Dagur - 30.12.1988, Blaðsíða 5
30. desember 1988 - DAGUR - 5
Jón Ingi Einarsson:
Hátíðarhöld vegna
bæjarréttínda
Blönduóss bera hæst
„Það sem hæst ber þegar mað-
ur er spurður svona fyrirvara-
laust eru hátíðarhöldin vegna
bæjarréttinda Blönduóss sem
voru haldin í frábærlega góðu
veðri í sumar,“ sagði Jón Ingi
Einarsson, innheimtustjóri hjá
Kaupfélagi Húnvetninga á
Blönduósi og félagi í Leik-
félagi Blönduóss þegar Dagur
spurði hann um minnisstæð-
ustu atburði líðandi árs.
„Það sem gerði þetta allt öðru-
vísi hjá okkur í leikfélaginu var
að við erum vönust því að vinna
innan okkar lokaða hóps en
þarna unnum við að stóru verk-
efni með svo mörgum öðrum.
Það gerir þetta líka minnisstætt
að við sem störfum innan leik-
félagsins þurftum dálítið fyrir
þessu að hafa. Þetta tókst að
mínu mati allt saman alveg frá-
bærlega vel og voru eftirminnileg
hátíðarhöld. Þar áttu veðurguð-
irnir stóran þátt í því veðrið var
alveg frábært þá daga sem hátíð-
arhöldin stóðu.
Svo má heldur ekki gleyma
heimsókn forseta íslands í Húna-
þing þótt veðrið væri þá ekki eins
ákjósanlegt." fh
Gísli Jónsson
ferðamálafrömuður:
„Ekki svefnsamar
nætur“
•„Mér dettur fyrst og fremst í
hug ef litið er á allt árið, mikill
„túrismi“. Það var um verulega
aukningu að ræða hjá mér, sér-
staklega í sölu sólarlandaferða til
íslendinga,“ sagði Gísli Jónsson
forstjóri Ferðaskrifstofu Akur-
eyrar. „Það sem er mér hins veg-
ar ferskast í minni núna, eru
þessar tvær Glasgowferðir sem
farnar voru í nóvember og við-
brögðin við þeim. Ég held að nú
hafi loks komið í ljós, að fólk var
þarna ekki að fara í ævintýra-
kaupmennsku, því kaupmenn
kvarta ekki yfir jólaversluninni
og þetta virðist ekki hafa komið
við þá. Hvað sjálfan mig snertir,
var tíminn rétt um það bil þegar
vélarnar voru að fara og koma
mjög taugastrekkjandi. Auðvitað
var veðrið mjög gott, nema þegar
vélarnar voru að fara en þá kom
auðvitað dálítil hríð. Það var
ekki skemmtileg tilhugsun að
þurfa e.t.v. að sitja uppi með
tvisvar 164 farþega sem kæmust
ekki í 1 dags ferð svo næturnar á
undan voru ekki mjög svefnsam-
ar. Þrátt fyrir þetta stefni ég
ótrauður að því að endurtaka
þetta á næsta ári.“
Gísli sagðist aftur á móti ekki
vera jafn bjartsýnn á næsta ár.
„Ég er hræddur um að það verði
minna í buddunni þá og að fólk
muni minnka við sig. Væntanlega
verður þá meiri eftirspurn eftir
styttri ferðum og við munum að
sjálfsögðu mæta því.“ VG
Sigurður J. Sigurðsson:
Ríkisstjómar-
skiptin
minmsstæðust
„Af erlendum vettvangi eru
nokkur atriði sem eru ofarlega í
huga og ég tel að munu sitja eftir
í minningum þessa árs. Ánægju-
legasti atburðurinn sem kemur í
hugann er frábær árangur ís-
lenskra íþróttamanna á Ólympíu-
leikum fatlaðra í Seoul. Þótt
margt athyglisvert gerðist á hin-
um hefðbundnu leikum hvarf það
fljótt úr huga þegar fréttist af
árangri hinna fötluðu landa
okkar. Að sjálfsögðu minnist
maður atburða eins og forseta-
kosninganna í Bandaríkjunum
og yfirlýsinga um stofnun sjálf-
stæðs ríkis Palestínumanna.
Það sem situr fastast í huga mín-
um eru þó jarðskjálftarnir í
Sovétríkjunum. Þeir sýna okkur
glöggt hversu vanmegnug við
erum gagnvart náttúruöflunum.
Afleiðingar þess atburðar eru
hörmulegar.
Af innlendum atburðum koma
mér fyrst í hug aurskriðurnar í
Ólafsfirði og þó svo að þær hafi
verið smáar miðað við það sem
áðan var sagt gerir maður sér enn
betri grein fyrir því hversu giftu-
samlega Ólafsfirðingar sluppu frá
þeim hamförum. Ég minnist einnig
verkfalls verslunarmanna síðast-
liðið vor og þeirra kjarasamninga
vinnuveitenda og launþega sem
undirritaðir voru hér á Akureyri.
Þeir samingar sýna að hægt er að
leiða slíkt til lykta án þess að það
þurfi að gerast á Reykjavíkur-
svæðinu. En að sjálfsfögðu er
mér efst í huga það samstöðu-
leysi sem olli því að ríkisstjórn
Þorsteins Pálssonar varð að fara
frá og ríkisstjórn undir forystu
Steingríms Hermannssonar tók
við. Þótt afleiðingar þessara
atburða muni fyrst koma fram í
næsta ári er atburðarásin sem
þessu olli enn mjög skýr í huga
mínum.“ EHB
haft ungana undir væng alla tíð.
