Dagur - 30.12.1988, Síða 6
Y - flUÐAQ - 88GI' ledmaesb .G£
6 - DAGUR - 30. desember 1988
gjaldþrotum, má þar bæði nefna
marga á landsbyggðinni, sem
þessir aðilar skulduðu afurðir og
ríkissjóð, sem tapar söluskatti.
Það sem hefur glatt mig í lokin
á þessu ári er að það virðist i vax-
andi mæli sem Þingeyingar og
Húsvíkingar sjái sér vinning í því
að versla heima fyrir. Því fagna
ég afskaplega vel.“
Jóna Steinbergsdóttir:
Verkföllin
efst í huga
„Því er fljótsvarað. Verkfall
verslunarmanna og kjarasamning-
arnir eru mér efst í huga,“ sagði
Jóna Steinbergsdóttir formaður
Félags verslunar- og skrifstofu-
fólks þegar við báðum hana að
líta um öxl og rifja upp eftirminni-
legustu atburði ársins sem er að
líða. „Þetta voru erfiðir tímar því
óneitanlega er mjög erfitt að
standa í verkfalli. Ég vil fá að
nota tækifærið og koma þakklæti
til fólksins sem þá starfaði hér
dag og nótt. “
Jóna sagði, að ef litið er á árið
í heild hafi hinn almenni launa-
maður verið settur í mjög erfiða
aðstöðu með afnámi samnings-
réttar og þar með skerðingu
mannréttinda. Aðspurð um
næsta ár sagði hún: „Mér líst illa á
stöðuna. Ef atvinnuleysisvofan
verður á ferðinni sé ég ekki að
fólk treysti sér í erfiða kjarabar-
áttu. Ég vona reyndar að við
séum komin á botninn, við verð-
um að vera bjartsýn." VG
Arnar Björnsson íþrótta-
fréttamaður RÚV:
Vond tíðindi úr
stjómkerfinu
„Ólympíuleikarnir í Suður-Kór-
eu koma fyrst upp í hugann,“
sagði Arnar þegar hann var innt-
ur eftir minnisstæðustu atburðum
ársins 1988, en hann var annar
tveggja íþróttafréttamanna
Ríkisútvarpsins í Seoul á haust-
dögum. „Arið hefur verið heldur
lélegt í íþróttum. Að mínu mati
var árangur karlalandsliðanna í
bæði handknattleik og knatt-
spyrnu slakur á árinu. Eina glæt-
an hjá handknattleiksmönnunum
í landsleikjum gegn sterkari
þjóðunum, voru leikirnir gegn
Júgóslövum. Nú hafa þeir eitt
tækifæri á að sýna sig, þ.e.a.s. B-
keppnina í Frakklandi. Ef þeir
klúðra því liggur ekkert annað
fyrir en að leika við þjóðir á borð
við Bandaríkjamenn. Með öðr-
um orðum; þá fá íslendingar ekki
Iengur tækifæri til þess að keppa
við sterkar þjóðir.“
Pólitíkin sagði Arnar að kæmi
vitaskuld upp í hugann. Atburða--
rásin á þeim vettvangi á árinu
hafi að sumu leyti verið óvænt,
að sumu leyti ekki. „Það sem er
að gerast nú með Borgaraflokk-
inn kemur ekki á óvart. Ég minni
á í því sambandi hræringarnar
forðum sem leiddu til stofnunar
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna og síðar Bandalags jafn-
aðarmanna."
Þá sagði Arnar að minnisstæð
frá árinu 1988 væru vond tíðindi
úr stjórnkerfinu. Hann sagðist
vísa þarna til t.d. áfengiskaupa-
málsins og Ávöxtunarmálsins
svokallaða. „Svona mál hafa
alltaf verið í gangi en þau hafa í
ríkara mæli komið upp á yfir-
borðið og má þakka það ötulli og
harðskeyttri fréttamennsku."
