Dagur - 30.12.1988, Síða 8
I - - m
Heimshlaupinu 88 í Nýju Jórvík í
Bandaríkjunum.
Það kemur einstaka sinnum
fyrir að ánægjulegur gluggapóst-
ur dettur inn um bréfalúguna.
Það leit út fyrir að hlaupið hefði á
snærið hjá Gísla Bergssyni á
Akureyri í september. Þá fékk
hann rafmagnsreikning frá Raf-
veitu Akureyrar sem sýndi að
hann ætti þar inni rúmlega eina
milljón króna. Því miður fyrir
Gísla kom þó á daginn að þessi
innstæða var ekki til staðar.
Rangur innsláttur á tölvu Raf-
hf. á Dalvík.
23. A sama tíma og stjórnmála-
foringjar reyndu allt hvað þeir
gátu til þess að koma saman
starfhæfri ríkisstjórn bárust dap-
urlegar fréttir frá Ólafsfirði, upp-
sagnir í báðum frystihúsum á
staðnum. Lýst er þungum
áhyggjum forsvarsmanna frysti-
húsanna, verkalýðsfélagsins og
bæjarfélagsins og fram kemur að
rekstur fiskvinnslunnar hafi
sjaldan eða aldrei verið erfiðari
en einmitt á þessum tímapunkti.
óþh
Guðmundur Kristjánsson, verktaki, fór flatt á fyrsta vetrarsnjónum sem féll
aðfaranótt 26. september. Tíu hjóla Scania-vörubifrcið Guðmundar rann til
í liálku við bæinn Austurhlíð í Eyjafirði og lagðist á liliðina. Þrettán tonna
hlass var á pnllinum og grind bílsins skemmdist verulcga. Ekki urðu nein slys
á mönnum. Mynd: GB
veitunnar haföi töfrað fram millj-
ónina.
13. Og nú út í Grímsey. Þaðan
bárust þær fréttir að jörð hafi
skolfið ótæpilega en „menn tóku
þessu með jafnaðargeði," svo
vitnað sé til orða Þorláks Sigurðs-
sonar, oddvita þeirra Grímsey-
inga. Sterkasti skjálfti skjálfta-
hrinunnar, sem stóð yfir í nokkra
daga, mældist 5,2 stig á Richters-
kvarða. Sá kippur kom að kvöldi
mánudagsins 12. september. Vil-
borg Sigurðardóttir á skjálfta-
vaktinni í Grímsey tjáði blaða-
manni Dags að hún myndi ekki
aörar eins jarðhræringar. Þá
sagði Vilborg að fólk hafi orðið
órólegt og safnast saman víða um
eyna til skrafs og ráðagerða.
14. Páll Einarsson, jarðeðlis-
fræðingur segir í samtali við Dag
að upptök skjálftanna hal'i verið
15 km frá eynni. Hann ásamt
fleiri vísindamönnum flaug norð-
ur í Grímsey um miðnætti mánu-
daginn 12. september. Haldinn
var fundur með eyjarskeggjum
þar sem jarðvísindamenn
útskýrðu hvað væri að gerast í
„undirdjúpunum".
15. Á baksíðu Dags er frétt þess
efnis að „Búsetaæði hafi gripið
um sig á húsnæðismarkaðinum."
Þar er vísað til þess að á örfáum
vikum hafi um 500 manns gengið
í húsnæðissamvinnufélagið Bú-
seta.
17. í öllu volæði haustmánuða er
gleðifrétt þann 17. september. Þá
er sagt frá því að svo mikil sala
hafi verið í fiskifóðri frá ístess hf.
á Akureyri að vinna hafi þurft
allan sólarhringinn. Pétur
Bjarnason, markaðsstjóri ístess,
segir að fyrirtækið hefði getað
selt mun meira en það hafi náð
að framleiða.
