Dagur - 30.12.1988, Síða 7
30. desember 1988 - DAGUR - 7
Ekki var hlaupið að því að fá lciguhúsnæði á Akureyri á árinu. Fjölskylda
flutti í ágústbyrjun inn í niðurnítt iðnaðarhúsnæði, „ekkert eldhús, engin
hreinlætisaðstaða,“ þannig hljómaði lýsing Dags á húsnæðinu. Mynd: tlv
Agúst
3. Nokkur ölvun var um verslun-
armannahelgina að vanda og á
Melgerðismelum lagði lögreglan
hald á 600-1000 flöskur af áfengi.
Þess má reyndar geta að ÁTVR á
Akureyri seldi áfengi fyrir 9
milljónir króna á tveimur dögum.
5. Fjölskylda flytur inn í niður-
nítt iðnaðarhúsnæði á Akureyri.
Ekkert eldhús, engin hreinlætis-
aðstaða. Þannig er ástandinu á
leigumarkaðinum lýst.
10. Húsnæðisstofnun ríkisins
bárust umsóknir um byggingu
472ja kaupleiguíbúða á árinu
1989. Þar af voru 46 íbúðir á
Norðurlandi eystra og 51 á
Norðurlandi vestra.
Loðnubátar eru að þreifa fyrir
sér á miðunum en árangurinn er
lítill.
Átján löggiltum húsum var
heimiluð slátrun, en alls sóttu 45
aðilar um sláturleyfi.
Framkvæmdir eru að hefjast
við Múlagöngin.
12. Golfleikari á Jaðri fékk golf-
kúlu í höfuðið og þar með kúlu á
höfuðið, en sem betur fer ekki
önnur meiðsl.
Markaðssókn Álafoss hf. er
ekki bundin við Sovétríkin því
forráðamenn fyrirtækisins reikna
með roksölu til Japans á næsta
ári.
16. Dagur greinir ítarlega frá
afmælisviku Siglufjarðarkaup-
staðar 13.-20. ágúst, en þann 20.
maí átti staðurinn 70 ára kaup-
staðarafmæli og 170 ár voru liðin
frá því Siglufjörður varð löggiltur
verslunarstaður.
17. Miklar deilur hafa verið um
vatnsból Raufarhafnar og fram
kemur að það er enn óvarið. Inn
í þetta spunnust deilur landeig-
enda og sveitarstjórnar um girð-
ingu. Síðar kom fram gallað sýni
eftir rannsókn á vatninu, þ.e.
vatnið uppfyllti ekki sett skilyrði
og fundust í því kólígerlar.
Á stjórnarfundi KEA var sam-
þykkt að fela Val Arnþórssyni að
ráða Magnús Gauta Magnússon
sem aðstoðarkaupfélagsstjóra frá
1. septemberog að hann tæki síð-
an við starfi kaupfélagsstjóra um
áramótin.
18. Verkmenntaskólinn yfirfull-
ur, segir Baldvin Bjarnason, sett-
ur skólameistari. Vísa þurfti 30-
40 umsóknum frá.
19. Önnur frétt frá Verkmennta-
skólanum skýrir frá því að 22
milljónir króna hafi týnst. Hér
var um að ræða aukafjárveitingu
til uppbyggingar skólans sem
ekki hafði komið í leitirnar.
Mjólkurstöð Kaupfélags Lang-
nesinga á Þórshöfn fékk fjögurra
ára starfsleyfi með ýmsum
skilyrðum, en mikið hafði verið
kvartað yfir vondri mjólk úr stöð-
inni.
20. í lok júlí höfðu 22 hjón gengið
í hjónaband í Akureyrarkirkju.
Aðeins 7 pör höfðu gengið í það
heilaga fyrstu 6 mánuðina en
mikill kippur kom í júlí og þá
voru gefin saman 15 hjón.
23. Borhola við Skógalón í
Öxarfiröi gaf 130 tonn/klst. af 85
gráðu heitu sjálfrennandi vatni.
Það nægir til þess að hita 1000
hús.
24. Framhjáhald við Hlíðar-
braut, er fyrirsögn á baksíðu
Dags. Segjum við ekki nánar frá
því.