óþh
Bjarni Guðleifsson
ráðunautur:
Dagur sem ég
gleymi aldrei
„Það kemur einn minnisstæður
dagur frá liðnu sumri upp í
hugann,“ sagði Bjarni Guðleifs-
son, ráðunautur Ræktunarfélags
Norðurlands. „Þá gékk ég við
annan mann upp á hátind Trölla-
skaga. Við fórum upp Héðins-
skarð og upp á fjöllin fyrir botn-
Akureyri:
Mikil kirkjusókn umjólin
- og mörg börn skírð um hátíðina
Kirkjusókn var með mesta
móti á Akureyri um jólin.
Messað var á hefðbundum tím-
um í kirkjunum og sjúkra- og
dvalarstofnunum bæjarins.
Voru að venju svo margir við
aftansöng á aðfangadag í
Akureyrarkirkju og Glerár-
kirkju að einhverjir urðu jafn-
vel frá að hverfa, að sögn.
Að auki var miðnæturmessa í
Akureyrarkirkju á aðfangadags-
kvöld. Það var í fyrsta sinn sem
slík athöfn fór þar frarn og var
hún fjölsótt eins og aðrar hátíð-
arguðsþjónustur um jólin. Lýstu
margir ánægju með þessa tilhög-
un. Virðist þessi messutími henta
þeim vel sem ekki eiga heiman-
gengt á venjulegum aftansöngs-
tíma klukkan sex.
Sóknarprestarnir á Akureyri,
sr. Birgir Snæbjörnsson og sr.
Þórhallur Höskuldsson, hafa átt
annríkt undanfarið. Sr. Birgir
sagði að mikið hefði verið um
skírnarathafnir í kirkjunni yfir
hátíðina en minna um hjóna-
vígslur. „Giftingum hefur fækkað
en þó er þeim að fjölga aftur. Það
er þróun í rétta átt,“ sagði hann.
„Giftingar dreifast nú meira yfir
árið en var hér áður,“ sagði sr.
Þórhallur, og benti á að giftingar
um jól væru fátíðari en oft áður
síðari árin.
Björn Steinar Sólbergsson,
organisti Akureyrarkirkju, skipt-
ir við Hörð Áskelsson, organista
Hallgrímskirkju, um áramótin.
Hörður mun því leika á orgelið
og stjórna kirkjukór Akureyrar-
kirkju við aftánsöng á gamlárs-
dag klukkan 18.00 og við messu á
nýársdag klukkan 14.00 EHB
um Barkárdals og Myrkárdals.
Af þverhníptum klettabeltum
horfðum við yfir jöklana og
Skagafjörð og Éyjafjörð. Útsýn-
ið var alveg stórkostlegt! Þetta er
dagur sem ég gleymi aldrei."
Bjarni sagði að myndun ríkis-
stjórnar Steingríms Hermanns-
sonar hafi komið sér á óvart.
„Miðað við mínar pólilísku
skoðanir fannst mér niðurstaða
hennar vera jákvæðari en ég
bjóst við. Já, ég er tiltölulega
sáttur við hvernig mál hafa þróast
á hinum pólitíska vettvangi.“
Bjarni sagði ýmis teikn hafa
verið á lofti á árinu um að land-
búnaður, sjávarútvegur og jafn-
vel þjónustan stefni í fjöldagjald-
þrot. „Þó svo að pólitíkin hafi
verið jákvæðari en ég átti von á
á árinu, hefur efnahagsleg þróun
verið undarleg og neikvæð.