21. Umdeilt mál í bæjarpólitík-
inni var til lykta leitt þann 20.
september. Þá var Gunnar
Ragnars, forstjóri Slippstöðvar-
innar og forseti bæjarstjórnar,
ráðinn annar tveggja frani-
kvæmdastjóra ÚA frá og með
áramótum. Hann tekur við starf-
inu af Gísla Konráðssyni. Miklar
umræður spunnust um þessa
ráðningu, ekki síst eftir að Gísli
gat' út þá yfirlýsingu að hann vildi
ekki sjá eftirmann sinn af hægri
væng stjórnmálanna. Undir það
síðasta var valið milli Gunnars
Ragnars og Péturs Reimarsson-
ar, framkvæmdastjóra Sæplasts
OKtóber
1. október uröu eigendaskipti á
því fengsæla skipi Súlunni EA-
300. Samningar voru undirritaðir
um kaup hlutafélagsins Súlunnar
hf. á skipinu af Leó Sigurðssyni.
Að Súlunni hf. standa Sverrir,
sonur fyrri eiganda skipsins,
Bjarni Bjarnason, skipstjóri Súl-
unnar og Finnur Kjartansson,
yfirvélstjóri þess.
6. Sextíu tonna bátur frá Dalvík,
Sæljón EA-55, sökk 5. október
25 mílur norður af Siglunesi. Þrír
menn voru um borð og björguð-
ust þeir allir yfir í Bjarma EA-13.
Lcki kom að Sæljóninu um kl.
13.30 og réðu skipverjar ekki
neitt við neitt. Báturinn hvarf
síöan í djúpið um kl. 17.
7. Pálmi Guðmundsson, útvarps-
Þorsteinn Pálsson baðst lausnar
fyrir sig og ráðuneyti sitt í september:
Sleingrímur tók við
Stjómarráðslyklinum
Ársins 1988 verður líklega
minnst sem árs þenslu í efna-
hagslífi og umróta í pólitíkinni.
Ríkisstjórn Framsóknar,
Alþýðuflokks og Sjálfstæðis-
flokks geispaði golunni eftir
langar, og að því er mörgum
fannst, hatrammar dauðateygj-
ur. Ekki eru allir á eitt sáttir um
af hverju fjaraði smám saman
undan ríkisstjórninni. Albert
sagði að ríkisstjórn Þorsteins
hafi allan sinn starfsferil verið í
stjórnarmyndunarviðræðum.
Halldór Blöndal sagði að mein
stjórnarinnar hafi frá upphafi
verið stjórnarandstaða Stein-
gríms Hermannssonar. En Jón
Baldvin lét þau orð falla að
ríkisstjórnin hafi fallið vegna
haldleysis orða sjálfstæðis-
manna. Skotin gengu á víxl og
menn kenndu hvor öðrum um
eins og pólitíkusa er siður.
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, baðst
lausnar fyrir sig og ráðuneyti
sitt laugardaginn 17. septcm-
ber. Forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir fól Steingrími
Hermannssyni, formanni Fram-
sóknarflokksins umboð til
myndunar meirihlutastjórnar
mánudaginn 19. september. I
hönd fóru langir og strangir
fundir, formlegir sem óformleg-
ir, um stöðu mála. Um trma leit
út fyrir að stjórnarmyndunin
færi út um þúfur. Alþýðubanda-
lagsmenn, a.m.k. nokkrir úr
þeirra röðum, voru harðir á
móti þátttöku Borgaraflokksins
í stjórninni. Til þess kom þó
aldrei þar sem Stefán Val-
geirsson, þingmaður Samtaka
jafnréttis og félagshyggju,
ákvað að ganga til liðs við ríkis-
stjórn Steingríms Hermanns-
sonar, með þátttöku Framsókn-
ar, Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags.
Ríkisstjórnin tók formlega
við stjórnartaumunum miðviku-
daginn 28. september. Sérstaða
hennar er lítill þingstyrkur. í
neðri deild nýtur hún ekki meiri-
hlutastuðnings en hún getur
varist vantrausti í efri deild og
sameinuðu þingi. ÓÞH
Furöu glaðbeittur Þorsteinn afhendir Steingrími Iykla sem áður höfðu
hangiö á lyklakippu hans.
stjóri Hljóðbylgjunnar, segir í
samtali við Dag að útvarpsstöðin
ætli að færa út kvíarnar, nefni-
lega að dæla poppi og tilheyrandi
upplýsingum yfir höfuðborgar-
búa. Leyfi útvarpsréttarnefndar
fékkst og þann 1. desember hóf-
ust útsendingar stöðvarinnar í
Reykjavík.
