lok september.
Eiður segir að tvískinnungs-
háttur og ábyrgðarleysi Sjálf-
stæðisflokksins hafi vakið þjóðar-
athygli á árinu - flokksins sem
stærði sig af því á árum áður að
vera kjölfesta hins íslenska sam-
félags. „Ábyrgð og stefnufestu
hefur verið varpað fyrir borð og
það hefur sannarlega verið ein-
kennileg reynsla að sitja að nefn-
darstörfum með fulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins, þar sem þeir
þæfa og þæfa og leggjast gegn
orðréttum ákvæðum lánsfjárlaga,
sem þeir sjálfir börðust fyrir í
fyrral," segir alþýðuþingflokks-
formaðurinn.
„Erfiðleikar í atvinnu- og efna-
hagslífi eru vissulega fyrir
hendi." segir Eiður. „Þeir eru
hins vegar yfirstíganlegir og ekki
eins miklir og opinberir vælukjó-
ar atvinnulífsins hamra sífellt á í
fjölmiðlum. Þessi þjóð hefur
undanfarin ár setiö viö veislu-
borð að verulcgu leyti upp á krít.
Það fækkar eitthvaö veisluföng-
unum, en engu að síður verður
þar nóg fyrir alla,“ sagði Eiður
Guðnason formaður þingflokks
Alþýðuflokksins. AP
Ólafur G. Einarsson:
„Sendiherrastaðan
varsterkileikurinn“
„Hvað varðar ríkisstjórnina þá er
staöa hennar veik þessa dagana.
Mér er mætavel kunnugt unt
óánægju innan stjórnarflokkana.
Hún mun hins vegar reyna að
styrkja stöðu sína með því að fá
til liðs við sig einhverja úr
stjórnarandstöðunni og ég geri
ráð fyrir að þar verði um að ræða
einstaklinga fremur en flokka.
Mér þykir líklegt að þetta gangi
eftir og af þeim sökutn sé stjórnin
ekki að fara frá,“ segir Ólafur G.
Einarsson, formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins.
Ólafur telur að í framhaldi af
þeim atburðum er gerðust á
Alþingi síðustu daga fyrir jólafrt
muni Borgaraflokkurinn klofna.
Enginn vafi leiki á að brottför
Alberts Guðmundssonar hafi þar
sitt að segja. „Ég tel að þetta boð
til hans um sendiherrastöðuna
hafi verið sterki pólitíski leikur-
inn á árinu. Ég held að um þessi
tnál hafi ekki verið samið fyrir-
fram heldur hafi þetta verið leið
til aö liðka til,“ segir Ólafur.
„Stjórnin mun á næsta ári fá
þann meirihluta sem nauðsyn-
legur er. Hún ætti að hafa ytri
forsendur til að sitja áfram og ég
spái því að hún sitji næsta ár. Ég
vil hins vegar ekki spá að hún sitji
út kjörtímabilið.“ JÓH