25. Þennan dag voru menn
nokkuð yfirlýsingaglaðir. „Pen-
ingarnir munu finnast," segir
Árni Gunnarsson alþingismaður
um týndu milljónirnar og VMA.
„Þjóðin hefur ekki efni á neinum
leikaraskap núna,“ drynur í Þor-
steini Pálssyni forsætisráðherra
og segist hann vilja reyna niður-
færsluleiðina.
26. Rannsóknarlögreglan á
Akureyri komst á snoðir um
hasssendingu, öllu starfsfólki
Hraðfrystihúss Magnúsar Gama-
líelssonar var sagt upp störfum
og forseti íslands heimsækir
Húnaþing. Jafnframt þvertaka
heildsalar fyrir verðhækkanir og
Svartir síðsumardagar í Ólafsfirði:
Gífiirlegt tjón á húsum og lóðum
vetna viö.
Þann dag flugu forsætisráð-
herra, Þorsteinn Pálsson, Matt-
hías Á. Mathiesen, samgöngu-
ráðherra, og Guðmundur
Malmquist, forstjóri Byggða-
stofnunar, norður í Ólafsfjörð
til að kynna sér ástandið. I rnáli
þeirra kom frant að allt yrði gert
til þess að aðstoða Ólafsfirðinga
við uppbyggingu bæjarins, enda
stæði sveitarfélagið ekki undir
slíku tjóni.
Þá komu fulltrúar Viðlaga-
tryggingar norður til að meta
ástandið. Það kemur í hlut
hennar að bæta tjón á húsurn og
lóðunt. Um 60 tiíkynningar bár-
ust unt tjón á eignum, 56 vegna
tjóns á húsum og lóðunt en 4
vegna tjóns á bifreiöum. Sant-
kvæmt bráðabirgðamati Viðlaga-
tryggingar á bótaskyldu tjóni
nam það á bilinu 20-30 milljónir
króna. Þá nam kostnaður vegna
viðgerða á veginum í Ólafs-
fjarðarmúla og öðrum vegum í
nágrenni bæjarins rúmum 4
milljónum króna. óþh
í kjölfar gífurlegrar úrkomu á
Norðurlandi helgina 26.-28.
ágúst fór gegnsósa fjallshlíðin
fyrir ofan (5lafsfjarðarbæ í orðs-
ins fyllstu merkingu af stað.
Sunnudaginn 28. ágúst dundu
ösköpin yfir, Tvær stórar aur-
skriður féllu á bæinn, hin fyrri
kl. 15.30 en hin síðari kl. 18.45.
Gífurlegar skemmdir urðu á
mörgum húsagörðum og aurinn
færði bifreiðar úr stað og inn í
garða. Þá féll stór grjótskriða á
Mútaveginn og hreif með sér bíl
Konráðs Sigurðssonar. Áður en
fyrri skriðan féll hafði flætt inn í
kjallara fjölmargra húsa í
bænum. almannavarnanefnd
Ólafsfjarðar kom saman til
fundar um það mál og einmitt
þegar hún sat á fundi féll fyrri
stóra skriðan á bæinn.
Tvær stórar aurskriður féllu á Ólafsfjarðarbæ í lok ágústmánaðar. Skriðurnar ollu gífurlegu tjóni. Bótaskylt
tjón, samkvæmt inati Viðlagatryggingar nam á bilinu 20-30 milljónir króna. Mynd: tlv
Það var því skjótt brugðist
við. íbúar um 70 húsa á brekk-
unni voru fluttir úr húsum sín-
urn vegna ótta við frekari nátt-
úruhamfarir. Margir þeirra
höfðust við í Gagnfræðaskólan-
um.
Dagana eftir skriðuföllin
unnu allir þeir sem vettlingi
gátu valdið í Ólafsfirði við
hreinsun bæjarins. Síðar komu
hjálparhendur úr nágranna-
byggðarlögum. Ótrúlegt vatns-
veður gerði mönnum þó erfitt
fyrir. Ekki þótti ráðlegt að fara
upp í fjallið fyrst í stað til að
skoða aðstæöur ef það kynni að
koma fleiri skriöum af stað.