Svo fór ég í ferðalag austur á
firði á árinu, sérstaklega fannst
mér gaman að koma í Borgar-
fjörð eystri. Það var í fyrsta skipti
sem ég fór þangað, mig hafði
lengi langað til að fara þangað.
Þetta var mjög fallegur staður og
mjög merkilegt að koma þarna,
mér fannst mjög sérstakt and-
rúmsloft. Að öðru leyti hefur
þetta ár verið mjög rólegt hjá
mér og gott, en það hefur verið
allt of fljótt að líða.
Annað sem ég man eftir eru
náttúrlega forsetakosningarnar.
Ég er ekki alveg sátt við þær, eins
og þær fóru fram. Mér finnst að
við eigum að endurskoða reglur
sem gilda um þær, mér finnst
ekki að fámennur liópur eigi að
geta stofnað til milljóna kostnað-
ar fyrir þjóðina.
Hérna á Sauðárkróki er M-
hátíðin ofarlega í huga, vígslan á
Tónlistarskólanum, togarakaup-
in og margt margt fleira.“ -bjb
Hreiðar Karlsson:
Þegar stóru blöðr-
urnar sprungu
„Það sem mér er minnisstæðast
eru þær hremmingar og hreins-
unareldur sem ýmis rekstur
bitnað á samvinnurekstrinum,
um, og ekki er séð fyrir endann
á. Sér í lagi hefur þetta ástand
bitnað á samvinnurekstrinum,
einnig á landsbyggðinni og þar á
meðal rekstri á Húsavík. Margt
má nefna í þessu sambandi. Ein
hliðin á málinu var þegar stóru
blöðrurnar fóru að springa í
Reykjavík, síðari hluta ársins, og
þeir fóru að verða gjaldþrota sem
mest hafði verið hrósað fyrir lágt
verðlag og snilli í vcrslunarrekstri
á undanförnum árum. Það verða
ansi margir sem tapa fé á þessum
Arnór Benónýsson:
Átökin á stjóm-
málasviðinu
„Ætli átökin á stjórnmálasvið-
inu í haust séu manni ekki
niinnisstæðust. Fall ríkisstjórn-
ar Þorsteins Pálssonar og
myndun ríkisstjórnar Stein-
gríms Hermannssonar,“ sagði
Arnór Benónýsson, leikhús-
stjóri hjá Leikfélagi Akureyr-
ar.
Arnór nefndi einnjg þau tíma-
mót er hann var ráðinn leikhús-
stjóri hjá Leikfélagi Akureyrar
og hóf störf á nýjum vinnustað.
„Það er auðvitað mjög minnis-
stætt og öll átökin í kringum það.
Síðan er starf mitt í sambandi við
Listahátíð í Reykjavík í vor mér
mjög minnisstætt, en ég var þar í
framkvæmdastjórn," sagði
Arnór. SS
Margrét Skúladóttir:
Stór ákvörðun að
faraaðrekaverslun
„Þetta hefur á margan hátt
verið viðburðaríkt og
skemmtilegt ár svo ég veit
varla hvað maður á helst að
nefna í þessu sambandi,“ sagði
Margrét Skúladóttir, kaup-
maður á Blönduósi þegar
blaðamaður Dags spurði hana
um minnisstæðustu atburði líð-
andi árs.
„Mér er þó minnisstæðast þeg-
ar ég keypti Búðina sérverslun á
Blönduósi annan janúar og hóf
verslunarrekstur. Það var stór
ákvörðun en allt hefur þetta
gengið fram að þessu þótt salan
fyrir jólin hafi verið minni en ég
hafði vonast til.
Svo fór ég til Þýskalands og var
þar í þrjár vikur í sumar að
slappa af og sleikja sólskinið í
Móseldalnum. Við vorum átta
saman í þessari ferð sem var sér-
lega skemmtileg eins og allar
ferðir verða með góðum ferðafé-
lögum. Þjóðverjar eru mjög góð-
ir gestgjafar og alltaf mjög gott
aö borða. Það var hreinlega
borðaður jólamatur hvern dag
sem við vorum þarna úti. Svo.var
mjög gaman þegar tvær dætur
mínar komu heim eftir ársdvöl í
Bandaríkjunum." tl1
Elsa Jónsdóttir bæjar-
ritari á Sauðárkróki:
„Mjög rólegt og
gott ár hjá mér“
„Það sem er mér efst í huga á
árinu varðandi sjálfa mig er
aðallega það að stór hluti af fjöl-
skyldu minni flutti burtu af staðn-
um og til útlanda. Það var tals-
vert stór biti fyrir rnig að kyngja,
mér fannst það vera stórt opið
hérna sem var skilið eftir. En
maður jafnar sig á því og sættir
sig við þaö, maður getur ekki
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
Í1.FL. B1986
Hinn 10. janúar 1989 er sjötti fasti gjalddagi vaxtamiöa verötryggöra
spariskírteina ríkissjóðs meö vaxtamiðum í 1. fl. B1986.
Gegn framvísun vaxtamiöa nr. 6 verður frá og meö 10. janúar nk. greitt sem hér segir:
_________Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini_kr. 3.341,60_
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuöstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10.júlí 1988 til 10.janúar1989 að viöbættum veröbótum sem fylgja hækkun
sem oröiö hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1364 hinn 1. janúar 1986
til 2279 hinn 1. janúar n.k.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gialddaga.
Innlausn vaxtamiöa nr. 6 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. jánúar 1989.
Reykjavík, 30. desember 1988
SEÐLABANKIÍSLANDS