Dagur - 30.12.1988, Qupperneq 4
4 - DAGUR - 30. desember 1988
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÚSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 70 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR.
RITSTJÓRI:
BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON
(Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON,
FRÍMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Um áramót
Nú er liðið að lokum ársins 1988. Við áramót staldra
menn gjarnan við og horfa til tveggja átta; um öxl
og fram á við. Það er góður siður að reyna á slíkum
tímamótum að meta hið liðna, læra af reynslunni og
átta sig á hvað framtíðin kunni að bera í skauti sér.
Liðið ár hefur verið viðburðaríkt en vart er hægt að
segja með sanni að það hafi verið þjóðinni gjöfult.
Ekki svo að skilja að sjávarafli hafi verið lélegur,
þvert á móti var hann betri en búast mátti við. Hins
vegar lækkaði fiskverð á erlendum mörkuðum veru-
lega á árinu og var lægra en um langt árabil.
Afkoma fyrirtækja í sjávarútvegi varð því mun lakari
en undanfarin ár. í annan stað lék fastgengisstefn-
an og óheyrilegur fjármagnskostnaður útflutnings-
atvinnuvegina afar grátt með þeim afleiðingum að
rekstrarstöðvun blasir nú við fjölmörgum fyrirtækj-
um. Stórfelld eignatilfærsla átti sér stað frá atvinnu-
vegunum yfir til fjármagnseigenda og er talið að
margir milljarðar króna hafi skipt um eigendur með
þessum hætti á liðnu ári. Eigið fé fiskvinnslufyrir-
tækja hvarf eins og dögg fyrir sólu og mýmörg dæmi
eru um áður blómleg fyrirtæki sem nú ramba á
barmi gjaldþrots.
Segja má að greinileg þáttaskil hafi orðið í
atvinnu- og efnahagslífinu á árinu. Löngu þenslu-
tímabili lauk mjög skyndilega á vordögum þessa árs
og samdráttarskeið hófst, samdráttarskeið sem
ekki sér fyrir endann á enn. Viðbrigðin voru mikil og
flestir illa í stakk búnir til að aðlaga sig breyttum
aðstæðum. Mikill fjöldi gjaldþrotamála á liðnu ári er
til sannindamerkis um það. Ef til vill mun sú spá
rætast að ársins verði fyrst og fremst minnst, þegar
frá líður, sem árs hinna mörgu gjaldþrota. Hvað
efnahags- og atvinnumál varðar hefur árið 1988 því
síst verið þjóðinni gæfuríkt.
En árið átti sér sínar björtu hliðar einnig. Öllu frið-
vænlegra var á alþjóðavettvangi en oft áður og sam-
búð risaveldanna batnaði nokkuð. Þá hefur íslensku
þjóðinni tekist að festa sig enn frekar í sessi í sam-
félagi þjóðanna. Innanlands átti sú ánægjulega
þróun sér stað að barnsfæðingum fjölgaði mjög og
er það vel að barnsfæðingar virðast komnar í tísku á
nýjan leik, eftir langt samdráttarskeið.
Þótt margvíslegir erfiðleikar blasi við, er engin
ástæða til að örvænta. Með sameiginlegu átaki get-
ur þjóðin hæglega sigrast á erfiðleikunum nú eins
og svo oft áður. Við höfum því fyllstu ástæðu til að
vera bjartsýn þrátt fýrir óvissuna sem framundan
er. Höfum hugfast að með nýju ári koma nýjar vonir
og ný tækifæri til að skapa betra þjóðfélag og feg-
urra og betra mannlíf. Þrátt fyrir allt erum við ein-
hver auðugasta þjóð veraldar. Því skulum við aldrei
gleyma.
Dagur þakkar lesendum sínum og öðrum lands-
mönnum samfylgdina á árinu 1988 og óskar þeim
gæfu og gengis, farsældar og friðar á komandi ári.
BB.
Minnisverðir atburðir
á árinu 1988
- nokkrir valinkunnir einstaklingar líta um öxl
Hjördís Árnadóttir:
Minnisstæðast
að verða annna
„Þegar ég lít yfir atburði þessa
árs sem nú er að líða, held ég að
mér sé minnisstæðast þegar dóttir
mín hringdi frá Danmörku
aðfaranótt 16. apríl og tilkynnti
mér að ég væri orðin amma.
I starfi mínu sem forseti bæjar-
stjórnar hafa engir stóratburðir
gerst en ég minnist þess þegar.á
annað hundrað konur frá
Norðurlöndunum komu í heim-
sókn ti! Húsavíkur. Það var
ánægjulegt að taka á móti þeim.
Árið 1988 hefur einkennst af
samdrætti og slæmri stöðu
atvinnuveganna um allt land. Við
Húsvíkingar höfum ekki sloppið
við það ástand frekar en aðrir.
En ég tel að við verðum að líta
björtum augum til framtíðarinn-
ar og snúa þessari þróun við
með samstilltu átaki: Að gera
góðan bæ ennþá betri.“
Valgerður Bjarnadóttir:
Ferð til Leningrad
ogNordiskForum
„Það er auðvitað ótal margt,
en það sem á eftir að verða
mér minnisstæðast þegar fram
líða stundir er ferð mín til Len-
ingrad í apríl. Það var stór-
kostleg ferð og henni gleymi ég
seint,“ sagði Valgerður Bjarna-
dóttir, starfsmaður Brjótum
múrana á Akureyri.