Almannavarnanefnd aflýsti
hættuástandi í Ólafsfirði fimmtu-
daginn 1. september. Þá var
loksins tekið aö rofa til og gróð-
urskemmdirnar blöstu hvar-
sirkusauglýsingar eru límdar upp
án leyfis á Akureyri. Loks kaupa
flugklúbbar á Akureyri Útgarð,
skála Menntaskólans.
30. Forsíða Dags þennan þriðju-
dag er helguð náttúruhamförum í
Ólafsfirði. Þar féllu tvær aur-
skriður á byggðina á sunnudag og
ollu miklu tjóni. Grjótskriða
hreif með sér bíl, en fólkið slapp
ómeitt. Garðar og kjallarar húsa
fylltust af aur.
Á Skagaströnd valt kranabíll í
höfnina en ökumaður bjargaði
unnustu sinni, sem var í bílnum,
úr sjónum.
31. I Ólafsfirði leggja björgunar-
menn nótt við dag, sérstaklega
við hreinsun garða. Vegurinn fyr-
ir Ólafsfjarðarmúla stórskemmd-
ist og töluvert tjón varð hjá Ós-
laxi.
Frá Útgerðarfélagi Akureyringa
berast þær fréttir að 14 sóttu um
stöðu framkvæmdastjóra og ósk-
uðu 7 nafnleyndar. SS.
September
„Stjórnvöld virðast stefna mark-
visst að því að sigla búvörusamn-
ingnum í strand." Þessi orð lét
Haukur Halldórsson, formaður
Stéttarsambands bænda, falla í
setningarræðu aðalfundar Stétt-
arsambandsins sem frarn fór í
Menntaskólanum á Akureyri
dagana 31. ágúst til 2. september.
í máli fundarmanna kom fram
hörð gagnrýni á stjórnvöld fyrir
að standa ekki við ákvæði
búvörusamnings um greiðslur til
framleiðenda.
Auk Hauks Halldórssonar
(sem að vonum er alvörugefinn á
mynd Dags) prýðir brosmildur
Magnús Gauti Gautason forsíðu
Dags 1. september. Magnús
Gauti hafði sannarlega ástæðu til
því að þann dag hóf hann störf
sem aðstoðarkaupfélagsstjóri
KEA.
„Kýr strýkur frá slátrun" segir
í fyrirsögn á baksíðu Dags 1.
september. Þar er vísað til þess
að svarfdælsk kýr strauk undan
hólkinum í Sláturhúsi KEA á
Dalvík. Mö, mö tryllti út um víð-
an völl en svo fór þó að iokum að
stjóri Útgerðarfélags Dalvíkinga,
Valdimar Bragason, náði að
skjóta hana á færi.
6. Þann dag er frétt um að byssu-
glaðir menn á trillum og hraðbát-
um hafi stundað þann ljóta leik
undan bænum Syðri-Bakka í
Arnarneshreppi að fæla upp gæs,
lýsa á hana með ljóskösturum og
drita síðan niður í stórum stíl.
Haft er eftir Daníel Behrend,
bónda á Syðri-Bakka, að þarna
hafi líklega verið um að ræða
menn sem alltaf töpuðu einvígum
við jólasteikina þegar þeir stæðu
andspænis henni á jafnréttis-
grundvelli.
7. Frá jólasteik í steypuskemmd-
ir. Grunur leikur á steypu-
skemmdum í nýrri brú yfir Krossa-
staðaá í Hörgárdal, sem steypt
var upp á liðnu sumri. Teknir
voru borkjarnar úr brúnni og
sendir til greiningar á Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðar-
ins.
8. Frá hörgdælskri brú til hörg-
dælskra sveppa. Á baksíðu er
getið um fund Sigurðar Þórisson-
ar á risasveppum í Hörgárdal.
Þessar „skepnur“ munu vera
stærstu sveppir sem fundist hafa
hér á landi. Á sömu baksíðu er
sagt l'rá Sólveigu Þórarinsdóttur,
14 ára stelpu frá Akureyri, sem
var valin úr stórurn hópi jafn-
aldra sinna til þess að taka þátt í