11. Á forsíöunni er frétt þess
efnis að Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri hafi fengið leyfi til
kaupa á sneiðmyndatæki fyrir
röntgendeild FSA. I fréttinni seg-
ir að tæki þetta muni gerbreyta
allri rannsóknaraðstöðu á nýju
röntgendeildinni.
Ellefti október 1988 verður
skráður með stóru letri í sögu
Ólafsfjarðar og ekki síður í sam-
göngusögu íslendinga. Þá hófst
formlega jarðgangagerð í Múlan-
unt. Langþráður draumur Ólafs-
firðinga var orðinn að veruleika.
Það var Steingrímur J. Sigfússon,
samgönguráðherra, sem sprengdi
fyrstu sprengihleðsluna.
14. Frá fiskeldisfyrirtækinu
Steingrímur J. Sigfússon, jaröfræðingur og samgönguráðherra, varð þess heiðurs aðnjótandi að sprengja fyrstu
hleösluna í Ólafsfjarðarmúla 11. október. Snæbjörn Jónasson, vegamálastjóri (hattmaðurinn til vinstri) og Bjarni
Kr. Grímsson, bæjarstjóri í Ólafsfirði (sá skeggjaði fjær) fylgjast með tilburðum ráðherra. Mynd: tlv
Miklalaxi hf. í Fljótum bárust
þau ánægjulega tíðindi að fyrir-
tækið hafi náð mjög hagstæðum
samningum um sölu 1,7 milljón
laxahrogna til Chile. Heldur dap-
urlegri tíðindi eru á baksíðu
Dags laugardaginn 15. október.
Þar er haft eftir Bjarna Þór Ein-
arssyni, bæjarstjóra á Húsavík,
að alvarlega horfi í atvinnumál-
um Húsvíkinga. Rekstrarstaða
fyrirtækja, einkum þeirra sem
tengist landbúnaði og sjávarút-
vegi sé mjög alvarleg.
18. Óvenjulegt deilumál er til
umfjöllunar á síðum Dags. Upp
kom ósætti milli forsvarsmanna
Borgarbíós og Hrafns Gunn-
laugssonar, kvikmyndaleikstjóra,
vegna fyrirhugaðra sýninga á „í
skugga hrafnsins". Deilan stóð
um þær krónur af hverjum seld-
um aðgöngumiða sem bíóið átti
að fá í sinn hlut. Ymis óvenjuleg
orð féllu í þessari „rimmu“. Um
framkvæmdastjóra Borgarbíós
lét Hrafn þessi orð falla: „Út-
kjálkahrokinn og drambið var
slíkt að ég á engin orð . . . þetta
var með eindæmum."
19. Á mynd á forsíðu Dags er
broshýr stúlka frá Sauðárkróki,
Lilja M. Snorradóttir. Hún hafði
ríka ástæðu til því að daginn áður
komst hún á verðlaunapall austur
í Seoul á Ólympíuleikum fatlaðra
fyrir þriðja sætið í 100 m bak-
sundi. Húsvíkingurinn Jónas
Óskarsson komst einnig á verð-
launapall á Ólympíuleikunum
18. október, fyrir annað sætið í
100 m baksundi.
Sama dag er frétt um að selst
hafi upp í dagsferð til Glasgow á
vegum Ferðaskrifstofu Akureyr-
ar. Miðarnir, sem giltu í Glas-
gow-ferð mánuði síðar eða 19.
nóvember, seldust upp á tveimur
dögum.
20. Síldarævintýri á Austfjörð-
um. Allt vitlaust að gera í síldinni
og rnikil ásókn fólks í að vinna
við síldarsöltun. Haft er eftir Búa
Þór Birgissyni hjá Hraðfrystihúsi
’Eskifjarðar að útlendingar sækist
mikið eftir að komast í síldina.