Dagur - 30.12.1988, Page 9
30. désember 1988 - DAGUR - 9
1. Skagstrendingur hf. kannar
kaup á tveimur bátum frá Grinda-
vík og á sama tíma standa yfir
viðræður um kaup á tveimur
togurum frá Keflavík til Sauðár-
króks. Sem kunnugt er olli þetta
mál miklu fjaðrafoki víða.
3. Á forsíðu er greint frá því, að
hlutur greiðslukorta í veltu versl-
ana á Akureyri sé um 40%, en á
baksíðu segir Birkir Skarphéð-
insson formaður Kaupmanna-
samtaka Norðurlands að inn-
kaupaferðir til útlanda séu tómt
rugl og engar skemmtiferðir.
Ástæða þessarar yfirlýsingar voru
skipulagðar Glasgowferðir frá
Akureyri.
4. Sigurður G. Ringsted ráðinn
forstjóri í dag, segir í fyrirsögn á
forsíðu en á baksíðu segir að
fjórða hvert ungmenni hafi verið
farþegi hjá ölvuðunt ökumanni.
Kemur það fram í könnun sem
JC Akureyri gekkst fyrir.
8. Öllu starfsfólki vélsmiðjunnar
Atla á Akureyri var sagt upp
störfum, alls um 20 manns, en
áður hafði 130-150 málmiðnað-
armönnum verið sagt upp yfir-
vinnu hjá ýmsum fyrirtækjum á
Akureyri. Þá ályktar aðalfundur
Landssambands hestamannafé-
laga að þeir harmi úrsögn ey-
firsku hestamannafélaganna úr
sambandinu og telji það stórtjón.
9. Sæblik hf. á Kópaskeri hefur
verið lýst gjaldþrota og er talið
að skuldir fyrirtækisins séu
umfram eignir. Einnig er skýrt
frá því að Presthólahreppur sé í
ábyrgðum fyrir Sæblik og muni
tapa á annan tug milljóna.
10. Kvótinn hjá ÚA er á þrotum
og Vilhelm Þorsteinsson segir
það einsdæmi í sögu félagsins.
11. Sættum okkur ekki við þessa
niðurstöðu, segir bæjarstjórinn í
Ólafsfirði en ríkissjóður hefur
krafið bæjarfélagið um 9,4 millj-
ónir króna í endurgreiðslu vegna
staðgreiðsluskatta sem voru of-
reiknaðir. Akureyrarbær fékk
hins vegar ávísun upp á 43 millj-
ónir króna og segir bæjarstjóri
þar að upphæðin sé í samræmi
við það sent þeir hafi átt von á.
15. Á baksíðu er spurt hvort
sjúklingar séu svangir og vísað til
ummæla sem féllu á ráðstefnu
hjúkrunarfræðinga á Akureyri.
Er fullyrt að sjúklingar á sjúkra-
húsum séu vannærðir þar sem
þeir hafi margfalda næringarþörf
miðað við heilbrigt ástand. Deil-
ur vegna kvikmyndarinnar „í
skugga hrafnsins" halda áfrant og
nú fullyrðir framkvæmdastjóri
Borgarbíós að lélegt hljóð í
myndinni sé um að kenna fúski í
framleiðslu.
16. Enn er fjallað um hugsanleg
togarakaup til Sauðárkróks og
spurt hvort Eldey muni kaupa
hlut SÍS í HK. Varaformaður
stjórnar ÚS segir að ef svo verði,
séu skipaskiptin úr sögunni. Þá er
skýrt frá því að Dyno A/S hafi
keypt 50% hlut í Plasteinangrun
hf.
19. Norðlendingar eru að vonunt
stoltir í dag, enda fegursta kona
heims frá Vopnafirði. Hlaut hún
þennan titil kvöldið áður í Royal
Albert Hall í Lundúnum.
22. Á Akureyri hefur verið
Furðulegur fiskur kom í vörpu Drangeyjar SK-1 þegar skipið var að veiðum í Rósagarðinum svokallaða. Fiskibækur
í Héraðsskjalasafni Skagafjarðar megnuðu ekki að skera úr um hvaða skepna væri þarna á fcrðinni. Hölluðust menn
að því að um væri að ræða einshvers konar rottufisk. Á myndinni heldur Sigurður Kárason, bátsmaður á Drangeyju,
á fiskinum. Mynd: -bjb
„Þeir eru eins og engisprettu-
plága,“ segir hann.
21. Laxveiði í ám á Norðurlandi
jókst um 21% frá sumrinu 1987.
Veiðifræðingar búist við veiði-
toppi á Norðurlandi eystra og
Austfjörðum á komandi sumri.