„Undirbúningurinn og þátttak-
an í Nordísk Forum er einnig
mjög minnisstæð og stemmningin
sem var þar. Sjálf var ég með
fimm ára dóttur mína með mér
og það gerði upplifunina dálítið
öðruvísi og kannski ennþá magn-
aðri,“ sagði Valgerður.
Hún nefndi einnig stjórnar-
skiptin sl. haust, sem hún fylgdist
með af athygli, enda skipta
atburðir af þessu tagi þjóðina
ávallt miklu máli.
„Ég mun líka muna eftir þessu
ári sem árinu er ég tók við for-
mennsku hjá Leikfélagi Akureyr-
ar, en sá atburður skiptir auðvit-
að miklu máli í mínu lífi. Þetta er
spennandi verkefni.
Ég spurði dóttur mína hvað
henni þætti eftirminnilegast á
árinu og þá sagði hún: Jólin. Ég
get líka tekið undir það,“ sagði
Valgerður að lokum. SS
Sveinn Guðmundsson:
Heimkomur
Brettings
og Lindu
„Það sem fyrst kemur upp í
hugann eru þeir miklu erfið-
leikar sem atvinnurekstur á
landsbyggðinni hefur átt við að
etja á þessu ári,“ sagði Sveinn
Guðmundsson sveitarstjóri á
Vopnafirði er hann var beðinn
að rifja upp minnisstæðustu
atburði ársins.
„Þessir erfiðleikar hafa ábyggi-
lega ekki verið meiri í mjög íang-
an tíma. Og enn er ekki séð fyrir
endann á hvernig úr rætist.“
Stjórnarslit og myndun nýrrar
ríkisstjórnar í framhaldi af þeim
nefndi Sveinn einnig á meðal
þeirra atburða sem upp úr stæðu
er litið væri til baka. „Ég tel að
stjórnarslitin séu til komin vegna
þess að ekki náðist samkomulag
innan stjórnarinnar um lausn á
þeim vanda sem atvinnurekstur á
Íandsbyggðinni á við að glíma.“
Af heimavelli nefndi Sveinn þá
stóru stund er Brettingur, togari
þeirra Vopnfirðinga kom til
heimahafnar á miðju sumri eftir
nær árslanga dvöl í Póllandi þar
sem hann gekkst undir umfangs-
miklar endurbætur. „Kosning
Lindu Pétursdóttur sem fegurstu
konu heims er að sjálfsögðu á.
meðal minnisstæðra atburða
ársins.“
Nýtt íþróttahús var tekið í
notkun á staðnum í haust. „Þetta
er fyrsta og eina íþróttahús stað-.
arins og það var stórt átak fyrir
svo fámennt byggðarlag að koma
því upp.“ mþ
Geirmundur Valtýsson
hljómlistarmaður
á Sauðárkróki:
,Árið var óvenju
stutt og fljótt að líða“
„Minnisstæðustu atburðir líð-
andi árs eru eflaust margir, en
þeir gleymast bara svo fljótt í
hamagangi lífsins.
Mér dettur í hug náttúruham-
farirnar sem gengu yfir nágranna
okkar Ólafsfirðinga, nú seinni
hluta sumars, og vekja mann til
umhugsunar um að hamfarir af
öllu tagi geta dunið yfir okkur
fyrr en varir.
í beinu framhaldi af þeim urðu
pólitískar hamfarir þegar ríkis-
stjórn Þorsteins Pálssonar sprakk
í loft upp í beinni útsendingu, en
við tók minn maður, Steingrímur
Hermannsson, að vísu er þing-
meirihlutinn lítill, en það stendur
til bóta þegar Albert er farinn úr
landi.
Fatlaðir náðu frábærum árangri
á Heimsleikunum í Seoul, og þá
sérstaklega okkar keppandi,
Lilja María Snorradóttir, sem
náði sér bæði í gull og brons og
eru henni hér færðar hamingju-
óskir.
Við landsbyggðarfólk eignuð-
umst alheimsfegurðardrottn-
ingu, hana Lindu á Vopnafirði,
ekki var henni hampað mikið í
fjölmiðlum eftir keppnina hér
heima fyrr en hún var komin í 2,-
3. sæti hjá veðbönkum í Bret-
landi. Til hamingju Linda!!
Þegar jarðskjálftinn reið yfir
Armeníu nú fyrir fáum vikum
datt manni í hug jarðskjálftarnir
sem urðu hér úti fyrir Skagafirði
vorið 1963, þá nötraði hér allt og
skalf. Styrkleikamunurinn var 2
stig, en það breytir því ekki að
við búum á jarðskjálftasvæði.
Tónlistarárið 1988 var mér
sjálfum mjög minnisstætt. Ég
sendi lag í Eurovision-keppnina
og varð þar nr. 4 að venju. Við í
hljómsveitinni ferðuðumst víða
um land og fengum alls staðar
góðar móttökur. Og nú fyrir
stuttu varð ég í sex manna hópi
sem valinn var í skoðanakönnun
Hagvangs um hvaða höfundar
skyldu sernja lög í Eurovision-
keppnina. Vil ég þakka þeim öll-
um sem kusu að tilnefna mig.
Að lokum vil ég óska lesend-
um Dags árs og friðar, með góðu
þakklæti fyrir skemmtunina á
árinu sem er að líða.“ -bjb