Landbúnaðurinn er á undan-
haldi, sjávarútvegurinn stendur
höllum fæti og þjónustan og
verslunin er víða að bresta, bæði
til sveita og á höfuðborgarsvæð-
inu. Þessi þróun er að mínu viti
það neikvæðasta í þjóðfélaginu í
dag.“ óþh
Þóra Hjaltadóttir:
Forstjóraráðning,
Akureyrarsanmingar
og varaforsetakosning
- á meðal minnis-
stæðra atburða
„Þetta ár hefur verið mjög
sérstakt,“ sagði Þóra Hjalta-
dóttir formaður Alþýðusam-
bands Norðurlands. A meðal
minnisstæðustu atburðanna
sagði hún vera gerð Akureyr-
arsamninganna, ferðina á Nor-
disk Forum, ráðningu nýs for-
stjóra ÚA og þrýsting er hún
var beitt að bjóða sig fram til
varaforseta ASÍ.
„Akureyrarsamningarnir tóku
mikinn tíma, þó svo sjálf hrinan
hafi ekki tekið nema viku. Þessi
tími var erfiður og ákaflega krefj-
andi, en með því að allir lögðust
á eitt gekk þetta upp.“
Þóra hélt ásamt um 800
íslenskum konum á ráðstefnuna
Nordisk Forum sem haldin var í
Óslo síðasta sumar. „Þetta var
ákaflega skemmtilegur tími og
gaman að taka þátt í þessari ráð-
stefnu. Það verður erfitt að
endurtaka ráðstefnu með sama
glæsibrag og einkenndi þessa.“
Ráðningu nýs forstjóra til
Útgerðarfélags Akureyringa á
liðnu sumri sagði hún einnig á
meðal minnisstæðra atburða
ársins, en Þóra situr í stjórn ÚA.
„Það fór mikill tími í að ráða nýj-
an forstjóra og að mínu mati var
óþarflega mikill gassagangur í
kringum þetta. Vissulega hefði
ég viljað að þetta hefði farið á
annan veg, en sætti mig við það
sem orðið er.“
Að lokum nefndi Þóra þrýsting
félaga sinna um að bjóða sig fram
til embættis varaforseta ASÍ.
„Það var strax farið að ræða þetta
við mig í sumar, en er líða tók á
haustið varð alvaran meiri. Mig
langaði í rauninni aldrei til að
gegna þessu starfi og taldi marga
aðra hæfari til þess. En það er
mjög erfitt þegar sótt er svona á
mann að verða að afþakka gott
boð. Því ollu margir samverkandi
þættir.“ mþþ
Sigurjóii Iielgason formaður Lionsklúbbs Hríseyjar afhendir Haraldi
Oskarssyni skólastjóra ávísun að upplueð 50.(1110 krónur til tölvukaupanna.
Mynd: Hjörtur Gíslason
Grannskólinn
Hrísey eignast tölvu
I mmnel.'ivlinn ■ II ...... A I ........ C 1. - •• i
Grttnnskólinn í Hrísey eignað-
ist nýlega tölvu sem nota á við
kennslu og er hún sú fyrsta
sem í skólann kemur. Tölvan
er af gerðinni BBC-Mater
Compact og voru kaupin fjár-
mögnuð með gjöf frá Lions-
klúbbi Hríseyjar og Foreldra-
og kennarafélagi Grunnskól-
ans í Hrísey.
Alls eru 36 nemendur við skól-
ann í 0.-8. bekk. Að sögn Harald-
ar Óskarssonar skólastjóra er nú
kornið tilvalið tækifæri fyrir
nemendur skólans að kynna sér
starfsemi tölva, því þegar börnin
fara í 9. bekk á Dalvík eða að
Laugum fara þau í tölvutíma og
upplagt að hafa kynnst þeim
aðeins áður. „Þetta er hluti af
þróuninni í þjöðfélaginu," sagði
Haraldur. „Það þarf að kynna
þetta fyrir börnunum og það er
nauðsynlegt að þau fái að skoða
fyrirbærið."
Sem stendur er ekki kennari til
staðar við skólann sem getur tek-
ið að sér kennslu á tölvuna, en
stefnt er að því að ráða kennara
við skólann í haust sem m.a. gæti
tekið þennan þátt að sér. „Ef það
gengur ekki, fer ég bara sjálfur á
námskeið og tek þetta að mér,"
sagði hann. VG