Frá laxveiði að bátsstuldi. Eig-
endur Þóris Guðmundssonar GK
116 struku með bát sinn frá skipa-
smíðastöðinni Mánavör á Skaga-
strönd í skjóli myrkurs aðfara-
nótt 21. október. Ekki fylgir sög-
unni hvort þeir losnuðu með
þessu móti endanlega frá
skuldunum.
28. „Eru sauðaþjófar á afréttum
Mývetninga?" er baksíðufyrir-
sögn þennan dag. Hún vísar til
grunsemda manna um að gegn-
umskotnar me,me-hauskúpur,
sem fundust sl. sumar, séu verk
sauðaþjófa. „Það heíur enginn
verið staðinn að verki og við vit-
um ekki hverjir eru þarna á ferð-
inni en það virðast vera alveg
þaulkunnugir menn,“ eru orð
Mývetnings um þetta dularfulla
mál.
Vopnfirðingar fjölmenntu á flugvöllinn þegar Linda Pétursdóttir fegursta
kona heims kom heim í jólafrí. Mynd: tlv
Norska fyrirtækið Dyno A/S keypti síðla árs helminginn í Plasteinangrun hf.
á Akurcyri.
laugardaginn 3. desember.
Aðstandendur stöðvarinnar segja
dagskrá hennar vera mjög frá-
brugðna dagskrá hinna stöðv-
anna. Einkunnarorð Ólundar eru
„Ólund - hvort sem þú ferð í
sund, eða á l'und."
6. Samherjamenn gerðu það gott
á árinu 1987. Það ár höfðu sjó-
menn á skipum fyrirtækisins
næsthæstu meðallaun fyrir
ársverkið eða rúmar 3,5 milljónir
króna. Sjómenn á Guðbjörgu ÍS
voru hins vegar á toppnum með
3,8 milljónir.
7. Niðurstöður könnunar Verð-
lagsstofnunar á verði og gæðum
nautahakks, sem kunngerðar
voru 6. desember vöktu mikl'a
athygli. Fram kom að nokkur
fyrirtæki höfðu blandað svína-
kjöti í nautahakkið. Þá leiddi
athugun RALA einnig í ljós að
nautahakk var sums staðar bland-
að kindahakki. Tvö fyrirtæki sent
urðu uppvís að því voru Kjör-
markaður KEA og kjötvinnsla
Dúdda. Verslunarstjóri Kjör-
markaðar KEA þvertók fyrir
þetta og lét þessi orð falla við
blaðamann Dags: „...það er frá-
leitt að halda því frain að við
séurn vísvitandi að blanda þess-
um tveimur kjöttegundum
saman."
8. Tilraunabruggun á þýska
„Innkaupaferðir til Glasgow eru tómt rugl og engar skemintiferðir," segir forinaður Kaupniannasamtakanna á
Akureyri. Þangað lögðu nokkur hundruð Akureyringa leið sína í nóvember og keyptu bjór úr bíl við heimkomuna.
Nóvember
handtekinn kynferðisafbrota-
maður sem leitaði á 4ra-6 ára
stúlkur í Þorpinu. Nefnd sem
fjallað hefur um sjávarútvegs-
fræðibraut við Háskólann á
Akureyri leggur til að kennsla
hefjist næsta haust.
23. Hofsóshreppur á í miklum
fjárhagserfiðleikum og hefur lagt
inn beiðni um aðstoð til félags-
málaráðuneytisins. Þá er skýrt
frá þeirri tísku að læra flugvirkj-
un, en ásókn í námið er mun
meiri en vinnumarkaðurinn getur
tekið við.
24. Hugsanlegt er að umtalsvert
magn af íslensku fjallalambi
verði selst til Sovétríkjanna, en
þarlendir viðskiptafulltrúar hafa
látið í ljós áhuga á slíkum kaup-
um. Þá hefur verið felldur dómur
gegtt KÞ en bændur fengu
greiðslur fyrir sauðfjárafurðir
ekki á réttum tíma.
26. Stærsti vinningur í Lottói frá
upphafi skiptist milli tveggja
aðila á Norðurlandi og fékk hvor
um sig 7,1 milljón króna. Það
munar unt minna enda sagði ann-
ar þeirra, að sér liði eins og ríkis-
stjórri sem leyst hefur efnahags-
vandann til frambúðar. VG
Desember
1. Blátt furðufyrirbæri sást á lofti
að kvöldi 29. nóvember. Haft er
eftir Magnúsi Jónssyni veður-
fræðingi að allt bendi til að þarna
sé um að ræða loftstein.
3. Ný útvarpsstöð, sem ber nafn-
ið Ólund, fór í loftið á Akureyri